Morgunblaðið - 21.02.2006, Blaðsíða 2
ÍÞRÓTTIR
2 B ÞRIÐJUDAGUR 21. FEBRÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ
KR og norska liðið Brann skildu jöfn, 1:1, á æfingamót-
inu í knattspyrnu á La Manga á Spáni í gær. Brann náði
forystu á 21. mínútu með marki frá Migen Memelli en
skömmu áður hafði einum leikmanni Brann verið vikið
af velli. Björgólfur Takefusa jafnaði metin fyrir KR-
inga með þrumuskoti á 40. mínútu og þar við sat.
Johan Thorbjørnsen markvörður Brann sá til þess að
KR-ingar skoruðu ekki fleiri mörk. Hann varði hvað
eftir annað meistaralega meðal annars vítaspyrnu frá
Garði Jóhannssyni þegar skammt var til leiksloka.
Ólafur Örn Bjarnason og Kristján Örn Sigurðsson
léku báðir allan leikinn fyrir Brann en þjálfari KR-
inga, Teitur Þórðarson, var við stjórnvölinn hjá norska
liðinu 1988-1990 og aftur 2000-2002.
,,Ég held að þetta hafi verið sanngjörn úrslit en
vissulega var sárt að ná ekki að skora úr vítinu. En í
heildina léku strákarnir ágætlega og við höfum verið
virkilega ánægðir með þessa ferð,“ sagði Sigurður
Helgason, framkvæmdastjóri KR-Sport, við Morgun-
blaðið en hann fylgdist með leiknum.
KR nýtti ekki víta-
spyrnu gegn Brann
ALDA Leif Jónsdóttir og félagar hennar hjá hollenska
liðinu Den Helder, eða Yellow Bikes Amsterdam, tap-
aði fyrsta leik sínum í úrvalsdeildinni á laugardaginn
þegar liðið heimsótti Landslake Lions. Lokatölur urðu
71:59 eftir að staðan í leikhléi hafði verið 38:26. Heima-
menn höfðu undirtökin alveg frá upphafi leiks, voru
17:8 yfir eftir fyrsta leikhluta og tólf stigum yfir fyrir
síðasta leikhluta.
Alda Leif gerði fimm stig í leiknum en Den Helder er
enn í efsta sæti deildarinnar þrátt fyrir tapið, en liðið
er með 28 stig eftir fimmtán umferðir. Landslake Lions
er í öðru sæti með 24 stig eftir fimmtán leiki.
Um næstu helgi verður körfuboltahátíð í Hollandi og
á sunnudaginn verður stjörnuleikurinn í kvennakörf-
unni þar sem Alda Leif verður meðal keppenda, en hún
var valin í annað liðið. Hlynur Bæringsson, sem leikur
með Woon!Aris í hollensku karladeildinni verður einn-
ig á ferðinni um helgina því hann er, líkt og Alda Leif, í
úrvalsliði norðursins, en í því liði eru tveir leikmenn
Woon!Ariss, Hlynur og Tim Withworth.
Fyrsta tap Öldu og
félaga í Hollandi
ALAN Smith, miðjumaður Man-
chester United, sem fótbrotnaði í
leik United og Liverpool á
laugardaginn, vonast til að ná
fullum bata. Smith brotnaði afar
illa á ökklanum auk þess sem
hann fór úr ökklalið og gekkst
hann undir aðgerð í fyrradag.
Læknar reikna með að Smith
verði frá keppni í níu mánuði.
,,Þegar ég sá hvernig fóturinn
lá og ökklinn sneri í áttina að
Hong Kong þá vissi ég að þetta
væri alvarlegt,“ sagði Smith í
samtali við breska blaðið The
Sun í gær.
,,Eftir að hafa rætt við lækna
þá er ég bjartsýnn á að ná fullum
bata. Nú er búið að gera aðgerð
og síðan tekur við endurhæfing,“
sagði Smith.
Fjöldinn allur af leikmönnum í
úrvalsdeildinni hafa sent Smith
góðar batakveðjur, bæði sam-
herjar og mótherjar, þar á meðal
Djibril Cisse, sóknarmaður
Liverpool, sem fótbrotnaði í leik
með Liverpool á síðustu leiktíð.
