Tíminn - 09.06.1995, Qupperneq 14
14
WtW'Wflf.
Föstudagur 9. júní 1995
Rós er rós, kallast þetta verk eftir Annex Burgos.
Sumar í Nýlistasafn-
inu við Vatnsstíg
Þab eina sem Ana Rosa Rivera
Marrero hefur til málanna ab
leggja í sýningarskrá, umfram þab
ab sýna þetta verk sem er án titils,
er tilvitnun í bók bókanna: „ Ezra
5:3.4".
ir, Magnús Sigurðarson, Ana Rosa
Rivera Marrero, Arnaldo Morales,
Carmen Olmo og Stefán Jónsson.
Sýningin er opin kl. 14-18 alla
daga og stendur til 25. júní. ■
Veöurspá-
maðurinn
í tilefni af sýningunni Stíllinn í
list Ásmundar Sveinssonar, sem
var opnuö í Ásmundarsafni
laugardaginn 27. maí síðastliö-
inn, voru geröar afsteypur af
verkinu Veðurspámaöur eftir
Ásmund Sveinsson og munu
þær veröa til sölu í takmörkuðu
upplagi í safnaverslununum á
Kjarvalsstöðum og í Ásmundar-
safni.
Ásmundur Sveinsson skóp
Veöurspámanninn í Reykjavík
árið 1934, myndin var síöan
stækkuö og steypt í steinsteypu
sumarið 1939. Hún sýnir mann
sem gáir til veðurs. ■
„New York — Nýló, 10 eyja-
skeggjar frá Ameríku" er titill
sumarsýningar Nýlistasafnsins,
sem opnuð var um helgina.
Þetta er samsýning tíu mynd-
listarmanna, sem fæddir eru á
árabilinu 1964-69.
Eins og titillinn ber með sér,
eiga listamennirnir það sameigin-
legt að vera frá eylöndum: fimm
frá íslandi, fjórir frá Puerto R.ico
og einn frá Filippseyjum.
Annex Burgos er reyndar fædd í
New York, en hefur mikil tengsl
við Puerto Rico. í sýningarskrá
segir hún m.a.:
„Það er í eðli mannsins að
skapa vandamál. Ég reyni að
bregðast við þeirri yfirborðslegu
reynslu sem þetta eðli orsakar,
með því að sjá og skilja samheng-
ið í öllum þejm ólíku aðstæðum
sem upp koma, bæði hjá einstak-
lingnum og samfélaginu í heild."
Ingibjörg Jóhannsdóttir sýnir
„innsetningu" sem hún kallar
Stóra Björn og kringlóttan stiga,
en með verkinu fylgir þessi skýr-
ing:
„Minningar eru kæfandi og
leiða til einskis þegar þær stjórna
hugsunum manns. Hins vegar
geta þær verið kveikja að ein-
hverju nýju og óvæntu þegar þær
koma að óvörum þar sem verið er
að upplifa nýjar kringumstæður.
Minning og nýjungar verða eitt.
tækniskóli íslands
Stóri Björn og kringlóttur stigi, eftir Ingibjörgu jóhannesdóttur.
Þannig geta minningar bætt viö
og sýnt núið í nýju ljósi — og ein-
staka sinnum endað í myndlist.
Verkið sem ég sýni hér er minn-
ing sem kom til mín í útlöndum
um snjó, stjörnur, myrkur, vetur
og vasaljós."
Og Arnaldo Morales segir að-
eins þetta: „Ég vil að fólk verði
börn, uppfinningamenn og
heimspekingar."
Listamennirnir, sem eiga verk á
sýningunni, heita Annex Burgos,
Hrafnhildur Arnardóttir, Ingi-
björg Jóhannsdóttir, Charles Ju-
hasz-Alvarado, Kristín Hauksdótt-
Nýútskrifabir nemendur Tœkniskólans vorib 1995.
