Morgunblaðið - 13.01.2006, Page 4
BIRNA Valgarðsdóttir úr Keflavík hefur titil að verja í 3ja stiga skot-
keppninni í kvennaflokki, sem fer fram samhliða árlegum Stjörnuleik
KKÍ. Keppnin fer fram í DHL-höllinni á laugardag, heimavelli KR.
Birna ætlar sér að verja titilinn en aðrir keppendur í kvennaflokki
eru: Helena Sverrisdóttir (Haukum), Alma Rut Garðarsdóttir (Grinda-
vík), Stella Rún Kristjánsdóttir (ÍS), LaKiste Barkus (Keflavík), Krist-
rún Sigurjónsdóttir (Haukum).
Í karlaflokki í 3ja stiga keppninni eigast eftirtaldir leikmenn við:
Brynjar Þór Björnsson (KR), Pétur Már Sigurðsson (Skallagrímur),
Páll Axel Vilbergsson (Grindavík), Jeb Ivey (Njarðvík), Jón Ólafur
Jónsson (Snæfell), Guðlaugur Eyjólfsson (Grindavík), Jason Pryor
(Haukar).
Að venju verður aðeins keppt í troðslum í karlaflokki en þar verða
eftirtaldir leikmenn í eldlínunni.
Omari Westley (KR), Mario Myles (Þór, Akureyri), Egill Jónasson
(Njarðvík), Nedsad Biberovic (Grindavík), A.J. Moye (Keflavík).
Birna hefur titil að
verja í skotkeppni
ÓLAFUR Örn Bjarnason æfði í
fyrrakvöld með aðalliði Brann í
fyrsta sinn síðan um miðjan ágúst
að hann gekkst undir aðgerð á hné
þar sem lagfærðar voru brjósk-
skemmdir. Í samtali við Aftenbladet
segir Ólafur að æfingin hafi gengið
að óskum og sér líði vel. Vonast
Ólafur til að setja nú fullan kraft í
æfingarnar og að hann verði klár í
slaginn þegar keppni í norsku
úrvalsdeildinni hefst síðla vetrar.
Í blaðinu kemur ennfremur fram
að forráðamenn Brann leiti að mið-
verði við hlið Ólafs. Þrátt fyrir
ítrekaða leit hafi ekkert rekið á
fjörur þeirra en árar verði hins veg-
ar ekki lagðar í bát þar sem frestur
til kaupa á leikmönnum rennur ekki
út fyrr en um næstu mánaðamót.
Ólafur sagðist ekkert óttast að fá
aukna samkeppni um sæti í aðallið-
inu með hugsanlegum kaupum á
nýjum varnarmanni. „Ég verð bara
grimmari við meiri samkeppni,“
sagði Ólafur.
Ólafur Örn er
kominn af stað
Fyrir fjórum árum sendu R&A ogUSGA frá sér yfirlýsingu þess
efnis að það væri ekki ákjósanlegt ef
þróun golfboltans yrði með þeim
hætti að hann færi enn lengra á
næstu árum og svo virðist sem kylf-
ingar hafi bætt nokkrum metrum við
boltaflugið á hverju ári.
R&A og USGA hafa beðið fram-
leiðendur um að gera tvær frum-
gerðir af boltum sem fljúga 15–20
metrum styttra en þeir boltar sem
notaðir eru í dag, en að undanförnu
hafa verið gerðar tilraunir með bolta
sem eru stærri og léttari.
Peter Dawson, framkvæmdastjóri
R&A, segir að á undanförnum þrem-
ur árum hafi þróunin verið sú að
kylfingar hafi ekki slegið lengra og
lengra með hverju ári. Dawson bætir
því við að eitt það áhugaverðasta
sem R&A hafi skoðað sé hve lítið
samhengi sé á milli árangurs og ná-
kvæmni í upphafshöggum.
Þrír tekjuhæstu kylfingarnir á
PGA-mótaröðinni árið 2005, Tiger
Woods, Vijay Singh og Phil Mickel-
son, voru í 188., 147. og 161. sæti,
hvað varðar nákvæmni í upphafs-
höggum á PGA-mótaröðinni en
Woods var annar högglengsti kylf-
ingurinn, Singh 16. og Mickelson í
26. sæti.
Dawson segir að líklega verði ein-
faldasta lausnin að setja keppnisvell-
ina upp með þeim hætti að þeir verði
enn erfiðari fyrir þá sem lendi utan
brautar.
