Lesbók Morgunblaðsins - 11.02.2006, Side 10

Lesbók Morgunblaðsins - 11.02.2006, Side 10
10 | Lesbók Morgunblaðsins ˜ 11. febrúar 2006 T veir af þátttakendum í umræð- unni hér í Lesbókinni á undan- förnum vikum hafa reynt að svara því mjög ákveðið hvers virði fræðastarf er í landinu. Þetta eru einkum þeir Viðar Hreinsson í grein sem nefndist „Nýtt flóð ósk- ast“ (Lesbókin 7. janúar 2006) og Ari Trausti Guðmundsson í annarri sem bar heitið „Fræðimenning – menningarfræði“ (Lesbókin 21. janúar 2006) en aðrir sem látið hafa í sér heyra í þessu sambandi hafa einnig komið inn á málefnið beint og óbeint. Viðar taldi að mikil sóknarfæri lægju á sviði fræða fyrir samfélagið allt og nýsköpun þess og Ari Trausti dró fram marga þætti sem sýndu hversu snar þáttur fræðirita- útgáfa væri fyrir menningu landsins þrátt fyr- ir að kjör fræðirithöfunda væru afskaplega bág; þeir ynnu sín verk við erfiðar aðstæður. Í samræðunum í Lesbókinni hafa höfundar sýnt fram á, hver með sínum hætti, að í menn- ingunni búi mikill auður sem hverri þjóð sé mikilvægt að nýta á ólíkum sviðum mannlífs- ins. Þessu hafa sífellt fleiri verið að átta sig á víða um heim og fullyrða má að menningin sé snar þáttur í að móta lífssýn fólks sem tengist hinni svonefndu skapandi stétt (e. the creative class) sem Viðar Hreinsson ræddi í annarri grein í Morgunblaðinu nýlega („Skapandi samfélag“, 19. janúar 2006). Í hinni menning- arlegu umræðu skapast skilyrði til að velta upp frjóum hugmyndum og vinna þær til þrautar í samvinnu við marga aðra geira at- vinnulífsins. Slík samvinna hefur borið frjóan ávöxt víða og sem betur fer eru sífellt fleiri að átta sig á möguleikum hennar hér á landi, þó enn sé langt í að lykilaðilar skilji mikilvægi hennar. Umfjöllun um menningu og þær hug- myndir sem spretta út frá henni geta nefnilega oft orðið svo afkáralegar að grátbroslegt verð- ur að teljast. Fræðirit hluti menningar? Ari Trausti spurði þeirrar spurningar í grein sinni í Lesbókinni hvort fræðirit væru hluti menningarinnar og komst að þeirri niðurstöðu að því miður væri oft þannig um hnúta búið að fræði, í sem víðustum skilningi þess orðs, væru ekki höfð með þegar íslenskir ráðamenn efndu til kynningar á menningu lands og þjóðar. Ari Trausti kemst svo að orði í grein sinni: „Raun- vísindi (m.a. jarðfræði eða lífvísindi) og hug- vísindi (m.a. saga og fornleifafræði), t.d. á bók- arformi, húsagerðarlist eða alþýðulist sjást varla eða alls ekki. Um áhuga útlendinga á slíku þarf varla að efast. Þannig hljóta þeir sem vinna að slíkum kynningum að líta á menningu fyrst og fremst eða eingöngu sem listalíf.“ Mestu virðist ráða hending ein eða einfaldlega þekkingarleysi á möguleikum ann- arra greina menningarinnar. Ég er nefnilega þeirrar skoðunar að staða fræðibóka á mark- aðnum, sem hefur verið til umræðu í Lesbók- inni, komi fram mun víðar en á bónusbóka- borðinu eða í áhugaleysi fjölmiðla í sambandi við kynningu á fræðiverkum. Eitt er víst að þegar stjórnvöld marséra af stað „undir herlúðrum hvellum og gjöllum“ – efna til veislu á erlendri grund og ákveða að nýta íslenska menningu á breiðum grundvelli (þar á meðal sögu, fornleifafræði, lífvísindi og jarðfræði) – þá er það oft gert þannig að ekki stendur steinn yfir steini í meðferð þeirra á efninu. Um þetta er hægt að nefna mörg dæmi en ég ætla að láta mér nægja þrjú til þess að draga fram alvöru málsins. Foringi hvítu mannanna Þegar nær dró aldamótaárinu 2000 ákváðu ís- lenskir ráðamenn að efna til veislu og fagna búsetu norrænna manna í Vesturheimi. Þegar til kom vissi þetta sama fólk ekki hverju ætti að fagna og hvernig best væri að bera sig að við fagnaðarlætin. Mjög snemma í undirbún- ingnum var tekin sú ákvörðun að setja lítið sem ekkert fjármagn til rannsókna þannig að hægt væri að átta sig á að