Tíminn - 12.08.1995, Síða 14

Tíminn - 12.08.1995, Síða 14
14 Wmámm Laugardagur 12. ágúst 1995 Hagyrbingaþáttur Nauösyn Líkt og skáldin skrifa sögur skrúðmálugir hverja stund, eins þarfég að yrkja bögur, engra þó að gleðji lund. Þannig kveður Pétur Stefánsson, sem stundum áb- ur gleöur lund þeirra sem unna vel kveðnum vís- um. Og enn yrkir Pétur: Kannski er allt unnið fyrir gýg? Þó ég löngum fmni fró, ferskeytlur að smíða, munu allar út á sjó algleymskunnar líða. Þó þér verði um og ó, illa samin staka, viljann fyrir verkið þó, verður þú að taka. Um neikvæðan mann Nú er kallinn neikvaeður, niðurlút er bráin. Við hann allar viðrceður virðast út í bláinn. Alltaf lyftist brúnin á umsjónarmanni þáttarins þegar bréf berst frá Búa, sem leikur sér að erfiðum bragarháttum og skammast réttilega yfir vondum prentvillum og og vafasömum smekk þegar birtar eru vísur sem ekki standa í hljóðstöfum og eru á mörkunum að hægt sé að kalla kveðskap. Búi kveður: Fréttir Fólki berast fréttaorð flesta vikudaga um storma, flóð og stöðug morð, stríð á Balkanskaga. Hugsjónamenn berjast nú harðri baráttu fyrir því að útvega okkur hollan, útlendan hormónamat í staðinn fyrir fjallalambaóþverrann. Aldrei slappur iðkar vés, öslar krappar bylgur hlés, sá er kappi klár og spes, kalkúnlappa Jóhannes. Ó.Þ. er svo mikill lestrarhestur að hann les sam- viskusamlega greinar í Mogga, líka þær sem fjalla um bindindismál og trúarbrögð og fer um hann þegar þessu er blandað sama með pólitík sem út- álát. Eftir lestur slíkrar greinar skaut upp vísu í kolli hans: Bundinn í kreddur með brösóttgeð bindindispostulinn ólmi. Árangur hefur þó ekki séð Ámi í Stykkishólmi. Sami segir frá ónefndum veiðimanni og taki nú hver til sín: Við veiðitólin tryggð hann batt títt í hylinn kíkti. Um afla hinna sagði ei satt en sína snilld hann ýkti. Að endingu tveir nýir fyrripartar. Búi sendir þennan: Flesta daga fjörgar lund fitl við Braga þrautir. Pétur Stefánsson var í góða skaþinu þegar hann orti: Leikur blaerinn létt við kinn. landið hlœr afkœti. Botnar og vísur sendist til Tímans Brautarholti 1 105 Reykjavík P.s. SKRIFIÐ GREINILECA GIVENCHY GENTLEMAN Civenchy hannar föt af mikilli smekkvísi, en nafn hans er einnig tengt öbrum varningi svo sem ilmvötnum. En flestir stórhönnubir eru einnig tengdir parfumbransanum. Tískan er ekki aðeins föt Versace meb þetta líka fína bollastell á svölum húss síns vib Comovatn. í tískuheiminum eru það ekki aðeins þeir sem teikna og skapa föt og fatastíl sem hafa áhrif. í síðasta spurningaþætti gerði Heiðar nokkra grein fyrir ofur- fyrirsætum nútímans, sem mörgum þykir sem farnar séu að stela senunni frá fötunum sem þær auglýsa eða sýna á tískusýningum. Það er farið að taka meira eftir fyrirsætunum en fötunum og það er ekki meiningin með því að selja stíl og vöru. Hönnuðirnir sjálfir vekja einnig mikla eftirtekt og eru sumir mikil samkvæmisljón og ber mikið á þeim í fjölmiðlum, rétt eins og kvikmyndastjörn- um og listamönnum sem meika það. Ekki er laust við að áhugi á hönnuðum sé farinn að vakna nokkuð hér á landi, því spurn- ingum er bent til Heiðars að fá að vita meira um margar vörur aðrar en fatnað sem kenndur eru við nöfn tískufrömuða, sem varla búa til alla þessa hluti sjálfir. Svar: Hátíska og tíska hefur breyst í það að áður voru þessir menn að selja sína vöru fyrir mikinn pening. Fyrir tuttugu ár- um var nóg af peningum í heiminum og þá voru þeir bara