Steve Otto, sem starfar á rann-
sóknarstofu R&A, segir að þar á bæ
hafi allar gerðir af golfboltum verið
rannsakaðar á undanförnum árum
en Otto starfaði áður hjá geimferða-
stofnun Bandaríkjanna, NASA. „Við
vildum kanna hvort það væru fram-
leiddir „töfraboltar“ í dag sem fljúga
lengra en áður. Við höfum enn ekki
birt niðurstöður úr þeirri rannsókn
en við höfum einnig framleitt nýja
bolta sem eru stærri og léttari og
fara því ekki eins langt og þeir sem
notaðir eru í dag,“ sagði Otto.
Vellir ekki eins erfiðir og áður
Margir af þekktustu golfvöllum
heims sem notaðir hafa verið á stór-
mótum undanfarin ár eru ekki eins
erfiðir og áður að mati sérfræðinga
einfaldlega vegna þess að kylfingar
geti slegið gríðarlega löng upphafs-
högg og sneitt fram hjá þeim hindr-
unum sem voru áður í vegi þeirra.
Margir hafa einnig bent á það að lík-
amsástand kylfinga sé einnig mun
betra en áður, þeir séu einfaldlega
stærri, sterkari og liðugri.
Tölfræði PGA-mótaraðarinnar
styður ekki kenningu Dawson sem
segir að lítið hafi breyst síðustu þrjú
árin hvað varðar högglengd kylfinga.
Á síðasta ári slógu 26 kylfingar að
meðaltali 274 metra eða lengra í upp-
hafshöggunum. Árið 2004 voru þeir
14 sem náðu þeim árangri, þeir voru
aðeins 9 árið 2003 en John Daly var
sá eini sem sló svo langt á árunum
1999, 2000, 2001 og 2002.
Árið 1998 var Daly högglengsti
kylfingur PGA-mótaraðarinnar með
263 metra að meðaltali en sá árangur
hefði aðeins skilað honum í 98. sæti á
PGA-mótaröðinni á síðasta ári.
Lengra
í dag en
í gær
FORRÁÐAMENN æðstu samtaka golfíþróttarinnar í heiminum, R&A
og bandaríska golfsambandið USGA, hafa ekki náð samkomulagi
um hvort setja þurfi nýjar reglur um gerð og hönnun golfbolta en
margir hafa áhyggjur af því hve langt afrekskylfingar ná að slá nýjar
gerðir af golfboltum.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Wietekur þátt í þessu móti gegn
körlunum en hún hefur tvívegis áður
tekið þátt án þess að komast í gegn-
um niðurskurðinn. Hin 16 ára gamla
Wie hefur fjórum sinnum tekið þátt í
PGA-mótaröðinni í karlaflokki. Árið
2004 var hún einu höggi frá því að
komast í gegnum niðurskurðinn á
Sony mótinu en fyrir ári síðan var
hún langt frá sínu besta og var sjö
höggum frá því að komast áfram. Á
John Deere mótinu í júlí á síðasta ári
var hún tveimur höggum frá því að
komast í gegnum niðurskurðinn.
Wie hefur látið að sér kveða á
kvennamótaröðinni í Bandaríkjunum
og komst hún í gegnum niðurskurð-
inn í fjórða mótinu sem hún tók þátt í
á LPGA-mótaröðinni.
„Ég vona að fjórða mótið mitt á
PGA-mótaröðinni verði eins og það
fjórða á LPGA-mótaröðinni þar sem
ég komst í gegnum niðurskurðinn í
fyrsta sinn. Ég hlakka mikið til,“
sagði Wie en á meðal keppenda á
mótinu er Vijay Singh sem hefur titil
að verja og Ernie Els frá Suður-
Afríku en hann sigraði á þessu móti
2003 og 2004.
Það bendir allt til þess að Wie steli
senunni en margir telja að hún eigi
eftir að leika vel á Waialae vellinum
enda þekkir hún völlinn vel.
Reuters
Michelle Wie á eftir að vera í sviðsljósinu á Hawaii.
Wie gegn
Singh og Els
MICHELLE Wie frá Bandaríkj-
unum verður í kastljósi fjölmiðla
næstu daga en hún hóf keppni í
nótt er leið sem atvinnukona í
golfi á PGA-karlamótaröðinni á
Sony mótinu sem fram fer á
Hawaii – en Wie hefur búið þar
ásamt foreldrum sínum undan-
farin ár.
