Tíminn - 24.03.1995, Blaðsíða 2
2
Föstudagur 24. mars 1995
Tíminn
spyr...
Er samkeppni á milli olíufélag-
anna í haettu vegna stofnunar
nýs dreifingarfyrirtækis Olís og
ESSO?
Ingimar Halldórsson, fram-
kvæmdastjóri Frosta hf. í
Súbavík:
„Miöað við það sem hefur veriö
lagt upp í fjölmiðlum sé ég ekki
annað en olíufélögin þrjú sem
eru á markaðinum, muni halda
áfram þeirri samkeppni sem
verið hefur. Ef þaö verður að
veruleika að Irving Oil komi
hingað til lands, þá getur allt
gerst. Ég sé hins vegar engin
hættumerki vib kaup Esso í Ol-
ís og stofnun sameiginlegs
dreifingafyrirtækis."
Runólfur Ólafsson, fram-
kvæmdastjóri Félags íslenskra
bifreibaeigenda:
„FÍB kvartaði til Samkeppnis-
stofnunar vegna samræmingar
í verðlagningu á olíu og bensíni
á vo.rmánuðum 1993. Seinna
sama ár kom fram í fréttabréfi
stofnunarinnar, að vegna fá-
keppni kæmist eitt fyrirtæki
ekki hjá því að lækka verö ef
hin fyrirtækin lækkuðu. Fá-
keppnin er enn til staðar, en þó
er til viðbótar von á erlendri
samkeppni, þannig að sameig-
inlegt dreifingarfyrirtæki þess-
ara tveggja olíufélaga til að
draga úr kostnabi kemur ekki á
óvart. Hagræðingin á að skila
sér í lækkuöu eldsneytisveröi.
Þess vegna þarf ab fylgjast vel
með þróuninni og þá sérstak-
lega hvernig verðbreytingar er-
lendis skila sér hér á landi."
Herbert Gubmundsson, fé-
lagsmálastjóri Verslunarrábs
íslands:
„Nei, vegna þess ab þetta er ab
verba alþjóöamarkabur og ein-
angrun rofin. Því er ekki nokk-
ur hætta á að samkeppni skorti
í framtíðinni."
Kjararannsóknarnefnd fann óvœntar kauphœkkanir sem ábur höfbu uppgötvast í skattheimtunni:
Dagvinnukaupiö hækkaöi 1,9%
þótt kauptaxtar væru óbreyttir
Vib mat á launum ASÍ fólks á
síbasta fjórbungi ársins 1994
og sama fjórbungi 1993
komst Kjararannsóknarnefnd
ab þeirri niburstöbu ab tíma-
kaupib hefbi hækkab um
1,9% og mánabartekjurnar
um 3,7% á árinu, þrátt fyrir
óbreytta kauptaxta á tímabil-
inu. Má því segja ab Kjara-
rannsóknarnefnd hafi nú
fundib þær óvæntu kaup-
hækkanir sem fjármálarábu-
neytib var ábur búib ab upp-
götva vib uppgjör skattaárs-
ins í síbasta mánubi. Og þar
sem framfærslukostnabur
hækkabi abeins 0,2% frá 4.
ársfjórbungi 1993 til sama
fjórbungs 1994 þá reiknast
þessar kauphækkanir nær all-
ar sem kaupmáttaraukning
(þ.e. 1,7% og 3,5%). Meiri
hækkun mánabartekna en
tímakaups skýrist af lengingu
vinnuvikunnar.
Þessi 1,9% meöalhækkun
tímakaupsins hefur skipst mis-
munandi milli starfsgreina. Að-
allega hefur hún komið í hlut
skrifstofufólks og verkafólks, en
tímakaup afgreiðslufólks hefur
staðið í stað eða lækkað. Raunar
er það annaö árið í röð, því
tímakaup afgreiðslufólks var
núna heldur lægra en tveim ár-
um áður, á 4. ársfjóröungi 1992
og það sama á við um tímakaup
iönaðarmanna og skrifstofu-
karla. Aftur á móti hefur tíma-
kaup skrifstofukvenna nú
hækkaö umtalsvert annað árið í
röð, og samtals um tæplega 9%
á tveim árum.
Mánaðartekjurnar hafa á
hinn bóginn hækkað nokkuð
hjá öllum hópunum, milli 1 og
2% hjá afgreiðslufólki og skrif-
stofukörlum, upp í 4-5% hjá
verkakörlum, iönaðarmönnum
og skrifstofukonum. Sé litið á
þróun mánaðartekna yfir
tveggja ára tímabil kemur í ljós
að þær hafa hækkað mest, tæp-
lega 10% hjá skrifstofukonum,
rúmlega 8% hjá verkafólki,
rúmlega 5% hjá afgreiðslufólki,
rúmlega 3% hjá iönaðarmönn-
um og minnst, aöeins 1,3%, hjá
körlum í skrifstofustörfum.
