Tíminn - 20.06.1995, Síða 1
STOFNAÐUR 191 7
79. árgangur Þriöjudagur 20. júní 1995 111. tölublað 1995
Skólamálaráö Reykjavík-
ur um skólastjórastöbu í
Austurbœjarskóla:
Mælt meö
Sigrúnu
Meirihluti skólamálaráös Reykja-
víkur ákvab í gær að mæla með Sig-
rúnu Ágústsdóttur í starf skóla-
stjóra Austurbæjarskóla. Það voru
þrír fulltrúar R-listans sem ákváöu
að mæla með Sigrúnu, en tveir
fullrúar Sjálfstæðisflokksins ákváðu
að mæla með starfandi skólastjóra,
Guömundi Sighvatssyni. Kennarar
og starfsfólk Austurbæjarskóla hafa
lýst yfir eindregnum stuðningi við
Guðmund. Fræðslustjóri mun nú
gefa ráðherra umsögn en þab er
síðan Björn Bjarnason sem ákveður
hver fær stöðuna. Alls sóttu sjö um
stöðuna. ■
Hertari reglur um tollfrjálsan innflutning á áfengi hjá flugmönnum
og fíugfreyjum, valda þeim erfiöleikum:
Áhafnarmeðlimir
teknir ..í röðum"
Samkvæmt heimildum Tímans
hefur orðib gífurleg aukning á
þeim áhafnarmeblimum á
millílandaflugvélum, sem tekn-
ir hafa verib í tollinum á flug-
vellinum í Keflavík. Sömu
heimildir segja ab í vetur hafi
verib teknir á bilinu 50- 60 flug-
menn og flugfreyjur sem annab
hvort hafi reynt ab taka meb sér
of mikib áfengi inn í landib,
eba hafi verib ab brjóta settar
tímareglur. Refsingin vib þess-
um ólöglega innflutningi er
upptaka varningsins og greibsla
sektar, en sem dæmi má nefna
ab vibkomandi er gert ab greiba
3.200 krónur fyrir hvern líter af
sterku víni sem reynt er ab
smygla inn.
Gottskálk Ólafsson, tollstjóri
á Keflavíkurflugvelli, segir þab
rétt ab brögb séu ab því að
áhafnarmeblimir reyni ab kom-
ast meb meira magn af toll-
skyldum varningi, þ.e.a.s.
áfengi en heimilt sé. Hann segir
þó ab samanburður sé erfiður,
enda hafi ákvæbi um tímatak-
mörk ekki veriö áður.
Meblimir flugáhafna sem hafa
skemmri útivist en 15 daga í
einu mega taka meb sér 0,375
lítra af sterku áfengi og 0,75
lítra af léttu eða sama magn af
sterku og þrjá lítra af bjór, eða
sama magn af léttu áfengi og
þrjá lítra af bjór. Auk þessa eru
settar tímatakmarkanir á það
hversu oft áhafnarmeðlimir
mega taka með áfengi án þess
ab greiða tolla. ■
Yfirmenn á kaupskipum:
Sáttafundur
á morgun
Bobað hefur verib til sáttafundar
í kjaradeilu yfirmanna á kaup-
skipum og vibsemjenda þeirra á
morgun, mibvikudag, hjá ríkis-
sáttasemjara. En stéttarfélög
skipstjóra, stýrimanna, bryta og
matsveina frestubu ábur bobubu
verkfalli til hádegis þann 26. júní
nk. hafi samningar ekki tekist
fyrir þann tíma.
Guðlaugur Gíslason hjá Stýri-
mannafélagi íslands segir ab ákveð-
ið hafi verið að fresta boðuðu verk-
falli um viku til að iiöka fyrir samn-
ingum. En samkvæmt fyrri ákvörð-
un átti boðað verkfall yfirmanna á
kaupskipum ab koma til fram-
kvæmda á hádegi í gær, þann 19.
júní. Aðspurður um kröfur félag-
anna sagði Guðlaugur ab stefnt
væri að því að „fá eitthvað meira"
en yfirmenn fengu í þeim samn-
ingi sem þeir felldu á dögunum
meb eins atkvæðis meirihluta.
