Tíminn - 22.06.1995, Blaðsíða 2
2
Fimmtudagur 22. júní 1995
Tíminn
spyr...
Má greina stefnubreytingu í
Evrópumálum samkvæmt
þjóðhátí&arræöu Daví&s
Oddssonar forsætisrá&herra?
Gunnlaugur A. Júlíusson,
fyrrverandi forystuma&ur
Samstööu um óhá& ísland og
sveitarstjóri á Raufarhöfn:
Á vissan hátt hefur forsætis-
rá&herra undirstrikaö fyrri
stefnu og fyrri yfirlýsingar um
aö hann telji hagsmunum ís-
lands betur borgiö utan Evrópu-
sambandsins en innan þess.
Þannig tel ég aö ekki sé um
stefnubreytingu aö ræöa heldur
fremur aö fyrri áherslur hafi
veriö skerptar.
Margrét Frímannsdóttir, þing-
maöur og formannsefni Al-
þýöubandalags:
Mér finnst forsætisráöherra
aö minnsta kosti vera haröari
gegn aöild aö ESB nú en oftast
áöur. Kveöa fastar aö og taka aö
sumu leyti undir orö okkar í
stjórnarandstööunni um aö
ekki megi fórna sjálfstæöi og
sjálfsforræöi þjóöarinnar. Hér
talar forsætisráöherra mjög af-
dráttarlaust.
Jóna Valgeröur Kristjánsdótt-
ir, fv. þingmaöur Kvennalista
og forystumaöur í Samstö&u
um óhá& ísland:
Þessi ræöa forsætisráöherra
kom mér skemmtilega á óvart.
Hann hefur til þessa ekki viljaö
gefa út neinar yfirlýsingar fyrr
en eftir ríkjaráöstefnu ESB en
hér hefur hann talaö hreint út
um þetta mál og þaö er áherslu-
breyting. En auövitaö eru ekki
allir sammála forsætisráöherra
og þessi þjóöhátíöarræöa hans
hefur komiö af staö kröftugri
Evrópuumræöu meöal þjóöar-
innar, sem auövitaö þarf aö fara
fram.
Vitaskuld á ráðrung 1
Þessi makalausa með-
Dylgjur og* ósannindi
starf biskupsritara sér
ferð á skipun prests í
lengri afdraganda, segir
Hveragerði og Kot
Baldur Kristjansson
strandarsokn, segir
og bauðst mér þetta
starf vegna reynslu
Knutur Bruun. er
ekki kirkjuyfirvöldum
minnar, menntunar
í landmu til sóma.
og hæfm.
Geimfaraœfing í Hallargaröinum á 17. júní. Ungur maöur, njörvaöur niöur ítœkiö, leggur upp íþyngdarleysiö,
hringirnir snúast á alla enda og kanta, út og suöur. Mikiö fjör hjá „farþegum" jóhannesar Tómassonar, sem er
til hœgri á myndinni.
Atvinnulaus námsmaöur fann leiö til aö vinna fyrir dýrum skólagjöldunum:
Býður upp á æfingar
geimfaranna hjá NASA
Cunnlaugur Sœvar Gunnlaugsson.
Skippaö í útvarpsráö:
Gunnlaugur formaður
Menntamálará&herra hefur
skipaö Gunnlaug Sævar
Gunnlaugsson, framkvæmda-
stjóra Faxamjöls, formann ný-
kjörins útvarpsráös og Gissur
Pétursson verkefnisstjóra
varaformann.
I stuttu spjalli viö Tímann í
gær sagöi Gunnlaugur að starfið
legöist vel í sig, en hann gæti
ekki tjáö sig aö svo komnu máli
um hvort breytinga væri aö
vænta hjá ráðinu. Þá vildi hann
ekkert segja um þær hugmynd-
ir, sem menntamálaráöherra
hefur viöraö nýveriö, að hann
útilokaði ekki afnám skyldu-
áskriftar að RÚV.
Samkvæmt útvarpslögum er
sjö manna útvarpsráð kosið
hlutfallskosningu á Alþingi eftir
hverjar alþingiskosningar.
Menntamálaráöherra skipar síö-
an formann og varaformann úr
hópi hinna kjörnu útvarpsráös-
manna. ■
Jóhannes Tómasson er ungur
námsma&ur í hnykklækning-
um i Bandaríkjunum. Hann
átti ekki vísa atvinnu í sumar-
fríinu en þurfti naubsynlega
ab afla sér peninga, því ekki
borgar Lánasjó&urinn þeim
sem stunda þessa tegund
Iækninga. Til aö bjarga mál-
um haf&i hann me& sér hing-
ab til lands tæki sem geimfar-
ar Bandarikjanna nota til aö
kynnast þyngdarleysinu og
æfa sig vi& slíkar a&stæ&ur.
Tækib sem Jóhannes kallar
geimsneril, er afar vinsælt hér
á landi þessa dagana.
