Tíminn - 11.07.1995, Side 8
Wimmn
Þriðjudagur 11. júlí 1995
t
Þriðjudagur 11. júlí 1995
Molar...
... Stjörnumenn töpuðu kær-
unni sem þeir höfðuðu gegn
Þrótti R. fyrir að Ágúst Hauks-
son, þjálfari og leikmaður
Þróttar, var á leiksskýrslu í
leiknum þrátt fyrir að vera í
leikbanni sem leikmaður. í nið-
urstöðu knattspyrnudómstóls
Reykjaness segir: „kærði skal
vera sýkn af kröfu kæranda í
máli þessu um að hafa mætt
með ólöglega skipað liö til
leiks." Úrslit leiksins, 2-4 fyrir
Þrótti, standa því óbreytt.
Bæði liðin eru með 13 stig í 2.
deildinni.
... Andrei Kanchelskis, hjá
Man. Utd, hefur verið settur á
sölulista hjá félaginu. Fergus-
son, stjórinn hjá Man. Utd,
sagðist ekki hafa getað sann-
fært Kanchelskis um að vera
áfram. Blackburn, Leeds og
Middlesboro eru öll sögð sækj-
ast eftir Úkraínumanninum.
... Albanska knattspyrnusam-
bandið ákvað. í gær að útisigur
á næsta tímabili gefi þrju stig,
en heimasigur gefur áfram tvö
stig.
... Thomas Muster frá Austur-
ríki hefur unnið samtals til
hæstu verðlauna í tennis í dag.
Rúmlega ein og hálf miljón
dollara hefur komið í vasa
kappans á árinu en tæplega
1,4 miljónir hjá Pete Sampras.
... Niger hefur dregiö sig út úr
Afríkukeppninni í knattspyrnu
vegna óánægju á vali á dóm-
urum og línuvörðum í næsta
leik þeirra gegn Kongó.
... Davíð Garðarsson hefur
verið rekinn úr herbúðum Vals
í fótboltanum vegna ummæla
sem hann hafði eftir 0-3 tap-
leik gegn Grindavík um dag-
inn. Dagblaðið Vísir greindi frá
þessu í gær.
... Ágúst Kvaran sigraði í
maraþonhlaupi á Mývatni sem
lauk um helgina. Hann fór km
42 á 3:29,44 klst. jóhanna
Arnþórsdóttir sigrabi í kvenna-
flokki á 4:16,58 klst.
... Óskar Hrafn Þorvaldsson,
hjá KR, er tognaður á liðbönd-
um á báðum hnjánum og er
óvíst hvenær hann leikur næst
með.
... Jóhannes B. Jóhannesson
og Kristján Helgason hafa báb-
ir unnið alla andstæðinga sína
í snóker á sterku móti í Black-
pool á Englandi.
VINNINGSTÖLUR
LAUGARDAGINN
VINNINGAR
FJÖLDI
VINNINGSHAFA
1.5
3..
4.:
114
3.126
UPPH/EÐ Á HVERN
VINNINGSHAFA
2.029.350
1.203.060
4.280
360
Helldarvinningsupphæð:
4.845.690
BIRT MEÐ FYRIRVARA UM PRENTVILLUR
KRISTJAN GRIMSSON
Fyrrum stjórnarmenn hjá knattspyrndeild Víkings aö borga skuldir
sem þeir gengust fyrir hjá félaginu:
Hart deilt
hjá Víkingi
Samkvæmt heimildum Tímans
eiga fyrrverandi stjórnarmenn í
knattspyrnudeild Víkings, sem
fóru frá síðla árs 1992, í mikl-
um deilum við yfirstjórn félags-
ins. Deilan snýst um skuldabréf
sem stjórnarmennirnir fyrrver-
andi skrifuöu upp á fyrir nokkr-
um árum og eru nú komin á
gjalddaga. Sömu heimildir
segja að upphæbin nemi um
tveimur miljónum króna og
stjórnamennirnir sem um ræðir
séu þeir Gunnar Örn Kristjáns-
son og Magnús Theódórsson,
auk Ragnars Gíslasonar sem var
abstoðarþjálfari Loga Ólafsson-
ar á sínum tíma. Heimild blaðs-
ins segir gert hafi verið sam-
komulag milli Víkings og þre-
menningana um að þeir
myndu borga eina miljón auk
vaxta sem nema um hálfri mi-
ljón króna en aðalstjórn Vík-
ings mundi sjá um hina mi-
ljónina. Þá var gert samkomu-
lag um að þessir fyrrum
stjórnamenn gætu hreinlega
unniö upp í skuldina með því
að nota nafn Víkings til að
safna auglýsingum fyrir félagið.
