Tíminn - 09.06.1995, Page 2
Föstudagur 9. júní 1995
Tíminn
spyr...
Ertu sammála Óskari Vigfús-
syni aö verkalýöshreyfingin sé
ab kobna nibur:
Magnús L. Sveinsson, formabur
Verslunarmannafélags Reykjavík-
ur:
„Nei, ég er ekki sammála því. Hitt
er annab mál að verkalýðshreyfingin
þarf ab gera sér grein fyrir breyttum
aðstæðum og umhverfi. Ég er þeirrar
skoðunar og hef verib þab lengi ab
þab þyrfti ab standa meb öbrum
hætti ab kjarasamningum, þar sem
mibstýringin hefur verib þannig ab
fundib hefur verib út hvab ein at-
vinnugrein í landinu þyldi, þ.e.a.s.
fiskvinnslan, t.d. 1% launahækkun,
þá á þab ab vera ávísun á öll laun t
landinu. Ég er sannfærbur um að þab
beri ab færa kjarasamninga inn í
starfsgreinar og inn í fyrirtækin."
Björn Grétar Sveinsson, formaður
Verkamannasambands íslands:
„Nei, en menn verba ab fá ab hafa
sínar skobanir á því, hvort verkalýbs-
hreyfingin sé veik ab sterk. Ég tel
hins vegar að vibbrögb abildarfélaga
Verkamannasambandsins í kjölfar
orbsendingar til þeirra þar sem þau
eru hvött til að gefa verkfallsbrotum
gaum hafi verib góð. Menn verða
hins vegar einnig ab horfa innávib.
Þab eru náttúrulega félagar í sjó-
mannafélögunum sem eru verkfalls-
brjótar. Menn verða því ab horfa til
allra átta. Hitt er annab mál ab ef
menn líta til baka þá hefur þetta allt-
af verib sagt á öllum tímum og ennþá
er mikið líf í verkalýðshreyfingunni."
Hrafnkcll A. Jónsson, formaður
Verkalýðsfélagsins Árvakurs á
Eskifirði:
„Nei, ég er þab ekki. Það er hins
vegar miður ab menn komist upp
meb undanskot eins og í sjómanna-
deilunni, en ég lít ekki þannig á að
þab sé vandamál hreyfingarinnar, þó
hún komist ekki framhjá lagaflækj-
um. Hitt ber svo á að líta að veikleiki
þeirrar deilu sem er í gangi er hversu
ólíkir hagsmunir eru í gangi hjá þeim
sem eru í verkfalli, þegar stórir hópar
manna lýsa því yfir og virbast hafa
fyrir því nokkur rök ab þab sé ekki
verib ab takast á um þeirra hagsmuni,
þó þeir séu í verkfalli, eins og á vib
um frystitogara."
íslenskur endurhaefingarlœknir, Kristján Tómas Ragnarsson, fœr hina árlegu viöurkenn-
ingu World Rehabilitation Fund. Bill Clinton Bandaríkjaforseti í bréfi til Kristjáns:
Viðleitni þín hefur fært von
og huggun fjölmörgu fólki
Kristján Tómas Ragnarsson ásamt eiginkonu sinni, Hrafnhildi Ágústs-
dóttur, og dætrunum Vigdísi Vöku, Þórunni Láru og Kristínu Ástu.
Kristján Tómas Ragnarsson, 51
árs endurhæfingarlæknir og pró-
fessor við Mount Sinai sjúkrahús-
ið á Manhattan í New York, varð
þess heiðurs aðnjótandi að fá
verðlaun World Rehabilitation
Fund, endurhæfingarsjóðs heims-
ins, en þau voru afhent í kvöld-
verðarboði í New York í fyrra-
kvöld. Verðlaun þessi voru afhent
í 40. sinn og hafa margir nafntog-
aðir menn hlotið þau, meðal ann-
arra U Thant, aðalritari Samein-
uðu þjóðanna sem hlaut þau árið
1971, Melvin R. Laird varnar-
málaráðherra BNA 1982, og Bob
Hope 1984, en verðlaunin eru
ekki einskorðuð viö læknastétt-
ina eina.
