Tíminn - 21.07.1995, Blaðsíða 10

Tíminn - 21.07.1995, Blaðsíða 10
10 Föstudagur 21. júlí 1995 I UTLÖND . . . UTLÖND . . . UTLÖND . . . UTLÖND . . . UTLÖND . . . UTLÖND . . . UTLÖND . . . UTLÖND . . . Rábherraráð ESB fagnar PÓlland Stefnir aö frelsi Aung San Suu Kyi ESB-aðild áriö 2000 Fimmtudaginn 13. þessa mán- aöar var gefin út eftirfarandi yf- irlýsing rábherraráðs Evrópu- sambandsins í tilefni þess ab Aung San Suu Kyi, leibtoga lýb- ræbislegrar stjórnarandstöbu í Myanmar (ábur Burma) var sleppt úr haldi: „Evrópusambandib fagnar því mjög að nóbelsverblaunahafan- um frú Aung San Suu Kyi hefur verið sleppt úr haldi. Evrópusambandið lítur svo á að með þeirri ákvörðun að binda endi á stofufangelsun frú Aung San Suu Kyi sé stigiö fyrsta skrefið í átt aö þjóðarsátt og verndun mannréttinda eins og Evrópu- sambandið hefur lengi krafist af stjórnvöldum Burma. Evrópusambandið vonast ein- dregið til aö í kjölfar þessa verði áframhaldandi þróun á þessum sviðum, sem er ekki síður nauð- synlegt. EFTA-löndin, lönd Mið- og Aust- ur- Evrópu og Eystrasaltslöndin styðja þessa yfirlýsingu." ■ Brussel — Reuter Pólland er þab af fyrrverandi austantjaldsríkjunum í Evr- ópu sem hvab harbast knýr á dyr Evrópusambandsins. Pól- verjar hafa nú sett fram sína eigin tímaáætlun um abild sína ab ESB og reikna þar meb fullri abild árib 2000. í skjalinu er gert ráð fyrir að samningaviðræður við ESB um aðild Póllands hefjist strax að lokinni ríkjaráðstefnunni 1996. „Á þeim tíma veröur efnahags- leg og lagaleg aðlögun Póllands Utanríkisrábherrar átta ís- lamskra ríkja koma saman til að ESB komin langt á veg," segir í áætluninni. Wladislaw Bartoszewski, ut- anríkisráðherra Póllands, sagði utanríkisráðherrum ESB að rík- isstjórn Póllands reiknaði ekki með að samningaviðræðurnar tækju lengri tíma en hjá EFTA- ríkjunum þremur, sem gerbust aðilar á þessu ári, þ.e. Svíþjóð, Finnlandi og Austurríki. Full að- ild Póllands gæti því orðib veru- leiki um aldamótin, að mati pólskra ráöamanna. ■ fundar í Genf í dag til ab ræba leibir til ab veita stjórn múslíma í Bosníu abstob. Utanríkisráðherrar átta íslamskra ríkja: Ræöa málefni Bosníu Cenf — Reuter Tony Blair stefnir á „róttæka mibjupólitík" London — Reuter Tony Blair, leibtogi Verka- mannaflokksins í Bretlandi, hélt í gær upp á ársafmæli sitt í embættinu meb því ab strengja þess heit að stefna ab „róttækri mibju" í breskum stjórnmálum og ná völdunum úr höndum íhaldsflokksins. Hins vegar sagði Kenneth Clarke, fjármálaráðherra íhalds- flokksins, þaö ljóst að íhalds- flokkurinn myndi einnig beita sér mjög á þessum sömu miðju- slóðum fyrir kosningarnar árið 1997, og gerði jafnframt lítið úr hugmyndum flokksbræðra sinna á hægri vængnum um „lágmarksríkiö". „Við erum á Bretlandi," sagði Clarke, „þetta er norður-evrópskt ibnaðarríki, þetta er ekki Suðaustur-Asía." Báðir létu þeir þessi orð falla í gær, þegar þriggja mánaða sum- arhlé á störfum