Morgunblaðið - 13.01.2006, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. JANÚAR 2006 C 3
ENGAR líkur eru á því að Akranes
sendi lið til keppni í 1. deild kvenna
í knattspyrnu á næsta keppnis-
tímabili. ÍA féll úr Landsbanka-
deildinni sl. haust eftir eins árs
veru. Flestir af lykilleikmönnum
liðsins eru farnir til annarra fé-
laga. Samkvæmt heimildum
Morgunblaðsins er leikmannahóp-
ur liðsins einfaldlega of fámennur
til þess að hægt verði að senda það
til keppni í 1. deildinni.
Skagaliðið náði einu jafntefli í 14
leikjum en liðið var skipað nær ein-
göngu ungum leikmönnum sem
voru að stíga sín fyrstu skref í
efstu deild. Lið ÍA var endurvakið
árið 2004 eftir þriggja ára hlé og
það vann sér þá sæti í úrvalsdeild-
inni.
ÍA hefur ekki gefið út formlega
tilkynningu þess efnis að kvenna-
liðið dragi sig úr keppni en líklega
verður það gert í dag. Þrír leik-
menn úr ÍA hafa tilkynnt félaga-
skipti í Val en þeir eru Bára Krist-
björg Rúnarsdóttir, Thelma Ýr
Gylfadóttir og Hallbera Gísladótt-
ir. Mörg lið hafa áhuga á að fá
Helgu Sjöfn Jóhannesdóttur í sínar
raðir.
Að sögn forsvarsmanna ÍA verð-
ur aðeins sent lið í keppni 2. flokks
kvenna í 7 manna liðum á næstu
leiktíð en vonir standa til þess að á
næstu árum verði hægt að senda
lið til keppni í meistaraflokki
kvenna enda stundar fjölmennt lið
yngri stúlkna æfingar hjá knatt-
spyrnufélaginu.
Skagamenn draga
kvennalið sitt úr keppni
til að æfa og leika með danska landslið-
inu fyrir EM hefðu þeir átt að tilkynna
það strax og danska landsliðið var valið
og hóf undirbúning sinn. Slíkt hafi ekki
verið gert enda sé Knudsen ekki á
sjúkrabótum um þessa mundir, heldur
á launaskrá hjá sínu félagi eins og hver
annar leikmaður sem sé tilbúinn í slag-
inn.
Til stendur að forráðamenn Flens-
burg endurskoði afstöðu sína um
helgina.
g
u
í
rt
er
,“
ka
a,
g
ir
n
nsburg
GUNNAR Pettersen, lands-
liðsþjálfari Norðmanna í
handknattleik, kenndi mark-
vörðum sínum um ósigurinn
gegn Íslandi í gærkvöld,
30:31. „Markvarslan var mjög
köflótt hjá okkur. Ole Erevik
stóð sig vel í fyrri hálfleik en
markmennirnir snertu varla
boltann í seinni hálfleik. En
það er mikill vilji í liðinu,
hornamennirnir spiluðu vel og
Frank Löke átti virkilega góð-
an leik en var ekki í sérstöku
uppáhaldi hjá dómurunum,“
sagði Pettersen á vef norska
handknattleikssambandsins.
Norðmenn máttu þola sinn
fjórða ósigur í 5 leikjum gegn
Íslandi á skömmum tíma en
þeir náðu einu jafntefli í heim-
sókn til Íslands í nóvember.
Töpuðum
á mark-
vörslunni FÓLK
HALLDÓR Sigfússon skoraði 4
mörk fyrir þýska 3. deildarliðið Ess-
en í fyrrakvöld þegar það sigraði
landslið Kúveit, 33:28, í æfingaleik á
heimavelli sínum. Mark Dragunski,
línumaðurinn risavaxni og fyrrum
landsliðsmaður Þjóðverja, skoraði
11 mörk fyrir Essen í leiknum.
