Morgunblaðið - 05.01.2006, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 05.01.2006, Blaðsíða 4
LEIK Atletico Madrid og Real Zaragoza í 16 liða úrslitum spænsku bikarkeppninnar í knattspyrnu sem fara átti fram í gærkvöldi var frestað þar sem 14 leikmenn Atletico Madrid greindust með matar- eitrun. Forráðamenn félagsins sögðu að leikmennirnir hefðu byrjað að kvarta um verk í maga skömmu eftir að hafa et- ið kvöldmat saman í fyrra- kvöld í höfuðstöðvum félags- ins og fylgdu verkjunum uppköst og niðurgangur. Ekki er víst hvort leikmennirnir verði búnir að ná sér á sunnu- daginn en þá á liðið að taka á móti Valencia í spænsku 1. deildinni. Matareitrun í herbúðum Atletico FÓLK  ATLI Steinarsson var í fyrrakvöld sæmdur heiðurskrossi Íþrótta- og ólympíusambands Íslands í hófi sem haldið var í tengslum við kjör íþróttamanns ársins á Grand hóteli Reykjavík. Atli var einn fjögurra stofnfélaga Samtaka íþróttafrétta- manna, SÍ, fyrir hálfri öld og sá eini sem er á lífi. Hann var lengi íþrótta- fréttamaður Morgunblaðsins og for- maður SÍ sem nú útnefndi íþrótta- mann ársins í fimmtugasta sinn.  MORTEN Þór Szmiedowicz, leik- maður Hauka, og Hallgrímur Brynjólfsson, leikmaður Hamars/ Selfoss, voru úrskurðaðir í eins leiks bann á fundi aganefndar Körfu- knattleikssambands Íslands í fyrra- dag. Þeir fengu báðir brottvísanir í leikjum liða sinna í úrvalsdeildinni 29. desember.  CHRIS Sutton, sóknarmaður Glasgow Celtic, er undir smásjánni hjá tveimur enskum úrvalsdeildar- liðum, Everton og Portsmouth. David Moyes knattspyrnustjóri Everton hefur verið á höttunum á eftir Sutton um nokkurt skeið og nú er Harry Redknapp hjá Portsmouth kominn í slaginn, enda með vilyrði fyrir miklu fjármagni frá væntan- legum eiganda, Alexandre Gayda- mek.  SUTTON, sem er 32 ára, er með klásúlu í sínum samningi við Celtic um að geta losnað þaðan fyrir 300 þúsund pund, um 35 milljónir króna.  MIRKO Slomka hefur verið ráð- inn þjálfari þýska 1. deildarliðsins Schalke. Tekur hann við af Ralf Rangnick sem leystur var frá störf- um á dögunum. Slomka, sem gerði samning við Schalke fram til loka keppnistímabilsins, var áður aðstoð- armaður Rangnick.  MANCHESTER City hefur fengið spænska knattspyrnumanninn Al- bert Riera að láni frá Espanyol út þessa leiktíð. Riera, sem er 23 ára miðvallarleikmaður, var aðeins fjór- um sinnum í byrjunarliði Espanyol á tímabilinu. City hefur möguleika á að kaupa Riera næsta sumar fyrir 3,5 milljónir punda. Riera kom til Espanyol í sumar frá Bordeaux en hann lék áður fyrr með Mallorca.  MARTINA Hingis heldur sigur- göngu sinni áfram á opnu tennismóti í Ástralíu, en það er fyrsta mótið sem hún tekur þátt í þrjú ár. Í fyrstu umferð vann Hingis spænska tenniskonu og í fyrrinótt lagði hún Tékkann Klara Koukalova í tveimur settum, 6:3 og 6:2. Hingis er þar með komin í 3. umferð. Koukalova er í 35. sæti á styrkleika Alþjóða tennissambandsins. ENSKA úrvalsdeildarliðið Portsmouth samdi í gær við pólska landsliðsmiðherjann Emmanuel Olisadebe til loka leiktíðarinnar. Olisadebe, sem fæddur er í Nígeríu, kemur til Portsmouth frá Pantahinaikos í Grikklandi. Hann hefur leikið 25 leiki fyrir Pólland og verður Portsmouth góður liðstyrkur og veitir ekki af því það er í 3.neðsta sæti með 17 stig í 20 leikjum. Olisadebe í Portsmouth JASON Pryor, körfuknattleiks- maður frá Bandaríkjunum, er genginn til liðs við úrvalsdeildar- lið Hauka. Hann leysir af hólmi landa sinn, DeeAndre Hulett, sem var sagt upp hjá Hafnarfjarðarlið- inu rétt fyrir jólin. Pryor, sem er 26 ára gamall bakvörður, 1,88 m á hæð, hefur áður leikið hér á landi því hann spilaði með Valsmönnum seinni hluta tímabilsins 2002–2003 og skoraði þá 32,8 stig að meðaltali í leik