Tíminn - 15.06.1995, Qupperneq 6
6
Fimmtudagur 15. júní 1995
UR HERAÐSFRETTABLÖÐUM
Aöstaöa Malbikunarstöövar Suöurnesia.
Einar Svavarsson ásamt sonum sínum, Ceir og Svavari.
3§MÉgÉkz
FnÉTTnmnn m
SELFOSSI
Afleibingar kennaraverk-
fallsins:
Sjötti hver hætti
námi
Námsárangur nemenda viö
Fjölbrautaskóla Suðurlands á
Selfossi er misjafn eftir áföng-
um. í sumum áföngum ís-
lensku og stærðfraeöi er fall
meira en áður og á það aðal-
lega við um efri áfangana.
Á heildina litið er námsár-
angur svipaður og áður, þ.e.
að fallprósenta er er svipuö og
fyrr. Að sögn Sigurðar Sigur-
sveinssonar skólameistara
hófu færri nemendur nám við
F.Su um áramót en um sein-
ustu áramót og 6. hver nem-
andi hætti námi í kjölfar verk-
falls.
Einingar, sem önnin skilar,
eru tæplega 2000 færri en
venjulega. Nokkur brögð voru
að því að nemendur hættu
námi í einstökum áföngum
eftir verkfalliö. Sigurður sagði
að þeir skólamenn heföu á til-
finningunni að einkunnir
væru lægri en áður, þótt engar
áreiðanlegar tölur væru til um
þaö.
Grímsnes:
Sumarhúsin
veröa um 2500
eftir 20 ár
í nýlegri skýrslu, sem
Grímsneshreppur hefur látið
vinna um veitumál í sveitarfé-
laginu, kemur fram að áætlað
er aö sumarhús í Grímsnesi
tvöfaldist að fjölda á næstu 20
árum og verði þá um 2550
talsins, en þau voru talin lið-
lega 1200 í fasteignamati
1993.
Undanfarin 10 ár hefur ver-
ið sótt um 80-100 byggingar-
leyfi fyrir sumarhúsum í
Grímsnesi, en sé farið aftur til
ársins 1976 hefur bústöðun-
um fjölgað að meðaltali um
70 á ári.
Karlrembuhlaup-
iö 1995
„Þetta er gert í fúlasta gríni
og með mjög alvarlegum und-
irtón," sagði Gísli Garðarsson,
formaður Almenningsíþrótta-
deildar Hamars, aöspurður um
karlrembuhlaupið sem deildin
efnin nú til.
„Við viljum vekja athygli á
jafnrétti til hreyfingar. Við er-
um ekki að hlaupa gegn mál-
stað kvenna, heldur viljum
við með þessu skapa tækifæri
fyrir alla fjölskylduna til að
fara út og hreyfa sig."
Samhliöa kvennahlaupinu,
„Ég verö auövitaö í broddi fylking-
ar — fyrstu metrana — svo labba
ég bara." Císli Caröarsson, for-
maöur Almenningsíþróttadeildar
Hamars, ásamt Andrési Úlfarssyni.
sem að þessu sinni verður
haldiö 18. júní, ákváðu karl-
arnir í stjórn almennings-
íþróttadeildar Hamars í Hvera-
gerði að efna til hlaups þar
sem hlaupin verður sama
vegalengd og konurnar
hlaupa, en öfugur hringur.
„Vib tökum skýrt fram að allt
áreiti við mætingu er bann-
að," sagöi Gísli.
Ingvar Sigurðsson, „snilling-
ur" í Hveragerði, hefur hann-
aö og merkt boli vegna þessa
framtaks og Gísli sagði ab ef
fleiri stabir vildu taka upp
þessa hugmynd um karl-
rembuhlaupið, gætu þeir
áreiðanlega fengiö slíkar flíkur
hjá Ingvari. Við endastöð fá
hlauparar svo afhentan
íspinna frá Kjörís.
KEFLAVIK
Tók hús á leigu
til bruggstarf-
semi
Lögreglan í Keflavík lokaöi
nýlega bruggverksmiöju í
Njarðvík og gerði upptæk
tæki, tól og um 900 lítra af
gambra.
