Tíminn - 25.03.1992, Page 8
8 Tíminn
MINNING
^iðvikudagur^ðjTTarsJQO^
B imir Bj amas on
héraðsdýralæknir á Höfn í Hornafirði
Fsddur 3. júlí 1940
Dáinn 15. mars 1992
EkJd gat mig grunað það síðdegis á
laugardegi þann 14. mars sl., þegar við
Bimir Bjamason kvöddumst að lokn-
um fundi sem við vomm saman á, að
innan sólarhrings væri hringt til mín
og mér tilkynnt lát hans. Þar með var
í einu vetfangi endi bundinn á hart-
nær aldarfjórðungs kynni okkar og
samstarf að margvíslegum málefnum
hér á Homafirði og í Austur-Skafta-
fellssýslu.
Bimir var fæddur í Reykjavík 3. júlt'
1940 og var því einungis 51 árs gamall
þegar hann féll svo óvænt frá. Foreldr-
ar hans vom hjónin Bjami Bjamason
brunavörður og Ósk Sveinbjömsdótt-
ir. Þau hjón vom bæði ættuð úr Kjós-
inni og ég minnist Bjama, föður Bim-
is, frá þeim tíma þegar ég var ungur
drengur að alast upp í Kjósinni og
hann ásamt ýmsum öðmm frammá-
mönnum í Átthagafélagi Kjósverja
kom á samkomur þar í sveit.
Að loknu stúdentsprófi hóf Bimir
dýralæknisnám í Kaupmannahöín og
lauk þaðan prófi vorið 1967. Hann
starfaði þá sumarlangt í Danmörku,
en fluttist síðsumars heim til íslands
eftir að hafa fengið veitingu (yrir emb-
ætti héraðsdýralæknis í Austur-
Skaftafellssýsluumdæmi.
Það mun hafa verið árið 1959 sem
Alþingi setti lög um embætti héraðs-
dýralæknis í Austur-Skaftafellssýslu-
umdæmi, sem þá náði yfir alla Austur-
Skaftafellssýslu og Suður-Múlasýslu
sunnanverða að Breiðdalsheiði. Þótt
embættið væri þannig lögformlega
stofnað 1959, var ekki ráðinn dýra-
læknir þar til starfa fyrr en Bimi var
veitt embættið árið 1967. Héraðið var
víðfeðmt og mikið verk var að vinna
fyrir hinn unga dýralækni. Menn
fundu fljótt að hann tók hlutverk sitt
alvarlega og vildi rækja það af kost-
gæfni. Viðbmgðið var hve fljótt hann
brást við kalli bænda þegar þörf var og
ekki laust við að mönnum fyndist
hann stundum of afskiptasamur. Þeir
höfðu verið vanir að bjarga sér án
dýralæknis og það þurfti nokkum
tíma til að kynnast og læra að meta
starfshætti hans. Hann lagði sig í
framkróka við að hjálpa bændum og
leiðbeina þeim, og ég tel mig geta full-
yrt að hann gat í ýmsum tilfellum ver-
ið þeim afar mikilvægur ráðgjafi varð-
andi ýmislegt í búskap þeirra og at-
vinnurekstri sem ekki snerti beint
hans starfsgrein. Hann varð því fljót-
lega virtur af bændum og öðmm, sem
kynntust vinnubrögðum hans, fyrir
mikla og góða eiginleika í starfi.
Starf dýralæknisins snýr ekki ein-
ungis að bændum, heldur er starf
hans ekki síður mikilvægt varðandi
eftirlit og heilbrigðisskoðun í afurða-
stöðvum landbúnaðarins. Á þeim vett-
vangi var Bimir afar strangur og
metnaðarfullur og gerði miklar kröfur
til þess að starfshættir og aðstaða öll
væri með þeim hætti að til sóma
mætti teljast Ekki síst fyrir hans til-
verknað og málafylgju geta Austur-
Skaftfel 1 ingar nú með stolti bent á að
sláturhús þeirra fullnægir alþjóðleg-
um kröfúm Evrópubandalagsins um
búnað og starfshætti.