þingsins hófst. Blair hefur veriö gagnrýndur af þeim sem eru á vinstri væng Verkamannaflokksins fyrir að eyðileggja róttæka ímynd flokksins með því að höfða til miðstéttarkjósenda. Blair hélt því hins vegar fram ab flokkur- inn myndi aldrei gefast upp fyr- ir „kerfinu". „Þaö er mikilvægur þáttur í málstað Verkamanna- flokksins ab hann sé kerfisfjand- samlegur flokkur," sagði hann. Um er ab ræba ráðherra þeirra átta landa sem eru í samráðshópi íslamskra ríkja um málefni Bosníu, þ.e. Marokkó, írans, Pakistans, Sádi-Arabíu, Tyrklands, Senegals, Egyptalands og Malasíu. Viðstadd- ur vibræðurnar verbur einnig full- trúi Bosníustjórnar. Leiðtogar íslamskra ríkja hafa hvað eftir annað krafist þess að SÞ aflétti vopnasölubanni sínu á Bo- sníu og geri Bosníustjórn þannig kleift að styrkja stöðu sína í stríð- inu gegn Serbum. Á fundi sínum í maí sl. sögðu utanríkisráðherrarnir að vopnasölubannið hefði ekkert siðferðilegt gildi og gáfu jafnframt til kynna að einhverjir þeirra myndu e.t.v. ákveða að hunsa það. Á sama tíma veröur einnig hald- inn í London neyðarfundur Banda- ríkjanna, Evrópuríkja og Rússlands um málefni Bosníu, og munu sækja hann þeir Boutros Boutros-Ghali, aðalritari Sameinuðu þjóðanna, Willy Claes, aðalritari NATO, og Carl Bildt, sáttasemjari Evrópusam- bandsins. ■ íbúar Zepa fluttir burt Bosníu-Serbar voru í gær byrjaðir að flytja múslímska íbúa burt frá „griðasvæði" SÞ í Zepa, en sögðust þó ætla að halda flestum karlmönnum sem föngum. Talsmaður Sam- einuðu þjóðanna fordæmdi að- geröirnar og kallaði þær „þjóð- ernishreinanir". Serbar sögðust hafa hernumið Zepa, en Bo- sníustjórn neitaði því. ísraelar hyggjast sleppa föngum ísraelsmenn sögðust mundu sleppa allt að 1.000 Palestínu- mönnum úr fangelsi um það leyti sem samningar ísraels og PLO um aukna sjálfstjórn Pal- estínumanna á Gazasvæðinu verða undirritaðir, en stefnt er að því að það verði á þriöjudag- inn kemur. Alls eru nú um 5.500 Palestínumenn í haldi í ísrael. Gyöingar vilja þýsk- an her til Bosníu Tveir virtir Gyðingar í Þýska- landi, Ignatz Bubis, leiðtogi Gyðinga í Þýskalandi, og Nób- elsverðlaunahafinn Elie Wiesel, hvöttu í gær ríkisstjórn Þýska- lands til að grípa inn í átökin í Bosníu með hernaðaraðgerð- um og koma þannig í veg fyrir að Bosníu-Serbum takist að hrekja múslíma frá heimkynn- um sínum. Bubis sagbi brott- reksturinn minna á framferði nasista gagnvart Gybingum í Þýskalandi áður en hin eigin- lega útrýmingarherferð á hend- ur þeim hófst. „Margir skjóta sér á bak við þau rök að Þýska- land hafi framið voðaverk í fyrmm Júgóslavíu og við getum því ekki gripiö þar inn í með hernaðaraðgerðum," sagði hann. „Ég er ekki sammála því — vegna synda Þjóbverja ber þeim enn frekar skylda til að hraða sér þangað og hjálpa fólkinu." ■ Kynjamyndir stríðs: Hatur á öldum ljósvakans Glœsikvendib Ceca. Nýlegt hjónaband hennar og stríbsmannsins Ark- an á ab lýsa upp Balkanskagann. Óhætt