Morgunblaðið - 19.01.2006, Qupperneq 9
hæft.“ Kata segist þó alltaf hafa
gaman af því að spila á tónleikum
en það sé kannski ekki alveg eins
spennandi og það var í byrjun. „Það
er svo mikið af því á Íslandi að fólk sé
bara að fá sér bjór og spjalla meðan á
tónleikum stendur,“ segir Kata. „Allir
eru bara að drekka sig fulla á tón-
leikum, sem er svo sem ekkert skrýtið
þar sem flest giggin sem maður fær
eru á börum. Þó að við séum ung
hljómsveit og allt það þá langar mann
ótrúlega að prófa að fá ferska áhorf-
endur.“ „Það var reyndar svolítið
ferskt að spila á Airwaves,“ segir ein-
hver.
Tólf ára Sykurmolar
Það var mikið talað um frammistöðu
Mammúts á Airwaveshátíðinni síð-
kert skrýtið þar sem flest giggin sem maður fær eru á börum
9
VIÐTALIÐ
ustu. Það er sérstaklega minnisstætt
þegar David Fricke, einn af ritstjórum
Rolling Stone, lýsti yfir hrifningu sinni
á hljómsveitinni eftir að hafa heyrt
hana spila í Smekkleysubúðinni.
„Þeir tónleikar heppnuðust auðvitað
ekki næstum eins vel og þegar við spil-
uðum á Grand rokk daginn eftir,“ seg-
ir Gunna. Tónleikarnir á Grand rokk
vöktu sem fyrr segir mikla lukku og í
kjölfarið fengu þau mjög jákvæða
umfjöllun hjá innlendum sem erlend-
um fjölmiðlum. Nýlega birti tónlist-
arvefsíðan playloud.com airwaves-
umfjöllun þar sem tónleikum
Mammúts eru gerð mjög góð skil. Þar
líkir greinarhöfundur sveitinni við Syk-
urmolana í upphafi ferilsins og dáist
sérstaklega að kraftmikilli söngrödd
Kötu. Hann segir að „þessir krakkar
sem eru í mesta lagi tólf ára gamlir“
búi yfir afar ferskum og óhefð-
bundnum hljómi og auk þess fallega
undarlegum en jafnframt fullkomlega
tónréttum melódíum sem maður fær
á heilann.
Það er því töluvert tilhlökkunarefni að
frumburður Mammúts skuli vera að
líta dagsins ljós og hægt verður að
hlusta á þessa skemmtilegu tónlist-
arlegu samsuðu í pródúsjón Bibba
Curvers. Eftir tveggja ára bið eftir
plötunni er upphafið á ferli hljóm-
sveitarinnar loksins á enda og það á
eftir að verða afar spennandi að fylgj-
ast með því hvað framtíðin ber í skauti
sér fyrir þau.
Þess má geta að Mammút mun spila á
Gauk á Stöng á föstudagskvöld.
1 1.
Gunna og Alexandra í
Mammút á Airwaves í
fyrra.
Mynd
Hörður Sveinsson