Tíminn - 27.01.1995, Qupperneq 1
STOFNAÐUR 1917
79. árgangur Föstudagur 27. janúar 1995 19. tölublaö 1995
Kemur í Ijós aö áhyggjur
heimamanna vegna nýja
vegarins í Botnastababrekk-
unni voru á rökum reistar:
Nýi vegurinn
varla nothæfur
Heimild til verkfaiisbobunar til stjórnar Dagsbrúnar var veitt á fjölmennum félagsfundi í Bíóborginni ígœr. Stjórn Dags-
brúnar fór fram á heimildina eftir aö slitnaöi upp úr viörœöum, svokallaös Flóabandalags fyrir helgina, en íþvíeru auk Dagsbrúnar, Verkamannafélagiö
Hlíf og Sjómannafélag Keflavíkur. Þaö var mikill hugur í Dagsbrúnarmönnum ígœr og Ijóst er aö þeir munu sýna hörku í komandi samningum. Allir þeir
sem Tíminn rœddi viö í gœr bjuggust viö verkfalli og því höröu. Á myndinni má sjá hvar fundarmenn samþykktu verkfallsheimildina. Tímamynd cs
Rúmlega 20 milljaröa kr. afgangur á vöruskiptum vib útlönd eftir 20% aukningu
á útflutningi:
Innflutningur neysluvara óx
um 40 þús. kr. á fjölskyldu
Nýi vegurinn upp svokallaöa
Botnastaöabrekku í Bólstaöar-
hlíöarhreppi var lokaöur um
tíma í síöustu viku vegna
snjóa og varö aö notast viö
þann gamla. Heildarkostnaö-
ur viö þennan vegarspotta var
á annaö hundraö milljónir
króna, en Kolbeinn Erlends-
son, bóndi í Bólstaöarhíöar-
hreppi, segir aö nýi vegurinn
sé á snjóþyngsta staö í brekk-
unni.
Vegurinn sem liggur upp úr
Austur Húnavatnssýslu upp á
Vatnsskarö þar sem Skagafjarö-
arsýsla tekur viö, er hluti af
þjóövegi 1. Hann var opnaöur
meö viöhöfn í sumar, en tilboö
verktaka sem vann hann undir
.malbik var tæpar 100 milljónir
króna. Heildarkostnaöur mun
iiafa l'arið talsvert yfir þaö. Áður
en hafist var handa viö vega-
lagninguna bentu heimamenn
á aö vegarstæðið væri óhentugt
vegna snjóþyngsla á og bentu á
aö nýi vegurinn væri betur
kominn ofar í brekkunni. Þetta
var rneira aö segja gert skriflega.
„Ég held að það reynist rétt
sem viö sögöum aö það veröi
aldrei vetrarvegur þarna," sagöi
Kolbeinn Erlendsson í samtali
viö Tímann í gær. „Það reif allt-
af af gamla veginum og hann
var yfirleitt auöur. En á þessum
stað, þama er eiginlega sama af
hvaöa átt hann er, þaö sest allt-
af snjór á veginn og sérstaklega
er þetta slæmt í norðan- og
norðaustanáttinni." ■
Sigurbur fær
skýrslurnar
Hæstiréttur dæmdi í gær
Tómas Helgason, yfirlækni á
geödeild Landspítalans, Ríkis-
spítalana, landlækni og heil-
brigöisráöuneytiö til aö af-
henda Sigurði Þór Guöjónsyni
upplýsingar um þaö sem skráö
er um hann í sjúkraskrám, sem
eru í vörslu Tómasar persónu-
lega eöa sem yfirlæknis. Undir-
réttur haföi áöur dæmt Siguröi í
óhag, en þeim dómi var skotið
til Hæstaréttar. ■
Innflutningur á matvörum,
drykkjarvörum og öröum
neysluvörum ásamt fólksbíl-
um, þ.e. vörum sem aðallega
eru keyptar af almennum
neytendum, var rösklega
35% heildarinnflutnings til
landsins á nýliðnu ári.
Alls voru þessar vörur flutta?
inn fyrir tæplega 33 milljaröa
króna í fyrra, eða nær 2,8 millj-
öröurn króna hærri upphæö
heldur en áriö áöur. Aukning-
in, 9,2% milli ára, viröist at-
hygliverö í ljósi þess aö laun
meginþorra landsmanna
hækkuöu lítiö sem ekkert milli
sömu ára. Viöbótin er kringum
40 þús.kr. á meðalfjölskylduna
miöaö viö fob. verö sem þýöir
vafalítið a.m.k. tvöfalt hærri
upphæö úr úr búð. Heildarinn-
flutningur til landsins nam
93,2 milljörðum króna í fyrra.
