Tíminn - 22.03.1996, Síða 10
10
Föstudagur 22. mars 1996
UTLÖND . . . UTLÖND . . . UTLÖND . . . UTLÖND . .. UTLÖND . .. UTLÖND . . . UTLÖND . .. UTLÖND . ..
Saksóknari viö stríösglœpadómstól Sameinuöu þjóöanna í Haag:
Þ j óðemishreinsanirnar
hófust í Vukovar
Svíþjób:
Persson oröinn
forsætisráðherra
Göran Persson, fyrrverandi
fjármálaráöherra og nýkjör-
inn leiðtogi sænska Jafnaöar-
mannaflokksins, tók í gær vió
embætti forsætisráöherra Sví-
þjóðar af Ingvar Carlsson.
Greidd voru atkvæði í sænska
þinginu í gær og hlaut Pers-
son 178 atkvæði. Engin mót-
atkvæöi vom greidd, en 154
þingmenn stjórnarandstöð-
unnar sátu hjá viö atkvæða-
greiösluna. „Hamingjusam-
ur? Nei, en ég finn til ábyrgð-
ar," sagði Persson vib frétta-
menn eftir að kosningunum í
þinginu var lokið. Tilkynnt
verður um ráðherraskipan
nýju ríkisstjórnarinnar í dag,
föstudag.
Afstæbiskenningin
seld á uppboði
72 blaðsíðna handrit Alberts
Einsteins frá árinu 1912 var
selt í gær til einkaaðila sem
segist ætla ab gefa þab til ísra-
elska þjóöminjasafnsins í
Jerúsalem. í handritinu eru
elstu drög sem enn eru til að
afstæðiskenningu Einsteins.
Ekki var gefið upp hvert
kaupverðib hafi verib, en í
síðustu viku tókst ekki að
selja það á uppboði þrátt fyrir
að tilboð hafi verið gert í það
sem hljóbaði upp á 3,3 millj-
ónir bandarískra dollara. Eig-
andanum þótti það of lágt.
-GB/Reuter
Grant Niemann, saksóknari,
sagði við réttarhöld í stríbs-
glæpadómstól Sameinuðu
þjóðanna í Haag í fyrradag,
að upphafið að „þjóðernis-
hreinsununum" svokölluðu í
Júgóslavíu fyrrverandi hefbu
verib fjöldamorðin á 261 Kró-
ata í borginni Vukovar í aust-
urhluta Króatíu árið 1991.
Verið var að rétta í máli
þriggja háttsettra yfirmanna í
júgóslavneska hernum sem eru
ákærðir fyrir að bera ábyrgð á
drápunum í Vukovar. Að sögn
Niemanns urðu þessi fjölda-
morð fyrirmyndin að frekari
skipulögðum fjöldamorðum í
stríðsátökunum. „Þetta var
upphafib að því sem kallað var
þjóðernishreinsun, og sáði þar
með fræjum þjóðarmorðs,"
sagði hann við réttarhöldin.
Herforingjarnir þrír, Mile
Mrksic, Miroslav Radic og Ve-
selin Sljivancanin, voru ákærð-
ir af dómstólnum í nóvember
sl. fyrir stríðsglæpi og glæpi
gegn mannkyninu. Stjórnin í
Belgrad hefur neitað ab fram-
selja þá, en dómstóllinn hefur
gripið til þess að halda opinber
réttarhöld í máli þeirra að þeim
fjarstöddum, bæbi til þess að
auka þrýstinginn á serbnesku
stjórnina og til þess ab gefa
þeim sem lifðu af hildarleikinn
tækifæri til að bera vitni um
það sem gerðist.
Saksóknaramir halda því
fram að herforingjarnir þrír
hafi skipað svo fyrir að 300
mönnum, sem höfðu leitað
skjóls í sjúkrahúsinu í Vukovar,
yrði smalað saman eftir að
júgóslavneski herinn hafði tek-
ib borgina herskildi í nóvember
1991, en þá hafði staðið yfir
umsátur um borgina í þrjá
mánuði. Það sem síöan gerðist
var „röb atburða sem við höf-
um séð aftur og aftur. Þab er
svo margt líkt að það getur eng-
inn vafi leikið á því að um vat
að ræða lið í hryllilegri rába-
gerð," sagbi Niemann.
