Morgunblaðið - 14.01.2006, Blaðsíða 26
sælkera
hol lusta
Margir byrja árið á fögrum fyrirheitum
um nýtt og betra líf og strengja jafnvel
áramótaheit um hollara mataræði. Það
getur líka verið bæði auðvelt og spenn-
andi að gera góðan og hollan mat og óþarfi
að lifa á einhæfu meinlætafæði. Hollur
matur á að vera fjölbreyttur sem og gleði
fyrir munn, skynfæri og maga.
Te
x
ti
H
e
ið
a
B
jö
rg
H
il
m
is
d
ó
tt
ir
.
L
jó
sm
yn
d
ir
A
rn
a
ld
u
r
H
a
ll
d
ó
rs
so
n
.
Pasta með gómsætri spínatsósu
fyrir 4
250 g spagettí, gjarnan heilhveiti
1 laukur, smátt skorinn
5 hvítlauksgeirar
150 g skinka, skorin í bita
600 g frosið spínat
3 msk. sýrður rjómi, 18%
1 dl grænmetiskraftur
1 dl rifinn parmesanostur
salt og pipar
Sjóðið spagetti „al dente“ eða þar til það er enn smá stíft viðkomu. Gerið sósuna á
meðan. Hitið olíu í potti og steikið smátt skorinn lauk. Bætið út í hvítlauk, skinku og
spínati og látið jafna sig saman. Hrærið þá sama við sýrðum rjóma, grænmetiskrafti
og parmesan og látið hitna í gegn við vægan hita.
Þetta er skyndibiti sem uppfyllir kröfur um hollustu, litagleði og gott bragð.
matur