ÞJÁLFARI Kúveit kvartaði und-
an Dragunski í hálfleik við forráða-
menn Essen, í léttum dúr: „Þetta er
ósanngjarnt, hann er alltof stór,“
sagði hann en Kúveitarnir réðu ekk-
ert við þennan 2,15 metra háa línu-
mann.
HEINER Brand, landsliðsþjálfari
Þjóðverja í handknattleik, segist
gera sér ákveðnar vonir um að
hornamaðurinn Stefan Kretzsch-
mar gefi kost á sér í landsliðið á nýj-
an leik fyrir heimsmeistaramótið í
Þýskalandi á næsta ári. Kretzsch-
mar hætti að leika með landsliðinu
eftir að Þjóðverjar töpuðu úrslita-
leiknum við Króata á Ólympíuleik-
unum í Aþenu fyrir hálfu öðru ári.
ÞRÍR norskir frjálsíþróttamenn
hafa staðfest komu sína á vígslumót
Laugardalshallarinnar laugardag-
inn 28. janúar. Það eru þeir
Benjamin Jensen, tugþrautarmað-
ur, Jonas Modin Rismyhr sem
keppir í 400 og 800 m hlaupi og
Kristine Eikrem Engeseth, einn
efnilegasti langhlaupari Noregs í
unglingaflokki.
FORRÁÐAMENN franska knatt-
spyrnufélagsins Auxerre staðfestu í
gærkvöld að 19 ára gamall franskur
unglingalandsliðsmaður, Vassiriki
Diaby, væri á förum frá félaginu til
Arsenal og hefði samþykkt þar fjög-
urra ára samning. Diaby er kraft-
mikill miðjumaður og þykir minna á
Patrick Vieira, landa sinn, sem
lengi lék með Arsenal og er sárt
saknað þar í vetur.
GYLFI Einarsson, landsliðsmaður
í knattspyrnu, spilaði í gærkvöld
fyrsta leik sinn síðan hann slasaðist
á öxl í nóvember. Gylfi lék með
varaliði Leeds sem steinlá gegn
Manchester United, 1:5.
SPÆNSKA knattspyrnufélagið
Espanyol staðfesti í gærkvöld að
það hefði keypt Walter Pandiani,
sóknarmann frá Uruguay, af Birm-
ingham fyrir eina milljón punda, um
108 milljónir króna.
TOMAS Repka, tékkneski varn-
armaðurinn hjá West Ham, hefur
fengið sig lausan frá enska félaginu
og gengur til liðs við Sparta Prag í
heimalandi sínu. Hann mun þó spila
með West Ham gegn Fulham 23.
janúar en heldur síðan heim á leið.
ROBINHO, brasilíski sóknarmað-
urinn, skoraði tvívegis fyrir Real
Madrid í auðveldum sigri á Athletic
Bilbao, 4:0, í spænsku bikarkeppn-
inni í knattspyrnu í gærkvöld. Serg-
io Ramos og Roberto Soldado skor-
uðu hin tvö mörkin.
Norska liðið var með undirtökin íleiknum lengst af, var yfir allan
fyrri hálfleikinn og staðan var 13:12 í
hléi. Norðmenn voru yfir þar til tíu
mínútur voru eftir, þá tókst íslenska
liðinu að jafna, og það náði síðan for-
ystunni í fyrsta skipti sex mínútum
fyrir leikslok.
Arnór Atlason og Guðjón Valur
Sigurðsson voru atkvæðamestir í ís-
lenska liðinu og skoruðu 6 mörk hvor
en Einar Hólmgeirsson gerði 5. Byrj-
unarliðið var þannig skipað að Birkir
Ívar Guðmundsson var í markinu,
Guðjón Valur og Alexander Peters-
son í hornunum, Sigfús Sigurðsson á
línunni og fyrir utan léku Arnór,
Snorri Steinn Guðjónsson og Ólafur
Stefánsson. Fljótlega leysti Ólafur
Snorra Stein af sem leikstjórnandi og
Einar kom inn á sem skytta hægra
megin. Róbert Gunnarsson spilaði
einnig talsvert á línunni. Hreiðar
Guðmundsson lék í markinu framan
af síðari hálfleik en náði sér ekki á
strik. Þrír leikmenn komu ekkert við
sögu í leiknum, þeir Þórir Ólafsson,
Heimir Árnason og Vignir Svavars-
son.
