Tíminn - 25.03.1992, Qupperneq 1

Tíminn - 25.03.1992, Qupperneq 1
Miðvikudagur 25. mars 1992 60. tbl. 76. árg. VERÐ I LAUSASÖLU KR. 110.- Fá þær vinnu í sumar í heilbrigöisþjónustunni? Frá vinstri Berglind Svansdóttir, María Smáradóttir, Kristín Guömundsdóttir og Bjarndís Bjarnadóttir. Tfmamynd Árni Bjarna Niðurskurður á fé til heilbrigðismála kemur niður á framhaldsskólanemum sem stunda nám á heilsugæslubrautum: Verið að skella dyrum á nefið á nemendunum Séra Þórir Stephensen varð ekki við ósk Halls Magnús- sonar um að miskabætumar rynnu til Hjálparstofnunar kirkjunnar: Viðey fékk féð frá Halli Magg Hjálparstofnun kirkjunnar varö ekki 150 þúsund krónum ríkari vegna miskabóta, sem hæstiréttur dæmdi Hall Magnússon, fyrrverandi blaða- mann til þess að greiða séra Þóri Stephensen fyrir skömmu, en Hallur fór fram á það bréflega við séra Þórí er hann greiddi bætumar. Féð renn- ur til Viðeyjarkirkju og því verður ráðstafaö af Viðeyjamefnd, sam- kvæmt ákvörðun Þóris. „Þórir verður að eiga við sjálfan sig hvort peningarnir nýtast betur hjá Hjálparstofnun kirkjunnar eða í Við- ey,“ sagði Hallur Magnússon að feng- inni þessari niðurstöðu í gær. „Eg sjálfur hefði frekar viljað sjá þessa peninga hjá þeim sem þess þurfa, frekar en hjá borgarstofnun sem hef- ur aðgang að gildum sjóðum Reykja- víkurborgar." „í upphafi var ákveðið frá minni hendi, að kæmu miskabætur þá rynnu þær til Viðeyjarkirkju," sagði séra Þórir Stephensen í samtali við Tfmann. „Þessu lýsti ég yfir við fjöl- miðla, Vriðeyjarnefnd og fleiri og þetta vissi Hallur frá upphafi og það stend- ur. Ég hef þegar afhent peningana og gerði það í síðastliðinni viku, en þá var haldinn fundur í Viðeyjamefnd og þá var þetta afhent. Annað hef ég ekki um þetta að segja.“ Engin ákvörðun hefur verið tekin um hvað gert verður við þær 150 þús- und krónur sem Halli Magnússyni var dæmt að reiða af hendi við séra Þóri. Þegar að því kemur að ráðstafa peningunum verður það gert af Við- eyjarnefnd sem ákveður allar fram- kvæmdir í Viðey og það sem er afhent Viðeyjarkirkju að gjöf heyrir undir nefndina. -ÁG. Horfur eru á að fjölmargir nemendur sem stunda nám á heilsu- gæslubrautum við framhaldsskóla landsins komist ekki í verknám á sjúkrastofnunum í sumar. Skóiamir sem bjóða upp á nám á heilsu- gæslubrautum skuldbinda sig til að koma nemendunum í verknám og fram að þessu hafa þau getað staðið við skuldbindingar sínar og útvegað öllum nemum vinnu á sjúkrastofnunum. Að sögn Ingibjargar Sigurðardótt- ur, deildarstjóra heilsugæslusviðs við Fjölbrautaskólann í Breiðholti, eru þess þó nokkur dæmi að nem- endur hafa afþakkað trygga vinnu til þess að fara í verknám í sumar. Nú þegar flest bendir til að nemarnir komist ekki í slíkt nám í sumar eiga þeir ekki kost á þeirri vinnu sem þeir höfnuðu. Margar sjúkrastofnanir hafa ákveð- ið að takmarka mjög ráðningar á sumarafleysingafólki í sumar, en eins og kunnugt er hefur þeim verið Oeiia smádrengja endaðl meö hnífstungu: Sá særöi á batavegi Tæpiega ellefu ára gamall drengur, sem varð fyrir hníf- stungu við Kieppsveg um kvöldmatarleytið í fyrrakvöld, er á batavegi. Félagi hans á tí- unda ári lagði til hans með svo- nefndum butterfly-hnífi eftir að þeim hafði sinnast. Málið er f höndum numsóknarlögreglu og bamaverndarnefndar. —sá gert að spara í rekstri eins og hægt er, þar með talinn launakostnað. Sáralítið verður um ráðningar sum- arafleysingafólks á Landakotsspít- ala, St. Jósefsspítala í Hafnarfirði og Sjúkrahúsi Akraness. Þetta kemur illa við nemendur sem stunda nám í heilbrigðisfræðum. Tveir