Óljóst er hversu miklu þre-
menningarnir hafa safnaö en
nú er svo komið að þeir vilja
ekki borga meira og hafa sett
málið í lögfræðing og vilja að
Víkingur taki að sér alla skuld-
ina. Heimildir Tímans segja
einnig að heildarskuldir þessar-
ar stjórnar á sínum tíma hafi
verið um 30 miljónir króna en
ekki 7 miljónir eins og þre-
menningarnir hafi viljað
meina. „Við erum að reyna
sættir og ég vona að þaö gangi
eftir en að öbru leyti vil ég ekki
Laudrup ánægb-
ur hjá Rangers
Eftir fimm ára flakk um Evrópu hjá
ýmsum knattspyrnuliðum virðist
Brian Laudrup vera búinn að skjóta
föstum rótum hjá Rangers og segist
hann vera tilbúinn að enda feril-
inn hjá þeim. Laudrup, sem var
kosinn knattspyrnumabur ársins í
Skotlandi á síðasta tímabili, fékk
tilboð frá Barcelona um að leika
þar en hafnaöi því. „Ég hef alltaf
yfirgefið félög eftir 1-2 ár en ég hef
það á tilfinningunni að ég sé
staddur á rétta staðnum," segir
Laudrup sem gerði þriggja ára
samning við Rangers í fyrra þegar
hann kom frá Fiorentina á Ítalíu.
„Það er mjög uppörvandi að fá til-
boð frá eins stóru félagi og Barcel-
ona og það hefði verið frábært að
búa nálægt bróður mínum Michael
en ég er ánægður hér," segir hinn
Stórtíöindi í bresku knattspyrnunni:
Platt til Arsenal og
Gascoigne til Rangers
Stórtíðindi urðu í ensku knatt-
spyrnunni í gær þegar tveir Eng-
lendingar snéru heim úr víking frá
Ítalíu og gengu til liðs við bresk fé-
lagslið. David Platt, sem er 29 ára,
gerði fjögurra ára samning við Ar-
senal, en hann hefur undanfarin
tímabil verið hjá Sampdoria. Talið
er að Platt kosti Arsenal rúmlega
hálfan miljarð íslenskra króna, en
samningurinn í heild er metinn á
tæpan miljarð króna og eru þá
laun leikmannsins inni í því. Þar
með er Platt annar leikmaöurinn
sem gengur til liðs við Arsenal frá
Ítalíu á skömmum tíma, því Hol-
lendingurinn Dennis Bergkamp er
kominn til Arsenal frá Inter Milan.
Manchester Utd var einnig á eftir
Platt, sem var hjá Man. Utd árið
1984 en látinn fara á frjálsri sölu,
þar sem þeim fannst ekki mikið
varið í kappann.
Þá gekk hinn 28 ára Paul Gasco-
igne til liös við skosku meistarana
Glasgow Rangers frá Lazio á Ítalíu.
Samningur hans er einnig talinn
kosta um hálfan miljarb íslenskra
króna. „Ég vil ólmur og uppvægur
spila fyrir Rangers," sagði Gasco-
igne. ■
tjá mig um þetta mál," sagði
Hallur Hallsson, formaður Vík-
ings. Ragnar Gíslason, einn þre-
menningana, sagði aö máliö
væri í höndum lögfræðings en
vildi ekki láta hafa eftir sér
neitt annað um þetta mál.