Hermenn og sjálfboðaliðar
fluttu mennina í strætisvögn-
um til bóndabæjar í nágrenni
bæjarins Ovcara. „Þeir voru
barðir í taumlausu ofbeldiss-
valli sem stóð yfir í nokkrar
klukkustundir, dregnir út á
drápsvöllinn — þar sem fjölda-
grafir höfðu verið undirbúnar
— og myrtir á kerfisbundinn
hátt," sagði Niemann.
Hann sagði að fjöldamorðin
hefðu verið framkvæmd af her-
mönnum júgóslavneska hers-
ins og serbneskum sjálfboðalið-
um undir eftirliti hinna þriggja
ákærðu.
Að sögn Dennis Milner, sem
er breskur lögreglumaður sem
starfar hjá Sameinuðu þjóðun-
um, var hermönnunum sldpt
upp í hópa sem síöan skiptust á
um ab stunda barsmíðarnar.
Þegar einn hópur var orðinn
þreyttur tók sá næsti við. „Það
var maður í yfirmannabúningi
sem var með flautu inni í hlöb-
unni. Hann blés í flautuna og
þá fóru hinir óbreyttu sem voru
inni út og í staöinn kom annar
hópur sem tók við þar sem hin-
ir skildu vib," sagði Milner við
réttarhöldin í gær.
Barsmíðarnar stóðu yfir í
nokkra klukkutíma. Sumum
Króatanna var þó þyrmt. Níu
þeirra var bjargað af einstaka
hermönnum júgóslavneska
hersins sem höfðu verib vinir
þeirra fyrir stríðib.
Eftir að myrkur skall á var
mönnunum síðan safnað sam-
an og keyrðir á brott á vörubíl,
ab því er Milner segir. Flestir
þeirra sáust aldrei aftur, en ein-
um manni tókst að stökkva af
vörubílnum á ferð. Síðar tókst
honum að vísa mannréttinda-
samtökum á fjöldagrafir.
Dómstóllinn á eftir að hlýða
á framburð 11 vitna, þar á með-
al læknis sem hélt kyrru fyrir á
sjúkrahúsinu meðan umsátrib
um Vukovar stóö yfir, auk
nokkurra manna sem áttu því
láni að fagna að sleppa á lífi.
Réttarhöldin munu væntan-
lega standa yfir í nokkra daga,
og reiknað er með því að niður-
staða þeirra verði staðfesting
ákæruatriðanna og að gefnar
verði út alþjóðlegar handtöku-
skipanir á hendur hinum
ákærðu.
Áður hafa farið fram sams-
konar vitnaleiðslur fyrir stríðs-
glæpadómstólnum í máli
tveggja Serba, annars vegar
Milan Martic, leiðtoga Króatíu-
Serba sem er ákærður fyrir að
gefa skipun um sprengjuárás á
Zagreb, og Dragan Nikolic, sem
er Bosníu-Serbi sem stjórnaði
Sisica fangabúðunum í norð-
austurhluta Bosníu árið 1992.
-GB/Reuter
Menntun — Atvinna
— Framtíö
Rábstefna Eyþings og
Háskólans á Akureyri
veröur haldin föstudaginn 29. mars 1995 á
veitingastaönum Fiölaranum, Skipagötu
14 á Akureyri.
Dagskrá:
Kl.
9.30 Skráning þátttakenda.
10.00 Setning ráðstefnunnar. Einar Njálsson, formab-
ur Eyþings.
10.15 Ávarp Davíðs Oddssonar forsætisrábherra.
10.30 Matvælaframleibsla. jón Þórbarson og Hjörleif-
ur Einarsson frá Háskólanum á Akureyri.
11.30 Umræbur og fyrirspurnir.
12.00 Hádegisverbarhlé.
13.00 Orkufrekur ibnabur. Jóhannes Nordal, fv. sebla-
bankastjóri.
1 3.30 Framleibslu- og þjónustuiönabur. Ingi Björns-
son, framkvæmdastjóri Slippstöbvarinnar Odda
hf.