Á þeim tíma, sem Bimir hóf störf
hér sem héraðsdýralæknir, var land-
búnaðarframleiðsla í sýslunni í mikl-
um vexti og var svo fram um 1980.
Eftir að búskapur fór að dragast sam-
an og einnig eftir að svæði hans
minnkaði með stofnun sérstaks dýra-
læknisumdæmis í suðurhluta Suður-
Múlasýslu, fannst honum verkefhi
ófullnægjandi og tók þá m.a. að sér
starf heilbrigðisfulltrúa í Austur-
Skaftafellssýslu, sem hann gegndi síð-
ustu fimm ár ævi sinnar. í starfi heil-
brigðisfulltrúa kom fram hinn sami
áhugi og atorka í því að tryggja að
gæði og umgengni væri alls staðar
með fullnægjandi hætti.
Á sviði ýmiss konar félagsmála var
Bimir athafnasamur allan þann tíma
sem hans naut við hér í sýslu. Hann
tók snemma virkan þátt í starfsemi
Kaupfélags Austur-Skaftfellinga sem
almennur en áhugasamur félagsmað-
ur. Hann var kjörinn í stjóm félagsins
árið 1979 og þá strax kjörinn formað-
ur stjómar þess. Því starfi gegndi
hann í átta ár, en þegar hann tók við
starfi heilbrigðisfulltrúa taldi hann
ekki lengur samrýmast að hann væri
einnig stjómarformaður Kaupfélags-
ins og sagði því af sér formennskunni.
Hann sat hins vegar áfram í stjóm fé-
lagsins til dauðadags. Ég átti því láni
að fágna að eiga náið samstarf við
Bimi allan þann tíma sem hann dvaldi
hér. Ekki er á aðra hallað þótt ég segi
að þau ár, sem hann var stjómarfor-
maður í Kaupfélaginu, eru mér þau
eftirminnilegustu og ánægjulegustu
af þeim tíma sem ég hef starfað þar
sem kaupfélagsstjóri. Bimir var góður
fúndarmaður. Hann var rökfastur og
hreinskiptinn. Hann átti auðvelt með
að greina kjamann frá hisminu og var
fljótur að mynda sér skoðun á hlutun-
um. Hann var ávallt tilbúinn til rök-
ræðna og gott var að skiptast á skoð-
unum við hann, þótt vissulega værum
við ekki alltaf á einu máli.
Bimir tók einnig virkan þátt í sveit-
arstjómarmálum. Hann var fúlltrúi
Framsóknarflokksins í hreppsnefnd
Hafnarhrepps tvö kjörtímabil. Fyrst
árin 1974 til 1978 og síðan aftur árin
1982 til 1986 og var þá oddviti. Hann
var einnig formaður skólanefndar
Hafnarhrepps um langt skeið og tók
þátt í ýmsum nefndarstörfúm á veg-
um sveitarstjómar.
Fýrir utan kynni okkar á vettvangi
starfsins minnist ég hans með ánægju
sem spilafélaga um margra ára skeið,
þar sem við og hinir félagar okkar nut-
urn þess að setjast niður eftir eril dags-
ins til þess að taka í spil og spjalla sam-
an. Þeirra stunda verður sárt saknað.
Eftirlifandi kona Bimis er Edda
Flygenring, ættuð úr Hafnarfirði. Þeg-
ar þau Bimir og Edda fluttu hingað
heim sumarið 1967 var elsta dóttir
þeirra, Sigrún Bima, á fyrsta ári. Son-
urinn Garðar Ágúst fæddist síðan árið
1968 og yngri dóttirin Hildur Björg
árið 1976. Að fjölskyldunni er mikill
harmur kveðinn og mikils misst.