25 ára Dani. „í fyrsta skipti á ferlin-
um hef ég ánægju af því að spila
fótbolta," sagöi Laudrup. ■
Tyson er gulrótin
Ef Frank Bruno vinnur núver-
andi heimsmeistara í þunga-
vigt, Oliver McCall, í London í
september fær hann tækifæri til
að lemja á Mike Tyson í annab
sinn, sem nýlega slapp úr fang-
elsi og margir kalla hinn eigin-
lega heimsmeistara. Ab sjálf-
sögðu mætir McCall Tyson ef
hann vinnur og það er því
óhætt að segja að Tyson sé not-
aður sem gulrót í hnefaleikun-
um í dag enda vilja allir reyna
sig við kappann. ■
Eydís sigraöi i baksundinu
Eydís Konrábsdóttir, Keflavík, sigrabi örugglega í baksundsgreinununum á sundmeistaramóti íslands sem fórfram um helgina en
hún er fyrir mibri mynd á braut fjögur. Hún synti I OOm baksund á 1:09,44 mín. og 200m baksund á 2:29,44 mín. Annars voru
tvö íslandsmet sett á mótinu. Kvennasveit Ægis synti 4X200m skribsund á 9:12,28 mín. og 4X1 OOm skribsund á 4:14,91 mín.
Besta afrek mótsins vann Magnús Konrábsson, Keflavík, fyrir ab synda 1 OOm bríngusund á 1:05,72 mín. Meb þessu sundi komst
Magnús í Ól-hóp SSÍ. Elín Sigurbardóttir, SH, hlaut Kolbrúnarbikarinn fyrír 50m skríbsund á 27,78 sekúndum. Tímamynd Sveinn
Slœmar aöstœöur á nýafstöönu sundmeistaramóti í Laugardal. Varaformaöur SSÍ:
sér til hita
— ITR krefst þess aö sundmeistaramótiö fari einnig í önnur bœjarfélög
David Platt leikur meb Arsenal íensku úrvalsdeildinni nœsta tímabil.
„Við höfum heimildir fyrir því ab
menn séu jákvæðir innan borgar-
kerfisins fyrir byggingu nýrrar
sundhallar," segir Sævar Stefáns-
son, varaformaður sundsambands-
ins, aðspurður hvort einhver hreyf-
ing sé á komin á þeirra mál hvab
varðar nýja sundhöll en þeir höfðu
gefið borginni frest til mánaðar-
mótana júní júlí til að sýna ein-
hver viöbrögð við bón þeirra. Sæv-
ar hefur lýst því yfir í Tímanum að
sundmenn taki ekki þátt í Smá-
þjóðaleikunum hér á landi 1997
nema ný innisundhöll veröi komin
á laggirnar. Hann segir að ástandið
í slökum aðbúnaði sundmanna
hafa sést best um helgina þegar
sundmeistaramót íslands fór fram í
Laugardalnum. „Fólk var þarna í
kulda og roki. Ráöamenn eru farnir
að sjá það að það verður aldrei
neitt úr svona móti við þessar að-
stæður en hvort þeir láta svo pen-
ing í dæmiö er spurningin," segir
Sævar. Hann segir ab varla sé hægt
að búast við því að íslandsmetin
falli við þessar aðstæöur. „Þó að
einn og einn sundmaður hafi gert
það ágætt þá er árangur í heildina
alltaf slakur Jjegar rok og kuldi er á
keppnistaðnum. Árangur hefði ver-
ið betri viö réttar aðstæður og gott
væri ef sundfólkið þyrfti ekki ab
vera berja sér til hita í skíðagöllum
við ráspall," sagbi Sævar. Sævar
segir að á vissan hátt standi þessi
laugarmál íþróttinni fyrir þrifum.
„Vib erum með gott ungt fólk. En
þetta hefur óneitanlega haft þau
áhrif m.a. að við fáum engan pen-
ing út úr mótum og þetta verður
aldrei stæll viö þessar abstæður.
Ungt fólk vill fá einhverja umfjöll-
un en við fáum hana litla því mót-
in verða aldrei skemmtileg við
þessar aðstæbur þar sem fólk hímir
einhversstaðar undir vegg. Afleið-
ingarnar verða svo ab færri krakkar
fara í sundið.
Hann segir að íþrótta- og tóm-
stundaráö krefjist þess að þetta mót
fari einnig í eitthvert annað bæjar-
félag. „Þeir vilja ekki hafa okkur
sem er svosum ósköp skiljanlegt
þegar þarf að loka Laugardalslaug-
inni í þrjá daga á miðju sumri. En
ef þetta verður annarsstaðar þá þarf
að sjálfsögðu að loka þar líka," seg-
ir Svæar og segir að Kópavogslaug-
in sé eini staðurinn sem komi til
greina og: „ekki er rokið og rign-
ingin minni þar nema síður sé því
það er ennþá meira áveðurssamt
þarna í Kópavoginu," sagði Sævar
að lokum.
