Tíminn - 26.04.1995, Page 8
8
Whatínm
Mi&vikudagur 26. apríl 1995
Mongólar ótt-
ast kínverska
fjöldann
Reyna aö tengjast Japan og Suöur- Kóreu og
efla þjóöarstolt meö því aö hafa Djengis
Khan í hávegum
Arið 1924 var því lýst yfir aö
Mongólía væri orðin al-
þýðulýöveldi og varð hún
annað ríkið í röðinni, næst Rússa-
veldi, þar sem kommúnistar kom-
ust til valda. En a.m.k. á Vestur-
löndum þótti þaö ekki miklum
tíðindum sæta. Til síðustu ára
hefur Mongólía verið eitt þeirra
landa, sem fæstar fréttir hafa farið
af út um heim. Þannig hafði það
raunar verið lengi fyrir valdatöku
kommúnista.
Á 12. öld, undir forystu Djengis
stórkhans og niðja hans, komu
Mongólar sér upp einu af mestu
risaveldum sögunnar, en frá því
að keisaraætt þeirra í Kína var
steypt af stóli 1368 hefur vegur
þeirra í sögunni yfirleitt ekki ver-
ið mikill, flestum öðrum en þeim
sjálfum aö saknaðarlausu. Á þeim
tíma hafa þeir lengst af verið und-
ir meiri eða minni kínverskum yf-
irráðum og síðustu aldirnar í frek-
ar óöfundsveröri klemmu milli
Rússaveldis og Kína. Þótt Mong-
ólía sé gríðarlegt landflæmi
(1.565.000 ferkílómetrar), er hún
líklega í margra augum ekki mjög
merkileg landspilda milli þeirra
risa land- og lýðfræðilega séð sem
Kína og Rússland eru.
Lágmarkskvótar
Tímamót má kalla að orðið hafi
í Mongólasögu 1911, er keisara-
dómur var afnuminn í Kína. Eins
og stundum ábur, þegar Kína-
veldi var í lamasessi, neyttu
Mongólar þá færis til ab reyna að
slíta sig lausa frá því. Lýstu prins-
ar Mongólíu land sitt sjálfstætt og
fengu til þess fulltingi Rússa. En
sú rússneska vernd brást, er
Rússaveldi komst í upplausn
nokkrum árum síðar út af bolsé-
víkabyltingu og borgarastríðum,
og náðu þá Kínverjar tökum á
Mongólíu á ný. 1920 gerði rúss-
neskur hvítlibaher innrás í land-
ið, sem þar með dróst inn í rúss-
nesku borgarastríðin. Fóru svo
leikar að mongólskir andstæðing-
ar hvítliöa sigruðu þá og ráku
Kínverja úr landi með aðstoð
Rauða hersins rússneska.
Skömmu síðar var lýst yfir stofn-
un mongólsks alþýðulýðveldis.
Alla sögu þess var Mongólía lík-
lega undirgefnari Rússum en
nokkurt annað fylgiríki þeirra.
Sovéskum sósíalisma var þar
komið á með svipuöum aðferð-
um og í Rússaveldi, nema kannski
enn groddalegri. Tugþúsundir
manna, sem kommúnistastjórnin
hafbi ekki velþóknun á, voru
teknar af lífi. Foringjum aftöku-
sveita byltingarinnar var fyrir-
skipað að skila lágmarkskvóta
drepinna manna, og tækist föng-
um að flýja, var algengt ab fyrstu
menn sem náðist í væru hand-
teknir og drepnir í staðinn, án
verulegrar hliðsjónar af afstöbu
þeirra til byltingarinnar. Yfir 700
klaustur og hof lamasinna
(Mongólar aðhyllast búddasið af
sömu grein og Tíbetar) voru eyöi-
lögð. Líkt og í Kambódíu á tíð
Rauðra kmera var lögð áhersla á
að slíta öll tengsl við menningu
BAKSVIÐ
DAGUR ÞORLEIFSSON
fortíðarinnar í þeim tilgangi að
skapa nýtt samfélag.
Við hrun sovétblokkar og Sov-
étríkja lögðu Mongólar af komm-
únisma og lýstu yfir lýbræði og
hollustu vib markaðsbúskap. Þeir
losnuðu þá vib rússnesku yfirráð-
in, sem þeir höfðu sætt sig vib
sumpart vegna þess að þeim stób
og stendur ennþá meiri stuggur af
kínverska fjöldanum í suðri.