14.00 Ferbaþjónusta. Helga Haraldsdóttir, forstöðu-
mabur hjá Feröamálaráöi íslands.
14.30 Umræður og fyrirspurnir.
15.15 Kaffihlé.
15.45 Þróun t flutningum. Gubjón Aubunsson, for-
stöðumaður markaðsdeildar Eimskips.
16.15 Háskólamenntun og tengsl vib atvinnuveg-
ina. Þorsteinn Gunnarsson, rektor Háskólans á
Akureyri.
16.45 Umræöur og fyrirspurnir.
17.30 Móttaka og léttar veitingar í Listasafni Akureyrar
í boði Akureyrarbæjar.
Rábstefnustjórar:
Jakob Björnsson, bæjarstjóri á Akureyri, og Trausti Þor-
steinsson, fræbslustjóri Norburl. eystra.
Rábstefnugjald er 4.300 kr.
Vinsamlega tilkynnib um þátttöku hjá Eyþingi í síma
461-2733 fyrir 27. mars.
Greiösluáskorun
Sveitarsjóður Álftaneshrepps skorar hér meb á
gjaldendur, sem ekki hafa staðið skil á gjöldum til
sveitarsjóðs sem álögb voru fyrir 1. mars s.l. eba
fyrr og féllu í gjalddaga fyrir 15. mars 1996, ab
greiða þau nú þegar og ekki síbar en innan 15
daga frá dagsetningu áskorunar þessarar. Gjöldin
sem um er ab ræba eru: Fasteignaskattur, vatns-
skattur, lóbaleiga, fjallskilagjöld, fæbiskostnabur
og almennir innheimtureikningar.
Óhjákvæmilegt er ab fara út í innheimtuabgerbir
meb lögtaki og uppbobi, ef ekki verba gerb skil á
ofangreindum skuldum, auk kostnabar.
Álftártungukoti, 20. mars 1996.
Oddviti Álftaneshrepps.
Framboösfrestur
Ákveðið hefur verib aö viðhafa allsherjaratkvæðagreiðslu
í Verzlunarmannafélagi_ Reykjavíkur um fulltrúa á 38.
þing Alþýbusambands íslands. Kjörnir verba 65 fulltrúar
og jafnmargir til vara.
Listar ásamt meðmælum 100 fullgildra félagsmanna VR
þurfa ab hafa borist kjörstjórn á skrifstofu Verzlunar-
mannafélags Reykjavíkur, Húsi verslunarinnar, fyrir kl.
12:00 á hádegi mánudaginn 25. mars n.k.
Kjörstjórn.
Framlag íslendinga til
endurreisnar Bosníu:
Tví-
þætt
abstob
Framlag íslands til fjögurra
ára verkefnis um endurreisn
og uppbyggingu Bosníu-Her-
segóvínu sem hefst á þessu
ári verður 100 milljónir. Að
verkefninu standa margar
þjóbir og alþjóðastofnanir.
Aðstoð íslendinga við Bo-
sníu- Hersegóvínu er tvíþætt.
Annars vegar er um ab ræba 10
milljóna króna neyöaraðstoö
sem verður greidd á þessum
ársfjórbungi og hins vegar
framlag íslands til fjögurra ára
verkefnis um endurreisn og
uppbyggingu landsins.
Það eru Alþjóðabankinn og
Þróunarbanki Evrópu fyrir
hönd Evrópusambandsins sem
stjórna undirbúningi verkefn-
isins.
Verkefnið hefst á þessu ári
og því lýkur árið 1999. Fram-
lag Islands á þessum fjórum ár-
um verður 100 milljónir en
ekki hefur verið ákveðib til
hvaða verkefna þær munu
renna. Nefnd á vegum utan-
ríkisráöherra mun taka afstöbu
til þess á næstu vikum. Nefnd-
ir hafa verið málaflokkar eins
og samgöngumál, orkumál,
menntamál og heilbrigðismál
en ákvörðun verður tekin eftir
ab búib er að meta á hvaða
svibi þörfin er mest og meö til-
liti til þess sem aðrar þjóðir
munu gera. -GBK