Lesbók Morgunblaðsins - 14.01.2006, Side 10

Lesbók Morgunblaðsins - 14.01.2006, Side 10
10 | Lesbók Morgunblaðsins ˜ 14. janúar 2006 N ýlega er komin út bók á ensku með titilinn The Hidden Structure of Int- eraction: from neurons to culture patterns. Rit- stjórar eru Luigi Anolli, Starkey Duncan jr., Magnús S. Magnússon og Giuseppe Riva. Útgefandi er IOS-Press í Amsterdam (www.iospress.nl) sem m.a. gefur út mikið af bókum á sviði vísinda og læknisfræði. Bókin fæst innbundin bæði frá forlaginu og hjá Amazon (www.amazon.com). Einstaka kafla bókarinnar má þó sækja ókeypis á vefslóðinni www.emergingcommunication.com/vol- ume7.html Bókin skiptist í 18 kafla ásamt formála sem ritaður er sameiginlega af ritstjórum bók- arinnar, en að auki eru tveir sérstakir for- málar. Sá fyrri er eftir Marcello Fontanesi, Rector Magnificus við Milano-Bicocca há- skólann í Mílanó og prófessor í kjarneðl- isfræði. Sá síðari er eftir André Langaney, prófessor í erfðafræði við Genfarháskóla og Náttúrusögusafn Frakklands í París (Museum National d’Historie Naturelle). Allir kaflar bókarinnar fjalla um hulin mynstur í atferli og gagnvirkni (samskiptum) og hvernig má uppgötva þau á grundvelli formgerðarlíkans („T-patterns“, T-mynstur) Magnúsar S. Magnússonar, vísindamanns og forstöðumanns Rannsóknastofu um mannlegt atferli við Háskóla Íslands, varðandi tímalegt skipulag atferlis og gagnvirkni sem hann hef- ur þróað í meira en 30 ár ásamt þeim algrím- um og sértæka hugbúnaði, THEME, sem ger- ir tilsvarandi greiningu (mynsturleit) mögulega. Nær 40 vísindamenn eru meðal höfunda bókarinnar. Meðal þeirra eru prófessorar í sálarfræði og líffræði við háskóla í Evrópu, Bandaríkjunum og Japan, þar á meðal Par- ísarháskóla, Chicagoháskóla, Tókýóháskóla, Barcelónaháskóla, Mílanóháskóla, Heidel- bergháskóla, Saarlandesháskóla, Gresham College í London og Babraham Institute í Cambridge. Að baki útgáfunnar stendur form- legt samstarfsnet sjö evrópskra háskóla um rannsóknir og þróun á „Aðferðafræði varðandi greiningu félagslegra samskipta“ („Methodo- logy for the Analysis of Social Interaction“ eða MASI) á grundvelli greiningarlíkans Magn- úsar („Magnusson’s analytical model“). MASI-hópurinn hefur þegar haldið fjórar ráðstefnur og var sú fyrsta haldin 1997 á Sorbonne í París þar sem Magnús gegndi áður prófessorsstöðu (sjá www.hbl.hi.is/masi.htm). Forseti Franska sálfræðisambandsins, Alain Blanchet, prófessor við Parísarháskóla, hefur nýlega tekið að sér að fara fyrir hópnum. Í formála Marcello Fontanesi segir m.a.: „Þessi bók sýnir að skilningur á atferli get- ur einnig notið afls stærðfræðinnar: ein grundvallartegund stigbreyttra tímamynstra – kölluð „T-patterns“ – og tilsvarandi grein- ingarhugbúnaður, THEME, eru hér lögð fram sem ný tæki til uppgötvunar á huldum atferl- ismynstrum.“ Grunneiningar T-mynstra eru oftast við- burðir sem greina má beint í atferli ein- staklinga og/eða heilda og/eða innri líkams- starfsemi og/eða umhverfis; sama T-mynstur getur m.a. samanstaðið af öllum þessum teg- undum eininga. T-mynstur samanstendur auk þess yfirleitt af öðrum einfaldari T-mynstrum sem fundist hafa. Skilgreining T-mynstra varðar ekki einungis sérstaka röð eininga og undirmynstra heldur einnig marktæka til- hneigingu til að tímabilin á milli þeirra séu svipuð að lengd við hverja endurtekningu mynstursins, en án