Lesbók Morgunblaðsins - 07.01.2006, Qupperneq 1
Laugardagur 7.1. | 2006
[ ]Skjöl um Nóbelsverðlaun | Lesið í skjölin og sett fram tilgáta um „skeytið“ | 3Jólabókaflóðið | „Þessi rússíbanaferð, gerir umræðuna þrönga, ófrjóa …“ | 6–7Bush tekinn alvarlega | Rýnt í nýja bók um siðferðilegan grundvöll stefnu Bush | 11
Lesbók Morgunblaðsins
K
vikmyndin A
Little Trip to
Heaven eftir
Baltasar Kor-
mák hefur
hlotið mjög
góðar við-
tökur, bæði
hjá gagnrýnendum og áhorfendum
sem flykkjast á myndina. Þetta er
þriðja mynd Baltasars og sú fyrsta
sem hann semur sjálfur handritið að.
Þetta er eins konar reyfari eða þriller
um rannsóknarmann sem starfar fyr-
ir tryggingafyrirtæki sem sendur er í
afskekkta byggð til þess að rannsaka
banaslys sem mun kosta fyrirtækið
milljón dollara. Smámsaman flettir
sagan ofan af kringumstæðunum sem
rannsóknarmaðurinn gengur inn í en
hans bíða óvænt endalok.
Baltasar hefur greinilegt óþol
gagnvart hefð og því sem er viður-
kennt eða talið rétt. Þetta kom vel
fram í viðtali sem undirritaður átti við
hann í byrjun árs 1998 um uppfærslu
hans á Hamlet í Þjóðleikhúsinu en sú
sýning vakti mjög sterk viðbrögð.
Hann hefur talað á svipuðum nótum
um Little Trip þar sem hann hefur
lagt nokkuð upp úr því að ekki sé um
hefðbundna glæpa- eða spennumynd
að ræða.
Hver var upphafleg hugmynd þín
að þessari mynd, hvernig mynd vild-
irðu gera?
„Það sem kom mér af stað var frétt
um sviðsett slys í Hvalfirðinum sem
var tilraun til tryggingasvindls. Síðan
dreymdi mig draum um líftryggingar
þar sem mér fannst eins og ég hefði
farið í stutta ferð til himna og svo aft-
ur til baka að sækja líftrygginguna,
þannig kom nafnið á myndina en það
er fengið úr lagi eftir Tom Waits.
Sagan þróaðist snemma í átt að
krimmaforminu og þá fann ég fljótt
hvað það var auðvelt að festast í
formúlunni en af einhverjum ástæð-
um, sem kunna að vera mér eðl-
islægar eins og þú ýjar að, þá reyni
ég að finna aðrar leiðir. Ég vildi 4
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Raunsæisleg saga
um alvöru fólk
„Mér þykir ekki áhugavert
að fara stranglega eftir
formúlunni þó að það myndi
ef til vill auka vinsældir
verksins,“ segir Baltasar
Kormákur um kvikmynd
sína A Little Trip to Heaven
sem hlotið hefur góðar við-
tökur. Baltasar lýsir gerð
myndarinnar og viðhorfum
sínum til kvikmyndagerðar.
Eftir Þröst Helgason | throstur@mbl.is