Bréf frá Bill Clinton
í hófinu, sem haldið var Krist-
jáni til heiðurs, var lesiö bréf Bill
Clintons, Bandarikjaforseta, sem
hann skrifaöi Kristjáni á föstudag-
inn, en þar óskar hann lækninum
til hamingju með heiðurinn, og
fyrir afrek hans sem læknir og
kennari.
„Einlæg viðleitni þín bæði sem
læknir og kennari hefur orðið til
framfara í endurhæfingarlækn-
ingum og hefur fært von og hugg-
un ótalmörgu fólki á þínum virð-
ingarverða ferli," segir í lauslegri
þýðingu á bréfi Clintons. Hann
þakkar fyrir hönd þeirra, sem not-
ið hafa umönnunar og starfa
Kristjáns, og hvetur hann til frek-
ari dáða.
í veislunni, sem haldin var
Kristjáni Tómasi, til heiðurs var
boöið fjölmörgum þekktum ein-
staklingum og sagt aö kvöldverö-
urinn hafi verið seldur dýrt —
hann mun hafa kostaö allt að 15
þúsund dollara — og afrakstrin-
um varið til góðgerðarmála og
vísindastarfsemi.
Ruðningshetjan
flutti ræ5u
Meöal ræðumanna í fyrrakvöld
var ruðningshetjan Dennis Bird,
sem slasaöist illa í leik meö The
Jets árið 1992. Kristján Tómas
fékk þaö hlutverk að lækna Bird
og tókst svo vel upp, að athygli
vakti um alla Ameríku.
Samuel F. Pryor III, forseti
World Rehabilitation Fund, sagði
í ræðu sinni í fyrrakvöld að líf sitt
heföi Kristján helgaö því að færa
öðrum von og hjálp. „Kris er
sannarlega maður vonarinnar,
læknir af ástríðu og vinur sérhvers
manns sem kemur inn í líf hans,"
sagði forseti samtakanna.
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem
Kristjáni Tómasi Ragnarssyni falla
í skaut viðurkenningar og verð-
laun. Þær hefur hann fengið fyrir
starf sitt nokkrum sinnum. Auk
starfa síns hjá Mount Sinai sjúkra-
húsinu gegnir Kristján fjölmörg-
um störfum öörum. Hann er for-
maður Veterans Committee, sem
sér um endurhæfingu á öllum
bandarískum hermönnum. Þá er
hann í nefnd sem vinnur aö
merkum tilraunum með raflosts-
aðferð sem lækningu á mænu-
sköddun. Kristján hefur flutt
læknisfræðilega fyrirlestra um
endurhæfingarlækningar víða um
lönd.
Kristján er fæddur 1943, Vestur-
bæingur og KR-ingur í körfuknatt-
leik, einn frumherja þeirrar deild-
ar Vesturbæjarfélagsins. Hann tók
læknispróf 1969 og starfaði fyrst
við Landspítalann. Árið 1971 hélt
hann vestur um haf til framhalds-
náms. Þar var hann undir stjórn
dr. Howards A. Rusk, en verölaun-
in sem Kristján hlaut nú bera
nafn Rusks.
Eiginkona Kristjáns Tómasar er
Hrafnhildur Ágústsdóttir (Jóns-
sonar frá Gufunesi). Hún er hjúkr-
unarfræðingur og glerlistakona.
Þau hjónin eiga fjórar dætur:
Hildi, Vigdísi, Þórunni og Krist-
ínu. Foreldrar Kristjáns Tómasar
Ragnarssonar eru þau Vigdís
Schram og Ragnar Tómas Árna-
son, sá vinsæli útvarpsþulur til
fjölmargra ára, en hann lést fyrir
rúmum áratug. ■
Sagt var.. ■
Gúrkan og gulltippib
„Lögmabur jóns Halldórs sagbi í ræbu
sinni, ábur en hann lagbi málib fyrir
dóm, ab ekki hefbi tekist ab sýna fram
á neinn tilgang meb birtingu greinar-
innar og væri augljóst ab um GÚRKU
hefbi verib ab ræba hjá æsifréttablab-
inu."