Lögreglan fékk vísbendingu
um að í húsi einu í Njarövík
væri bruggverksmiðja í gangi.
Þegar komib var á staöinn,
kom í ljós ab íbúðin hafði ver-
ið tekin á leigu og sennilega í
því markmiði ab stunda þar
brugg, sem síðan átti að selja.
Einn mabur var handtekinn
og var hann úr Reykjavík.
Hann hefur viðurkennt aðild
sína að málinu, en einnig
tengjast fleiri aðilar því.
Malbikunarstöö
Suöurnesja form-
lega opnuö
Einar Svavarsson og synir
hans, Geir og Svavar, buðu
gestum til sín nýlega, er þeir
tóku formlega í notkun Mal-
bikunarstöð Suðurnesja hf.
Stööin hefur starfað um nokk-
urra mánaða skeiö, en hún af-
kastar um 65 tonnum á
klukkustund. Malbikunarstöb-
in var keypt frá Sviss. Tækni-
val hf. annaðist uppsetningu
og hönnun stýrikerfa og er
heildarkostnaöur við uppsetn-
ingu verksmiðjunnar 55-60
milljónir króna.
Mei ndýraeybi ri n n
bitinn
Fjölmargar hunangsflugu-
drottningar hafa verið á
sveimi á Húsavík undanfarna
daga. Elstu menn minnast
ekki að hafa séð jafnstórar
flugur, enda mun um nýja
landnema aö ræða. Flugurnar
munu gera meira gagn en
skaba og vera meinlausar
nema ab þeim sé þrengt. Ein
þeirra var þó svo bíræfin að
hreibra um sig í bóli mein-
dýraeyðis staöarins og bíta
hann í botninn báðum meg-
in.
Húsvíkingar, sem komist
hafa í návígi við flugurnar,
segjast aldrei hafa séö annað
eins. Maður, sem hefur hleypt
allmörgum þeirra út úr híbýl-
um sínum, segir þær vera um
þrjá cm ab lengd og fimm að
þvermáli. Kona, sem hrökk
upp af standinum við að sjá
slíka flugu í eldhúsgluggan-
um, sagði hana hafa verið á
stærð við lítið hænuegg, en
húsbóndinn sem sýndi karl-
mennsku og fangaði fluguna,
sagöi hana hafa verið á stærö
við hálfa mús.
Árni Logi meindýraeyðir
segir allmargar flugur hafa
komist inn hjá sér og geröist
ein mjög nærgöngul. Mein-
dýraeyðirinn var aö koma
framan úr sveit að næturlagi
eftir að hafa úðað fyrir roða-
maur. Er hann var kominn
undir sængina, fann hann
stungu í botninn og ásakaði
konu sína fyrir að hafa veriö
með sóðaskap við sauma og
skilib eftir títuprjóna í rúm-
inu. Sneri hann sér á hina
hliðina og fann umsvifalaust
fyrir annarri stungu og í fram-
haldi af því suö undir sæng-
inni. Þarna var ein hunangs-
flugan mætt og réðst hún ekki
á garöinn þar sem hann var
lægstur. Meindýraeyöirinn
þurfti ab ná sér í lyf í fram-
haldi af árásinni og segir hana
hafa vakib mikla kátínu sam-
borgaranna.
Hljómsveitin SSSól veröur á fleygiferö um landiö og leikur á bestu ball-
stööunum íhverjum landshluta.
Hljómsveitin SSSól er á ferb um landiö:
Þræðir bestu ballstaðina
Hljómsveitin SSSóI er nú komin
á fullt meb tónleikaferb sína og
hélt fjölmenna tónleika í Abaldal
um helgina. Hafa þessir fyrstu
tónleikar sumarsins verib hlabnir
miklu trukki.
Ab kvöldi 16. júní verða tónleik-
ar meb Sólinni í Sjallanum á Akur-
eyri og svo í Njálsbúb ab kvöldi 24.
júní. Þannig verbur landib — ab
frátöldum miðunum — þrætt í
sumar og leikib á vinsælustu tón-
leikastöbunum í hverju héraði. Ab-
standendur hljómsveitarinnar upp-
lýstu einnig ab um verslunar-
mannahelgina myndi hljómsveitin
verba í Mibgarbi í Skagafirbi og
leika þar á nokkrum böllum.
