Tíminn - 12.08.1995, Síða 3
Laugardagur 12. ágúst 1995
3
Unnt ab koma í veg fyrir fjölda fóstureyöinga á ári meb almennri frcebslu um „aukanotkun" P-pillunnar:
Fóstureybingum mætti ef til
vill fækka um 200 á ári
Meb almennri vitneskju um
þá „aukanotkun" Pillunnar,
ab unnt er að nota hana sem
„daginn eftir pillu", jafnframt
því sem au&veldað yrði að
nálgast hana meb skömmum
fyrirvara, telja erlendir sér-
fræðingar hugsanlegt ab
fækka mætti fóstureyðingum
um allt ab þriðjung. Það gæti
þýtt fækkun fóstureyðinga
hér á Iandi í kringum 200 á
ári. Enn sem komið er mun þó
fáum konum, og læknum
jafnvel líka, kunnugt um það
að meb því að taka inn 2 töfl-
ur af sumum tegundum Pill-
unnar í síðasta lagi 48 klukku-
stundum eftir samfarir og svo
aðrar 2 töflur 12 stundum síð-
ar, má meb allt að 98% öryggi
koma í veg fyrir ab óvarðar
samfarir leiði til þungunar.
Uppsetning koparlykkju inn-
an 5 daga er annar möguleiki.
Ekki fóstureybing
Reynir Tómas Geirsson, pró-
fessor á Kvennadeild Landspít-
alans, segir hér, eins og víða
annars staðar, við tvenns konar
erfiðleika að eiga. Annars vegar
að læknar og annað heilbrigðis-
starfsfólk hafi ekki vitað nóg um
þetta og sumir haldið að það
væri e.t.v. hættulegt. Og hins
vegar aö menn rugli þessu
stundum saman við fóstureyð-
ingu — sem það sé alls ekki.
Frjóvgun sé ekki orðin eða um
neitt fóstur að ræða innan
þeirra tveggja sólarhringa þegar
taka þarf pillurnar. Meö horm-
ónunum sé, aðeins verið að
breyta slímhúö legsins og koma
þannig í veg fyrir að egg sem
hugsanlega hefur frjóvgast geti
fest.
Enginn dagur örugg-
ur
í grein sem Reynir Tómas
skrifaði um „neyðar" getnaðar-
varnir í Læknablaðið fyrir
nokkru segir hann að þungun
verði hjá allt að 25% kvenna
eftir óvarðar samfarir (.þ.e. þar
sem engar getnaðarvarnir eru
notaðar, smokkur rifnar eða fer
af eða kona hefur gleymt að
taka pilluna). Enginn dagur
tíðahringsins sé fullkomlega
„öruggur".
Til þess að koma í veg fyrir
þungun við þessar aðstæður
segir Reynir Tómas tvær aðferð-
ir tiltækar hér á landi: Aö taka
inn, eins fljótt og hægt er og
ekki síðar en 48 (mest 73)
klukkustundum eftir óvarðar
samfarir, tvær getnaðarvarnarp-
illur, sem samsettar eru úr 50
míkróg af etýnílöstradíól og 250
míkróg af levónorgesttrel. Og
síðan tvær töflur til viðbótar 12
klukkustundum eftir töku fyrstu
tveggja taflnanna. Þetta komi
blæðingum yfirleitt af stað
tveim dögum síðar. Næstu
reglulegar blæðingar ættu síðan
að koma þegar þeirra var von
eða heldur fyrr.
Reynir Tómas segir nauðsyn-
legt að læknar fylgist með kon-
unum til þess að staðfesta að
þungun hafi ekki orðið. Verði
hún eigi að síður sé nauðsynlegt
að veita ráðgjöf um það hvaða
aðrar leiðir standa til boða.
Unnt sé að veita neyðargetnað-
arvörn með því að setja inn
koparlykkju innan fimm daga
frá samförum. Lykkjan komi
sérstaklega til álita þegar kona
óski samtímis eftir langtíma
getnaðarvörn eða aö of seint sé
orðið að gefa samsettu pillurn-
ar. Kjósi kona að halda áfram
með þungunina sé hægt að full-
Tímamyndir: CS
vissa hana um aö ekki sé vitað
til þess að meðferð þessi hafi
nokkur skaðleg áhrif á fóstur.