,,Eftir leikinn hélt ég beinustu
leið inn til búningsherbergis
Manchester United. Ég vildi
hitta hann og segja honum hug
minn. Ég reyndi að stappa í hann
stálinu. Þetta lítur út fyrir að
hafa verið slæmt brot en hann
hefur alla burði til að ná sér og
koma sterkari til baka,“ sagði
Cisse við The Sun.
Alan Smith vonast til
að ná fullum bata
JER
víku
inu o
kom
sagð
Grin
Wats
gerð
köst
dór a
síðan
upp
mín
og sa
lagss
að ta
inn a
tilky
samb
strax
– bik
á mó
henn
unum
úrsli
hann
öðru
„Þ
það í
dór s
inu á
ir úr
Un
um e
Grin
Brei
valið
Fimm af liðunum átta sem verða íeldlínunni í kvöld hafa lyft Evr-
ópubikarnum, Bayern München, AC
Milan, Benfica, Real Madrid og Liv-
erpool sem vann eftirminnilega sigur
á AC Milan í úrslitaleik á síðustu leik-
tíð.
Eftir að hafa mætt Chelsea og Ars-
enal síðustu tvö keppnistímabilin í 16
liða úrslitum Meistaradeildarinnar
mætir Bayern München liði AC Mil-
an. Þetta er í fjórða sinn sem liðin eig-
ast við á Evrópumótunum og hafa
Ítalirnir farið með sigur af hólmi í öll
þrjú skiptin, í meistaradeildinni
1989–90 og 2002–03 og í Evrópu-
keppni bikarhafa 1967–68. Í leikjun-
um sex hafa Bæjarar aðeins unnið
einn sigur.
Felix Magath þjálfari Bayern von-
ast til að sjúkraþjálfarar liðsins nái að
tjasla Oliver Kahn markverði saman
en fyrirliðinn meiddist í viðureign
Bæjara og Hannover á laugardag og
er tæpur fyrir leikinn í kvöld.
,,Ég held í vonina um að Kahn spili
því hann er mikilvægur hlekkur í
okkar liði,“ sagði Magath en allir aðr-
ir leikmenn hans eru klárir í slaginn.
Milan-menn sakna reynslubolt-
anna Paolo Maldini og Cafu sem báð-
ir eru á sjúkralistanum en liðið hefur
endurheimt Jaap Stam og sóknar-
manninn skæða Andriy Shevchenko
úr meiðslum.
,,Ég hef engar áhyggjur af vörn-
inni. Hún hefur staðið sig vel í síðustu
leikjum,“ segir Carlo Ancelotti þjálf-
ari AC Milan.
Líkleg byrjunarlið:
Bayern: Olvier Kahn - Willy Sagn-
ol, Lucio, Valerien Ismael, Bixente
Lizarazu - Bastian Schweinsteiger,
Michael Ballack, Martin Demichelis,
Ze Roberto - Claudio Pizarro, Roy
Makaay.
AC Milan: Dida - Jaap Stam, Aless-
andro Nesta, Kakha Kaladze, Serg-
inho - Gennaro Gattuso, Andrea
Pirlo, Clarence Seedorf, Kaka - Andr-
iy Shevchenko, Alberto Gilardino.
Alonso með Liverpool
Liverpool heldur áfram titilvörn-
inni í Lissabon í kvöld en þá mæta
Evrópumeistararnir liði Benfica sem
sló Manchester United út í keppninni.
,,Við eigum fyrir höndum mjög erf-
iðan leik. Benfica er eitt besta liðið í
Portúgal sem skorar mikið af mörk-
um í portúgölsku deildinni. Það er
mikil reynsla í mínu liði og við ætlum
að reyna að stjórna ferðinni og að
skora sem er svo mikilvægt á úti-
velli,“ segir Rafael Benítez þjálfari
Liverpool sem endurheimtir Spán-
verjann Xabi Alonso í hópinn en hann
missti af leiknum gegn Manchester
United um helgina vegna meiðsla.