tillits til viðburða innan þeirra tímabila. Mynsturleitin truflast því ekki jafnvel þó mikið magn meira eða minna óskyldra atburða komi fyrir innan mynsturs- ins. T-mynstur eru oftast mynstur af mynstr- um, af mynstrum, af mynstr- um, með sömu formgerð. Slík mynstur eru oft mjög flókin og alls ósýnileg „berum augum“ og yfirleitt ófinnanleg með öðr- um aðferðum. Á grundvelli þessarar grunnformgerðar hefur Magnús skilgreint önnur hugtök varðandi tímalega formgerð sem ásamt T-mynstrunum mynda formlegt kerfi sem hann kallar T-kerfið (T-system). Formáli Marcello Fontanesi hefst á tilvitnun í eftirfarandi texta Magnúsar: „Jafnvel þó áhorfendur, án aðstoðar hjálpartækja, skynji oft atferli í mannlegum sam- skiptum sem reglulegt og með endurtekningum, þá veitist þeim erfitt eða ómögulegt að tilgreina hvaða tegundir mynstra eru endurtekin og hvenær. Sú nálgun sem hér er valin gengur því út frá að tíma- leg formgerð flókinna atferl- iskerfa sé að mestu óþekkt, að minnsta kosti ekki meðvituð. Af þessum ástæðum er þörf á hugmyndum og tilgátum varð- andi tegundir mynstra þannig að tilsvarandi leitaraðferðir megi finna, aðlaga eða skapa …“ Fyrstu þrír kaflar bók- arinnar varða kenningarlegan grundvöll. Sá fyrsti er eftir Magnús S. Magnússon og varða hugmyndir hans um mynstur í tímalegu skipulagi atferlis og gagnvirkni meðal manna og annarra lífvera og um hliðstæður við formgerð erfðaefnis (DNA). Í upphafi kaflans segir: „Þegar tveir eða fleiri ein- staklingar eiga samskipti hvort sem þeir eru manneskjur, apar, mýs eða bananaflugur gerast margir hlutir samtímis. Skrokkar, höfuð, limir og margs konar angar hreyfast, hljóð og lyktir eru send út og móttekin meðan líkamar skipta um stellingar og staðsetningar gagnvart hvor öðrum og umhverfinu. Allt gerist þetta í einu, fjöldi atburða af ýmsu tagi gerist samtímis og í röð bæði innan og á milli einstaklinga á ótelj- andi vegu.“ Hér er einnig skyggnst inn í hliðstæður milli mannlegra samfélaga og samfélaga sam- einda innan hverrar einstakrar frumu hvort sem um er að ræða bakteríu eða einstaka lík- amsfrumu, en í þessu sambandi hefur einmitt verið talað um frumuna sem eins konar borg, „Frumuborg“ (Cell City). Bent er á að sam- skiptum milli einstakra eggjahvítusameinda má oft lýsa með svipuðum hætti og sam- skiptum einstaklinga. Ekki síst er þó bent á hliðstæður milli annars vegar tímalegra atferl- ismynstra og/eða spora eftir þau (t.d. textar, sérstaklega helgirit, „sígildar“ bókmenntir, stjórnarskrár og lög, sem hafa svipaða einvíða formgerð) og hins vegar einvíðra mynstra inn- an kjarnsýrusameinda (DNA) sem svara til þeirra erfðavísa (gena) sem stýra lífinu í „Frumuborg“. Hér er þannig m.a. varpað sér- stöku ljósi á hliðstæður milli menningarlegra og lífefnafræðilegra erfðaferla, hlutverk trúarbragða og mótun og sérhæfingu sam- einda jafnt sem einstaklinga, allt frá eggja- hvítuefnum til maura og manna. Í formála André Langaney segir m.a.: „Þessi bók byrjar á Guði og Biblíunni, sem í heimi nútímans ætti að auka sölu hennar í Bandaríkjunum! En til allar hamingju og að venju í heimi vísindanna, er Guð fljótlega að hverfa og í staðinn kemur tungumálið og sam- skipti. Það eru réttmætari vísindaleg við- fangsefni!