Útskriftarathöfn Tækniskólans
Laugardaginn 27. maí sl. voru
brautskrábir frá Tækniskóla ís-
lands 48 nemendur. Úr bygginga-
deild útskrifubust 9 bygginga-
tæknifræbingar meb B.S.-próf og
5 byggingaibnfræbingar. Rekstr-
ardeild útskrifabi 9 ibnabar-
tæknifræbinga meb B.S.-próf og 7
ibnrekstrarfræbinga. Fimmtán
nemendur luku raungreinadeild-
arprófi, sem er fjögurra anna nám
og veitir rétt til náms á háskóla-
stigi.
Einn lauk prófi í rafiðnfræði og
tveir nemendur luku fyrsta ári af
þremur í rafmagnstæknifræði, sem
þeir síðar ljúka í Danmörku.
í ræöu sinni tæpti rektor á þeim
breytingum sem fyrirhugaöar eru á
námsframboði við skólann. Næst-
komandi haust verður í fyrsta sinn
boðiö upp á nám í vél- og orku-
tæknifræði til B.S.-prófs. Einnig er
það nýmæli að í B.S.-námi í bygg-
ingatæknifræði geta nemendur nú í
fyrsta sinn valið umhverfissvið, þar
sem áhersla er m.a. lögð á neyslu-
vatn, fráveituvatn, umhverfisfræði
og umhverfismat.
Danski sendiherrann, Hr. Klaus
Otto Kappel, flutti ávarp og óskaði
brautskráðum nemendum allra
heilla. Páll Jónsson, formaður
Tæknifræöingafélags íslands, af-
henti skólanum peningagjöf og
veitti viðurkenningar fyrir tvö loka-
verkefni. Annars vegar hlaut Leó
Sigurðsson byggingatæknifræbing-
ur viburkenningu fyrir verkefni sitt
um framkvæmd jarðganga undir
Hvalfjörð og hins vegar hlutu þeir
Egill Egilsson, Hörður Einarsson og
Sigurður Magnússon, nýútskrifabir
iðnabartæknifræðingar, viðurkenn-
ingu fyrir lokaverkefni sitt um vél-
væðingu ígulkeravinnslu. Nemend-
ur í Tækniskóla íslands síðastliðinn
vetur voru 470 talsins. ■
Listi yfir lokaverkefni
nemenda í tæknifræbi
Ibnabartæknifræbi:
Endurvinnsla og fórgun rafgeyma.
Höfundar: Ágúst Ágústsson, Hall-
dór V. Magnússon, Hjörleifur
Gunnarsson og ívar Atlason.
Vöruþróun á tilbúnum sósum fyrir
neytendamarkaö og veitingahús.
Höfundar: Ingibjörg Ólafsdóttir,
Sigurður T. Kjartansson og Þröstur
Sigurbsson.
Vélvœöing ígulkeravinnslu. Höfund-
ar: Egill Egilsson, Hörbur Einars-
son og Sigurbur Magnússon.
Byggingatæknifræði:
jámbraut milli Reykjavíkur og Kefla-
víkur. Höfundur: Gubni Þór Gunn-
arsson.
Hönnun göngubrúar viö Munaðar-
nes. Höfundur: Jóhann K. Hjálm-
arsson.
Hönnun leikskðla á Setbergi í Hafh-
arfirði. Höfundur: Trausti Haf-
steinsson.
Framkvœmd jarðganga undir Hval-
fjörð. Höfundur: Leó Sigurbsson.
Rykbinding og viðhald malarvega.
Höfundur: Magnús Hjartarson.
Yfirborðsmerkingar á vegum. Höf-
undur: Torfl Gunnarsson.
Hönnun kúluhúss. Höfundur: Þór
Sigurþórsson.
Holrœsa- og vatnslagnakerfi fyrir Eg-
ilsstaðakaupstað. Höfundur: Magn-
ús Guðjónsson.
Kostnaöargreining og verðmœtamat
einbýlishúss. Höfundur: Aron
Bjarnason.