Tíminn - 28.07.1995, Síða 1
Föstudagur 28. júlí 1995
9
Heyskapur og
ástand túna í Þing-
eyjarsýslu:
Sprettan hef-
ur veriö sein
„Hún er nú breytileg. Sumir eru
dálítib komnir á veg, abrir ekki
byrjabir," segir Stefán Skaftason,
hérabsrábunautur í Subur- Þing-
eyjarsýslu, abspurbur um stöb-
una í heyskapnum.
Einstaka menn, sem verið heföu
með öll tún friðuð, væru komnir
langt með heyskap.
„Þar sem er mikið um sauðfé þar
eru menn lítið byrjaðir. Sprettan
hefur verið svo sein að það er ekk-
ert gras að slá sumstaðar. Menn
hafa verið með fé á túnum alveg
fram í júlí."
Stefán segir tún hafa komið vel
undan vetri. Það hafi verið lítið
um skemmdir; þó væri það til að
það væri kalið.
Skakkaföll urðu af flóðum í sum-
ar þegar flæddi yfir tún og græn-
fóðurakra, og urðu nokkrir menn
fyrir fjárhagslegu tjóni af þeim
völdum. Einnig telur Stefán æðar-
varp hafa misfarist að mestu.
Stefán segir að þetta líti svo sem
ekkert illa út. Það sé samt heldur
minni spretta en í fyrra. Sérstak-
lega sé grænfóðrið, sem menn hafa
verið að sá, mjög skammt á veg
komið og hafi ekki hreyfst í þrjár
vikur.
„Ef hlýindin halda áfram, þá
getur útkoman orðið svona þolan-
leg," segir Stefán Skaftason. -TÞ
Heyskapur og
ástand túna á Aust-
urlandi:
Miklar
hitasveiflur
„Menn eru svona nýbyrjabir hérna
á Hérabinu. Spretta er misjöfn. Það
var töluvert kal, að minnsta kosti á
upphérabinu, þannig að heyfengur
veröur slakur þar, tala menn um,"
segir Abalsteinn Jónsson, formaður
Búnaðarsambands Austurlands,
abspurður um heyskap á Austur-
landi. „Það er nú kannski ekki
hægt að segja ab heyskapur sé al-
mennt byrjabur, en það byrja sjálf-
sagt margir núna, það spáir þann-
ig."
Hann segir að töluvert margir
bændur hafi farið illa út úr kali á
upphéraðinu og suður á fjörðum.
Einn bónda hitti Aðalsteinn á Fá-
skrúðsfirði fyrir skömmu og þar hafði
stór hluti af túnunum verið dæmdur
90% ónýtur, þannig að sá bóndi hafi
búist við að þurfa að sækja sér hey
eða eitthvert fóður.
Aðalsteinn segist ekki hafa heyrt
um að neinn sé búinn með heyskap
eða langt kominn, enda sé varla
raunhæft ab ætla þab. Það hafi ekki
komið frostlaus nótt fyrr en 8. júní
og búið að snjóa oft í fjöll síðan. „Það
hafa komið geysilega hlýir dagar, en
umskiptin hafa verið ógurlega mikil.
Þab hefur verið alveg nibur undir
frostmarki, ef það hefur gengib í
norðan- eða norðaustanátt. Saman-
ber að það var svoleiðis skafrenning-
ur á Hellisheibi núna um 20. júlí að
þeir hættu við að halda henni op-
inni," segir Abalsteinn. -TÞ
.
iimnni.ii
Pálmi Ingólfsson hefur innréttaö trésmiöju í aflögöu fjósi og m.a. byggt þetta sumarhús í Skorradal. Samdráttur í sölu sumarhúsa hefur
oröiö til þess aö húsiö er óselt.
Húsasmiöur í Skorradal notfœrir sér tómt gripahús:
Innréttaði trésmiðju í fjósinu
Undanfariö samdráttarskeiö í
landbúnaöi hefur m.a. oröiö
til þess aö á sumum býlum
hefur veriö hætt heföbundn-
um búskap. Nokkuö er um aö
þar sem áöur voru blönduö bú
meö mjólkur- og dilkakjöts-
framleiöslu hafi önnur grein-
in veriö aflögö. Þróun af þessu
tagi veröur til þess aö til sveita
standa auö gripahús, sem nýta
má til annars en þau voru
upphaflega byggö.
A Hálsum í Skorradal hefur
Pálmi Ingólfsson innréttað tré-
smiðju í gamla fjósinu, og
stundar húsasmíðar meðfram
sauðfjárbúskapnum. Pálmi lagöi
mikla áherslu á byggingu sum-
arhúsa og byggöi þau í eining-
um. Einingarnar smíöaöi hann
á verkstæðinu og flutti þær síð-
an á byggingarstað og reisti hús-
in á skömmum tíma. Pálmi seg-
ir aö mikill samdráttur hafi ver-
iö í sumarhúsabyggingum und-
anfarin ár.
„Það var alveg þokkalegt til aö
byrja með, en svo hefur þetta
dregist verulega saman núna. Þá
hefur maður fariö meira út á
hinn hefðbundna markaö, í
viðhald og slíkt á öörum stöð-
um. Maður hefur svo sem gripið
í þaö líka, en ekki nærri því eins
og núna síðastliðin tvö ár. Þá
hefur maöur þurft miklu meira
á því að halda. Þetta er einhvern
veginn það verulegur samdrátt-
ur, sérstaklega þetta síðasta ár.
En ég hef alltaf byggt að lág-
marki eitt til tvö hús á ári. Fyrst
til að byrja með voru þetta þrjú
hús á ári, en síöan hefur heldur
verið að síga á ógæfuhliðina,"
segir Pálmi.
Pálmi á m.a. eitt óselt sumar-
hús í landi Indriðastaða í
Skorradal, sem hann smíðaði
fyrir tveimur árum. Húsið er
snoturt og vandað og stendur í
stórbrotnu umhverfi. Út um
stofugluggann blasir Skarðs-
heiðin við í öllu sínu veldi, og
stutt er í Skorradalsvatn. Það, að
hús sem þetta skuli vera óselt,
sýnir kannski best hve lítill
markaðurinn er fyrir sumarhús,
eins og sakir standa.
-TÞ, Borgames
Kverneland
UNDERHAUG
Pökkunarvél
2 gerðir
Barkastýrð
Tölvustýrð
Bændurl
muniö Teno
plastiö
■ = Ingvar
L l Helgason hf. vélasala
■■ 1—~ Sævarhöfða 2, SÍMI 525-8000