hverju fögnuðurinn beindist. Staðreyndin var sú að Vesturheims- rannsóknir höfðu verið í skötulíki hér á landi í áratugi og það mest vegna þess að ekki fékkst fé til slíkra rannsókna um árabil. Um stöðu rannsókna og fræða í sambandi við Vestur- ferðir höfum við Davíð Ólafsson sagnfræðing- ur ritað í bók okkar Burt – og meir en bæjar- leið sem kom út árið 2001 í ritröðinni „Sýnis- bók íslenskrar alþýðumenningar“. Þar tókum við í sitthvorum inngangskaflanum gagnrýna afstöðu til málflutnings ráðamanna í sambandi við hátíðarhöldin í vesturheimi og bentum á hvernig klisjum um landnám Íslendinga væri haldið á lofti, klisjum sem oft ættu rætur sínar að rekja 70 ár aftur í tímann þegar Vestur- Íslendingar skýrðu stórhuga þjóðflutninga sína vestur um haf. Þeir litu nefnilega á sig, í slíkum söguskýringum, sem hina eiginlegu af- komendur víkinga, þá sem hefðu ekki þolað hallærið heima á Íslandi og þess vegna lagt land undir fót og numið ný lönd í vesturheimi. Vegur þeirra þar hefði að sjálfsögðu verið glæsilegri og árangursríkari en flestra ann- arra þjóða, einkum vegna gáfnafars og annars andlegs atgervis. Þessi orðræða var síðan yfir- færð yfir á hátíðahöldin um árþúsundamótin af hverjum ráðamanninum á fætur öðrum sem átti þess kost að taka til máls vestanhafs. Inga Dóra Björnsdóttir, mannfræðingur í Kaliforníu, benti til dæmis á að umfjöllunin um „fyrstu hvítu mennina“ í Ameríku – það er Leif Eiríksson og félaga sem margir forystu- menn þjóðarinnar mærðu í ræðum sínum vest- anhafs – bæri vott um sérlega óheppilegan málflutning í viðkvæmu andrúmslofti kyn- þátta og þjóðarbrota þar um slóðir. Kynþátta- hyggja væri litin mjög alvarlegum augum í Ameríku og flestir afar viðkvæmir fyrir mál- flutningi sem gæfi slíkum sjónarmiðum undir fótinn. En íslenskir ráðamenn höfðu bundið fyrir augun og steininn tók úr þegar forseti Ís- lands, Ólafur Ragnar Grímsson, stakk upp á því á stórum blaðamannafundi í Washington D.C. (í The National Press Club) að þarlend kvikmyndafyrirtæki frá Hollywood ættu að ráðast í gerð kvikmyndar um „fyrsta hvíta barnið“ sem fæðst hefði í Ameríku! Hér var um að ræða Snorra Þorfinnsson og sá forset- inn fyrir sér teiknimynd í líkingu við þá sem Disneyfyrirtækið gerði um Pocahontas. Nokk- ur umræða spratt upp hér á landi um þessa til- lögu forsetans og héldu margir að um grín hefði verið að ræða, en svo reyndist ekki vera (Inga Dóra Björnsdóttir, „Að kasta 340 millj- ónum á glæ.“ Morgunblaðið 14. nóvember 1998). Hugmyndin var að sjálfsögðu aldrei rædd frekar í Bandaríkjunum svo sögur fari af. Um þetta leyti fékkst reglulega staðfest hversu veikburða skilningur ráðamanna var á þessari margbrotnu sögu í Ameríku og ljóst er að fræðaheimurinn var að mestu sniðgenginn í öllum undirbúningi að hátíðarhöldunum. Ég gerði því skóna í minni umfjöllun í bókinni Burt – og meir en bæjarleið að þeir sem hefðu tekið að sér að móta þessa hugmyndafræði – landvinningarhugmyndafræðina – væru starfsmenn auglýsingastofa og almanna- tengsla fyrirtækja og þar væri lexía númer eitt að koma vel fyrir og ná til fjöldans með góðu eða illu. Enda leit þáverandi sendiherra Ís- lands í Bandaríkjunum, Jón Baldvin Hanni- balsson, yfir farinn veg í frægri skýrslu fyrir utanríkisráðuneytið um málið og mat það svo að Ísland hefði fengið ótrúlega mikla athygli vestanhafs með litlum tilkostnaði (sjá „Pre- sentation of Iceland in N-America in the Yerar 2000“. Ref: WAS200000484/74.B.001). Lífseig- um mýtum um stöðu Vestur- og Austur-Ís- lendinga var líka hampað við hvert tækifæri. Hreint ótrúleg fegurð íslenskra kvenna Eitt sorglegasta dæmið um sölumennsku á ís- lenskri menningu og þjóðlífi er markaðs- setning Flugleiða á undanförnum árum á er- lendri grund og átak sem stjórnvöld stóðu að til þess að selja lambakjöt í Bandaríkjunum