Bimir var ekki einungis mikill foringi
í héraði. Hann var einnig mikill og
traustur heimilisfaðir sem fjölskyldan
vissi að hún gat stólað á. Ég færi Eddu
og bömunum samúðarkveðjur og bið
þeim velfamaðar um alla framtíð.
Ég kveð Bimi Bjamason að leiðar-
lokum með þakklæti og söknuði.
Blessuð sé minning hans.
Hermann Hansson
Vinarkveðja
Undir brekkwmi á balarum við lœkirm
á blíðum sumardegi sátum við,
bergðum vatn úr bláum hyl
bundumst tryggð í sólog yl,
þá var svo gott að eiga vin og vera til.
Hér ég sit og ri/ja upp þá unaðsdaga,
sem áttu héma borgardrengir tveir
og ég hrópa í himininn
hötúg tár er falla á kinrv
Hví var tekirm frá mér besti vinur minn?
Söm eráin, sami fjallahringur,
en samt mun ekkert verða hérsem fyrr.
Hann er farinn, áin sorgarljóð nú syngur.
Hér sit ég einn, á Guð minn hrópa og spyr.
Svarið hljómar yfir háan kólgubakka:
Hans hjartkcer mynd um eilífð lýsirþér!
Frið og þakklæti ég finn
fara um dapran huga minn,
þótt það sé sárt að kveðja bcsta vinbm sirm.
Okkur dreymdi um að eiga endurfundi
á æskustöðvunum — enláner valt,
því hinn æðsti dómur yfir vmmbm dundi,
þarm eina sem ég sagði alltafsatt.
Þegar einn ég hér á árbakkanum reika,
til angistar og tómleika ég finn.
En ég vil fegirm trúa því
að ég fái hér á ný
seirma að faðma aftur besta vinirm mirtn.
Og ég hrópa í himbúrm
—höfug tárin falla á kbm —
og bið Guð að blessa besta vinirm rnirrn.
Leiðir tengjast og skilja, það er lífsins
saga. Leiðir tveggja tíu ára drengja úr
Reykjavík liggja saman í sumardvöl að
Hvammi í Langadal árið 1950 og síðan
að nýju á hverju vori í fjögur sumur.
Á þessum dýrðarsumardögum á
morgni lífsins bindast þessir tveir
drengir sterkustu vinarböndum sem
þeir eiga hvor um sig.
Þeir treysta þau og binda fast næstu
árin og finna að þau muni aldrei
trosna eða slitna um ævinnar daga,
hvað sem á dynur. Leiðir liggja að nýju
saman í menntaskóla og þeir verða
samferða út í lífið með stúdentspróf-
inu.
Þá skiljast leiðir um sinn, annar fer
utan til náms og síðan til starfa austur
á Höfn í Homafirði sem héraðsdýra-
læknir. Hinn er um kyrrt í höfúðborg-
inni og verður fjölmiðlamaður.
En vinabandið rofnar ekki.
Þetta er sérstök vinátta, þögul,
gegnheil og innileg, þótt langt líði
milli samfunda.
Það gleður fjölmiðlamanninn í
Reykjavík að frétta af þeirri virðingu,
sem æskuvinur hans aflar sér á
Homafirði með margvíslegum trún-
aðarstörfúm sínum þar, og ekki síður
hve stórkostlegur vinur hann reynist
bróður fjölmiðlungsins sem býr þar
um árabil.
Þegar árin líða ræða æskuvinimir
um það að þegar færi gefist og hægist
um í erlinum, skuli þeir fara saman
norður og njóta dýrðlegra endur-
minninga á æskustöðvunum í Langa-
dal. Keppa aftur í frjálsum íþróttum,
stangarstökki á hrífúskafti og jám-
karlskasti, halda fegurðarsamkeppni
kúnna og moka skít Rölta um börð og
brekkur og bergja vatn úr bláum hyl í
fjallalæk.
Segja hvorir öðrum allt eins og
forðum daga.
