Morgunblaðið - 13.01.2006, Page 1
2006 FÖSTUDAGUR 13. JANÚAR BLAÐ C
REIKNAR MEÐ BARÁTTU MILLI ÍSLENDINGA OG UNGVERJA / C2
ÚTLIT er fyrir að nýtt áhorfendamet verði
slegið í þýsku 1. deildinni í handknattleik karla
í vetur. Þegar deildin er hálfnuð hafa um 730
þúsund manns mætt samtals á leikina, sem ger-
ir 4.543 áhorfendur á leik að meðaltali. Það er
aukning um 400 áhorfendur á leik, miðað við
síðasta tímabil.
Kiel hefur um árabil verið með bestu aðsókn-
ina í deildinni en nú bregður svo við að það er
Gummersbach, lið Guðjóns Vals Sigurðssonar
og Róberts Gunnarssonar, sem hefur fengið
flesta áhorfendur á sína heimaleiki, 11.422 að
meðaltali. Hjá Kiel er meðaltalið ávallt 10.250
manns en uppselt er þar á hvern einasta leik.
Lykillinn að þessari aðsókn hjá Gummers-
bach er sá að til þessa hefur liðið spilað sex
heimaleiki af níu í hinni risastóru Köln-Arena,
sem rúmar tæplega 20 þúsund manns. Alls mun
liðið spila 11 af 17 heimaleikjum vetrarins þar.
Gummersbach
fram úr Kiel
B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N AB L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A
BJARNI Guðjónsson, leikmaður með
Plymouth í ensku 1. deildinni, á von á því
að geta gengið frá samningi við belgíska
knattspyrnuliðið Lokeren í byrjun næstu
viku en hann æfði með félaginu á Malaga
á Spáni og tók þátt í æfingaleik gegn
hollenska liðinu Volendam.
„Ég þarf að ganga frá mínum málum
við Plymouth með formlegum hætti áður
en ég get farið í samningaviðræður við
Lokeren en ég á ekki von á öðru en að
það eigi eftir að ganga upp. Þjálfarinn
vill fá mig til liðsins og helst vill hann
ganga frá samningsmálum fyrir miðviku-
daginn í næstu viku enda tekur það eina
viku fyrir leikmenn að fá leikheimild.
Lokeren á að leika gegn Moeskroen þann
21. janúar nk. eftir vetrarfrí og vonast
Bjarni til þess að geta leikið með liðinu í
þeim leik. Aime Antheunis er þjálfari
Lokeren en hann var þjálfari Bjarna er
hann stýrði belgíska liðinu Genk.
„Ég er mjög spenntur fyrir því að fá
tækifæri til þess að spila á ný enda hef
ég lítið fengið að leika í vetur undir
stjórn Tony Pulis hjá Plymouth.
Antheunis hefur ekki öll völd þegar kem-
ur að því að fá leikmenn til Lokeren og
þurfa leikmenn að sýna sig og sanna fyr-
ir forsetanum, Roger Lambrecht, áður en
lokaákvörðun er tekin. Ég ræddi við
Lambrecht nú rétt áðan og hann villa
hitta mig í byrjun næstu viku til þess að
ræða samningsmálin,“ sagði Bjarni í gær
en hann var þá staddur á flugvellinum í
Malaga.
Lokeren er sem stendur í sjöunda sæti
belgísku 1. deildarinnar með 29 stig eftir
18 leiki, sjö stigum á eftir Standard
Liege sem trónir á toppnum.
Bjarni
líklega í
Lokeren
Eftir Sigurð Elvar Þórólfsson
seth@mbl.is
MAGNÚS Sverrir Þorsteinsson, knatt-
spyrnumaður, er á leið til Keflavíkur á
ný eftir eins árs dvöl í Grindavík. Hann
fór þangað síðasta vetur eftir að Guðjón
Þórðarson, þáverandi þjálfari Keflvík-
inga, vék honum úr leikmannahópnum.
Magnús, sem er 23 ára, lék 17 leiki
með Grindavík í úrvalsdeildinni síðasta
sumar og skoraði 3 mörk en hann á að
baki 56 leiki með Keflvíkingum í deild-
inni og hefur skorað í þeim 5 mörk.
Þetta kom fram á Fótbolti.net seint í
gærkvöld og þar var haft eftir Magnúsi
að 99 prósent líkur væru á því að þetta
gengi í gegn og í raun ætti aðeins eftir
að skrifa undir samning.
Magnús á leið
til Keflavíkur
Það er næsta víst að Viggó nærað jafna metið þegar Ísland
mætir Katar í kvöld. Síðan getur
hann slegið metið gegn Noregi í
Kristiansund á sunnudag. Árangur
landsliðsins í þessum 14 leikjum
undir stjórn Viggós, eru ellefu sigr-
ar og þrjú jafntefli – frá því að
landsliðið lagði Pólverja að velli í
Laugardalshöllinni 26. mars, 31:30.
Sigurleikirnir hafa verið fjórir
gegn Noregi, tveir gegn Póllandi,
Færeyjum og Hvíta-Rússlandi – og
einn gegn Svíþjóð og Danmörku.
Jafnteflisleikirnir þrír eru gegn Sví-
þjóð, Danmörku og Noregi.
Tveir leikmenn hafa tekið þátt í
öllum þessum fjórtán leikjum – það
eru þeir Birkir Ívar Guðmundsson
og Vignir Svavarsson.
Tveir léku alla fimmtán leikina
undir stjórn Þorbjarnar 1996 – Guð-
mundur Hrafnkelsson og Ólafur
Stefánsson. Sigrar unnust í 14 leikj-
um – tveir gegn Færeyjum, Sviss,
Eistlandi og Danmörku, einn gegn
Ástralíu, Bandaríkjunum, Japan,
Suður-Kóreu, Noregi og Grikk-
landi. Einn leikur endaði með jafn-
tefli, gegn Grikklandi.
Ljósmynd/Anders Tøsse
Íslenska vörnin ver aukakast Norðmanna í leiknum í Kristiansund í gærkvöldi. Íslenska liðið sigraði Norðmenn, 31:30.
Viggó er einum leik
frá meti Þorbjarnar
„ÉG er að sjálfsögðu ánægður með sigurinn en ekki leikinn sem
slíkan,“ sagði Viggó Sigurðsson, landsliðsþjálfari karla í hand-
knattleik, sem stjórnaði landsliðinu í 14. leiknum í röð án taps,
þegar Norðmenn voru lagðir að velli í vináttulandsleik í Kristian-
sund í gærkvöldi, 31:30. Hann á aðeins einn leik í að jafna met
Þorbjarnar Jenssonar, sem stjórnaði landsliðinu í 15 leikjum í
röð án taps 1996.
■ Rifu sig upp / C3