Tíminn - 15.07.1995, Qupperneq 6
14
Laugardagur 15. júlí 1995
Byggb hefur verib iendingarab-
staba fyrir báta í Papey. Gísli í
Papey liggur hér vib festar.
Ljósmyndir: Óskar Sigvaidason.
Sextán tonna stál-
bátur
Þaö var nú í vor sem hlutafé-
lagið Papeyjarferðir var stofn-
að. Már Karlsson er fram-
kvæmdastjóri þess. Til ferð-
anna var keyptur 16 tonna
stálbátur og jafnframt var á
tveimur stöðum í fjöru eyj-
unnar byggð lendingarað-
staða.
„Áður var hægt að fá trillu-
karla til að renna með sig út í
eyjuna, en þetta var ekkert
skipulagt. Hjá okkur er þetta
öðruvísi og farið er á hverjum
degi út í eyju kl. 13. Fyrir full-
orðna er fargjaldið 2.500 kr.,
börn frá 7 til 14 ára aldurs
greiða 1.400 kr," segir Már
Karlsson.
Svo segja traustar heimildir
að fyrsti ábúandi í Papey hafi
verið sr. Eiríkur Höskulsson,
en hann bjó í eynni á 17. öld.
í byrjun þessarar aldar settist
þar að Gísli Þorvaröarson og
báturinn góði sem Papeyjar-
ferðir hf. nota er einmitt eftir
þeim merka manni. Sonur
Gísla, Gústaf, bjó svo á föður-
leifð sinni í Papey allt fram til
ársins 1967. Eftir það hafði
hann landnytjar í eynni — en
Gústaf Papeyjarbóndi lést
snemma árs 1993.
-sbs.
Skipulagbar ferbir í Papey frá Djúpavogi eru hafnar.
Vibtökur eru góbar:
Verour Papey
kjörland gift-
inganna?
„Það hafa komið nokkrar
fyrirspurninir frá hjónaefn-
um um hvort hægt sé ab láta
gifta sig í kirkjunni í eynni.
En það þarf að endurvígja
kirkjuna svo þab sé mögu-
legt eins og ævinlega er gert
eftir endurbætur, en í vib-
gerðunum síbustu ára hefur
hún verið endurbyggð nán-
ast frá grunni. Hún verbur
máluð nú í júlí, en þetta er
minnsta kirkja landsins —
16 fermetrar ab flatarmáli —
upphaflega byggð árið
1807."
Þetta sagbi Már Karlsson á
Djúpavogi í samtali við Tím-
ann, en hann forsvarsmaður
Papeyjarferða hf. sem býður
frá í sumar uppá skipulagðar
ferðir út í eyna. Lagt er upp frá
bryggjunni alla daga kl. 13 og
tekur ferðin um fjórar klukku-
stundir í það heila. Höfð er
viðdvöl ytra í hálfa þriðju
klukkustund.
„Hólar og brekkur
með ilmandi reyr-
gresi/y
Papey stendur skammt út af
Djúpavogi. Eyjan er um tveir
ferkílómetrar ab flatarmáli,
„og er frá gamalli tíð talin
hæfileg skammdegisganga ab
ganga umhverfis eyjuna, út á
hvern tanga og inn í hverja
vík. Aðaleyjunni fylgja margar
úteyjar. Langstærst þeirra er
Arnarey. Þar er landslag fag-
urt, hólar og brekkur með ilm-
andi reyrgresi," segir í land-
kynningu um þessa mögnuðu
eyju. Fulgalíf er þar mikið og
voru björg eyjunnar mikið
forðabúr þegar haldið var til
eggjatöku.
Oljósar sagnir eru til um
veru írskra munka hér á landi
og þar kemur Papey við sögu.
Hafa fróðir menn löngum ver-
ib þeirrar skoðunar að Papar
hafi búib í eynni. Ekkert hefur
þó verið fullsannab í þeim efn-
um. Dr. Kristján Eldjárn, þjóð-
minjavörður og forseti ís-
lands, stóð fyrir fornleifarann-
sóknum í eynni á árunum
1967 til 1981.
Skipstjórinn vib stýrib. Stefán Ab-
alsteinsson er þaulvanur skipstjóri
og hefur siglt víba.
Kirkjan í Papey er upphaflega
byggb árib 1807 og er elsta timb-
urkirkja landsins.
í magnabri eyju. íbúbarhúsib sem byggt er um aldamótin sést hér á myndinni og fjœr er kirkjan sem byggb var árib 1807.