Tíminn - 29.06.1996, Page 2
2
Laugardagur 29. júní 1996
Eimskip fjárfestir fyrir 200 milljónir kr. í nýju skipafélagi:
Sóknarfæri í
Eystrasaltsríkjum
Eimskip hefur stofnaö skipa-
félagiö Maras Linija Ltd. sem
hefur tekiö yfir rekstur Latvi-
an Shipping Association Ltd.,
LSA, en þaö félag hefur und-
anfarin ár annast siglingar á
milli hafna í N-Evrópu og
Eystrasaltsríkjanna. Þá hefur
Eimskip stofnaö nýtt félag,
Longship Ltd. í Bretlandi til
aö hafa meb höndum um-
bobsmennsku og stjórna
rekstri Maras Linija Ltd. og
skipsfélagsins Kursiu Linija.
í tilkynningu frá Eimskip
kemur fram aö stofnun Maras
Linija Ltd. má rekja til rekstrar-
erfiðleika LSA, en heildarfjár-
festing Eimskips vegna stofn-
unar félagsins nemur alls 200
milljónum króna. Þá er stefnt
að því að aðrir fjárfestar komi
inn í þann rekstur á næstu
misserum. En mikil aukning
hefur verib í flutningum á milli
Eystrasaltsríkja og V-Evrópu á
undanförnum árum. Með þess-
um fjárfestingum sínum er
Eimskip að styrkja starfsemi
sína í Eystrasaltsríkjunum og í
Rússlandi og taka um leið þátt í
þeirri þróun og uppbyggingu
sem þar hefur átt sér stað.
Skipafélagið Maras Linija Ltd.
rekur fimm meðalstór gáma-
skip í siglingum á milli Riga í
Lettlandi, Tallin í Eistlandi og
St. Pétursborgar í Rússlandi
annarsvegar og Rotterdam, Fel-
ixstowe, Immingham, Árósa,
Kaupmannahafnar og Hels-
ingjaborgar hinsvegar. Saman-
lagt hafa þessi fimm skip tæp-
lega 1100 gáma flutningsgetu.
Kursiu Linija Ltd. siglir aftur
á móti á milli Klaipeta í Lithá-
en, Kaliningrad í Rússlandi og
hafna í V-Evrópu. Þá hafa dótt-
urfyrirtæki Eimskips í Rotter-
dam og í Bretlandi verið um-
boðsaðilar fyrir LSA frá stofnun
þess árið 1990 og sömuleiðis
fyrir Kursiu Linija Ltd. frá
stofnun þess árið 1995.
-grh
grýti og líparít
Ærvambir, grá-
Til að gefa lesendum færi á
að skyggnast inn í dýrðina er
hér gripið niður í samkeppni-
stillögu Pálmars:
„Byggingin samanstendur
af tveimur hlutum: skrifstofu-
byggingunni og stigahús-
kjarnanum. Þeir standa við
kyrra vatnsflötina og mynda
sín á milli, eins konar gjá að
kyrrlátum innri garði. Á garð-
inum er gátt að Robinien
trénu sem gægist inn um kop-
arborðann um leið og það
dreifir sólarljósinu um allan
garðinn ... Inngangurinn að
sendiráðinu opnast manni
sem glufa í veggnum milli líp-
arítsins og grásteinshlutans,
sem brotist hefur út að göt-
unni svona rétt til að kynna
sig og gefa hrjúft en fagurt
fyrirheit um nánari kynni
þegar inn er komið."
Mikið verður lagt upp úr ís-
lensku grjóti og vísanir í ís-
lenska náttúru og menningu.
Þannig má nefna að forsalur-
inn verður lagður blágrýtis-
hellum og veggir hans klædd-
ir líparíti. Þá verður einnig í
húsinu ás með sjávarmöl og
innlögðum hvalbeinum. Yfir-
borð ássins verður slípað slétt
og með honum verður skír-
skotað til lendingar smábáta
um fjörur landsins hér áður
fyrr.
Að lokum skal geta þess að
hár gíuggi er í tillögunni
klæddur sútuðum ærvömbum
og þar kemur fram að slíkt
efni hleypi mikilli og sérstakri
birtu í gegnum sig og er með
honum vísað til ljóra torfbæj-
anna.
Pálmar sagði þó óvíst
hvernig unniö yrði úr þessum
hugmyndum með vambirnar
og hvalbeinin. „Þetta var
svona skot og maður veit ekki
hvernig þetta gengur upp."
-LÓA
Islenskt grjót, hrein form og leikur meö Ifós og birtu veröur einkennandi fyrir íslenska sendiráöiö í Berlín sam-
kvæmt þessari vinningstillögu Pálmars Kristmundssonar, arkitekts.
