Morgunblaðið - 14.01.2006, Page 28

Morgunblaðið - 14.01.2006, Page 28
28 lifun Fiskbollur kryddaðar með austurlenskum kryddjurtum fyrir 4 Fars: 500 g soðin þorskflök 2 egg 2 tsk. herbamare-salt 1 msk. karrí ½ tsk. möluð múskathneta 1 tsk. pipar 1 gulrót, fínt rifin ½ dl kókosmjólk olía til steikingar Hrærið saman, fisk, egg og krydd í matvinnsluvél eða hrærivél. Rífið gulrótina fínt og hrærið saman við ásamt kókosmjólkinni. Látið farsið bíða í u.þ.b. klukkustund í kæli. Hit- ið olíu á pönnu og steikið bollur úr farsinu í fimm mínútur. Berið fram með kryddjurtasósu (sjá uppskrift að neðan), hrísgrjónum, salati eða kartöflum. Það er einfalt að gera þessar bollur, þar sem notaður er soðinn fiskur þá eru þær tilbúnar leið og þær eru steiktar. Hér má gjarna prófa sig áfram með ýmiskonar krydd í stað karrís og múskats. Kryddjurtasósa 4 dl sýrður rjómi, 10 % 2 límónur, rifið hýði 1 límóna, safi 2 msk. ferskt dill 4 msk. steinselja Hrærið öllu saman sem á að fara í sósuna og látið standa um stund. Berið fram með fiskbollum eða sem dressingu með hrásalati. matur

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.