Því að þótt báðir hafi eignast mjög
nána vini, hvor á sínum vettvangi, vita
þeir að tvisvar verður gamall maður
bam. Sterkasta æskuvináttan verður
um síðir öllu yfirsterkari, bemskusól-
in björtust
En þá dregur ský fyrir sólu.
Fjölmiðlamaðurinn, vanur válegum
tíðindum, er sem þrumu lostinn er
hann fær þessa fregn:
Æskuvinurinn eini er kallaður fyrir-
varalaust héðan af jörðu á besta aldri.
Ferðalag vinanna verður aldrei far-
ið.
Ogþó?
Sá, sem eftir situr og syrgir, ásamt
mörgum öðmm, einstakan vin og göf-
uglynda persónu, sem reyndist mörg-
um svo vel, á sér enn draum:
Að tylla sér niður á barðið, þar sem
lambhúsin stóðu í brekkunni og finna
í andanum fyrir nálægð, tryggð og
göfuglyndi Bimis Bjamasonar, finna
enn hlýjan strauminn frá hljóðlátri
góðmennsku hans og mannkostum,
sem komu svo sterkt fram strax í
æsku.
Hneigja höfuðið í þökk fyrir lífs-
hlaup góðs drengs og sanns vinar og
dreyma um endurfundi á vegum ei-
lífðarinnar, þegar sú ferð verður farin
sem okkur er öllum ætluð.
Á þeirri ferð verður gott að tylla sér
niður í brekkunni í dalnum, teyga
angan blómanna og bergja vatn sam-
an úr bláum hyl.
Guð blessi minningu Bimis Bjama-
sonar og styrki ástvini hans.
Ómar Þ. Ragnarsson
Okkur gengur erfiðlega að sætta okk-
ur við raunveruleikann þegar góðum
félaga er fyrirvaralaust kippt frá okkur
f miðju ævistarfi. Skilningsvana
stöndum við frammi fyrir staðreynd
sem ekkert fær breytL
Bimir Bjamason var fæddur í
Reykjavík þann 3. júlí 1940. Foreldrar
hans voru hjónin Ósk Sveinbjamar-
dóttir og Bjami Bjamason, sem bæði
em látin. Systkini Bimis vom tvö,
Selma, húsmóðir í Mosfellssveit, og
Sveinbjöm, prestur í Skotlandi. Bimir
ólst upp f Reykjavík, en að námi loknu
hélt hann til Kaupmannahafnar, þar
sem hann lauk prófi í dýralækningum
árið 1967. Sama ár tók hann við starfi
héraðsdýralæknis í Austur-Skaftafells-
sýslu og því starfi gegndi hann til
dauðadags og naut í því mikils trausts,
bæði bænda í héraðinu og stéttar-
bræðra sinna. Með Bimi flutti hingað
eftirlifandi eiginkona hans, Edda Flyg-
enring, og áttu þau heimili sitt að
Hlíðartúni 41, Höfn. Böm þeirra
hjóna em þrjú: Sigrún Bima, rithöf-
undur og námsmaður, fædd 1966;
Garðar ÁgúsL námsmaður, fæddur
1968; og yngst er Hildur Björg, fædd
1976. Bimir bar mikla umhyggju fyrir
eiginkonu sinni og bömum, hann var
traustur og ástríkur heimilisfaðir og
með fráfalli hans er stórt skarð rofið í
þessa samhentu fjölskyldu.
Með ólíkindum er, þegar horft er til
hins mikla og erilsama starfs héraðs-
dýralæknis í stóm héraði, hverju
Bimir fékk áorkað í hinum margvís-
legustu málum utan starfs sína, án
þess þó að slíkt kæmi niður á fjöl-
skyldulífi hans.