íslensk náttúra er í öndvegi í vinningstillögu um sendiráö í Berlín:
Sum frystihús veröa lokub í lengri tíma en áöur vegna slœmrar kvótastööu. Austurland:
Atvinnulausum fjölgar í sumar
Slæm kvótastaða í bolfiski hefur
þær afleiðingar aö nokkur frysti-
hús á smærri stöðum á Austurlandi
veröa líklega lokuö frá miðjum
næsta mánuði og fram til 1. sept-
ember n.k., þegar nýtt fiskveiðiár
hefst. Þrátt fyrir slæma afkomu
margra hefbbundinna frystihúsa
eru ekki taldar miklar líkur á því
að einhverjum vinnslum verði lok-
að til frambúbar.
Sigurður Ingvarsson, formaður
Alþýðusambands Austurlands, seg-
ir aö þetta muni hafa töluverð
áhrif á atvinnu skólafólks á við-
komandi stöðum og því nokkuð
ljóst að það muni fjölga á atvinnu-
leysisskrám í fjórðungnum þann
tíma sem húsin verða lokuð. Þá
munu þessar lokanir einnig koma
Þaö eru blikur á lofti í málum fiskverkafólks á Austfjöröum í sumar. Á
þessari skemmtilegu mynd frá ASÍ-þingi er leikhópur kvenna aö vaska
saltfisk og sýndi þátturinn kjör fiskvinnslukvenna gegnum tíöina.
Ljósmynd Vinnan
illa við marga fastráðna starfs-
menn, sem hafa ekki efni á því að
fara í langt sumarfrí. Þar fyrir utan
mun samdráttur í tekjum íbúa hafa
áhrif á aðra starfsemi í viðkomandi
plássum, s.s. í þjónustu og verslun.
En viðbúið er að einhverjir muni
neyðast til að fresta ýmsum fram-
kvæmdum sem þeir kynnu ella að
hafa ráðist í.
Formaður ASA segir að þótt blik-
ur séu á lofti í atvinnumálum fisk-
vinnslufólks í smærri sjávarplás-
sum í fjórðungnum, hefur ræst úr
atvinnumöguleikum iðnaðar-
manna í stærri bæjunum. Auk þess
eru töluverðar væntingar til kom-
andi loðnuvertíöar, en heimilt
verður að hefja veiðar þann 1. júlí
n.k. -grh
Nýjungar í Garöinum:
Byggðasafn
og söluskáli
Garðskagi í Garðinum hefur
upp á margt að bjóða fyrir
ferðamenn og sunnudagsbíl-
túrinn.
Sú nýbreytni hefur verið tek-
in upp við tjaldsvæðið á Garð-
skaga í Garöinum að þar er nú
rekinn söluskáli þar sem seldir
eru minjagripir auk sælgætis-,
kaffi og gossölu. Einnig er boð-
ið upp á kaffihlaðborð alla
sunnudaga í sumar í Samkomu-
húsinu. Nýbúið er að opna
byggðasafn á Garðskaga, þar er
fjölbreytt fuglalíf og í góðu
veðri er útsýni þar fagurt. ■
Pálmar Kristmundsson,
arkitekt, hefiir unnið sam-
keppni um hönnun íslenska
sendiráðsins í Berlín. Sam-
keppnin var öllum opin og
bárust 23 tillögur en í Sví-
þjóö, Noregi og Danmörku
var lokuð samkeppni milli
útvalinna arkitektastofa.
Áður hafði verið haldin
samnorræn keppni um
skipulag lóðarinnar og hana
unnu tveir arkitektar, Finni
og Austurríkismaöur.
Alls verða á lóðinni fimm
byggingar og ein sameiginleg
aðkomubygging fyrir öll
Norðurlöndin. Aætlað er að
framkvæmdir hefjist í janúar
á næsta ári og flutt verði inn í
öll sendiráðin í mars 1999.
Markmiðið er ekki að bygg-
ingarnar séu allar með sama
sniði heldur að yfir þeim sé
ákveðinn heildarbragur.
Þannig verður 15 metra há
kopargirðing sem umlykur
alla lóðina. „Innan hennar
standa svo þessi sex hús. Þau
verða öll jafn há og standa við
tvær götur sem krossast. Þar
er svo aftur hugmyndin að
húsin passi ekki endilega sam-
an. Þau hafa vissa samnefnara
en eiga að sýna einhver ein-
kenni sinnar þjóðar," sagði
Pálmar í samtali við Tímann.
Pálmar er nú að vinna að
teikningunum útfrá vinning-
stillögu sinni. „Tillagan gerir
ráð fyrir að húsið verði klætt
með íslensku líparíti og grá-
steini sem er svolítið frá-
brugðið hinum þjóðunum
sem nota meira gler og léttari
efni. Okkar hús er líka mjög
lítið, um 400 fm, í saman-
burði við hin húsin. Ef við
berum t.d. saman íslenska
sendiráðið og það finnska að
þá taka Finnarnir pláss sem
samsvarar rúmlega einni hæð
hjá okkur bara undir sauna
hjá sér."