Réttur - 01.02.1921, Qupperneq 31
Heillar aldar rangsleitni.
31
Samningarnir 1881 og 1884.
Sérhver óviðkomandi maður mundi álíta, að hin eina rétta
leið til að veita fullar bætur hefði verið sú, að breska stjórn-
in hefði horfið aftur til ákvæða Sandár-samningsins. Ef inn-
limunin var ranglát í sjálfri sér — án þess að taka tillit til
sigurvinninga Búa —, þá átti að afnema hana með öllum af-
leiðingum hennar, og lýðveldið átti að fá »Restitutio in inte-
grum«, þ. e. afstaða Búa átti að verða nákvæmlega sú sama
og þeir höfðu fyrir innlimunina. En hvað skeður? Með
göfuglyndi, sem ensk blöð og enskir ræðumenn þreytast aldrei
á að stæra sig af, gáfu þeir oss land vort aftur, en brotin á
Sandár-samningnum stóðu óbætt, I staðinn fyrir fullvalda
frelsi fengum vér frjálsa innanlandsstjórn, háða yfirlénsherra-
valdi Hennar Hátignar yfir lýðveldinu. Retta varð með samn-
ingnum í Pretoriu, sem áskilur í innganginum, að Transvaal
skuli hafa sjálfstjórn undir yfirlénsherradæmi Breta. í grein-
um samnings þessa er reynt að koma á samræmi (modus
vivendi) á milli slíkrar sjálfstjórnar og yfirlénsherradæmis.
Undir þessu tvíliða fyrirkomulagi var lýðveldinu stjórnað í
þrjú ár af tveimur ósamkynja grundvallaratriðum, nefnilega
þjóðstuddri sjálfstjórn og breskum umboðsmanni. Petta fyrir-
komulag reyndist auðvitað ómögulegt. Pað var einnig Ijóst,
að fyrirkomulagið frá 1881 átti ekki að álítast endanlegt.
Yfirlénsherradæmið var umfram alt fjarstæða, sem ómögu-
legt var að samrýma við vérkleg áhrif. Svo að sendinefnd
fór til Lundúna 1883, með samþykki bresku stjórnarinnar,
til að fá afstöðu lýðveldisins breytt og til að gera nýjan
samning í stað þess, sem gerður var í Pretoriu. Sendinefnd-
in stakk upp á, að hverfa aftur til afstöðunnar, sem ákveðin
var í Sandár-samningnum, og það var í raun og veru hið
eina hreinskilna fyrirkomulag, sem hægt var að hugsa sér
samrýmanlegt við nokkra stjórnmálamensku. En samkvæmt
vitnisburði eins af vitnum Breta, síra D. P. Faure, þá jojáðist
ráðuneytið af mjög óheilbrigðum ótta við þingið. Pað vildi
því ekki fallast á þessa tillögu og lagði fram nýtt frumvarp,