Morgunblaðið - 14.01.2006, Side 18

Morgunblaðið - 14.01.2006, Side 18
18 lifun Þegar hús er hannað frá a–ö borgar sig að leggja út frá einni heildarhugmynd, „konsepti“ eða línu eins og Baldur Svavarsson kallar það þegar hann gengur með blaðamanni um húsið og lýsir á lif- andi máta framkvæmdunum sem þar hafa átt sér stað. Þetta hús í Garðabænum var tilbúið árið 2002, en hafði þá verið tæpt ár í byggingu eftir u.þ.b. eins árs hönnunarferli. Húsráðendur höfðu áður séð verk Baldurs og kom því enginn annar til greina af hálfu fjölskyld- unnar sem arkitekt að þessu tvílyfta húsi í hraun- jaðrinum þar sem hreinar línur að utan sem inn- an mynda látlausa umgjörð um íbúana og innbú þeirra. Mikil og falleg náttúrusýn yfir næsta ná- grenni , sem m.a. heillaði meistara Jóhannes Kjarval og finna má í sumum mynda hans, kallaði enn fremur fram óskir húsráðenda um að geta notið útsýnisins sem best og því var ákveðið að hafa stóra glugga frá gólfi og upp í loft í miðrými hússins, bæði á efri og neðri hæð. Sú hönnun féll líka vel að hugmyndum húsráð- enda og arkitekts um létt og opið miðrými í byggingunni – sem þjónaði hlutverki sameig- inlegs fjölskyldusvæðis og væri fyrir vikið n.k. hjarta hússins. Með opnu miðrými var líka auð- velt að verða við þeim óskum fjölskyldunnar að unglingarnir hefðu séraðstöðu fyrir sig. Her- bergjum þeirra var einfaldlega komið fyrir á neðri hæð hússins öðrum megin miðrýmisins en hjónaherberginu hinum megin og byggingin þannig sniðin að þörfum fjölskyldunnar. Sjálfur lýsir Baldur húsinu þannig að það sé hugsað sem létt og opið í rými í miðju þar sem stórir gluggar veiti því mikinn léttleika. Þar séu líka sameiginlegu rýmin, annars vegar stofan á efri hæð og svo fjölskyldusvæðið á þeirri neðri. Á þessum opnu svæðum er svo öllu óþarfa snúruflóði forðað með því að koma rafmagns- innstungum haganlega fyrir í gólfinu. Til mót- vægis við opnu rýmin eru hliðarherbergin hins innlit Það er draumaverkefni hvers arkitekts að fá að hanna við- fangsefnið frá grunni og fylgja verkefninu eftir allt frá fyrsta hugmyndaneista að framkvæmdalokum. Þannig verk- efni fékk Baldur Svavarsson hjá Arkitektar Úti og inni þeg- ar hann var fenginn til að hanna einbýlishús fyrir fjöl- skyldu í Garðabænum. Verkefnið fólst í því að hanna húsið frá a–ö, jafnt að utan sem innan. Lifun fékk að líta á stór- kostlegt útsýnið yfir hraunið og virða fyrir sér hús sem hannað var í kringum eigendurna. Te x ti S ig rú n S a n d ra Ó la fs d ó tt ir . L jó sm y n d ir A rn a ld u r H a ll d ó rs so n . kjarvalssýn úr gluggunum

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.