undir forystu Baldvins Jónssonar. Í báðum til- fellum tók auglýsingafólk enn á ný til hendinni og safnaði saman bábiljunum um íslenska menningu, einkum um stöðu kvenna hér á landi – um „eðli“ þeirra og innræti. Þorgerður Þorvaldsdóttir, sagn- og kynjafræðingur, hef- ur fjallað um þetta efni á athyglisverðan hátt í rannsókn sem unnin var við The New School of Social Research í New York undir lok síð- ustu aldar. Þar bendir hún meðal annars á hvernig markaðsfyrirtæki hafi „selt“ ákveðna ímynd af íslenskum konum, ímynd sem bæði var tvíræð og kynferðisleg – gaf til kynna heil- brigði íslenskra kvenna, löngun og vilja til kynferðislegs samræðis við hvern þann sem byðist, auk mikillar náttúrulegrar fegurðar – studd íslenskri menningu, hreinni og óspilltri náttúru og sögu landsins. Allt gert til að selja lambakjöt í Bandaríkjunum og helgarferðir til Íslands. Enn á ný var gerð tilraun til að benda á hvers konar gjörningar væru þarna á ferð en allt kom fyrir ekki. Stórfyrirtæki, hagsmuna- samtök bænda og stjórnvöld nýttu sér þessa lágkúrulegu aðför að fólki á Íslandi til þess eins að draga athyglina að landinu og þeim ímyndum sem talið var að dygðu til að lokka fólk yfir hafið og hingað. Engu máli breytti þó að mótmæli væru hörð og bent væri á hvers konar fordómum þetta auglýsingaskrum byggði á. Landkynning skyldi það heita með góðu eða illu, ábendingar og rök fræðaheims- ins voru látin sem vindur um eyru þjóta. Útrásin og „strákarnir okkar“ Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, flutti fyrirlestur í hádegisfundarröð Sagn- fræðingafélags Íslands hinn 10. janúar 2006 sem bar heitið „Útrásin: Uppruni – Einkenni – Framtíðarsýn.“ Þar skýrði hann útrásina í löngu máli og rakti hana til innsta „eðlis“ ís- lensku þjóðarinnar. Krafturinn, þrautseigjan og útsjónarsemin hefðu varðveist í beinan karllegg frá víkingunum íslensku á söguöld; landkönnuðir og uppfinningamenn liðinna alda væru greyptir í menningu landsins og mennt- ir. Til að undirstrika „greiningu“ sína rakti hann tíu atriði sem hann taldi að gætu skýrt hina sterku stöðu íslenska útrásarliðsins á er- lendum vettvangi, fólksins sem greinilega átti aðdáun forsetans alla. Þar voru tíundaðir þættir eins og viljinn til að taka áhættu, menn- ingararfleifðin, samheldnin, dýrmæti mann- orðsins, áherslan á sköpunargáfuna og fleira í þeim dúr. Ég skrifaði um efni fyrirlestrarins stuttan pistil sem birtist samdægurs á vefritinu Kist- an (sjá „„Við erum frábær!“ kistan.is). Þarna í sal Þjóðminjasafns Íslands í janúar árið 2006 náði skrumskæling samtímamenningarinnar nýjum hæðum og um leið var gengið framhjá augljósum tengingum útrásarliðsins við sam- bærilega starfsemi í heiminum, hreyfingu sem stundum er kennd við nýkapitalisma og teng- ist hnattvæðingu síðari ára, frjálsu flæði fjár- magns og upplýsinga auk óheftra tækifæra til að fara ránshendi um atvinnulífið ef svo ber undir. Dregnar voru fram grunnhyggnar upp- hrópanir um íslenska menningu og sögu til þess að varpa ljóma á fólk sem mikilvægt er að taka til umfjöllunar á allt öðrum forsendum. Forseti Íslands var á svipuðum nótum í ára- mótaávarpi sínu til íslensku þjóðarinnar þegar hann fjallaði um Austurlönd fjær og frægðar- för sína á þær slóðir á liðnu ári. Tilgerðarleg upphafning á getu Íslendinga og gæðum reið þar ekki við einteyming. Í skugga heimskunnar Dæmin þrjú sem hér hafa verið dregin fram sýna hvernig íslenskir ráðamenn og hags- munaaðilar í atvinnulífinu hafa komist upp með að fjalla um íslenska menningu, sögu og vísindi án þess að leggja sig eftir bestu hugs- anlegum rannsóknum um efnið. Mér dettur ekki í hug að þetta stafi af illum hug eða sér- kennilegum hvötum, aðeins af ókunnugleika á því starfi sem unnið er í landinu af fræða- og vísindafólki. Fólk hlýtur að spyrja sig hvaða