Morgunblaðið - 14.01.2006, Síða 27

Morgunblaðið - 14.01.2006, Síða 27
Litaglatt linsusalat fyrir 4 4 dl soðnar rauðar linsur, kældar 2 stilkar fersk basilíka 10 stk. sólþurrkaðir tómatar, smátt skornir 2 dl baunaspírur, t.d. mung eða alfa alfa 1 pakki blandað salat 2 dl Léttfeti, fetaostur 5% dressing: 2 msk. balsamedik 4 msk. ólífuolía salt og svartur pipar Sjóðið linsurnar í létt söltu vatni í 10 mínútur, látið renna af þeim og kælið. Blandið dress- inguna og hellið yfir linsurnar. Bætið síðan sól- þurrkuðum tómötum, basilíku og baunaspírum út í og smakkið til með salti og pipar. Setjið ferskt salat á disk, linsurnar yfir og efst fetaost og ferskt krydd. Berið fram með grófu brauði. Þetta salat má líka setja í box og taka með sem nesti. Nota má feitari fetaost, en sé hugsað um holl- ustuna þá er þessi 5% fetaostur kærkomin og bragðgóð nýjung. matur Magnað salat með maríneruðu tófú fyrir 4 300 g tófú 5 cm biti ferskt engifer 4 msk. sojasósa, kikkoman 1 poki klettasalatblanda 3 tómatar, sneiddir 1 gul paprika, skorin í sneiðar 1 dl baunaspírur ½ dl ristuð sesamfræ Skerið tófú í sneiðar. Afhýðið engifer og rífið á fínu rif- járni og blandið saman við sojasósuna. Hellið yfir tófú- sneiðarnar og látið marínerast í a.m.k. 10 mínútur. Blandið grænmetinu saman á meðan og setjið á diska eða í skál. Leggið tófúsneiðarnar ofan á ásamt mariner- ingunni og stráið að síðustu sesamfræjum yfir.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.