Alþýbubla&ib í frétt af málaferlum Jóns
Halldórs Bergssonar gegn Pressunni, sem
kallabi hann „flagara".
Á réttri bylgjulengd
„Eru til geimverur? Já, en þær eru á
öbru tfbnisvibi og geta fylgst meb ykk-
ur ab vild. Tíbnisvib þeirra er hvorki
hærra né lægra en okkar, en þær eru
ab þroska sig þegar þær koma í heim-
sókn."
Þórhallur mibill í vibtali í nýútkomnu
Mannlífi.
Þingmenn ekki í flokknum?
„Þab voru ekki þingmenn sem hótubu
mér — þab voru flokksmenn sem
hringdu og sögbu ab þeir væru ekki
ánægbir meb þetta og þeir gætu haft
áhrif á framgang minna mála, jafnvel
innan þingflokksins."
Siv Fribleifsdóttir ab svara fyrir vandlæt-
Ingarherferb Alþýbublabsins gegn henni í
Alþýbublabinu.
Lífsbaráttan
„Hafnfirsk móbir á götunni eftir óblíbar
móttökur hjá Félagsmálastofnun:
Stend ekki í skilum og peyjarnir væla af
hungri"
Fyrirsögn í DV í gær.
Á sama tíma ab ári
„Símaskráin fyrir 1995 er endanleg
stabfesting á, ab Póstur og sími er ófær
um ab gegna hlutverki símaeinokunar.
Ekkert mark hefur verib tekib á mál-
efnalegri gagnrýni, sem símaskrá ársins
1994 sætti fýrir ári. Símaskráin í ár er
nánast sömu annmörkum háb og hin
fyrri."
|ónas Kristjánsson í leibara DV í gær.
Fyrlrbæri skllgreint
„íslenska símaskráin í núverandi
ástandi er afkvæmi heimsku og hroka."
jónas í sama leibara.
í heita
pottinum...
„Flest OECD-lönd munu verba fyrir
verulegri öldrun í framtíbinni..." Þann-
ig taka lærbir menn í fjármálarábuneyt-
inu til orba, þegar þeir snara á íslenskt
mál (?) greinargerb um áhrif öldrunar á
ríkisfjármál, sem barst hingab meb
póstinum frá Brussel — þar sem mikib
er reiknab: „Miblangtíma framtíbar-
reikningsdæmi starfslibs OECD sýnir
þróunina fram til ársins 2000...." Höf-
undur segir samt erfitt ab geta sér til
um áhrifin af auknum lífslíkum á heil-
brigbisútgjöld á mann, því þab sé und-
ir því komib hversu „heilbrigb öldrunin
verbur".
•
Delta, Kappa, Gamma, félag kvenna í
fræbslustörfum, opnabi formlega um-
ræbuna um hver yrbi næsti forseti lýb-
veldisins meb því ab skora á frú Vigdísi
Finnbogadóttur ab gefa áfram kost á
sér í embættib. Víst þykir ab á meban
Vigdís hefur ekki gefib upp hvort hún
hyggst bjóba sig fram eba ekki, munu
abrir ekki Ijá máls á frambobi og raunar
er ótrúlegt ab mótframbob komi fram
ef forsetinn gefur kost á sér aftur. Hins
vegar eru vangaveltur komnar á fullt
skrib og mebal þeirra nafna, sem hvab
oftast heyrast núna, eru sr. Pálmi
Matthíasson og Sigríbur Dúna Krist-
mundsdóttir. Samkvæmt því myndi
Fribrik Sophusson hætta í pólitíkinni
og gerast forsetamabur.