er ab segja ab styrjaldir taki alltaf á sig furbulegar mynd- ir. Þab á einnig vib um stríbib í lýbveldum fyrrum Júgóslavíu. Þar er barist meb öllum rábum og öllum tiltækum tólum. Eitt þess- ara tóla er útvarpib. Nú er komin fram ný tegund tónlistar sem notub er grimmt til þess ab stappa stálinu í marmskapinn sem berst upp á líf og dauba, jafnt á vígvöllunum eins og bara í biokkinni í hverfinu, þar sem nágrannar af ólíkum kynþáttum spjöllubu eitt sinn góblátlega saman. Drekkum blóö ... Tónlistina, sem hér um ræbir, má kalla þjóblagatónlist með beinni innspýtingu, en á ensku kallast þessi tónlistartegund „tur- bo-folk". Þetta er blanda af diskói og þjóðlagatónlist, sem dælt er út á öldur ljósvakans af þjóðernissinn- uðum plötusnúðum útvarpsstöðv- anna. Innihald tónlistarinnar er oftast á þá vegu að hvetja fólk og hermenn til þess aö murka lííið úr andstæðingunum, eba svo vitnað sé til króatískrar ballöðu: „... drekk- um blóö Serbanna". Serbneskir söngvarar syngja hinsvegar gjam- an um dug- og kjarkleysi Samein- ubu þjóðanna og NATO. Múslímar syngja um þann draum sinn ab sjá Bosníu þakta guðshúsum sínum, svokölluðum moskum. Hrekkjavaka og hvítlaukur Kjarni þessarar tónlistar er í raun og veru hinn sami og hefur veriö við lýði öldum saman, þ.e. að hvetja samherja sína til þess að ganga í skrokk á óvininum. Nú höfbar tónlistin hinsvegar til þeirr- ar kynslóðar sem ólst upp við diskótónlist og tónlistarmynd- bönd. Og ekki er skortur á stjörn- um: í Serbíu er Símonídu Stankovic líkt vib ljóskuna Debby Harry, sem gerði garðinn frægan með bresku nýbylgjusveitinni Blondie hér á árum áöur. Sýningum Símonídu fyrir hermenn á vígstöðvunurn hefur verið lýst sem einskonar blöndu af amerískri hrekkjavöku og bresku Top of the Pops-þáttun- um. Hún fer í ýmis gervi: leður- klædda gellu, bændakonu og rét- trúnaðar- nunnu, sem vefur hvít- lauksgeirum um háls sér, „til þess að fæla vampírurnar frá", en vamp- írurnar eru þeir sem ekki aðhyllast málstað Serba. Önnur hetja er hin fagra Ceca. Hún er 22ja ára Serbi og er þegar orðin ab lifandi goðsögn, enda gift- ist hún nýverið serbneska stríðs- manninum Arkan, sem m.a. hefur verib sakaður um fjöldamorð í stríöinu, morð í Svíþjóð og vopna- og eiturlyfjasmygl. Til er lag um þetta brúðkaup, þar sem því er lýst sem byrjun á nýju og glæstu tíma- bili í sögu Serbíu, og það komi til með að lýsa upp allan Balkanskag- ann.Þessu öllu saman hafa fylgt nýir straumar í næturlífinu .í Belgrað í Serbíu; smyglub föt frá helstu tískuhúsum New York og Parísar eru í tísku hjá kvenfólkinu og hjá körlunum eru allskyns slauf- ur og hálsbindi í tísku. Margir ganga með skammbyssur á sér, en þær verður að láta af hendi í miða- sölunni. Svo dansar glæsiliðið um dansgólfin í takt við þjóðernis- diskóib og blótar andstæbingunum í sand og ösku fram undir morgun. Byggt á The Sunday Times.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.