Tíminn - 24.03.1995, Page 8

Tíminn - 24.03.1995, Page 8
8 9ÍMíw Föstudagur 24. mars 1995 FERIVIINGIN IVIIN FERIVIINGIN IVIIN FERIVIINGIN IVIIN FERIVIINGIN IVIIN Jóna Valgeröur Kristjánsdóttir: „Alsiba ab gefa reibhjól" „Já, ég skal gjarnan rifja upp ferminguna mína. Þetta var voriö 1949 og þaö var sr. Sig- uröur Kristjánsson, prestur á- ísafiröi, sem fermdi mig í gömlu kirkjunni á ísafiröi, sem síöar brann fyrir fáum árum," sagöi Jóna Valgeröur Kristjáns- dóttir, þingkona Kvennalista á Vestfjöröum. Alsiöa var á þessum árum aö börn fengju reiðhjól aö gjöf frá foreldrum sínum og systkinum og einmitt reiðhjól fékk Jóna Valgeröur aö gjöf á fermingar- daginn. „Það var mikið sport að fara um á reiðhjóli og ég man að einhverju sinni fór ég út í Bolungarvík. Á leiðinni heim sprakk dekk á hjólinu og ég varö aö leiöa það hálfa leiöina. Því kom ég ekki til baka fyrr en seint um kvöld og þá voru for- eldrar mínir farnir að sakna mín —- og í raun og veru orðin hrædd," sagði hún. Um fermingarathöfnina sjálfa í ísafjarðarkirkju segir Jóna Valgeröur hana hafa verið afar hátíölega. Samt sem áöur hafi sér fundist hún um of draga dám af sýningu fremur en helgiathöfn. Fermingin og undirbúningur hennar hafi þó engu aö síður veitt sér svör við ýmsum áleitnum spurningum um lífið og tilveruna og allt hafi þetta veriö fróðlegt. ■ jóna Valgerbur Kristjánsdóttir. Hún fékk reiöhjól og fór á þvífrá Isafirbi og út í Bolungarvík. Cam- anib kárnabi hinsvegar þegar dekk á hjólinu sprakk og leiba þurfti þab langleibina til baka. Ingibjörg Pálmadóttir: „Eg fékk framsóknargræn- an náttslopp að gjöf" „Viö komumst í hóp heldri kvenna viö fermingu. Eignuö- umst fallega kápu meö loðkraga og fórum aö ganga um í háhæluö- um skóm. Þetta var merki minnar tíöar um aö stelpur væru fermd- ar," sagöi Ingibjörg Pálmadóttir, þingmaður Framsóknar á Vestur- landi, aöspurö um sína fermingu. Viö náöum í hana í gegnum bíla- símann, en þá var hún stödd á sveitabæ vestur í Dölum á kosn- ingaferöalagi. Talandi um fermingargjafir sagöi Ingibjörg aö sér væri minn- isstæöur grænn náttsloppur sem henni var gefinn. „Hann var framsóknargrænn," sagöi hún og hló. Einnig nefnir hún sem ferm- ingargjafir snyrtiveski meö ýmsu tilheyrandi og hring meö rúbín- gimsteini. „Þaö var séra Arngrímur Jóns- son prestur í Odda, síðar í Há- teigssókn í Reykjavík, sem fermdi mig og fleiri krakka — og það var þann 12. maí 1963 í kirkjunni á Stórólfshvoli við Hvolsvöll. Það var hátíöleg helgistund. Svo merkilega vill til að eiginmaður minn, Sturlaugur Böövarsson, fermdist þennan sama dag og sama áriö — og kannski er þaö viss óbein tenging," sagði Ingi- björg. ■ Ingibjörg Pálmadóttir: Fermingar- kápur meb lobkraga voru merki um ab stúlkur vœru orbnar full- orbnar. Halldór Blöndal: „Smókingföt föbur míns urbu ab fermingarfötum mínum" „Eg var eitt af fjölmörgum fermingarbörnum Óskars J. Þorlákssonar á hans prest- skaparferli, en hann fermdi mig í Dómkirkjunni vorið Gunnlaugur Stefánsson í Heydölum: „Lagt út frá kærleika í stólræöu" 1952. Ég fékk Passíusálma Hallgríms í fermingargjöf, Vídalínspostillu, Árbók Reykjavíkur og Heimskringlu Snorra Sturlusonar," segir Halldór Blöndal, landbúnaö- ar- og samgönguráðherra. Hann rifjaöi fúslega upp ferm- ingarminningar sínar, en þeg- ar Tíminn náði tali af Halldóri var hann staddur á skrifstofu síns flokks á Akureyri. Foreldrar Halldórs voru er- lendis um dagana þegar hann fermdist. Var hann um ferm- ingardagana hjá frændfólki sínu, þeim Halldóri Kr. Þor- steinssyni og Ragnhildi Pét- ursdóttur, sem