Réttur - 01.02.1921, Síða 45
Heillar aldar rangsleitni.
45
væri hin náttúrlega afleiðing Jamesons-innrásarinnar, þá byrj-
uðu hervaldsmenn ekki að eins í Suður-Afríku, heldur einnig
í Englandi, að hrópa og kalla um það, að stjórn og yfir-
ráðum Englendinga í Suður-Afríku væri hætta búin.
Peir héldu því fram, að Englendingar mundu missa Suður-
Afríku nema því að eins, að það væri samstundis tekið dug-
lega í taumana, og að þessi hætta fyrir yfirráð Englands staf-
aði af Iýðvaldsundirróðri, sem Suður-Afríku-lýðveldið hefði
komið af stað. Að svo Iengi sem Suður-Afríku-lýðveldið
neitaði að auðmýkja sig fyrir valdi Breta, en þvert á móti
héldi sínu unga höfði hátt með þjóðernis-stærilæti, þá mundu
aðrir hlutar Suður-Afríku verða hneigðir til að fara að dæmi
þess, og það rnundi þannig aldrei verða nein vissa fyrir
æðstu yfirráð Breta á þessum hluta jarðarinnar. Pað var ó-
hjákvæmilegt, að auðmýkja Suður-Afríku-lýðveldið og bæla
það niður í rykið. Afríkumenn í öðrum hlutum Suður-Af-
ríku mundu þá gefa upp allar vonir, sem fullyrt var, að þeir
hefðu um víðáttumeira Suður-Afríku-lýðveldi.
En hvernig átti að fara að því, að auðmýkja lýðveldið og
umfram alt, hvernig átti að gera það með þessum »stjórn-
arfarslegu ástæðum®, sem voru hið eina, er um gat verið að
ræða síðan samsærið brást?
Hinn nýi landstjóri Höfðanýléndunnar og yfirumboðsmað-
ur fyrir Suður-Afríku, sem hafði notið heiðursins af ágætri
háskólamentun, sem hafði lært auðmýkl og stillingu við fæt-
ur hr. W. T. Stead, og sem hafði lært af reynslu sinni við
bændur og erfiðismenn (fellaheen) í Egyftalandi, hvernig ætti
að stjórna niðjum Hugenottanna og »betlurum hafsins«
(Beggars of the Sea), var viss með að vita mjög vel, hvernig
hann ætti að finna upp »stjórnarfarslegar ástæður* til að auð-
mýkja Suður-Afríku-lýðveldið og bæla það niður í rykið.
Þeir höfðu að minsta kosti hið brennandi málefni um yf-
irlénsherradæmið, sem Suður-Afríku-lýðveldið hafði óafvitandi
og í sakleysi vakið upp á eftirfarandi hátt:
Eftir Jameson-innrásina hafði þingið samþykt ýms lög í
þeim tilgangi, að útrýma sumum af orsökum hreyfingarinnar,