Tíminn - 21.07.1995, Qupperneq 9
Föstudagur 21. júlí 1995
9
Árás á háspennuvirki Búrfellsvirkj-
unar er mebal þess sem ceft er á
Norbur Víkingi. Hermenn stilla sér
upp til myndatöku fyrir framan
þab.
Sextán hertrukkar af þessari gerb,
Hummer, komu til landsins vegna
œfingarinnar og eru þeir mikib
þarfaþing.
Þyrlur eru notabar á œfingunni og mebal annars íþeim tilgangi ab ab flytja hermenn milli staba.
Jósep og hans undraveröa skrautkápa:
Skemmtilegur
söngleikur
Síöastlibinn sunnudag var frum-
sýndur í Tjarnarbíói söngleikurinn
Jósep og hans undraveröa skraut-
kápa. Þetta er fyrsti söngleikur
þeirra Tims Rice og Andrews Lloyd
Webber og er undanfari söngleiks-
ins Súperstar, sem nú er sýndur í
Borgarleikhúsinu.
Þaö er Feröaleikhúsiö sem setur
upp sýninguna í Tjarnarbíói, en
verkið hefur áöur veriö sýnt á Ak-
ureyri og í Keflavík.
Þetta er mjög góð uppfærsla og
skemmtileg sýning, sem hentar
jafnt ungum sem öldnum.
Eggert Arnar Kaaber lék Jósep
mjög vel og sýndi að hann er ekki
síðri söngvari en leikari, enda fékk
hann mjög góöar undirtektir
áhorfenda á frumsýningu.
Sögumaöurinn, Hrafnhildur
Björnsdóttir, sýndi einnig glæsilega
frammistöðu. Venjulega segja
sögumenn sögu, en Hrafnhildur
LESENPUR
söng hana og geröi það mjög vel.
Guöjón Bergmann lék skemmti-
lega faraóinn, en breyttist svo á
andartaki í dansara sem kom áhorf-
endum í gott skap. Guöjón lék
einnig einn af bræðrunum. Leikar-
arnir voru sérstaklega skemmtilegir
og búningar þeirra glæsilegir og vel
gerðir eins og leikmyndin.
Kristín G. Magnúsdóttir leikstjóri
hefur æft hópinn mjög vel og valiö
mjög gott leikrit.
Þessi söngleikur var í heildina
mjög góður og skemmtilegur á að
horfa og getum viö hiklaust mælt
meö honum.
Birgitta Sif Jónsdóttir,
14 ára, Miðstrceti 5
Guðný Þóra Guðmundsdóttir,
14 ára, Tunguvegi 11
Fimmtíu ára afmceli ísfíröingafélagsins í Reykjavík:
Hátíðarhelgi á ísafiröi
Helgina 21.-23. júlí verbur
haldiö upp á 50 ára afmæli ís-
firöingafélagsins í Reykjavík
á ísafiröi. Stööug dagskrá
verbur frá kl. 15 í dag og
framundir kvöldmat á sunnu-
dag.
Líklega munu flestir geta
fundið eitthvað viö sitt hæfi
um hátíðarhelgina á ísafirði. í
dag veröur götumarkaöur á Silf-
urtorgi, sem og ræöuhöld. í
kvöld verður Hótel ísafjörður
með sérstakan fjölskyldumat-
seðil, veitingastaöurinn Æðey
veröur með lifandi tónlist og
fyrir þá dansglöðu veröa tveir
valkostir, annars vegar hljóm-
sveitin Sixties á Krúsinni og
hins vegar spilar Sniglabandiö í
Sjallanum. Þeir, sem ekki ætla
sér að borða eða dansa, geta þá
brugðið sér á bát og farið í sigl-
ingu um ísafjarðardjúp með
viðkomu í Vigur.
Á morgun, laugardag, veröur
vonandi samansafn ísfirðinga á
Eyrinni um kl. 13 þar sem
gengið verður saman um svæð-
ið með leiðsögn. Munu göngu-
menn svo hvíla beinin í
Neðstakaupstað þar sem salt-
fiskur verður á reitum og fólk
viö vinnu. Einnig verður að-
staöa fyrir börn til að mála and-
lit sitt og fara í leiki. Á meðan
geta hinir fullorðnu fræðst um
þaö hvort lífið var saltfiskur og
að því loknu verður hægt að
gæða sér á kaffiveitingum í
Tjöruhúsi. Kvölddagskráin
verður með svipuðu móti og
kvöldiö áður, nema að nú bæt-
ist við ball fyrir harmonikku-
unnendur, sem haldiö verður í
Neðstakaupstað ld. 21-01.
Á sunnudag verður hátíðar-
messa kl. 11 í ísafjarðarkirkju
og messar þar sr. Agnes Sigurð-
ardóttir. En kl. 14 fara ísfirðing-
ar og gestir þeirra í skógarferð í
nýjan Vinalund ísfirðingafé-
lagsins, þar sem áætlað er að
gróðursetja í þennan reit í
Tungudal.
Um helgina bjóða Flugfélagið
Ernir og Vesturferðir afslátt á
ferðum sínum. Þau standa m.a.
að útsýnisflugi um ísafjaröar-
djúp og Hornstrandir og sigl-
ingu í Jökulfirði.
Formaður ísfirðingafélagsins
er Einar S. Einarsson.