Jiirgen Klinsmann vinscell í Þýskalandi:
3000 horfðu á fyrstu æfinguna
Um 3000 aðdáendur þýska liðs-
ins Bayern Miinchen komu til
að horfa á fyrstu æfingu
Jiirgens Klinsmanns hjá félag-
inu í gær og einnig sáu aðdá-
endurnir Otto Rehhagel í fyrsta
skipti stjórna æfingu hjá Bay-
ern. Otto karlinn var reyndar
ekkert alltof ánægður með
fjöldann og sagbi að það væri
ekkert að sjá. Lothar Matthae-
us, sem missti af síðasta kepþn-
istímabili vegna meiðsla, og
Austurríkismaðurinn Andreas
Herzog, sem kom til Bayern frá
Bremen eins og Rehhagel, voru
einnig með á þessari fjölmennu
æfingu. ■
KRISTJAN GRIMSSON
Wimbledon-mótiö í tennis:
Sömu meistar-
ar og fyrir
tveimur árum
Við fyrstu sín virðist nýaflokna
Wimbledon-mótið í tennis vera
nánast endurtekning frá sama
móti fyrir tveimur árum. Þá, eins
og nú, vann Pete Sampras eiriliða-
leikinn og einnig Steffi Graf og
ekki einn einast regndropi féll af
himnum ofan, rétt eins og fyrir
tveimur árum.
Bandaríkjamaöurinn Pete
Sampras sigraði Þjóðverjann Boris
Becker í úrslitaleik í einliöaleikn-
um, 6-7, 6-2, 6-4 og 6-2. Þetta var
þriðji sigur Sampras á Wimbled-
on-mótinu í röð og eins og málin
Tour de France - hjólreiöakeppnin:
Daninn veitti
Miguel Indurain
harða keppni
Öll athyglin í Tour de France hjól-
reiðakeppninni beindist að Sviss-
lendingnum Tony Rominger og
Rússanum Yevgeny Berzin á
sunnudag þegar 54 km tímaleið
var hjólub í Belgíu. Mundu þeir ná
Spánverjanum Miguel Indurain
eða ekki? En það urðu ekki þessir
tveir fyrstnefndu sem fylgdu Spán-
verjanum hvað harðast eftir því
Daninn Bjarne Riis sýndi hvers
hann er megnugur. „Enginn trúði
á mig nema ég sjálfur," sagði Dan-
inn sem hafði forystuna alla leið-
Kappaksturshetjur
í hár saman
Tvær kappaksturshetjur deila nú
hart á síðum hinna ýmsu blaða í
Evrópu. Um er að ræða bresku
hetjuna Damon Hill og Þjóðverj-
an Michael Schumacher og kall-
aði Hill þann þýska „eftirlíkingu"
í gær. Hill segir Schumacher vera
ekkert annað en afsprengi styrkt-
araðila sinna. „Styrkaraðilar
stjórna eiginleikum manna nú-
orðið og eina sem þeir fá út úr
því er eftirlíking af því besta.
Schumacher er dæmi um það.
Hann er afurð, frekar en einstak-
lingur," sagði Hill.
ina nema síðustu 5 km þegar Ind-
urain skaust fram úr og var 12 sek-
úndum á undan Riis í mark. „Mig
vantaði kjarkinn til að klára þetta
alveg. Enginn sagði mér hvar ég
stóð í þessari tímakeppni og ég
vissi því ekki hversu nálægt sigrin-
um ég var." Frammistaða Danans
virtist líka koma Indurain á óvart.
„Hann gerði stórkostlega hluti í
dag og það er eins gott fyrir mig að
hafa ekki augun af honum í keppn-
inni," sagði Indurain sem leiðir
keppnina. ■
standa í dag dylst engum aö hann
er fremsti tennisleikari heimsins.
Fyrir sigurinn fékk Sampras 40
miljónir íslenskra króna og Becker
helming þeirrar upphæðir fyrir
annaö sætiö.