CARLOS Bianchi, þjálfara Atle-
tico Madrid í spænsku knattspyrn-
unni, var í gær sagt upp starfi sínu. Í
fyrradag hafði verið ákveðið að hann
yrði áfram en stjórnarmenn Atletico
skiptu um skoðun í gær, enda hefur
gengi liðsins verið hörmulegt und-
anfarnar vikur.
ATLETICO tapaði 1:0 á heimavelli
fyrir Zaragoza í bikarnum og kom sá
ósigur í kjölfar níu leikja í röð í deild-
inni án sigurs. Bianchi tók við liðinu í
sumar og var með samning til 2007.
Hann sagðist ekki hafa íhugað að
segja starfi sínu lausu þrátt fyrir að
illa hafi gengið.
PEJA Stojakovic, leikmaður
Sacramento í NBA-deildinni banda-
rísku, verður hugsanlega frá keppni í
einhvern tíma. Hann varð að hætta
leik í þriðja leikhluta gegn Houston í
fyrrinótt vegna bakmeiðsla. Hann er
næststigahæsti leikmaður Kings.
ÞAÐ dugði ekki 76ers að Allen
Iverson gerði 46 stig þegar liðið tók
á móti Utah Jazz í fyrrinótt. Gest-
irnir unnu 110:102 þar sem Mehmet
Okur gerði 25 stig og Andrei Kiri-
lenko 23 fyrir Jazz.
ÞAÐ er jafnan spenna þegar New
York Knicks og Dallas mætast og að
þessu sinni þurfti að framlengja og
hafði Knicks betur, vann 117:115.
Knicks hafði þægilega stöðu um
tíma, var 18 stigum yfir, leikmönnum
Dallas tókst svo að jafna en heima-
menn náðu að sigra í framlenging-
unni. Dirk Nowitzki gerði 32 stig
fyrir Dallas.
KEVIN Garnett gerði 28 stig og
tók 14 fráköst fyrir Minnesota þegar
liðið vann Chicago, 99:93. Þetta var í
500. sinn sem Garnett nær tvöfaldri
tvennu á ferlinum.
KOBE Bryant gerði „aðeins“ 41
stig fyrir LA Lakers þegar liðið tap-
aði 113:103 fyrir Portland. Bryant
hafði gert 45 stig eða meira í síðustu
fjórum leikjum og verður því að bíða
með að ná Wilt Chamerlain, en
kappinn sá gerði 45 stig eða meira í
níu leikjum í röð í nóvember 1962.
RASHARD Lewis var í stuði þeg-
ar Seattle vann Orlando 113:104.
Lewis gerði 45 stig og hefur ekki
gert eins mörg í einum leik í vetur.
Ray Allen var rekinn úr húsi í upp-
hafi annars leikhluta fyrir að slást
við Keyon Dooling.
DWYANE Wade gerði 32 stig og
tók 11 fráköst þegar Miami vann
Golden State í fjórða sinn í röð, núna
110:96. Shaquille O’Neal gerði 21
stig og tók 10 fráköst en hitti aðeins
úr einu af 11 vítaskotum sínum.
PORTSMOUTH gekk í gær frá
kaupum á tveimur leikmönnum frá
Tottenham og sá þriðji, Noe Pam-
arot er líklega á leiðinni á Fratton
Park líka. Þeir sem keyptir voru í
gær eru Pedro Mendes og Sean
Davis og er talið að kaupverðið hafi
veirð um 7,5 milljónir punda. Þre-
menningarnir komu allir til Totten-
ham sumarið 2004 en hafa ekki fest
sig í sessi í liðinu.
HARRY Redknapp, stjóri
Portsmouth, hefur þá eytt um 12
milljónum punda frá áramótum en
hann keypti nýlega Benjani Mwa-
ruwari frá Zimbabwe. Redknapp er
einnig á höttunum eftir pólska lands-
liðsmanninum Emmanuel Olisa-
debe.
JOHN Sivebæk, umboðsmaður
danska knattspyrnumannsins
Thomas Gravesen, segir að á fundi
hans með forráðamönnum Real
Madrid hafi skýrt komið fram að
ekki standi til að selja Gravesen. „Þá
er það komið á hreint og eftir því
verður Gravesen að haga sér,“ sagði
Sivebæk sem segist ekki hafa fengið
neina tryggingu fyrir því að umbjóð-
andi sinn fái fleiri tækifæri með
spænska stórliðinu í framtíðinni en
til þessa.
FÓLK