aðgang ráðamenn hafi að nýjustu upplýsing- um og hvers konar ráðgjöf þeir eru að fá við úrvinnslu verkefna sem þeim er ætlað að hafa skoðun á. Spyr sá sem ekki veit. Rétt eins og fram hefur komið hér í Lesbók- inni að undanförnu þá hefur leið fræðiverka upp á bónusborð bókamarkaða verið ógreið- fær og fyrir bragðið hefur hver rannsóknin af annarri farið framhjá landsmönnum og að því er virðist einnig ráðamönnum. Eftir stendur menning í vanda. Vandi hennar byggist á glöt- uðum tækifærum til að nýta sér það frjóa fræðastarf sem hér er unnið á vettvangi menn- ingar, á skilningsleysi á þeim möguleikum sem búa í starfi vísindanna og á því skeytingarleysi sem fræðastarfi er sýnt á fjölmörgum sviðum þjóðlífsins – einkum af opinberum aðilum (hér má minna á tilraunir fulltrúa almannavaldsins til að sniðganga mikilvægar rannsóknir í tengslum við virkjanir á hálendinu). Fræða- fólk má ekki láta þessa hluti yfir sig ganga, það verður að skera upp herör gegn skugga- hliðum markaðsvæðingar og máttleysi menn- ingarrýninnar og sýna sjálft fram á mikilvægi fræða í samtímanum. Eitt varhugavert sjónarmið um vísindastarf og fræðirit sem stundum er haldið á lofti, nú síðast í tveimur viðhorfspistlum í Morgun- blaðinu af Kristjáni G. Arngrímssyni, blaða- manni og heimspekingi, (fyrst „Umberto og maurarnir“, 17. janúar 2006; „Að vekja at- hygli“, 31. janúar 2006, en í þeim síðari voru mér kennd undurstöðuatriði blaðamennsku!), birtist í þeirri mynd að hollast sé fyrir fræða- heiminn að vera ekki með neitt brölt – vel unn- in fræðirit muni hafa sigur um síðir. „Ég er sannfærður um að fræðibækur munu af sjálfs- dáðum hljóta athygli og jafnvel seljast vel“, segir Kristján G. í fyrri pistli sínum og heldur áfram, „ef þær fjalla um mikilvægar og/eða at- hyglisverðar spurningar, leitast við að veita svör við þessum spurningum, eru skrifaðar á skýru og skilmerkilegu máli og gefa lesand- anum tilfinningu fyrir því að efnið sé áþreifan- legt og mikilvægt.“ Um viðhorfin sem reifuð eru í grein Kristjáns mætti hafa mörg orð, en sagan af Umberto Eco og maurunum vakti at- hygli mína (í ljósi umvöndunar hans í síðari greininni) þar sem erfitt var að átta sig á teng- ingu dæmisögunnar við aðalefni greinarinnar sem birtist í tilvitnuninni hér að ofan. Ég vona að þau fáu dæmi sem ég hef tilgreint hér í greininni sýni svo ekki verði um villst að betur má ef duga skal; sú þekking sem fræðimenn skapa hefur einmitt ekki skilað sér og við nú- verandi aðstæður virðist ljóst að jafnvel áhugaverðustu fræðirit fá ekki þá athygli sem þau verðskulda. Það hlýtur, af framangreind- um ástæðum, að vera eitt brýnasta verkefni fræðanna í framtíðinni að láta einskis ófreistað að koma efni þeirra á framfæri við ráðamenn, fjölmiðla, almenning og menningarsamfélagið í heild sinni. Þar er því miður mikið verk að vinna. Höfundur er doktor í sagnfræði og fræðimaður í ReykjavíkurAkademíunni. Auðlegð, menning og völd Á síðustu vikum hafa átt sér stað áhugaverð- ar umræður um stöðu fræðibóka, gagnrýnin og uppbyggileg samræða um mikilvægar spurningar sem tengjast þessu sviði menn- ingar. Þar hefur til dæmis verið spurt hvort það skipti einhverju máli að fræðiverk séu til? Í þessari grein er gerð tilraun til að svara þeirri spurningu ásamt því að velta upp ábyrgð valdhafanna sem fjalla um menningu innanlands og utan. Morgunblaðið/Þorkell Forseti Íslands „Dregnar voru fram grunn- hyggnar upphrópanir um íslenska menningu og sögu til þess að varpa ljóma á fólk sem mikilvægt er að taka til umfjöllunar á allt öðrum for- sendum.“ Myndin er tekin í fundarsal Þjóð- minjasafnsins þar sem Ólafur Ragnar Grímsson hóf fyrirlestraröð Sagnfræðingafélagsins um útrásina í janúar. Eftir Sigurð Gylfa Magnússon sigm@akademia.is

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.