Þýska stúlkan Steffi Graf hélt
uppi merki Þýskalands og vann
einliöaleik kvenna eftir rimmu
við Aröntxu Sanchez Vicario frá
Spáni í úrslitaleik, 4-6, 6-1 og 7-5.
Graf hefur nú leikiö 32 leiki á ár-
inu án þess aö tapa leik og þykir
þaö frábær árangur í tennisheim-
inum. ■
Knattspymu-
úrslit
Itikar kvenna, 8 liba úrslit
ÍA-Breiðablik ............2-5
Valur-Haukar.............6-0
Sindri-ÍBA...............1-2
Stjarnan-KR..............2-2
(KR komst áfram eftir víta-
keppni)
2. deild karla
Fylkir-Víkingur ....4-0 (1-0)
Þróttur R.-Víðir...0-1 (0-0)
Þór Ak.-Stjarnan ...4-1 (4-1)
Skallagrímur-ÍR....1-1 (1-0)
HK-KA....................1-0 (0-1)
Staðan
Fylkir ..
Stjarnan ...
Þróttur R.
Skallagrímu
Þór Ak. ..
KA......
Víðir ..
Víkingur
ÍR.....
HK......
....7 5 1 1 15-7 16
....74 12 14-9 13
....74 12 13-8 13
....74 12 11-7 13
....7 403 12-11 12
....7322 8-7 11
....73 1 3 5-5 10
....7 2 05 8-16 6
....7 1 1 5 11-18 4
...7 1 06 9-17 3
Næstu leikir 13. júlí: KA-Skalla-
grímur, Stjarnan-HK, Víðir-Þór
Ak, Fylkir-Þróttur R. 14. júlí: Vík-
ingur-ÍR.
3. deild karla
Leiknir-Völsungur..........0-1
Höttur-ÞrótturN............0-1
Dalvík-Fjölnir.............0-0
Ægir-Haukar.................4-2
BÍ-Selfoss..................0-1
Staðan
Völsungur .....8 6 11 17-7 19
Leiknir R......8 5 12 16-8 16
Dalvík.........8 3 5 0 13-7 14
Ægir...........8 4 13 14-12 13
Þróttur N......8 4 04 11-9 12
Selfoss........8 4 04 13-17 12
BÍ.............82 3 3 8-11 9
Tjölnir........8 2 1 5 12-14 7
Haukar.........8206 5-20 6
Höttur ........8 1 2 5 8-12 5
Næstu leikir 13. júlí: Völsungur-
Dalvík. 14. júlí: Selfoss-Höttur,
Þróttur N.-Ægir, Haukar-Leiknir.
15. júlí: FjöInir-BÍ.
4. deild
Smástund-Njarövík...........1-6
Reynir S.-ÍH................3-2
Framherjar-Ármann...........1-2
TBR-Víkver ji...............0-4
Léttir-Framherjar...........2-1
GG-Ármann ..................3-3
Afturelding-Hamar...........2-0
TindastólI-SM...............3-1
Hvöt-Magni..................1-1
Neisti H.-Þrymur............5-0
KVA-UMFL .................16-0
Sindri-KBS .................2-1
Einherji-Huginn.............2-1
Keflavík
fékk loks-
ins stig
Keflvíkingar gerðu markalaust
jafntefli við Zagreb frá Króatíu
í Inter-Toto keppninni í knatt-
spyrnu og fengu þar með fyrsta
stigið sitt í keppninni, en
verma þrátt fyrir það botnsæt-
ið í riðlinum. Keflvíkingar
fengu mörg gullin tækifæri til
að skora og var Kjartan Einars-
son, sem er á myndinni, í bar-
áttu vib einn leikmanna Za-
greb, sérstaklega ekki á skot-
skónum og tókst ekki að skora.
Ólafur Gottskálksson var síðan
hetja Keflavíkur þegar leið á
leikinn, og varði oft meistara-
lega. Keflavík á aðeins einn leik
eftir, gegn Linzer frá Austur-
ríki, ytra.
Staðan í riðlinum
Metz ........2 2 0 0 3-1 6
Partick......3 1115-44
Linzer ......2 0 2 0 2-2 2
Zagreb.......2 0 2 0 0-02
Keflavík ....2 0 12 2-5 1
Tímamynd ÞÖK