SSSól fylgir í sumar sveitin Sól-
strandargæjarnir, sem er að hasla
sér völl í poppgeiranum. Þá hefur
SSSól sent frá sér lagib Mér var svo
kalt, sem kemur út á næstunni —
og er þab þegar farib ab hljóma á
útvarpsstöbvunum.
-SBS, Selfossi
Kópasker:
Hitaveita í öll
hús í haust
Frá Þórbi Ingimarssyni, fréttaritara
Tímans á Akureyri:
Þessa dagana er unnib vib lagn-
ingu hitaveituæbar frá Silfur-
stjörnunni í Öxarfirbi norbur til
Kópaskers, en þab er um 14,5
kílómetra löng leib. Er þab annar
áfangi hitaveituframkvæmda í
öxarfirbi, en heitt vatn er fengib
úr borholu um tveimur kílómetr-
um norban Ærlækjarsels.
Á síbasta ári var gengið frá lögn
frá borholunni norður til Silfur-
stjörnunnar, auk þess sem nokkrir
bæir í Núpasveit voru tengdir vib
veituna. Þá var einnig gengib frá
abveituæbum ab húsum á Kópa-
skeri, þannig ab þær eru ab mestu
tilbúnar ab taka vib vatninu þegar
lagningu abalæbarinnar lýkur, sem
gert er ráb fyrir ab verbi um mán-
abamótin júlí-ágúst og þá hefjist
vinna vib ab tengja húsin vib veit-
una. Heita vatnib er nokkub salt-
blandab og því eru varmaskipti
naubsynleg, en affallib má nýta til
upphitunar stæba og einnig í heita
potta. íbúum Kópaskers býbst því
ab baba sig í efnaríku vatni innan
tíbar, fái þeir sér heita potta.
Vegna þess um hversu fáa not-
endur er ab ræba, verbur stofn-
kostnabur hvers og eins nokkub
hár. Ab sögn Guðmundar Arnar
Benediktssonar, veitustjóra, greiba
notendur tvo þribju hluta hans í
byrjun, auk þess sem margir verba
ab taka á sig nokkurn kostnab vib
breytingar á hitalögnum í húsum
sínum. Því er um nokkub dýra
framkvæmd ab ræba, ef mibab er
vib íbúafjölda, en talib að hún
muni borga sig á nokkrum tíma í
hækkubum hitunarkostnabi. Flestir
íbúar á Kópaskeri hafa kynt hús sín
meb rafmagni, en olíukynding hef-
ur þokab fyrir rafmagninu á und-
anförnum árum. ■
Sjómenn á Suöurnesjum:
Heibra þyrlusveitina
Á sjómannadaginn heibrubu
sjómenn á Suðurnesjum þyrlu-
björgunarsveit bandaríska
hersins á Mibnesheiði fyrir
framlag hennar til öryggis ís-
lenskra sjómanna.
Þyrlubjörgunarsveitin hefur
unnib mörg björgunarafrek á
undanförnum áratugum, en án
efa ber einna hæst giftusamlega
björgun í Vöðlavík í ársbyrjun í
fyrra og endurtekin afrek við
björgun langt á hafi úti. Þótt að-
alverkefni þyrlubjörgunarsveitar-
innar sé að vera til taks fyrir flug-
sveitir hersins, þá hafa íslenskir
sjófarendur notib góðs af full-
komnum björgunarbúnaði sveit-
arinnar.
Það voru Sjómannadagsráö
Keflavíkur, Njarðvíkur og Hafna
ásamt Verkalýbs- og sjómanna-
félagi Keflavíkur og nágrennis,
Skipstjóra- og stýrimannafélag-
inu Vísi og Vélstjórafélagi Suöur-
nesja sem heiðruðu þyrlusveitina
við athöfn, sem fram fór viö
minnismerki sjómanna vib
Holtaskóla í Keflavík.