Hinsvegar samþykktu vélstjórar á
kaupskipum samninginn og eru
því ekki með í þeim samningavið-
ræðum sem framundan eru. Þá
stendur yfir atkvæðagreiðsla um
kjarasamning undirmanna á kaup-
skipum í Sjómannafélagi Reykja-
víkur. ■
Tvö innbrot
Tilkynnt var um tvö innbrot til lög-
reglunnar í Reykjavík í gærmorg-
un. Brotist var inn í safnaðarheim-
ili Laugarnessóknar, þar sem stolib
var tölvum og öörum búnabi.
Einnig var brotist inn í tannlækna-
stofu í Vogahverfi og miklar
skemmdir unnar. RLR hefur bæði
málin til rannsóknar. ■
LIÚ œtlar ekki oð skora á félagsmenn aö hœtta viðskiptum við Shell vegna olíuborpallsins:
Segir ákvörbun Shell af hinu illa
Kristján Ragnarsson formabur
LÍÚ segir ab allt það sem getur
spillt lifríki hafsins sé af hinu
illa. Hann segist undrast mjög þá
ákvörbun yfirstjórnar Sheil ab
ætla ab sökkva einum af olíu-
borpalli sínum í hafib úti fyrir
strönd Skotlands.
Formaður LÍÚ segir að ekki hafi
komiö til tals innan stjórnar lands-
sambandsins ab skora á félags-
menn ab hætta viðskiptum vib
Shell á íslandi í mótmælaskyni við
ákvörðun stjórnar móburfyrir-
tæksins. Kristján segir það ekki
sanngjarnt aö blanda viðskiptum
við Skeljung hf. við þetta mál,
enda sé fyrirtækið að mestu ís-
lenskt þótt það sé að hluta til í eigu
alþjóðafyrirtæksins Shell. Auk þess
hefur forstjóri Skeljungs hf. lýst sig
andvígan þessari ráðagerð móður-
fyrirtæksins.
Svo virðist sem yfirstjórn Shell
ætli að halda fast vib fyrri ákvörö-
un sína og sökkva olíuborpallin-
um í Atlantshafið, þrátt fyrir áköf
mótmæli víðs vegar aö og m.a. frá
íslenskum stjórnvöldum. Þá hafa
nokkur fyrirtæki á Norðurlöndum
ákveðið að hætta viðskiptum við
Shell í mótmælaskyni. En talið er
aö allt aö fimm þúsund tonn af ol-
íu sé aö finna í pallinum auk ann-
arra efna sem hættuleg eru lífríki
hafsins. ■
Sumar á Akureyri
Tímamynd: Pjetur
Þab þarfvart ab segja nokkrum hvarþessi myrid er tekin, því allflestir þekkja
kirkjuna í baksýn. Þab er komib sumar á Akureyri og starfsmenn bœjarins því í óbaönn ab klœba hann í sumarfötin og hitti Ijósmyndari
Tímans þessar stúlkur fyrir í tröppunum sem liggja ab kirkjunni, á dögunum.
Sigríöur Hrönn segist
ekki koma aftur til starfa
í Súöavík:
Samstaðan
ekki eins og
hún hefði kosið
Sigríður Hrönn Elíasdóttir,
fulltrúi í hreppsnefnd Súba-
víkurhrepps, tilkynnti fjöl-
miblum í gær ab hún muni
ekki taka vib starfi sveitar-
stjóra í Súbavík ab nýju í
haust. Vib því starfi tók hún
1988. Meb þessu segist hún
vonast til ab geta skapab ein-
ingu innan hreppsnefndar-
innar um framgang mála í
sveitarfélaginu.
„Því mibur
hefur sam-
staban og
samstarfib
ekki verið
eins og ég
heföi helst
kosib. íbúar
sveitarfélags-
ins eiga skilið Sigríbur Hrönn
ab sátt ríki,
þegar vinna þarf heilt byggbar-
lag út úr slíkum vanda, sem hér
er vib ab glíma," sagði Sigríbur
Hrönn í gær.
Hún segir ennfremur ab átök
og persónuleg gagnrýni, sem
hafi átt sér stað innan hrepps-
nefndar, hafi haft djúpstæb
áhrif á sig og fjölskyldu sina og
eigi stóran þátt í þeirri stöbu
sem hún nú sé í. ■