Morgunblaðið - 14.01.2006, Page 12

Morgunblaðið - 14.01.2006, Page 12
12 lifun Hvað kemur þér fyrst í hug þegar talað er um lýsingu? „Tilfinning fyrir rými. Lýsing og rými eru tengd órjúfanlegum böndum. Það þarf að fá tilfinningu fyrir rýminu sem á að lýsa og skoða þarfirnar á hverjum stað. Mjög gott er að fá sérfræð- ing sér til aðstoðar, sem er með þjálfað auga í þessum efnum. Svo þarf að spyrja sig hvað það er sem rýmið þarf, hvernig stemningu á að skapa. Í mínum huga er mikilvægast að nýta sem best náttúrlegt ljós, dagsljósið, því það er fallegasta lýs- ingin. Best er að hanna rými þannig að náttúrlegt ljós flæði um. Það er sama hversu fræg eða góð hönnun er á ljósinu eða lampanum, það geta engin ljós keppt við náttúrlega lýsingu.“ Hvernig er hægt að nýta sem best dagsljósið í hönnun? „Hér á landi má hafa stóra glugga og þakglugga. Þetta er ekki hægt í heitum löndum þar sem húsin eru líka notuð til þess að skýla fólki fyrir hita. Hér þarf ekki að hafa áhyggjur af því og þess vegna tilvalið að hafa mikla glugga sem hleypa inn dags- birtunni. Á landi þar sem dagsljós er lítinn hluta af árinu, er ein- spurt og svarað lýs ing snýst l íka um myrkur Ítalski arkitektinn Massimo Santanicchia hefur búið og starfað hér frá því 2000. Hann lærði arkitektúr í Feneyjum og sérhæfði sig síðan í borgarhönnun í London. Massimo kennir arkitektúr og hönnun við Listaháskóla Ís- lands og vinnur sem arkitekt á eigin vegum. Um þessar mundir vinnur hann að verkefnum hjá Teiknistofu Ingimundar Sveinssonar. Lifun leit í heimsókn til Massimos og fékk góð ráð varðandi lýsingu og rými. Te xt i S ig rú n Sa nd ra Ó la fs d ó tt ir. L jó sm yn d ir A rn al d ur H al ld ó rs so n. D30 Boxer Color - lampinn sk ipt i r l i tum og hér er samsett mynd af sama rými í ó l íkr i b i r tu lampans. Kvöldroðinn er hönnun Mass imos s já l f s . T i tan ia f rá Luceplan.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.