Tíminn - 15.07.1995, Side 5

Tíminn - 15.07.1995, Side 5
II Laugaraagur li.(júlí 1995 13 Hollur er heimafenginn baggi. Sölumarkaöurinn Viö-Bót er sex km frá Egilsstööum: Lopapeysur, broddur, andaregg og silungur Lopapeysur í úrvali. Fyrir feröamenn sem leiö eiga um Austurland er áhugavert ab heimsækja sölumarkabinn Vib-Bót, sem er sex kílómetra frá Egilsstöbum. Eru þar seld- ir ýmsir handunnir munir og margt annab frá á milli 50 og 60 abilum á Austurlandi. í Vib-Bót er aö hafa fjölbreytt úrval ýmiskonar varnings. Þar má nefna vörur úr hreindýra- lebri, tré, lopa og steinum. Þar er einnig ab finna ýmsan heimabakstur, reyktan silung, andaregg, fjallagrös og brodd. Aö sögn Önnu Bragadóttur hjá Viö-Bót fór starfsemin af stab á síöasta ári, meðal annars til aö vega upp á móti sam- drætti í hefðbundnum land- búnaði. Viötökur hafa veriö góðar, „... en ég treysti nokkuð mikið á ánægða viðskiptavini," sagði Anna. ■ Skogardagur Skogræktar ríkisins og Skeljungs var haldinn i Reykjarhols- skógi í Varmahiíb í Skagafirbi um síbustu helgi. Sigurbur Blöndal, fyrrver- andi skógrœktarstjóri, rakti sögu gróbrarstöbvarínnar og Reykjarhóls- skógar. Farib var í gönguferbir undir leibsögn og gömul og ný rœktunar- áhöld voru sýnd. Þá heilsabi skógarálfurinn upp á börnin og sýnt var hvernig heila á upp á sannkallab ketilkaffi. Skógardagur í Hall- ormsstaöarskógi Haldinn veröur skógardagur meb fjölbreyttri dagskrá í Hall- ormsstaöarskógi á Hérabi í dag, laugardag 15. júlí, kl. 10.00 til 17.00. Þab eru Skógrækt ríkis- ins og Skeljungur sem standa ab dagskránni. Þetta er þribja árib í röb sem þessir aðilar standa sameiginlega ab skógar- degi í Hallormsstaöarskógi, en þeir hafa verib afar vinsælir mebal almennings enda margt skemmtilegt í boöi fyrir bæbi unga sem gamla. Opnuö verður sýning á högg- myndum eftir 17 listamenn í Trjásafninu. Á sýningunni gefst fólki kostur á að kynnast marg- breytilegu hráefni sem skógur- inn býður upp á til listsköpun- ar. Farið verður í gönguferðir um skóginn undir leiðsögn Sig- urðar Blöndal, fyrrverandi skógræktarstjóra og skógarvarð- ar á Hallormsstað, og Þór Þor- finnsson, skógarvörbur, kynnir nýja gönguleið. Gangan eftir nýju leiðinni tekur um eina og hálfa klukkustund og verður bobið upp á ketilkaffi á leið- inni. Tómstundaiðjan á Egils- töðum verður með kennslu og sölu á skógarskreytingum við gróðrarstööina á Hallormsstab. Unga kynslóðin mun einnig hafa nóg að gera á skógardag- inn því efnt verður til fjallareið- hjólakeppni, hestaferða og æv- intýraferba um skóginn, svo fátt eitt sé nefnt. ■ Ekki fer mikib fyrír húsum Vib-Bótar, enda má ekki miklu til kosta. ÞJONUSTUMIÐSTÖÐIN SKAFTAFELLI TJALDSTÆÐI — MATSALA — KJÖRBÚÐ FERÐAMANNAVERSLUN — ESSOÞJÓNUSTA Símar 478 1608 og 478 2288 Kaupfélag Austur-Skaftfellinga

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.