Fyrsta rimma Real
Madrid og Arsenal
Nífaldir Evrópumeistarar Real
Madrid og Arsenal mætast í fyrsta
sinn í Evrópuleik á Santiago Berna-
beu-vellinum í Madrid. Bæði lið hafa
átt á brattann að sækja í heimalönd-
um sínum og líta á Meistaradeildina
sem tækifæri til að bjarga tímabilinu.
Arsenal hefur verið í frjálsu falli und-
anfarnar vikur og er sem stendur í
fimmta sæti í ensku úrvalsdeildinni á
meðan Madridingar hafa verið að
rétta úr kútnum og hafa unnið sex
leiki í röð.
,,Það er góður skriður á okkar liði
og vonandi tekst okkur vel upp gegn
Arsenal. Okkur hefur gengið mjög
vel á heimavelli og þjálfarinn hefur
blásið nýju lífi í leik liðsins. Í þrjú ár
hef ég beðið eftir því að mæta ensku
liði í Evrópukeppninni og ég er því af-
ar spenntur að fá að glíma við Arsenal
og sérstaklega í síðari leiknum í
London þar sem ég er fæddur,“ segir
David Beckham. Fái enski landsliðs-
fyrirliðinn hins vegar spjald í leiknum
í kvöld tekur hann út bann í leiknum á
Highbury.
Arsene Wenger, stjóri Arsenal,
þarf enn að glíma við að margir varn-
armenn liðsins eru frá vegna meiðsla
en Sol Campbell, Ashley Cole, Kerra
Gilbert, Lauren og Pascal Cygan eru
allir meiddir. ,,Ég vildi auðvitað hafa
alla þessa menn klára en svo er ekki.
Við munum ekki hafa þetta sem neina
afsökun. Ég hef trú á mínu liði og það
getur vel lagt Real Madrid að velli,“
segir Arsene Wenger.
Líkleg byrjunarlið:
Real Madrid: Iker Casillas - Cic-
inho, Sergio Ramos, Jonathan Wood-
gate, Roberto Carlos - Thomas
Gravesen, David Beckham, Zinedine
Zidane, Guti - Robinho, Ronaldo.
Arsenal: Jens Lehmann - Emm-
anuel Eboue, Kolo Toure, Philippe
Senderos, Matheiu Flamini - Robert
Pires, Gilberto, Cesc Fabregas,
Freddie Ljungberg - Thierry Henry,
Jose Antonio Reyes.
Nær Lyon að hefna
ófaranna frá í fyrra?
Lyon hyggur á hefndir gegn PSV
en liðin eigast við á Phillips-vellinum í
Eindhoven í kvöld. Félögin áttust við
í 8 liða úrslitum keppninnar á síðustu
leiktíð og þar hafði PSV betur í víta-
keppni. Lyon er talið sigurstrang-
legra í þessari viðureign enda hefur
PSV misst nokkra sterka leikmenn úr
sínum röðum, til að mynda Park Ji-
Sung, Mark van Bommel og Johann
Vogel.
,,PSV er búið missa nokkra af sín-
um bestu leikmönnum en það þýðir
ekki endilega að lið þeirra sé ekki eins
gott og á síðasta tímabili. Lið undir
stjórn Guus Hiddink eru jafnan mjög
líkamleg sterk og erfið við að eiga,“
segir Mahamadou Diarra, miðjumað-
ur Lyon.