Mánaðartekjur ASÍ fólks voru
117.000 kr. að meðaltali á 4.
ársfjórðungi. Lægstar, með
kringum 92.000 kr., voru verka-
og afgreiðslukonur. Meðaltekj-
ur skrifstofukvenna voru
110.300 kr., verkakarla 115.600
kr., afgreiðslukarla 131.600 kr.,
skrifstofukarla 139.000 kr. og
með 147.400 kr. voru iðnaðar-
menn á toppnúm.
Borgaraleg skylda aö mœta á boöaöan sáttafund en engin viöurlög
efmenn skrópa. Fundaö í kennaradeilunni en ekki hjá flugfreyjum.
Menn verða ekki
sóttir af lögreglu
Þórir Einarsson ríkissáttasemj-
ari segir ab þab sé borgaraleg
skylda ab mæta á bobaban
sáttafund. Hinsvegar séu engin
viburlög vib því ab mæta ekki.
Aftur á móti sé vibbúib ab mál-
staður viðkomandi abila mundi
bíba hnekki vib þab ab mæta
ekki.
Ríkissáttasemjari segir að það
hafi aldrei reynt á þab hjá emb-
ættinu ab biðja t.d. lögreglu að
sækja menn sem ekki hafa mætt á
boðaðan fund. Þórir segir að hann
mundi ekki biðja um aðstoð lög-
reglu ef einhver mætti ekki á
sáttafund sem hann hefur boðað
til. Aftur á móti sé til sú „þjóö-
saga" að Torfi Hjartarson sátta-
semjari hafi einu sinni látið lög-
reglu sækja einstakling sem mætti
ekki á sáttafund hér á árum áður.
Sáttafundur var boðaður í
kennaradeilunni í gær en ekki í
deilu Flugfreyjufélagsins við Flug-
leibir þótt flugfreyjur hafi boðað
til þriggja daga vinnustöðvunar
hjá Flugleiðum í næstu viku. Rík-
issáttasemjari sagbi ab í síðast-
nefndu deilunni hefði ekki verið
talin gmndvöllur til að boba til
nýs sáttafundar í gær eftir fund
deiluaðila í fyrradag. Þá sé fyrirsjá-
anlegt að yfirmenn muni ganga í
störf flugfreyja, auk þess sem boð-
að verkfall þeirra sé tímabundiö.
Þar fyrir utan sé ágreiningurinn í
þeirri deilu ekki efnislega flókinn.
Þórir segir að munurinn á þess-
um tveimur deilum sé m.a. sá ab
strax í upphafi kennaradeilunnar
hefbi hann sagt þaö beinum orð-
um við deiluaðila ab hann mundi
halda svo til daglega sáttafundi.
Ástæðan fyrir því er t.d. sú að
kennaradeilan er flókin, á mörg-
um svibum, þar sem ekki aðeins
er tekist á um launalibinn heldur
einnig skipulagsbreytingar i skól-
unum, kennsluskyldu o.s.frv. Af
þeim sökum sé brýnt að halda
mönnum vib efniö og láta undir-
nefndir fjalla um hin og þessi at-
riöi þótt samninganefndir ríkis og
kennarafélagana talist ekki við. Þá
hafi hann líka lofað deiluabilum í
kennaradeilunni að ef ekkert værx
við aö vera, þá mundi hann ekki
Iengja fundina að ástæðulausu.
Litla HM í handbolta:
Undan-
þágu
hafnaö
Verkstjórn kennarafélaganna
hefur hafnab undanþágu-
beiðni HSÍ vegna Litlu heims-
meistarakeppninnar í hand-
bolta sem ætlunin var að
halda í samvinnu við Póst og
síma.
Mótið var hugsað sem afþrey-
ing og skemmtun fyrir grunn-
skólanema þar sem leika átti í
riðlum samsvarandi HM og
skólar að leika undir nafni þátt-
tökuþjóða. Undankeppni var
fyrirhuguö í dag, föstudag,
vegna þess að fleiri skólar en 24
höfðu óskaö eftir þátttöku.
Verkfallsstjórn kennarafélag-
ana telur að skólamót í hand-
knattleik sé innan verksviðs
íþróttakennara og því var
beiðni HSÍ hafnað. ■
^ Texas
ÍNSTRUMENTS
Litableksprautu-
og geisla-
Fjölhæfir, hljóðlótir
og hagkvæmir í rekstri
Verð frá kr.
39.500
stgr. m/vsk.
EINAR j. SKULASON HF
Grensásvegi 10, sími 563 3000