skólar í Reykjavík bjóða upp á nám á heilsugæslubraut, Fjöl- brautaskólinn í Breiðholti og Fjöl- brautaskólinn í Ármúla, en auk þess er farið að bjóða upp á þetta nám í mörgum þeirra nýju fjölbrautaskóla sem stofnsettir hafa verið á lands- byggðinni. Ingibjörg Sigurðardóttir sagði að allt stefndi í að skólinn geti ekki staðið við skuldbindingar sínar gagnvart nemendum um að útvega þeim vinnu við verknám í sumar. Hún sagði að um 70 nemendur skól- ans hefðu óskað eftir að komast í verknám á sjúkrahúsum í sumar. Borgarspítalinn væri búinn að lofa að taka 30 nemendur í verknám til sín, en ekkert svar hefði enn borist frá Landsspítalanum. Landakot og St. Jósefsspítali í Hafnarfirði munu ekki taka við neinum nemendum. Ingibjörg sagðist hafa reynt að koma nemum að við sjúkrahús á lands- byggðinni, en fengi alls staðar neit- un. Heimafólk gengi fyrir við ráðn- ingar á því takmarkaða starfsliði sem þar yrði ráðið í sumar. Ingibjörg sagði að afar mikil óánægja væri meðal nemenda með þetta ástand. Nemendur hefðu treyst á að fá þessa vinnu, en skólinn hefur fram til þessa alltaf getað stað- ið við loforð um að útvega nemum vinnu á sjúkrahúsum. Hún sagði að meginástæðan fyrir þessu ástandi nú væri niðurskurður á fé til heil- brigðismála. Auk þess ætti nokkur fjöigun nemenda í þessu námi hér hlut að máli, en nemendum sem stunda þetta nám á landsbyggðinni hefur fjölgað umtalsvert síðustu ár. Ingibjörg sagði að þess væru þó nokkur dæmi að nemendur hefðu sagt upp vinnu eða afþakkað vinnu í sumar til þess að geta farið í verk- nám á sjúkrahúsum í sumar. Nú þegar horfur væru á að nemarnir fengju ekki vinnu þar ættu þeir ekki kost á þeirri vinnu sem þeir sögðu upp. Ingibjörg sagði ekki hægt að úti- loka að þessi staða myndi leiða til þess að nemendur útskrifuðust síðar en ella. Nemendur á heilsugæslu- braut þurfa að vinna á sjúkrahúsum í verknámi í 34 vikur, 10-12 vikur í senn. Ef nemar hafa ekki lokið verk- náminu þegar þeir hafa lokið öllum bóklegum greinum fá þeir vottorð um að bóklegum þætti námsins sé lokið. Prófskírteinið fá þeir svo þeg- ar verknámi er lokið. - —EÓ Innflutningur sendibíla — svonefndra vsk-bíia — var hlutfalls- lega nær fimmfalt meiri síðustu tvö árin en áratuginn á undan. Álíka margir vsk-sendibílar fluttir inn 1990/91 og á heilum áratug: Sjöundi hver bíll 1991 var sendibíll Um sjöundi hver bíll sem fluttur var til landsins á síðasta ári var vsk- bíli. Af samtals 11.900 innfluttum bílum voru nær 1.700 sendibílar. Fyrstu tvö árin eftir gildistöku virðisaukaskattsins voru fluttir inn nær jafnmargir sendibílar og á ára- tug þará undan.Árin 1990/91 voru samtals 2.720 sendibílar fluttir til landsins, eða rúmlega 13% af þeim 20.700 bílum sem fluttir voru til landsins þessi tvö ár. Á árunum 1981-1989 voru sendibílar hins vegar vel innan við 3% innfluttra bíla. Af rúmiega 104 þúsund inn- fluttum bflum áratuginn fýrir vsk voru sendibílar aðeins 2.870, þ.e. aðeins 2,8% bílainnflutningsins. Miðað við óbreytt hlutfall hefði einungis þurft að flytja inn í kring- um 600 sendibíla sl. tvö ár. Umfra- minnkaup sendibfla virðast því yfir 2.100 bfiar. Komið hefur fram í sjónvarpsfréttum að þessi mikla breyting hefur nú vakið athygli manna hjá embætti ríkisskatt- stjóra. Bfiaeign landsmanna var skráð um 137 þúsund bflar um síðustu áramót. Þar af voru rúmlega 122 þúsund fólksbfiar, sem þýðir um 100 fólksbfia fyrir hverja 210 landsmenn. Meðalaldur þessa bfla- flota var 7,5 ár og hefúr hann lækkað úr 9 árum á aðeins fimm árum. - HEI

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.