Hann átti sæti í stjóm Kaupfélags
Austur-Skaftfellinga frá árinu 1979,
þar af sem formaður um árabil; hann
sat í stjómum útgerðarfélaganna
Borgeyjar hf. og Samstöðu hf. og var
virkur félagi í Lionsklúbbi Homafjarð-
ar. Bimir starfaði sem heilbrigðisfull-
trúi sýslunnar síðustu fimm árin,
hann sat í stjóm stéttarfélags dýra-
lækna um tíma og var danskur kon-
súll á Höfri. Bimir var traustur félagi í
Framsóknarfélagi Austur-Skaftafells-
sýslu og gegndi fjölda trúnaðarstarfa á
þeim vettvangi. Hann sat í hrepps-
nefnd á Höfn sem fúlltrúi Framsókn-
arfélagsins árin 1974 til 1978 og aftur
1982 til 1986 og var oddviti hrepps-
nefndar síðara tímabilið. Bimir átti
sæti á kjördæmisþingum og tók þátt í
starfi flokksins og stefnumótun með
margvíslegum hætti. Fyrir þessi störf
hans þökkum við af heilum hug.
Okkur, sem störfuðum með Bimi
að félagsmálum, varð fljótt Ijós sá eig-
inleiki hans að koma auga á kjama
hvers máls, að greina aðalatriðin frá
aukaatriðunum. Þegar hann tók til
máls var hlustað. Mörgum háir það
mjög, þegar þeir ræða málefni á fund-
um eða í hóp, að þeir tala lengi en
segja fátL Bimir talaði yfirleitt stutt
en sagði margt. Hann var hreinskilinn
og hikaði ekki við að segja skoðun
sína, hvemig sem ætla mátti að henni
yrði tekið. Slíkir menn eru því miður
fáir og skarð fyrir skildi þegar þeir falla
frá. Samfélagið okkar er fátækara á
eftir. Við biðjum góðum félaga Guðs
blessunar á nýjum tilverustigum og
vottum eiginkonu hans og bömum
einlæga samúð okkar.
Haf þú þökk fyrir allt og allt.
F.h. Framsóknarfélags
AusturSkaftafellssýslu
Guðbjartur Össurarson
Ég veit þú hefðir ekki ætlast til
að angur fyllti huga vina þinna
á kveðjustund við þessi þáttaskil,
því þetta er gjald, sem allir verða að inna
af hendi fyrir líf sem lánað er
um litla stund i heimi jarðarbama.
En hugþekk minning birtu með sér ber
og blikar eins og fögur leiðarstjama.
Það var á öndverðu ári 1957 sem
fundum okkar Bimis Bjamasonar bar
saman fyrir utan heimili hans, for-
eldra og systkina að Hofteigi 36 í
Reykjavík. Það var á þeim tíma sem ég
var að gera hosur mínar grænar fyrir
systur hans. Nú, 35 árum síðar, er
hann allur, á fimmtugasta og öðm ald-
ursári, svo fljótt og óvænt lauk lífi
hans.
Bimir var fæddur í Reykjavík þann
3. júlí 1940, sonur hjónanna Bjama
Bjamasonar bmnavarðar og Óskar
Sveinbjamardóttur. Bjami var fæddur
í Reykjavík 3. júní 1906. Foreldrar
hans vom Bjami Jakobsson frá Valda-
stöðum í Kjós og Sigríður Magnús-
dóttir frá Selparti í Flóa. Bjami lést
fyrir rúmu ári, 19. mars 1991.
Ósk var fædd að Hurðarbaki í Kjós
þann 5. október 1913. Foreldrar henn-
ar vom Sveinbjöm Guðmundsson og
Sesselja Guðmundsdóttir. Ósk lést 4.
nóvember 1989.
Ósk og Bjami áttu lengst af heima í
Ljósheimum 4 í Reykjavík og vom
böm þeirra, auk Bimis, Selma, gift
undirrituðum, og búa þau í Leirvogs-
tungu í Mosfellssveit, og Sveinbjöm
Sesselíus, giftur Katrínu MacDonald,
og búa þau í Skotlandi.