Jóhannes hefur verið meö
geimsneril sinn viö stórmarkaði
víöa um land, og jafnvel sett
hann upp í Tunglinu, þar sem
rann víst af flestum sem kynnt-
ust þyngdarleysinu.
Upphaflega var þetta tæki,
Gyronaut, hannað af NASA,
Geimferöastofnun Bandaríkj-
anna, til þjálfunar á geimförum
en er nú komið á almennan
markað.
Sagt var...
Vísitölufjölskyldan
„Mér hefur tekist a& búa til vísitölufjöl-
skyldu úr einum manni: Ég er karlmaö-
ur, eyöi peningum eins og kona, er
álíka mikiö hæröur og ungabarn og
hegöa mér eins og unglingur."
Logi Einarsson í Degi.
Álver og kirkja
„Ég held aö þaö sé miklu bjartara yfir
núna en en þaö getur náttúrlega
breyst alveg eins og í álverinu."
Ólafur Skúlason biskup um ágreining inn-
an Langholtskirkju í DV.
Lengi má manninn reyna...
„Ólán íslenskra tippara"
Fyrirsögn í DV.
Eini gallinn
„Búið er aö skera um 300 kíló af hval-
kjöti af búrhvölunum sem fundust viö
strönd Hóla í Öxarfjaröarhreppi. Gall-
inn er að kjötið er óætt."
Útvarpsþulur RÚV í gær.
Landris?
„Vífilfell hækkar um 4-5%"
Mogginn í gær.
Frábib mér orbur
„Ég mótmæli framferöi ykkar í þessu
máli og frábiö mér „heiðurinn" af því
aö vera dannebrogsmaöur."
Aksel Hansen Færeyingur sem skilaM
or&u í mótmælaskyni vib dönsk stjórn-
völd. Mogginn í gær.
Frú Sigríöur ægivera
„í morgun átti ég leiö í Perluna eins og
oft undanfarna laugardaga. Þar mætti
mér ömurleg sjón viö innganginn í
þessa glæsilegu byggingu sem samein-
ar svo vel fyrri og nýrri tíma. Viö blasti
ógnarleg skrumskæling á okkarfagra,
íslenska búningi, sem hefur veriö tákn
um fegurö og menningu þjóöarinnar,
einhver ægivera standandi á hjólbör-
um í skautbúningi."
Lóa Konrábs ÍMogga um frú
Sigríbi Rósudóttur.
í heita
pottinum...
Á sumarhátíðinni á Selfossi sem haldin
verbur um helgina mun standa til aö
halda harmóníkuball þar sem gömlu
dansarnir veröa í hávegum haföir undir
forustu hins víðkunna Steina spil. Búist
var við að Selfyssingar, komnir um og
yfir miöjan aldur, myndu fjölmenna en
sýsluskrifstofan gerði athugasemdir viö
fyrirhugaðar auglýsingar. Þaö gleymd-
ist ab taka fram ab ballið væri bannað
innan 16 ára! Auglýsingum var því
hagrætt og sagt: Harmóníkuball —
bannað innan sextán.
•
Veiting skólastjórastöðu Austurbæjar-
skóla er ab verba ab framhaldsögu í
pottinum, en beðib hefur veriö um-
sagnar Áslaugar Brynjólfsdóttur
fræðslustjóra eftir aö Ijóst var að meiri-
hluti skólamálaráös mælti meö Sig-
rúnu Ágústsdóttur en minnihlutinn
meb Gubmundi Sighvatssyni starf-
andi skólastjóra. Nú heyrist að fræöslu-
stjóri hafi flækt málib enn frekar meö
því aö blanda þriöja umsækjandanum í
málib, Ernu Sveinbjarnardóttur,
skólastjóra frá Patreksfirði, og benda
ráöherra þannig á þrjá kandídata í stað
tveggja.
•
Mikib er rætt um nauögunarmáliö í út-
hafstogaranum sem liggur í Hafnar-
fjarðarhöfn og aöferöir lögreglunnar
viö sakbendingu. Reykvískur athafna-
maður, sem var aö viröa fyrir sér
skemmtiferöaskipiö Oriana, sem er
stærsta og fjölmennasta skip sem hing-
að hefur komib og lá á ytri höfninni í
fyrradag, mun hafa sagt: „Löggan var
svei mér heppin aö konurnar fóru ekki
um borð í þetta skip!"
•
Valdimar Gunnarsson, skólameistari
Menntaskólans á Akureyri, gat þess í
ræöu á dögunum aö svo vildi til aö
samkvæmt könnun heföu 3 af hverjum
5 nemendum skólans tengst kennslu á
einn eöa annan hátt á lífsleiðinni. Þetta
þykir nokkub hátt hlutfall en Valdimar
var meb tvær skýringar á málinu. Ann-
ars vegar aö nemendur viö MA litu svo
upp til lærife&ra sinna aö þeir yrbu aö
feta í fótspor þeirra. Eða að nemend-
urnir sæju eftir námiö viö skólann ab
helst væri pottur brotinn í kennslumál-
um og helguðu sig því uppfræðslu-
störfum.