Tiltæk úrræbi
„Óheppin" íslensk kona/
stúlka getur hins vegar staðið
frammi fyrir þeim vanda að lög-
um samkvæmt fást getnaðar-
varnarpillur ekki afgreiddar á ís-
landi nema samkvæmt lyfseðli
frá lækni. Vakni nú ung stúlka
- upp í dag — dauöhrædd um aö
hún hafi orðið ólétt í nótt — er
henni þá opin einhver auðvelt
leið til að losna við þann ótta?
„Hún getur hringt í lækni sem
væntanlega getur skrifað út lyf-
seðil fyrir hana. Auk þess eru til
sérstakar pakkningar, með 4
pillum í þessu skyni, hér í apó-
teki Landspítalans," svaraði
Reynir Tómas. Gefist hins vegar
tími til þess, sé æskilegra að
konur leiti eftir Iyfseðli hjá sín-
um lækni. í erlendum tímarit-
um eru menn nú að fjalla um
það að gera þurfi upplýsingar
um þessa „aukaverkun" Pill-
unnar, afgreiðslu hennar og
leiðbeiningar um notkun sem
neyðargetnaðarvörn miklu að-
gengilegri.
Fæst Alþingi til
lagabreytinga?
„Mér þykir líka skynsamlegt
að gera þessa neyðargetnaðar-
vörn aðgengilegri en nú er. En
til þess þyrfti lagabreytingu. Og
hvort heilbrigöisyfirvöldum á
íslandi’ og landsmönnum al-
mennt finnst þetta einnig skyn-
samlegt er annað mál," sagði
Reynir Tómas. En vegna þess að
aukaverkanir af þessu eru litlar
sem engar, mætti t.d. hugsa sér
þá leið að hjúkrunarfólk á
kvennadeildum, og heilsu-
verndarstöðvum og/eða lyfja-
fræðingar í apótekum gætu af-
greitt konur og leiðbeint þegar
„slys" hefur hugsanlega orðið á
„óheppilegum" tíma, ef erfitt
reyndist að nálgast lyfseðil frá
lækni í tæka tíð.
Gagnar ekki ab
sturta bara í sig úr
pillupakka
Reynir Tómas leggur áherslu á
að þótt það sé hvorki erfitt né
hættulegt að nota Pilluna sem
„neyðar" getnaðarvörn, þá sé
nauðsynlegt að gera það á rétt-
an hátt. Það er því alls ekki nóg
að ná sér einhversstaðar í einn
pillupakka og sturta í sig inni-
haldinu. Til þess að lyfið virki
eins og til er ætlast þurfi að
fylgja ákveðinni tímaáætlun og
taka inn ákveðna skammta,
miðað við styrkleika þeirrar
pillútegundar sem notuð er.
Reynir Tómas bendir einnig á
að fljótlega sé væntanlegur end-
urútgefinn bæklingur á vegum
Landlæknisembættisins: „Tíu
aðferðir til getnaðarvarna", þar
sem meðal annars er að finna
upplýsingar um þá tvo mögu-
leika til neyðargetnaðarvarna
sem hér hefur verið fjallað um.
©ðimlui imyirdliiiriranr
- irniiirriiirgiaiirnanr
Skógrœktardagurinn er í dag:
Fjölbreytt dagskrá
í grænum lundum
Skógræktarfélögin í landinu
munu í dag, laugardag, 12. ág-
úst, bjóða uppá fjölbreytta
' dagskrá í skógarlundum sín-
um víða um land. Haldinn er
svonefndur skógræktardagur
þar sem gestir og gangandi
geta kynnt sér lundi íslenskra
skóga.
Meðal þess sem er í bobi er að
kynnt verða fjölmörg skógrækt-
arsvæði á höfuðborgarsvæðinu
svo sem í Heiðmörk, við Elliða-
vatn, við Hvaleyrarvatn í ná-
grenni Hafnarfjarðar og víðar
eru grænir lundar til sýnis. Dag-
skrá skógræktardagsins
Vestlendingar geta meðal
annars kynnt sér skógrækt við
Skálpastaði i Skorradal, á Vest-
fjörðum er sýnir Skógræktarfé-
lag Strandasýslu Hermannslund
við Hólmavík, sem nefndur er
eftir Hermanni Jónassyni fyrr-
um forsætisráðherra. Þá er
Kjarnaskógur við Akureyri
kynntur, Eyjólfsstaðaskógur á
Héraði og á Suðurlandi má
nefna skóginn í Gjögrum við
Sólheimasand. ■
I ágúst og september bjóðum við
1 2 % AFSLÁTT á öllum eftirtökum,
kóperingum og viðgerðum á myndum
Uósmvndavinnustofan?Ö8R“b588ut78Z8