Viggó Sigurðsson landsliðsþjálfari
sagði við Morgunblaðið eftir leikinn
að hann væri ánægður með sigurinn
en ekki leikinn sem slíkan.
Góðs viti að menn
séu þreyttir núna
„Við byrjuðum illa, sóknarleikur-
inn gekk ekki sem skyldi í fyrri hálf-
leiknum og markvarslan var slök
lengst af, eða þar til Birkir Ívar kom
aftur í markið seint í leiknum og varði
fjögur skot með stuttu millibili. Við
nýttum ekki hraðaupphlaupin nægi-
lega vel og menn virkuðu þreyttir. En
það er í sjálfu sér góðs viti á þessum
tíma, sérstaklega þegar menn eru
nær allir á svipuðu róli. Strákarnir
rifu sig upp á réttum tíma og tryggðu
sigurinn. Þar gerði innkoma Birkis
Ívars útslagið ásamt því að við kom-
um loksins hraðaupphlaupunum í
gang,“ sagði Viggó.
Hann var ánægður með frammi-
stöðu þriggja leikmanna í leiknum.
„Arnór Atlason lék sem skytta
vinstra megin allan tímann og stóð
sig mjög vel. Róbert Gunnarsson
kom sterkur inn á línuna þegar leið á
leikinn og nýliðinn Sigurður Egg-
ertsson komst vel frá sínum fyrsta
landsleik. Hann kom inn á á mikil-
vægum augnablikum, krækti í tvö
vítaköst og skoraði eitt mark, og ég
er mjög ánægður með hann. Allir
aðrir spiluðu undir getu að þessu
sinni.“
Það var þó Einar Hólmgeirsson
sem var valinn maður leiksins hjá ís-
lenska liðinu í leikslok en hjá Norð-
mönnum varð Frank Löke fyrir val-
inu.
Norskir dómarar dæmdu
Viggó var ekki hress með það að
norskir dómarar skyldu dæma leik-
inn. „Fyrst þeir breyttu þessu úr æf-
ingaleik í opinberan landsleik þá skil
ég ekki hvers vegna þeir sóttu ekki
dómara til Svíþjóðar eða Danmerkur.
Þetta voru sannkallaðir heimadómar-
ar sem ætluðu að tryggja heimasigur
en þeim tókst það ekki.“
Íslenska liðið mætir Katar í kvöld
og þar ætti ekkert annað en mjög
öruggur sigur að koma til greina.
„Það er þjóðarskylda að vinna örugg-
lega en aðalmálið er að fá sem mest út
úr leiknum,“ sagði Viggó Sigurðsson.
„Rifu sig upp á
réttum tíma“
LOKAUNDIRBÚNINGUR íslenska karlalandsliðsins í handknattleik
fyrir Evrópukeppnina í Sviss hófst á góðum nótum í gærkvöld þegar
það bar sigurorð af Norðmönnum, 31:30, í vináttulandsleik sem
fram fór í Kristiansund. Þetta var fyrsti leikurinn af þremur hjá ís-
lenska liðinu í Noregsförinni en það tekur þátt í þriggja landa móti á
sama stað og mætir Katar í kvöld en Norðmönnum á sunnudaginn.
Íslendingar lögðu Norðmenn í Kristiansund, 31:30
Ljósmynd/Anders Tøsse
Guðjón Valur Sigurðsson skorar eitt af sex mörkum sínum
gegn Norðmönnum í Kristiansund í gærkvöldi.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
ergsveinsson hafa átt góðu gengi að
ur ekki tapað í 14 leikjum í röð.
ÍÞRÓTTIR