G
Eftir
skuli@
SKÍÐI
Bikarmót SKÍ, Ísafirði:
Stórsvig karla:
Þorsteinn Ingason, Akureyri ............2.00,53
Snorri Páll Guðbjörnss., Akureyri....2.01,24
Steinn Sigurðsson, Ármanni .............2.03,03
Svig karla:
Snorri Páll Guðbjörnss., Akureyri....1.24,70
Gísli Rafn Guðmundsson, Ármanni ..1.28,15
Jón Viðar Þorvaldsson, Akureyri .....1.29,29
Stórsvig kvenna:
Salome Tómasdóttir, Akureyri .........2.07,94
Agla Gauja Björnsdóttir, Ármanni...2.09,02
Íris Guðmundsdóttir, Akureyri ........2.09,87
Svig kvenna:
Salome Tómasdóttir, Akureyri .........1.40,65
Agla Gauja Björnsdóttir, Ármanni...1.42,99
Ásta Björg Ingadóttir, Akureyri ......1.45,11
Sprettganga karla:
Ólafsfirði:
Andri Steindórsson, Akureyri ...............3,12
Helgi Heiðar Jóhannesson, Akureyri ...3,34
Jóhannes Kárason, Akureyri .................3,35
10 km karla - frjáls aðferð:
Andri Steindórsson, Akureyri..............33,25
Hefðbundin aðferð:
Andri Steindórsson, Akureyri..............16,32
Sigurgeir Svavarsson, Ólafsfirði..........18,24
Jóhannes Kárason, Akureyri ...............19,50
KNATTSPYRNA
La Manga bikarinn
KR – Brann............................................... 1:1
Björgólfur Takefusa 40. – Memelli 21.
Krylya Sovetov – Tromsö....................... 1:1
Lokastaðan:
Krylya Sovetov 3 2 1 0 6:3 7
Tromsö 3 1 2 0 5:4 5
Brann 3 0 2 1 4:5 2
KR 3 0 1 2 3:6 1
KR mætir Odd Grenland frá Noregi í leik
um 7. sætið á fimmtudag.
ÓLYMPÍULEIKARNIR
KARLAR:
Stórsvig:
Benjamin Raich, Austurríki ............. 2:35,00
Joel Chenal, Frakklandi ................... 2:35,07
Hermann Maier, Austurríki............. 2:35,16
Björgvin Björgvinsson og Kristján Uni
Óskarsson féllu í fyrri ferð.
Krulla:
Sviss – Ítalía............................................ 10:2
Nýja-Sjáland – Þýskaland..................... 1:10
Kanada – Bandaríkin ............................... 6:3
KONUR
Risasvig:
Michaela Dorfmeister, Austurríki ... 1:32,47
Janica Kostelic, Króatíu ................... 1:32,74
Alexandra Meissnitzer, Austurríki.. 1:33,06
Dagný Linda Kristjánsdóttir varð í 23.
sæti á 1:34,56 en 51 af 56 lauk keppni.
Íshokkí:
Úrslitaleikur: Svíþjóð – Kanada ............. 1:4
3.-4. sæti: Finnland – Bandaríkin ........... 0:4
5.-6. sæti: Þýskaland – Rússland ............ 1:0
7.-8. sæti: Sviss – Ítalía .......................... 11:0
Krulla:
Svíþjóð – Rússland ................................... 4:6
Danmörk – Noregur ................................ 1:8
Ítalía – Japan ............................................ 4:6
Danmörk – Kanada .................................. 8:9
Sviss – Japan........................................... 11:5
Noregur – Rússland............................... 8:10
Bandaríkin – Bretland ........................... 4:10
ÚRSLIT
KÖRFUKNATTLEIKUR
1. deild karla
Kennaraháskólinn: ÍS - Drangur..............19
KNATTSPYRNA
Faxaflóamót kvenna
Stjörnuvöllur: Breiðablik - Stjarnan ...18.30
Norðurlandsmót, Powerade-mótið
Boginn: KA - Tindastóll ........................19.15
Í KVÖLD
Thierry Henry, fyrirliði Arsenal, fagnar hér marki ásamt hinum
unga Emmanuel Adebayor. Þeir verða í sviðsljósinu í Madríd.
Vængbrotið lið
Arsenal í Madríd
KEPPNI í Meistaradeild Evrópu í knattspyrnu hefst á nýjan leik í
kvöld en þá verða leiknir fjórir fyrri leikirnir í 16 liða úrslitum
keppninnar. Bayern München tekur á móti AC Milan, Benfica og
Liverpool eigast við í Lissabon, PSV og Lyon leika í Eindhoven og í
Madrid taka heimamenn í Real Madrid á móti Arsenal.