Tíminn - 15.06.1995, Blaðsíða 1

Tíminn - 15.06.1995, Blaðsíða 1
79. árgangur Fimmtudaguj 15. júní 1995 109. tölublað 1995 SIMI 563 1600 Brautarholti 1 STOFNAÐUR 1917 Björn Grétar Sveinsson form. Verkamannasam- bandsins: Halldór Ásgrímsson á árlegum fundi EFTA-ríkj- anna í Bergen: Mikilvægur fundur Halldór Ásgrímsson utanrík- isrábherra sat í gær og fyrra- dag hinn árlega fund EFTA- ríkjanna og utanríkisrábherra þeirra landa, en hann fór fram í Bergen. „Hér var verib að ganga frá frí- verslunarsamningi milli EFTA og Slóveníu, þá er unnið að því ab leggja síöustu hönd á fríverslun- arsamninga við Eystrasaltsríkin. EFI'A skiptir okkur afar miklu máli varðandi samstarfið við Evr- ópusambandiö, þannig að al- mennt er litið á þennan fund sem afar þýðingarmikinn fyrir framtíöina," sagði Halldór Ás- grímsson. ■ Blöndum okkur í máliö „Eins og málin standa gagnvart Verkamannasambandinu verð- um við að blanda okkur í mál- ið þannig að annar hvor aðil- inn (Atvinnuleysistrygginga- sjóður eða fiskverkendur) tryggi fólki greiðslur, þá hugs- anlega með einhverjum fyrir- vörum ætli þeir að fara í hár saman," sagði formabur Verka- mannasambandsins, Björn Grétar Sveinsson. Tíminn spurði hann um viö- brögö Verkamannasambandsins viö því að Atvinnuleysistrygg- ingasjóbur telur sér ekki skylt að greiöa bætur til fiskverkafólks sem fiskverkendur taka af launa- skrá samkvæmt 3. grein, vegna hráefnisskorts af völdum verk- falls. Og Vinnumálasambandib ráðleggur fiskvinnslufyrirtækjum innan sinna raða að greiða ekki laun fyrir þá daga sem vinna fell- ur niður af þessum sökum. „Þetta fiskvinnslufólk hefur ekki efni á því að bíða eftir því að fá sína peninga greidda á réttum tíma. "Við munum einbeita okkur aö því að þessi deila komi ekki þannig út að þab fiskverkafólk, sem hún bitnar á, þurfi að bíða eftir greiðslum," sagði Björn Grétar. ■ Byrjab er ab skrúfa nibur strauminn í áiverinu, en þar hjólubu menn þó um eins og vanalega í gær. Verksmibjan lokar föstudaginn 23. júní. Finnur Ingólfsson ibnaöarrábherra segir mikib bera á milli í ísaldeilunni eftir fund meb deiluabilum í gœr: Loki álverib óttast ég ab ekki veröi opnað á ný Finnur Ingólfsson ibnaðarráb- herra kallaði til sín deiluabila í álverinu í gær til ab kynnast betur stöbu mála. Fulltrúar launþega komu fyrir hádegi en fulltrúar vinnuveitenda síbdeg- is. Finnur segir þessa fundi hafa verib gagnlega, ágreiningsatribi hafi skýrst en því mibur sé ljóst ab mikib beri á milli manna og í raun meira en hann hafbi talib fyrir þessa fundi. Þab segir ibn- abarrábherra vera grafalvarlegt mál. „Þessi staða er ekki síst alvarleg vegna þess að verkfallið er komiö af stað og það blasir við að föstudag- inn 23. júní veröur álverinu lokaö. Segja má að mikill skaði sé þegar skeður, þar sem er sá álithnekkir sem við höfum orðib fyrir hjá við- Ibnabarrábherra hitti fulltrúa launþega fyrir hádegi í gær. Tímamyndir: cs semjendum okkar um stækkum ál- vers, en þeir eru ekki síst á höttum eftir stöbugleika á vinnumarkaði," sagbi Finnur Ingólfsson í gær. Fiskvinnslufólk á sveitina? Atvinnuleysistryggingasjóbur hefur tilkynnt öllum, sem sjá