bjuggu í hús- inu Háteigi í Reykjavík. Og Halldór Blöndal rifjar upp fleira varðandi foreldra sína, hvað ferminguna varðar: „Á þessum árum voru afar mikil höft á öllum innflutn- Halldór Blöndal. Slík voru innflutn- ingshöftin á fermingarárum hans, ab snibin voru nibur smókingföt af föburnum svo sonurinn væri vel klœddur á merkisdegi í lífinu. ingi til landsins, svo sem á vefnaðarvöru. Því var ill- mögulegt að fá á mig ný fermingarföt og þess vegna var tekiö til þess ráös aö spretta í sundur gömul smók- ingfót sem faðir minn haföi átt og sauma föt á soninn úr þeim. Og þannig má á vissan hátt segja að ég hafi gengið í smóking af fööur mínum á fermingardeginum. Því get ég svo bætt hér við að fyrir fáum dögum hitti ég hér við messu í Akureyrar- kirkju aldraða konu, Jónínu Steinþórsdóttur, en hún fermdist með Lárusi Blöndal, föður mínum, á Siglufirði fyr- ir 75 árum. Og ég veit ekki til annars en gamli maðurinn ætli norður að hitta ferming- arsystkini sín, en fjögur eru þau á lífi í dag," sagði Halldór Blöndal. ■ „Já, ég man vel hvað ég fékk í fermingargjöf. Frá foreldrum mínum og stórfjölskyldu móöur minnar fékk ég gull- húðaö úr," segir sr. Gunn- laugur Stefánsson, alþingis- maöur krata og sóknarprestur í Heydölum í Breiödal. „Og þaö var sitthvaö fleira sem ég fékk aö gjöf. Ég get nefnt skíöi sem voru með gormabindingum og stálkönt- um. Þau voru ákaflega góð og vönduö. En armbandsúr voru vissu- lega algeng fermingargjöf á þessum árum og úriö, sem ég fékk, á ég enn í pússi mínu — þó ég gangi ekki með það, enda hef ég ekki gengið með úr til fjölda ára." Hafnfirðingurinn Gunn- laugur var fermdur í Þjóð- kirkjunni í Hafnarfirði og það var sami prestur sem fermdi hann og Guðrúnu Helgadótt- ur, Garöar Þorsteinsson, eins- og segir frá hér annarstaöar á síöunni. „Mér er þaö einkar minnis- stætt aö í ræðu sinni lagði Sr. Gunnlaugur Stefánsson: Prest- urinn lagbi út frá kærleikanum í stólræbunni vib fermingu Cunn- laugs. Garöar út frá kærleikanum. Og þegar ég lít til baka, var fermingardagur minn dagur kærleika og birtu í lífinu," segir sr. Gunnlaugur Stefáns- son. ■ Guörún Helgadóttir: „I minningunni er þetta dagur fallegra hugsana" „Mér fannst fermingarathöfn mín óskaplega hátíöleg. Þetta var fal- legur dagur og haldin var veisla sem margir gestir sóttu," segir Guörún Helgadóttir, þingmaöur Alþýðubandalags í Reykjavík, aö- spurð um. sína fermingu, en hún var fermd í Þjóökirkjunni í Hafn- arfiröi voriö 1949 af séra Garöari Þorsteinssyni. Fyrst upp í huga Gubrúnar kom ljóöasafn Jónasar Hallgrímssonar þegar hún var spurö um ferming- argjafir. Einnig tíndi hún til úr ranni sínum armbandsúr og ýmis- konar fatnaö. Allar fermingargjaf- ir báru þó svipmót af efnahag þessa tíma. Guörún Helgadóttir segir aö fyrir sér hafi fermingin aldrei ver- iö hliöið, sem skildi aö bernsku- og fulloröinsár. Fyrir sér hafi þetta allt runnib saman í eitt og í sann- leika sagt finnist sér hún aldrei hafa veriö barn. „Ég er elst 10 systkina og varö strax að taka þátt í uppeldi þeirra og vinna eins og aörir á heimilinu. En þegar ég lít til baka, finnst mér fermingin vera ljúf minning og dagurinn sem ég fermdist er sæll í minning- unni. Þetta var dagur sem var full- ur fallegra hugsana. Eftir þeim hef ég einnig reynt aö fara í lífinu. Aö minnsta kosti tel ég mig ekki hafa orbiö neinum til skaöa eöa tjóns — eöa aö minnsta kosti reynt þab," sagbi Guörún Helgadóttir. ■ „Fermingardagurinn er sœll í minningunni," segir Cubrún Helgadóttir.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.