Morgunblaðið - 05.01.2006, Side 1

Morgunblaðið - 05.01.2006, Side 1
2006  FIMMTUDAGUR 5. JANÚAR BLAÐ C ÍSÍ HEIÐRAR 58 ÍÞRÓTTAMENN / C2,C3 B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N AB L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A FORSVARSMENN B-liðs KR í körfuknattleik karla ætla sér stóra hluti í 16-liða úrslitum bikarkeppni KKÍ og Lýsingar en liðið tekur á móti úrvalsdeildarliði Grindavíkur á heimavelli sínum á laugardaginn. Bandarískur leikmaður verður í liði KR, en sá heitir Melvin Scott, og kemur hann frá North Carolina há- skólanum, sem er eitt þekktasta háskólalið vestanhafs, enda lék Michael Jordan með því liði. Scott þykir vera mikil skytta og skoraði hann grimmt fyrir utan þriggja stiga línuna sem leikmaður North Carolina. Böðvar Guðjónsson, formaður körfuknattleiks- deildar KR, og leikmaður KR-B, segir að verið sé að vinna að því að fá Jonathan Bow til liðsins en hann er íslenskur ríkisborgari og var einn besti erlendi leik- maður úrvalsdeildarinnar á sínum tíma. Alls verða fjórir þjálfarar á hliðarlínunni hjá KR-ingum í leikn- um, Hörður Gauti Gunnarsson verður aðalþjálfari en honum til aðstoðar verða þeir Ingi Þór Steinþórsson, Einar Bollason og Ungverjinn Lazlo Nemeth. KR-ingar safna liði gegn Grindavík en ég reikna nú með Guðjóni Val Sig- urðssyni, Arnóri Atlasyni og Sigurði Eggertssyni í vinstra hornið.“ Garcia er bjartsýnn „Jaliesky Garcia kemur til lands- ins á laugardaginn og fer strax í skoðun hjá Brynjólfi Jónssyni lækni sem metur hvort Garcia geti leikið með okkur á EM,“ svaraði Viggó er hann var spurður út í Garcia sem fór í aðgerð á stórutá hægri fótar skömmu fyrir jól. „Garica er bjart- sýnn og það má segja að við lifum á hans bjartsýni. Ég held að einhverjir bændasynir á Íslandi hefðu nú bara bitið á jaxlinn væru þeir í sporum Garcia,“ sagði Viggó spurður hvort hann væri bjartsýnn eða svartsýnn á þátttöku Garcia á EM í Sviss. Veikindin sem nú hrjá Baldvin eruþau sömu og hafa herjað á Erni Hrafn Arnarson, leikmann Aftureld- ingar, að undanförnu. Viggó segir að um sé að ræða víruspest og ekkert annað komi til greina hjá þeim sem hana fá en að taka sér algjöra hvíld frá æfingum. Þeir Baldvin og Ernir voru herbergisfélagar í Póllandi þeg- ar landsliðið tók þátt í móti þar í október. „Baldvin sagði mér á milli jóla og nýárs að hann væri slappur en taldi að um flensu væri að ræða. Síðan hefur annað komið í ljós eftir að hann fór til læknis í framhaldi af því að honum batnaði ekkert,“ sagði Viggó, en vírusinn sem sóttinni fylgir getur m.a. sótt í hjartað. „Heimir leikur ekki sömu stöðu og Baldvin og því er þetta orðið hið mest púsluspil að koma liðinu saman Heimir Örn valinn í stað Baldvins HEIMIR Örn Árnason, leikmaður Fylkis, hefur verið kallaður inn í ís- lenska landsliðið í handknattleik eftir að Baldvin Þorsteinsson, hornamaður úr Val, veiktist og verður frá æfingum um tíma vegna einkirningssóttar. „Þetta er mikið áfall bæði fyrir okkur og Baldvin,“ sagði Viggó Sigurðsson, landsliðsþjálfari í handknattleik, í samtali við Morgunblaðið. Hann kallar landsliðið saman til sinnar fyrstu æf- ingar í dag í íþróttahúsinu við Strandgötu í Hafnarfirði. Eftir Ívar Benediktsson iben@mbl.is TVEIR af efnilegustu hlaupurum landsins hafa gengið til liðs við Breiðablik og yfirgefa sitt fyrra fé- lag UMSS. Um er að ræða lands- liðsmanninn Kára Stein Karls- son og Þorberg Inga Jónsson. Kári, sem er 19 ára, er landsliðs- maður og besti langhlaupari Ís- lands í dag. Hann setti unglingamet síðasta sumar í 10 km hlaupi, hljóp á 31.10,10 mín og varð 10. á Evrópu- meistaramóti unglinga í Litháen í þeirri grein. Hann hafnaði einnig í þriðja sæti á Norðurlandamóti ung- linga sem haldið var í Kristiansand í ágúst í 5.000 m hlaupi. Einnig varð hann þriðji á Norðurlandamótinu í víðavangshlaupum í flokki 20 ára og yngri í nóvember. Nú í lok des. var hann aðeins 1/100 úr sek. frá Ís- landsmeti í 1.500 m hlaupi unglinga, 19–20 ára, innanhúss, þegar hann hljóp á 3.58,37 mín. Þá setti hann undir árslok glæsilegt Íslandsmet í 2.000 m hlaupi innanhúss í 19–20 ára og flokki og 21–22 ára flokki. Þorbergur einn efnilegasti mill- vegalengda- og langhlaupari Ís- lands. Hann setti nýverið persónu- legt met í 1.500 m hlaupi innanhúss, hljóp á 4.01,04 mín. Hann er í mikilli framför og hafnaði í 3. sæti í gaml- árshlaupi ÍR þar sem hann hljóp 10 km á 33,51 mín. Kári Steinn Tveir efnilegir til Breiðabliks ÍSLENSKA 20 ára landslið pilta í íshokkí hóf keppni á heimsmeistaramóti unglinga í 3. deild í Litháen með glæsi- brag í gær en Íslendingar rót- burstuðu þá Armena, 50:0. Ís- skoruðu 19 mörk í fyrsta leikhluta, 9 í öðrum og 22 í þeim þriðja. Íslensku strákarnir bjuggu sig vel undir átökin í Litháen. Stefna liðsins er að tryggja sér sæti í 2. deildinni en auk Ís- lands og Armeníu leika í riðl- inum Búlgaría og Tyrkland. Ed Maggiacomo er þjálfari liðsins en í liðinu eru: Aron Leví Stefánsson, SR, Sæmund- ur Leifsson, SA, Birkir Árna- son, SA, Þórhallur Viðarsson, SR, Elmar Magnússon, SA, Kári Valsson, SR, Sigurður Óli Árnason, SA, Magnús F. Tryggvason, Björninn, Orri Blöndal, SA, Úlfar Jón Andrésson, SR, Steinar Páll Veigarsson, SR, Þorsteinn Björnsson, SR, Gunnar Guðmundsson, Björninn, Jón Ingi Hallgrímsson, SA, Gauti Þormóðsson, SR, Sindri Már Björnsson, SR, Svavar Rúnarsson, SR, Arnþór Bjarnason, SA, Emil Alen- gaard, Linköping, Daníel Eriksson, Nyköping. Íslendingar lögðu Armena 50:0 Morgunblaðið/Brynjar Gauti Þau urðu í þremur efstu sætunum í kjöri um íþróttamann ársins 2005. Ásthildur Helgadóttir knattspyrnukona varð í þriðja sæti, Eið- ur Smári Guðjohnsen knattspyrnumaður, íþróttamaður ársins, og Guðjón Valur Sigurðsson handknattleiksmaður varð í öðru sæti.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.