Alþýðublaðið - 16.10.1922, Blaðsíða 4
4
4 ALÞfÐUBLAÐIÐ
Silkikj51aF og vað- jnáisbuxu? þarf unga fólkið að iesa og g «mla fólkið að hlæja að Grammofonar Odion Grammofon með eða án trektar koitar frá 34 krónum. Odion Grammofon8plötnr (spilaðar af Dijos Beia og Sandor Jozsi) ásamt margskonsr Orkester og söngp’ötum G ammofonsnálar 7, teg- uadir. — Essstremur margskonar varasiykki J Grammofona. — Stórt úrva) af Harmoniknm og Mnnnhörpnm. — Vörur sendar um alt land gegss póslktöfu, Verðllsti yfir Odion plötur seiidur ef um er beðið. Reiðhjólaverksm. „Fálkinn11 Sími 670. Reykjavík. JLangaveg 34.
Ó d ý r t : Svoskjar Búsínnr Kúrennr Þnrknð epli Bláber Kartöflnmjöl Þessar '.’örcr eru sýkomnar, og mikiu ódýrari en þekst hefir um laugan tírpa.
V B K
Kaupfélagið. Ritíangadeildin hefir öú íengið hina mavg eítirsparðu Conklins lindarpenna. Einnig blýantsyddara, sérstaklega hentuga fyrir skrif tofur og skóla. Höinftbæknr, dagbækur, akrifbæknr og ýms ritiöng. Réttar vörur I Rétt verð ! Verzlunin Björn Kristjánsson.
Skovíðger ðir æru beztar og fljótast afgreiddar á Laugaveg 2 (gengið ina í skó veizltra Sueinbjarsar Árnssonar). Virðingarfylit. Flnnnr Jónsson.
MenE eru teknlr f þjónnttu á Buónsstíg 12 (kjsllaranum) Ritztjóri og ábyrgSarmaður: Ölajur Friðriksson. Prentsmiðjan Gutenberg.
Edgar Rice Burroughs: Tarian snýr aftnr.
Og þetta var Hazel Strong — bezta vina Jane
Porterl
XII. KAFLI.
Skip raœtast.
Við skulum snúa aftur til Ktils palls á jámbrautarstöð
í norðurhluta Visconsin. Reykur frá skógarbruna hangir
lágt yfir umhverfinu, og sex manns er standa á pallin-
um svíður í augun af hitanum er leggur frá brunanum.
Þeir blða eimlestarinnar er flytur þá suður á bóginn.
Prófessor Archimedes Q. Porter, gekk fram og aftur
með ’neudurnar fyrir aftan bakið, undir stélinu á frakka
sfnum; og hinn trúi þjónn hans og skrifari Samuel T.
Philander gaf honum nákvæmar gætur. Tvisvar hafði
Porter, á fáum mínútum, lagt af stað yfir járnbrautina
1 áttina út í mýrarfen, er var rétt hjá, en Philander
hafði dregið hann til baka.
Jane Porter, dóttir prófessorins, er að tala víð William
Cecil C aytnn og Tarzan apabróðir. Samtalið er dauft.
1 litla biðherberginu hafði, augnabliki áður, farið fram
ástarjátnirig, er gert hafði tvö af þessum þremur dauf
i dálkinn, en það var ekki William Cecil Clayton, lá-
varður af Greystoke.
Bak við Jane Porter var Esmeralda. Hún var líka
hamingjusöm; því voru þau ekki á leiðinni til Mary-
and? Hún var meira að segja farin að glóra í Ijósinu
á eimlestinni, sem var að koma. Karlmennirnir fóru að
talca til farangurinn. Alt í einu mælti Clayton:
„Hver skollinni Eg hefi gleymt loðfrakkanum raín-
um inn í biðstofunni". og hann flýtti sér eftir honum.
„Vertu sæl, Jane", sagði Tarzan, og rétti fram hend-
ina. .Guð veri með þér!“
„Vertu sæll“, svaraði stúlkan dauflega. „Reyndu að
gleyma mér — nei, æ-i nei — eg gæti ekki hugsað til
þess að þú hefðir gleymt mér“.
„Það er engin hætta á því“, svaraði hann. „Eg vildi
að eg gæti gleymt. Það væri svo miklu léttara, en að
hafa það alla æfi í huga, hvað hefði getað orðið. Þú
verður þó hamingjusöm', eg er vís um þú verður það
— þú skalt verða það, Þú verður að segja liinum, að
eg fari til New York — eg skeyti því engu að kveðja
Clayton. Eg mun ætlð minnast hans með hlýju, en eg
óttast, að enn sé svo mikið af villidýrseðli í mér, að
eg geti ekki of lengi setið á mér í návist þess manns,
sem stendur á milli mín og einu verunnar serri eg þrái“.
Þegar Clayton laut áfram til þess að taka upp frakk-
ann sinn í biðstofunni, sá hann sfmskeyti liggja á grúfu
á gólfinu. Hann tók það upp, því hann bjóst við að
það gæti verið þýðingarmíkið fyrir þann, sem hafði
'tínt því. Hann leit fljótt á það, en gleymdi alt í einu
frakka sínum, Iestinni — öllu, nema þessum ógurlega
gula pappírsmiða í hendi sér. Hann las það ^visvar,
áður en hann skyldi til fulls, hverja þýðingu það hafði
fyrir hann.
Þegar hann tók það upp var hann enskur aðalsmaður,
ríkur og vel metinn — augnabliki slðar hafði hann
lesið það, og vissi að hann var nafnlaus og eignalaus
betlari. Það var skeytið frá d’Arnot til Tarzans og
hljóðaði svo:
„Fingraför sanna, að þú ert lávarður af Greystóke.
Óska til hamingju. d'Arnot
Hann riðaði eins og hann væri helsærður. Rétt í