í þeim 11 leikjum sem hann tók þátt í. Mest gerði hann 45 stig í leik gegn Skallagrími. Pryor fór frá Val til hollenska liðsins Land- stede Zwolle og þaðan til Pól- lands. Hann fór til Írlands í des- ember og lék einn leik með Neptune í írsku úrvalsdeildinni, skoraði 36 stig í honum og var þá sagður liðinu gífurlegur lið- styrkur. Haukar sitja á botni úrvals- deildarinnar með aðeins 2 stig úr fyrstu 11 leikjum sínum og eiga því fyrir höndum erfiða baráttu fyrir lífi sínu í síðari umferðinni. Þeir skiptu jafnframt um þjálfara um áramótin en Ágúst Björgvins- son tók þá við af Predrag Bojovic. Hann hefur ekki leikið knatt-spyrnu í 16 mánuði, eða síðan hann sleit liðbönd í ökkla í leik með Skagamönnum gegn ÍBV í lokaum- ferð Íslandsmótsins 2004. Meiðslin eiga sér þó lengri sögu. „Þetta eru álagsmeiðsli sem hægt er að rekja alveg aftur til 12–13 ára aldurs. Frá þeim tíma var ég stöðugt að misstíga mig og togna á ökkla en hvíldi samt aldrei neitt að ráði, hlust- aði ekki á lækna og spilaði bara „teipaður“. Sem dæmi tók ég þátt í 45 leikjum með tveimur flokkum á einu sumri, þegar ég var 16 ára og það sjá allir hvers konar vitleysa það er,“ sagði Hjálmur Dór við Morgun- blaðið. Ökklinn bólgnar upp við eitt markskot Hann hóf að leika með meistara- flokki ÍA 18 ára gamall og hefur spil- að 52 leiki fyrir félagið í efstu deild. Auk þess á hann að baki 16 leiki með yngri landsliðum Íslands, þar af fjóra með 21 árs landsliðinu. Hjálmur Dór gekkst undir aðgerð á ökklanum í mars á síðasta ári og hefur frá þeim tíma ekki verið í standi til að leika knattspyrnu. „Ég hef aldrei náð mér nógu vel eftir það, ökklinn bólgnar upp ef ég tek eitt markskot og ég get ekkert hlaupið. Brjóskeyðing er mjög slæm því brjóskið kemur ekki til baka nema að óverulegu leyti. Það er reyndar komið til sögunnar nýtt efni sem er sprautað í ökklann og örvar brjóskmyndun en það hefur ekki virkað að ráði á mig enn sem komið er.“ Hef ekki áhuga á að vera haltur alla ævi Hjálmur Dór vill ekki útiloka að hann geti leikið knattspyrnu á ný en telur ósennilegt að hann spili nokkuð á nýhöfnu ári. „Ég er aðeins 23 ára og ætla ekki að fara að lýsa því yfir að ég sé hætt- ur, það er einfaldlega of gaman að spila fótbolta til þess að það sé hægt. En ég ætla ekki að flýta mér neitt og maður verður að vera skynsamur, ég hef heldur ekki áhuga á því að vera haltur alla ævi. Mér fannst rétt að losa mig undan samningi, það væri ekki sanngjarnt að félagið væri að greiða mér þegar ég gæti ekki spilað með liðinu, og svo þýðir það að ég get hugað að minni endurhæfingu al- gjörlega á mínum forsendum. Ef ég næ bata mun ég spila fótbolta á ný, svo einfalt er það. Fótboltinn er of skemmtilegur til að ég geti hugsað mér að hætta honum alfarið. Ég fór út í þjálfun á yngri flokkum síðasta vor og það hefur að hluta til komið í staðinn fyrir það að geta spilað sjálf- ur,“ sagði Hjálmur Dór, sem nú ein- beitir sér að því að þjálfa pilta í 4. flokki ÍA. Skagamaðurinn Hjálmur Dór Hjálmsson úr leik vegna brjóskeyðingar í ökkla „Hvíldi aldrei og hlustaði ekki á lækna“ HJÁLMUR Dór Hjálmsson, knattspyrnumaður á Akranesi, hefur komist að samkomulagi við Knattspyrnufélag ÍA um rift- un á samningi sínum við félagið sem átti að renna út í lok þessa árs. Hjálmur Dór gat ekkert spil- að með Skagamönnum í fyrra og tvísýnt er hvort hann leiki knatt- spyrnu á ný þar sem hann glímir við brjóskeyðingu í ökkla en Hjálmur er aðeins 23 ára gamall. Eftir Víði Sigurðsson vs@mbl.is Morgunblaðið/Sigurður Elvar Hjálmur Dór Hjálmsson var að stjórna 4. flokki drengja knatt- spyrnuliði ÍA í æfingaleik í gær á Akranesi. Jason Pryor til liðs við Hauka

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.