Hins vegar fengust 113,5 millj-
aröar fyrir útfluttar vörur. Þjóö-
in átti því 20,3 milljarða af-
gang á vöruskiptareikningi sín-
um eftir áriö. Þaö er 8,2 millj-
aröa betri útkoma heldur en
áriö 1993.
Vöruútflutningur lands-
manna varð 18,8 milljöröum
krónum meira í fyrra en árið
áöur. Þetta er um 20% aukning
í krónum talið, en 14% raun-
aukning ef tillit er tekiö til
5,2% hækkunar á meðalverði
gjaldeyris milli ára. Vöruinn-
flutningur jókst miklu minna,
eða um 10,6 milljaröa. Þaö er
tæplega 13% hækkun í krón-
um taliö en 7% ef reiknað er á
föstu gengi.
Sjávarafuröir voru 76% alls
útflutnings á árinu. Fyrir þær
fengust nú rúmlega B5,7 millj-
aröar króna. Þaö var 11,1 millj-
aröi króna meira heldur en áriö
áöur. Krónunum fjölgaöi því
um 15% en aukningin í gjald-
eyrisverömætum (á föstu
gengi) var 9,3%.
Meðal áberandi breytinga
milli ára eru stóraukin (144%)
skipakaup, eöa úr 1,6 milljörð-
um upp í 4 milljarða í fyrra.
Álútflutningur jókst um
fjórðung milli ára á föstu
gengi, eða úr 8,3 í rúma 10,8
milljarða króna. Innflutningur
álverksmiðjunnar (rúmlega
41% af útflutningsverðmætun-
um) jókst hins vegar ekki. Út-
flutningur járnblendiverk-
smiðjunnar var 2,7 milljaröar,
8% aukning á föstu gengi, en
innflutningur 780 milljónir. ■
Flugvallarlögregluþjónar œttu ab losa sig vib byssurnar eba þjálfa sig í mebferb þeirra:
Spurning um aö
vopnin eöa læra
Þarf lögreglan á Keflavíkur-
flugvelli að geta gripið til
vopna eöa þarf hún þess ekki?
Þetta er spurning sem Ríkis-
endurskobun telur ab menn
þurfi ab gera upp við sig hjá
sýslumannsembættinu á
Keflavíkurflugvelli. Veröi ekki
talin þörf á ab lögreglan beri,
eba hafi aðgang aö vopnum,
ætti hún aö losa sig vib þann
vopnabúnaö sem hún ræöur
losa sig viö
meöferö þeirra
yfir. Sé hins vegar talin þörf á
ab hægt verbi ab grípa til skot-
vopna þyrfti aö þjálfa lög-
reglumennina í mebferð
þeirra og hafa þau tiltæk en
ekki í geymslu út í bæ.
í skýrslu Ríkisendurskoöunar
segir að nokkurt magn vopna
hafi veriö keypt fyrir sérsveit
lögreglunnar á Keflavíkurflug-
velli sem endanlega var síðan
lögö niöur árið 1992. Lögreglu-
menn séu nú óvopnaöir viö
störf og fái litla þjálfun í vopna-
buröi. Veröi hins vegar talin
þörf á því að lögreglan geti grip-
iö til vopna þyrfti aö koma upp
öruggri geymslu í sjálfri flug-
stöðvarbyggingunni og þjálfa
lögreglumenn í meðferö skot-
vopna. „í dag eru þau geymd
annars staðar og er seinlegt ab
nálgast þau komi til neyðar-
ástands í flugstööinni. Tæpast
er viö því aö búast aö þörf veröi
fyrir vopnaða lögreglu annars
staöar á starfssvæöinu," segir
Ríkisendurskoöun.
Veröi þaö hins vegar ofan á
að lögreglan vopnist aldrei, væri
rétt aö embættið losi sig við
þann vopnabúnað sem fyrir
hendi er. Lögreglunni í Reykja-
vík hafi veriö lánaö nokkuð af
þessum búnaði og eðlilegt aö
hún kaupi hann formlega. ■