“ Flestir kaflar bókarinnar varða rannsóknir á mjög mismunandi mannlegu atferli og sam- skiptum. Sérstaklega má nefna rannsóknir á samskiptamynstrum milli foreldra og barna, milli einhverfra barna og meðferðaraðila, milli kynhegðunar og makavals, samlífsforms og hormónastarfsemi hjá körlum, milli sjónvarps og áhorfanda, samspilsmynstur í knattspyrnu, samskiptamun milli kynjana, mismun á sam- skiptahegðun Ítala og Íslendinga, svipbrigða- mynstur í samtölum milli meðferðaraðila og einstaklinga sem gert hafa tilraun til sjálfsvígs eða glíma við eiturlyfjavanda. Aðrir kaflar varða ógnarhröð og flókin gagnvirknimynstur taugafruma í lifandi heilavef og loks samskipti kynjanna hjá bananaflugum (Drosophilae melanogaster). Í kafla Luigi Anolli sem er prófessor í sál- arfræði við Milano-Bicocca háskóla segir m.a.: „Með því að finna T-mynstur er mögulegt að fá innsæi í hina huldu gerð merkingar í jafnt málrænni sem ómálrænni tjáningu (utterance), ekki almennt og abstrakt heldur beint og í samhengi.“ Í niðurlagi kafla um rannsókn á sam- skiptum eiturlyfjaneytanda og meðferðaraðila í stuttu meðferðarviðtali segir einn höfunda, Alain Blanchet, forseti Franska sálfræði- sambandsins, m.a.: „Sú atferlisgreining sem við framkvæmdum með THEME-hugbúnaðinum hjálpaði okkur til að skilja þau huldu mynstur sem einkenndu málræna og líkamlega tjáningu sjúklingsins. Þar má nefna að umræðu sjúklingsins um dauðann fylgdi sérstök höfuðhreyfing. Sjúk- lingurinn talar um dauðann eftir að hann hef- ur snúið höfði sínu til hægri og snýr því svo aftur til hægri. Sjúklingurinn virðist sækja þá hugmynd annars staðar, langt frá augnaráði viðmælandans hann snýr svo þangað aftur langt frá augnaráði lækningaaðilans. Þessi hugsun virðist liggja utan við stað og stund samtalsins, eins og hún væri ekki hluti þeirrar samræðu sem þeir byggðu upp í sameiningu. Hins vegar, þegar sjúklingurinn talar um lífið snertir hann fingur sína og gerir það út allt samtalið.“ Margvísleg önnur atriði eru nefnd og gröf í kaflanum sýna ýmiss T-mynstur sem fundust. Meðal annars kemur þar fram að þegar sjúk- lingurinn talar um dauðan opnar hann hend- urnar og krossar fingur. Einn af köflum bókarinnar er eftir Agliati, Vescovo og Anolli við Mílanóháskóla, en þar segja þau varðandi rannsókn sína á mismun í samskiptahegðun Ítala og Íslendinga sem fram fór bæði hér á landi við Rannsóknastofn- un um mannlegt atferli, HÍ og við Mílanóhá- skóla: „Í hnotskurn má segja að samræðustíll Ís- lendinga virðist fyrirsjáanlegri og öruggari þó hann sé frekar einhæfur. Íslenskur þátttak- andi í rannsókninni er líklegur til að vita hvaða hreyfingum hann/hún geti búist við frá við- mælanda frá sömu þjóð og hvaða svar hann/ hún ætti að gefa. Með þessum hætti eru aðlögun og viðbrögð viðmælenda gerð léttari og samræður verða auðvelt fé- lagslegt ferli.“ Hvað Ítalina varðar segir að þeir notuðu mun fleiri tegundir hreyfinga og bendinga og í mun meira mæli en Íslending- arnir til að undirstrika eða skýra merkingu orðanna og „stundum var eins og þeir treystu ekki fyllilega orðunum og teldu merkingu þeirra oft full óbeina eða óáreiðanlega“. Í formála prófessors André Lagnaney segir m.a.: „Umfram það innihald þess- arar bókar sem varðar atferl- islíffræði, sálafræði, og sam- skiptavísindi hefur THME sannað gildi sitt á sviðum allt frá rann- sóknum á erfðamengi manns- ins til faraldsfræði meðal ínúíta. Enginn vafi leikur á að þetta er bara byrjunin: sam- skipti (gagnvirkni) og mynst- urlýsingar, jafnt eigindlegar sem megindlegar, eru helstu grundvallarvandamál og að- ferðir allra vísinda.