um úthlutun atvinnaleysisbóta, ab 1. mgr. 3. greinar laga um at- vinnuleysistryggingar (um heimild vinnuveitanda til ab fella fólk af iaunaskrá án fyrir- vara, m.a. vegna hráefnisskorts) gildi ekki um hráefnisskort vegna sjómannaverksfallsins sem nú stendur yfir. Starfsmenn ættu því áfram ab vera á launa- skrá fyrirtækja. Vinnumálasambandið, sem ráö- lagði félagsmönnum sínum að fara eftir 3. greininni, segist ekki ætla að una þessari ákvörðun sjóðsins og ráöleggur fiskvinnslufyrirtækj- um innan sinna raða að greiöa ekki laun fyrir þá daga sem vinna fellur niður vegna hráefnisskorts af völdum sjómannaverkfallsins. Fái fiskverkafólkið hvorki bætur né laun er spurningin hvort eini kostur þess sé að segja sig til sveit- ar? í bréfi til stjórnar Atvinnuleysis- tryggingasjóðs í gær segir lögmab- ur Vinnumálasambandsins, Jón R. Pálsson, rétt fyrirtækis til ab fella starfsfólk af launaskrá ótvíræðan samkvæmt kjarasamningi Verka- mannasambands íslands. Það geti fyrirtæki annað hvort gert með uppsögn kauptryggingasamnings með 4ra vikna fyrirvara (eins og Samtök fiskvinnslustöðva munu hafa ráölagt félagsmönnum sín- um) eða með 3. greininni, sem Vinnumálasambandið valdi. Ástæðan hafi einfaldlega verið sú, að óvíst var ab verkfall sjómanna kæmi til framkvæmda þótt það hafi veriö boðaö auk þess sem önnur hráefnisöflun — t.d. rússa- fiskur eða trillufiskur, þannig ab ekki hafi þótt rétt að beita 4. vikna frestinum. Vísa forystumenn Vinnumálasambandsins m.a. til viðtals við forseta ASÍ 6. maí sl., þar sem hann hafi harðlega mót- mælt því að kauptryggingarsamn- ingum sé sagt upp meö fjögurra vikna fyrirvara vegna hugsanlegs sjómannaverkfalls, þar sem aðrir möguleikar væru fyrir hendi. ■ „Ég óttast það, já," sagði Finnur aöspuröur um hvort hann óttaöist að alverið myndi ekki opna aftur ef því yrði lokað föstudaginn 23. júní. „Ég á von á því að menn muni fara alvarlega ofan í þá spurningu, ef til lokunar kemur, hvort það yfirleitt borgi sig að opna aftur," sagöi ráö- herra ennfremur. Finnur benti á að íslendingar væru um langt árabil búnir að leita eftir erlendri fjárfestingu til að draga úr atvinnuleysi og efla hag- vöxt og bæta kjör almennings. Iðn- aðarráðherra telur hins vegar að þaö sem nú er að gerast geti fælt hugsanlega fjárfesta frá landinu, ekki einvöröungu Alusuisse heldur líka alla aöra sem fylgjast með mál- um hér með hugsanlega fjárfest- ingu í huga. „Allir sem á annað borð hafa leitt hugann að íslandi sem fjárfestingakosti líta til þessa ástands á vinnumarkaöi, ekki bara í ÍSAL deilunni heldur allum öðrum deilum á vinnumarkaði líka," sagði Finnur. Ábyrgð deiluaðila er því mikil aö mínu mati og það er því grafalvar- legt mál ef vinnumarkaðsdeilur verba til þess að spilla hér fyrir fjár- festingu í stóriðju loksins þegar hún býðst. Aöspurður um hvort hann teldi lagasetningu koma til greina til að koma í veg fyrir endanlega lokun álversins, sagði Finnur: „Mér finnst það ekki koma til greina, eins og staðan er núna. Ábyrgðin er samn- ingsaðilanna og það eru þeir sem verba að finna lausn á málinu." ■

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.