Gamalgróinn ótti þeirra við Kín-
verja hefut aukist heldur en hitt
síðustu árin, því ab nú er ekki um
að ræba rússneska vernd gegn
Kínverjum.
„Eiginlega Kyrrahafs-
landy/
Mongólar óttast ekki aðeins
hugsanleg endurnýjuð kínversk
yfirráb, heldur ekki síður að Kín-
verjar kunni að drekkja mong-
ólsku þjóðerni með lýðfræðilegri
innrás. Það hefur raunar þegar átt
sér staö að miklu leyti í Innri-
Mongólíu, hluta af landi Mong-
óla sem Kínverjar fyrir löngu að-
skildu stjórnarfarslega frá Ytri-
Mongólíu (eins og landsvæði nú-
verandi ríkis Mongóla var lengi
kallað) og innlimuðu í Kína. Svo á
að heita^að Innri-Mongólía hafi
Sýnishorn af gamla og nýja tímanum í Mongólíu.
Djengis
Khan (í kín-
verskri bók
frá 7 9. öld):
„eiginlega
lýbrœöis-
sjálfstjóm, á grundvelli mong-
ólsks þjóðernis sumra lands-
manna, en af 21,5 milljónum
íbúa þar eru nú 18 milljónir Kín-
verjar. Mongólar eru þar aðeins
3,5 milljónir og þó fjölmennari
en Mongólar í sjálfstæðu Mong-
ólíu. (Þar eru íbúar undir 2 millj-
ónum, flestir þeirra Mongólar.)
Erlendir fréttamenn þar eystra
segja að hræðslan við aö Kínverj-
ar „gleypi" Mongóla komi fram
hjá svo að segja öllum mönnum
af síðarnefndu þjóbinni, sem þeir
ræði vib.
Til að vega upp á móti þeirri
meintu hættu og í veikri von um
að losna að einhverju marki úr
klemmunni milli Kína og Rúss-
lands, reyna Mongólar nú eftir
bestu getu að komast í sem mest
viðskiptasambönd við önnur ríki
og fá frá þeim fjárfestingar. Hafa
núverandi mongólskir ráðamenn
einkum Japan og Subur-Kóreu í
huga í því sambandi. Sumir
þeirra, eins og Radnaasumberel
Gonchigdorj, varaforseti í fýrstu
lýöræbisstjórn Mongólasögu,
halda því meira ab segja fram — á
umdeilanlegum forsendum — aö
Mongólía heyri eiginlega Kyrra-
hafslöndum til.
Hans minning
lifir...
Annað, sem Mongólar reyna
nú til að herða sig upp og efla
sjálfsímynd sína og þjóðarstolt, er
að hefja Djengis Khan, frægasta
mann sögu sinnar, til vegs og
virðingar á ný. Hann var ekki vel
séður á sovéska tímanum, en nú
heitir t.d. nýstofnað verslunar-
hlutafélag þarlent Dhengis Khan
Company Limited, vinsælasta
áfengi landsins er nú vodka sem
kennt er viö Djengis Khan og á
peningasebla þess er komin
mynd af honum í stað myndar af
Sukhbator, sem var foringi Mong-
óla þeirra er böröust gegn rúss-
neskum hvítliðum. Á sovéska
tímanum tóku Mongólar upp
kýrillskt stafróf að fyrirmynd frá
Rússum, en aflögðu letur það,
arameiskt aö uppruna og komið
til Mongólíu yfir íran og Miö-As-
íu, sem Djengis Khan lét þá taka
upp. Nú hefur það verið innleitt á
ný, meðfram líklega til að auglýsa
fyrir umheiminum að Mongólar
séu án alls hálfkáks búnir að gera
upp við sovésku fortíðina.
Djengis Khan og niðjar hans
voru meðal afkastamestu fjölda-
morðingja sem sagan kann frá aö
greina, en landar hans segja nú
að Djengis hafi verið misskilinn
af síðari tíma mönnum. Hann
hafi í raun veriö upplýstur stjórn-
málamaöur og eiginlega lýöræð-
issinni. Til marks um þab segir
áðurnefndur Gonchigdorj að
hann hafi aldrei tekið ákvaröanir
án þess að ráðgast við hirö sína
fyrst.
„Djengis Khan er okkur allt,"
hefur sænskur fréttamaður eftir
ungri konu mongólskri. „Minn-
ing hans gefur okkur kraft." ■