“ THEME-hugbúnaðurinn er nú í eigu ungs íslensks fyr- irtækis, Atferlisgreiningar ehf. (PatternVision, sjá vefslóðina www.patternvision.com), sem stofnað var árið 2000 með að- stoð Rannsóknaþjónustu HÍ. Markmiðið var að styðja við þróun, notkun og dreifingu hugbúnaðarins sem heldur áfram undir stjórn höfundar. Aðrir aðilar að Rann- sóknastofnun um mannlegt at- ferli og Atferlisgreiningu eru meðhöfundar að nokkrum köflum bókarinnar. Þessir kaflar fjalla m.a. um rann- sóknir við Tókýóháskóla varðandi samskipi kynjana og greiningu samskiptahegðunar við Háskólageð- sjúkrahúsið í Genf varðandi svipbrigða- mynstur í samtölum milli meðferðaraðila og einstaklinga sem gert hafa tilraun til sjálfs- vígs. Auk þess er að finna kafla um beitingu T-mynsturleitar við greiningu á samspili í knattspyrnu, en fyrri greiningar samstarfi við leiðandi breska rannsóknaaðila hafa nú m.a. verið birtar í einu af helstu tímaritum um íþróttarannsóknir (Journal of Sport Science). Einn af köflum bókarinnar fjallar um grein- ingu á knattspyrnu í samstarfi við íþrótta- rannsóknadeild Hullháskóla í Bretlandi, en niðurstaða kaflans hefst á orðunum „Mögu- leikar á notkun T-mynsturleitar í knattspyrnu eru gífurlegir“. Sérstakur kafli eftir Alister Nicol, Keith Kendrick við Babraham Institute í Cambridge og Magnús S. Magnússon, fjallar um T-mynsturgreiningu með THEME á taugalíf- eðlisfræðilegum gögnum sem safnað hefur verið með nýjum hátækniaðferðum við Babra- ham Institute. Hegðun hverrar einstakrar frumu er sjálfvirkt skráð samtímis frá 200 taugafrumum í heila sem eru í mikilli nálægð hver við aðra. Þessi ferli eru ógnarhröð og tíminn því mældur í einingum sem eru um þrír milljónustu úr sekúndu. Með THEME er síðan leitað að samvirkni/gagnvirkni mynstrum og hafa löng og mjög marktæk mynstur fundist. Þetta er raunar nýjasta notkun T-mynsturgreiningar. Rektor Milano-Bicocca háskóla, Marcello Fontanesi, lýkur formála sínum með þessum orðum: „Að lokum vonum við að innihald þessarar bókar muni ýta undir frekari rannsóknir varð- andi hulin mynstur að baki atferlis manna og dýra og hvernig best megi nota stærðfræði til að skilja formgerð þess. Framtíðar notk- unarmöguleikar T-mynstra (T-patterns) eru í raun einungis háðir ímyndunarafli hæfi- leikaríkra einstaklinga. Að skilja hvernig móta megi og nýta að fullu möguleika þessarar nýju nálgunar er spennandi ögrun fyrir þá sem vinna að þróun og rannsóknum. Þessi bók leit- ast við að benda á nýjar leiðir að því marki.“ Hulin mynstur í samskiptum: Frá taugafrumum til menningarmynstra Í nýlegri bók, The Hidden Structure of Inter- action: from neurons to culture patterns, er fjallað um hulin mynstur í atferli og gagn- virkni (samskiptum) og hvernig má uppgötva þau á grundvelli formgerðarlíkans sem ís- lenski vísindamaðurinn Magnús S. Magn- ússon hefur þróað síðastliðinn þrjátíu ár. Einn af greinarhöfundum í bókinni kynnir efni hennar. Höfundur starfar á Rannsóknarstofu um mannlegt atferli í Háskóla Íslands, og í Atferlisgreiningu ehf. Eftir Guðberg K. Jónsson gjonsson@hi.is Falin formgerð „Þegar tveir eða fleiri einstaklingar eiga samskipti hvort sem þeir eru manneskjur, apar, mýs eða bananaflugur gerast margir hlutir samtímis.“

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.