Tíminn - 22.06.1995, Side 13

Tíminn - 22.06.1995, Side 13
Fimmtudagur 22. júní 1995 13 Operusöngkonurnar Elísabet Erlingsdóttir og Sieglinde Kahmann voru í Allir sungu Island ögrum skorib. Rut Ingólfsdóttir útskriftarkandídat yst til vinstri, Kjartan Cunnarsson fyrir miöju veislunni. og Þorgeröur Ingólfsdóttir kórstjóri stendur hjá sóprönunum sínum í Hamrahlíöarkórnum. Margheilagt hja mennta- málaráðherrahjónunum Þjóðhátíðardagur íslendinga, 17. júní, rann upp bjartur og fagur og fyrir flesta íslend- inga var þetta bara venjuleg- ur frídagur með skemmtiat- riðum niðrí bæ og hátíðar- dagskrá í Sjónvarpinu. Ekki samt aldeilis fyrir mennta- málaráðherrahjónin, Bjöm Bjarnason og Rut Ingólfs- dóttur. Háskóli íslands hafði nefnilega ákveðið að útskrifa kandídata þennan dag og það í sjálfri Laugardalshöll- inni. Þýddi þetta að sjálf- sögðu mætingu fyrir þau við útskrift, að samfagna Háskól- anum, kandídötunum og tvö þúsund aðstandendum, sem voru við hátíðina. Þetta var nú bara byrjunin. Því menntamálaráðherrafrú- in, fiðluleikarinn og frönsku- kandídatinn, Rut Ingólfs- dóttir, var einmitt að útskrif- ast sjálf þennan dag. Hún hafði bundist ástfóstri við franskar bókmenntir og í rit- gerð sinni leiddi hún líkur að því, að umfjöllun hins fræga franska rithöfundar, Marcels Proust, í bók hans í leit að liðnum tíma, ætti einmitt við sérstakan fiðlukonsert eftir César Franck. Þegar forráðamenn Há- skóla íslands fréttu þetta, fannst þeim alveg upplagt að þessi fiðlukonsert yrði ein- mitt spilaður við hátíðardag- skrána í Laugardalshöllinni. Hvað var svo einmitt betur við hæfi en að biðja sjálfan útskriftarkandídatinn og fiðluleikarann, Rut Ingólfs- dóttur, að flytja hann. Sem hún og gerði með sérstökum glæsibrag. Þetta var nú opinbera hlið- in á málinu. Því svo var það fjölskyldan, vinimir og allir hinir. Það þýddi að sjálf- sögðu veislu heima, og þar sem Rut er systir Þorgerðar Ingólfsdóttur, stjórnanda Hamrahlíðarkórsins, þá mætti þessi margverðlaunaö- asti kór íslendinga í öllu sínu veldi meö yndislegum stjórnanda sínum og ein- söngvurum og söng af hjart- ans lyst úti í garði, svo undir tók í Hlíðunum. Einn kórfé- laganna var einmitt sonur Björns og Rutar, Bjarni Bene- dikt, og fékk hann sérstak- lega smellna stemmu í flutn- ingnum. Svo fengu allir við- Mann- lífs- spegill GUÐLAUGUR TRYGGVI KARLSSON staddir að syngja með eitt lag. Sem sagt eftirminnilegur þjóðhátíðardagur hjá menntamálaráðherrahjón- unum, sem geymist í minn- ingunni ásamt skírteininu frá Háskóla íslands um glæsileg- an árangur í „lingua franca", frönsku. Myndirnar eru úr veislunni. ■ Vigdís Bjarnadóttir, fjármálastjóri embœttis forseta íslands í 25 ár, og Björn Bjarnason menntamálaráöherra ræöa nœstu aögeröir „Milljónafé- lagsins" til styrktar Háskóla íslands. Þórunn Hafstein hjá Menntamálaráöuneytinu og Hannes Hólmsteinn Cissurarson hjá Háskólanum gantast á úti í garöi. Hamrahlíöarkórinn stillti sér upp úti ígaröi og söng undir stjórn Þorgerö- ar Ingólfsdóttur, svo undir tók í Hlíöunum. Kjartan Gunnarsson, framkvœmdastjóri Sjálfstœöisflokksins, flutti snjalla rœöu í veislunni og sagöi þau Rut og Björn jafn skemmtileg og þaö vœri mann- bætandi aö þekkja þau.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.