að sinna sínum viðskiptavin- um. í dag þurfa tískufrömuðir að verða stórstjörnur. Nú selja þeir ekki svo mikið af sinni beinu framleiðslu eins og áður, heldur fá þeir sínar tekjur af samning- um sem þeir gera við hitabrúsa- framleiðendur og gólfteppafyr- irtæki sem bera nöfn þeirra. Til þess að fá svona samninga upp á milljónir þurfa þeir aö vera nöfn, vel þekkt nöfn, sem fólk þekkir af smekkvísi og frumleika. Þess vegna stunda þeir samkvæmislífið með fyrir- sætunum. Þeir verða frægir og eftirsóttir og þegar við förum í Zimsen líst okkur ljómandi vel á hitabrúsa sem ber nafn Yves St Laurent. Nafnið á að tryggja gæðin. Við getum líka farið í teppa- búð og keypt Versace. Teppi sem bera hans nafn eru víöa til og vonandi komin hingað. Versace-boröbúnaður er til hjá Rosenthal við Laugaveginn. Versace verður að vera stór- stjarna til að' teppaframleiðend- ur og postulínsverksmiöja vilji greiða honum stórfé til aö hanna útlit framleiðslu sinnar. Og merkiö á að tryggja gæðin. En varan er óskaplega falleg af því að maður- inn er meistari. Þarna er komið langt út fyrir þau mörk sem einu sinni var hátísku- bransi, en það voru nær ein- göngu föt sem tískukóngarnir teiknuðu og fram- leiddu eða seldu sem sínar hug- myndir. En tískan er komin út í öll atriöi lífsins og þegar farið er að auglýsa Versace- skreyttan borð- búnað hjá Ro- senthal er gjarnan kölluð til ofurfyr- irsæta til að borða af listaverkunum og allt fær þetta ímynd elegans og hátísku, því auðvitað boröar fyrirsætan ekki nema fyrir fram- an myndavél. Við myndum skilja þetta bet- ur, við Islendingar, ef við sæt- um að sjónvarpsauglýsinga- markaðinum erlendis, þar sem þessar stjörnur ráða ríkjum. Cindy Crawford er núna að auglýsa fyrir Pepsí. Þar er hún ekki að sýna nein föt, heldur hvað hún er smekkleg að velja þennan gosdrykk. Þetta var líka til í gamla daga, en þá auglýstu kvikmynda- stjörnur lux- sápu. Fegurstu konur í heimi nota Lux stóð þar. í kringum 1950 lenti Ros- mary Clooney, sem aldrei hefur verið falleg, í því aö auglýsa Iux, en það var af því að hún söng svo vel. Hún var stjarna. Einu sinni setti Clark Gable fjölda undirfataframleiðenda á hausinn af því ab hann fór úr skyrtunni í kvikmynd og var ekki í nærbol. Allir meðvitaðir karlmen hættu að ganga í nær- bolum. Þetta er ekkert nýtt, því stjörnuímyndin skapar tísku, stundum óvart og stundum af ráðum hug. Á þeim árum sem kvikmyndaleikarar voru helstu fyrirmyndirnar, var það að fundin var upp teygja til að halda karlmannasoldcum uppi í stað sokkabanda. Þá var það aö það sást í bíó- mynd að Gary Grant var ekki meö sokkabönd og þá var góður vinur hans, Peter Lawford, fyrr- um mágur Kennidys og þeirra bræðra, spurður að því hvaða galdur það væri sem héldi sokk- unum uppi á fótum Gary Grants án þess að hann notaöi sokkabönd. „Hvernig dettur þér í hug að spyrja svona," sagði Peter Lawford, „Gary Grant er svo elegant mabur að sokkarnir hans myndu ekki dirfast að síga niður um hann." Það er ekkert nýtt að einstaka manneskjur verbi fyrirmyndir í tísku, sem fólk tekur sér til fyrir- myndar í klæðaburði sem ýmsu öðru. Það er álitið að sú manneskja sem á sínum tíma hafi haft mest áhrif og veriö stærsta stjarnan og fyrirmyndin hafi verið Marie Antoniette. Hún er kannski pró- tótípan að öllu tískustússinu. Heiðar jónsson, snyrtir, svara spurningum lesenda Hvernig aegab vera?

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.