Að loknu skyldunámi og stúdents-
prófi frá Menntaskólanum í Reykjavík
stefndi Bimir á vit borgarinnar við
Sundið og settist þar á skólabekk í Den
Kgl. Veterinær- og Landbohöjskole og
lauk þaðan dýralæknisprófi 1967.
Starfaði hann síðan um þriggja mán-
aða skeið á Ambulatoriska læknisstof-
unni við sama skóla, til þess fyrst og
ffernst að afla sér nokkurrar starfs-
reynsiu áður en tekist yrði á við verk-
efni heima á Fróni.
Á námsámm sínum í Kaupmanna-
höfn kynntist Bimir ungri stúlku á
svipuðu reki, Eddu Flygenring, sem
fædd er 10. október 1939, ættaðri úr
Hafnarfirði. Gengu þau í hjónaband í
Reykjavík þann 17. ágúst 1963. For-
eldrar Eddu vom Garðar Ágústsson
Flygenring og Ingibjörg Kristjáns-
dóttir Flygenring. Þau em bæði látin.
Böm Eddu og Bimis em Sigrún
Bima, fædd 25. nóvember 1966, Garð-
ar Ágúst, fæddur 31. ágúst 1968, og
Hildur Björg, fædd 19. ágúst 1976.
Þegar litið er til baka verður að telja
það mikið áræði, sem þessi ungu hjón
með Sigrúnu Bimu á fyrsta ári sýndu
þegar Bimir fékk veitingu fyrir hér-
aðsdýralæknisembættinu í Austur-
Skaftafellssýslu. Ekki var hann þar
sporgöngumaður, því þama hafði ekki
verið „lærður" dýralæknir áður. Erfitt
hlýtur það að hafa verið fyrir hann,
borgarbamið, með nánast enga starfs-
reynslu að fara að vinna fyrir bændur,
sem fram til þessa höfðu ekki annað
upp á að hlaupa en brjóstvitið og
reynsluna þegar vanda bar að hönd-
um. Þessa erfiðleika yfirvann Bimir og
var hann héraðsdýralæknir þeirra
Austur-Skaftfellinga til dauðadags.
Tók hann með ámnum virkan þátt í
félagsmálum þeirra og stéttarfélags
síns og ávann hann sér traust sam-
ferðamanna sinna. Var hann meðal
annars um skeið oddviti Hafnar-
hrepps, formaður stjómar Kaupfélags
A-Skaftfellinga, formaður skólanefnd-
ar Hafnarskóla ásamt fjölmörgum
öðmm ábyrgðarstörfum í þágu samfé-
lagsins.
Að leiðarlokum viljum við Selma og
fjölskyldur okkar færa Eddu og böm-
unum hugheilar samúðarkveðjur og
vonum að góður Guð styrki þau.
Það er svo Ijúft og gott að mirmast marms,
er með oss vakti jafhan hlýja gleði,
að hafa hlotið sess i samfylgd hans,
ersínum vinum einatt hollráð léði.
Um samvist þinaandar þýðum þey,
þótt þrœðir lífsins séu að skari brunnir.
Þtn mbmbng verðurgeymd, en gleymist ei,
þótt gengin sért til moldar sem þú urmir.
Erindi þau er fylgja þessum línum
vom ort eftir föður minn árið 1958 af
mági hans, Einari Gunnarssyni frá
Völvuholti í Mjóafirði, og birt í „Ljóða-
bók“ Einars. Þykja mér þau við hæfi
hér að mági mínum látnum.
Blessuð sé minning hans.
Guðmundur Magnússon
Það var mikil breyting í þjónustu við
landbúnað í Austur-Skaftafellssýslu
þegar Bimir Bjamason dýralæknir
kom þangað fyrir 25 ámm. Um þær
mundir höfðu átt sér stað miklar
framfarir í samgöngumálum og orðið
bílfært í allar sveitir. Bimir gekk til
þessa starfs af samviskusemi og einurð
og hafði mikinn metnað fyrir hönd
bændanna sem hann þjónaði. Bænd-