Morgunblaðið - 14.01.2006, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 14.01.2006, Blaðsíða 20
20 lifun vegar verið hugsuð sem lokaðri „kassar“, meira prívat, með þyngra yfirbragði og þar af leiðandi minni gluggum. En „kassarnir“ geyma svo auk svefnherbergja á neðri hæð eldhús, borðstofu og vinnuherbergi á þeirri efri. Þannig myndast líka skemmtilegt jafnvægi í hönnuninni, sem heldur sér jafnt utan húss sem innan og fyrir vikið nær línan sem heildarhugsun hússins byggist á að liggja eins og rauður þráður í gegnum hönn- unina. Það er líka, eins og Baldur segir, að þegar línan er skýr þá er auðveldara að svara þeim vangaveltum sem komið geta upp í hönnunar- og byggingarferlinu. Í slíkum tilfellum borgar sig einfaldlega að spyrja húsið, eins og Baldur kallar það, því svarið lætur yfirleitt ekki á sér standa. innlit Eldhúsið og borðstofan eru í einu rými og þar er líka fallegur horngluggi með glæsilegu útsýni. Í eyjunni eru for- steyptar einingar með svörtu graníti í borðplötunni en innréttingin er úr hlyn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.