Morgunblaðið - 01.03.2006, Blaðsíða 1
2006 MIÐVIKUDAGUR 1. MARS BLAÐ C
HANDKNATTLEIKUR: HÖRÐ BARÁTTA FRAMUNDAN / C6, C7
STEFÁN Arnaldsson og Gunnar Viðarsson
handknattleiksdómarar standa í ströngu þessa
dagana. Þeir eru nýkomnir heim frá Sviss þar
sem þeir dæmdu í úrslitakeppni Evrópumóts
karlalandsliða. Á laugardaginn dæma þeir síð-
ari leik Flensburg og Kiel í 8 liða úrslitum
Meistaradeildar Evrópu og þá fengu þeir boð
frá dómaranefnd evrópska handknattleiks-
sambandsins í gær um að þeir eigi að dæma síð-
ari viðureign Hypo Niederösterreich frá
Austurríki og danska liðsins Ålborg í 8 liða
úrslitum Meistaradeildar kvenna sem fram fer í
Vín í Austurríki hinn 19. þessa mánaðar. Þá
verða þeir félagar á meðal dómarapara sem
dæma munu á Paris Bercy-mótinu sem haldið
verður í París í Frakklandi en þar keppa ný-
krýndir Evrópumeistarar Frakka, Þjóðverjar,
Tékkar og Danir.
Stefán og Gunnar
standa í ströngu
B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N AB L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A
Það vantar bara smáherslumun.Við náðum góðum spilköflum
og þurfum að lengja þá en það er
erfitt að ætlast til þess, eftir að hafa
æft í einn klukkutíma fyrir leik, að
allt smelli strax saman. Það þarf
meiri tíma, menn spila hver í sínu
landinu og þurfa að koma oftar sam-
an til að búa til gott lið.
Það er langt í Evrópukeppnina og
þetta var gott verkefni fyrir okkur,
verðugir andstæðingar með góða
leikmenn. Nú er bara að þjappa
þessu betur saman. Ég er ánægður
með baráttu okkar manna, við lögð-
um okkur allir fram og vorum stað-
ráðnir í að vinna leikinn, og héldum
áfram fram á síðustu mínútu. Það
var jákvætt, það gáfu allir allt sem
þeir gátu þrátt fyrir að flestir séu í
hörðu prógrammi með sínum fé-
lagsliðum, og voru tilbúnir til að
leggja sig fram fyrir félagana og
þjálfarann,“ sagði Grétar Rafn.
Um mörkin tvö sem liðið fékk á
sig sagði Grétar Rafn að fyrst og
fremst hefði verið um smásam-
skiptaörðugleika að ræða. „Þetta
kemur ekki fyrir aftur, við lærum af
mistökunum, auk þess sem þetta
var varla víti sem þeir fengu. Það
skipti þó ekki máli þegar upp var
staðið fyrst við náðum ekki að
skora. En við eigum mikið inni og
ég hef engar áhyggjur. Við vorum
óheppnir í öllum þessum uppstilltu
atriðum sem við fengum. Það vant-
aði lítið upp á, við erum komnir með
stóra menn, eins og Ívar, og þá Jóa
Kalla og Emil með frábærar send-
ingar. Auðvitað þarf að æfa þetta
betur en það er erfitt að koma því
við þegar undirbúningurinn er að-
eins klukkutími fyrir leik. En við er-
um með stóra og sterka leikmenn
og föstu leikatriðin eiga að vera
veigamikill þáttur í okkar leik.
Síðan vantaði oft lítið upp á að við
slyppum í gegn þegar við spiluðum
okkur í gegnum vörnina hjá þeim og
þegar það smellur skorum við
mörk,“ sagði Grétar Rafn Steinsson.
Íslenska landsliðið í knattspyrnu mátti sætta sig við tap fyrir Trínidad og Tóbagó í London
„Vantaði herslumun“
NEI, þetta fór ekki eins og við vonuðumst eftir en það er hægt að
taka út góða punkta úr þessum leik og byggja á þeim. Það er enn
langt í næstu keppni og maður fann greinilega að liðið á mikið inni.
Leikmenn lögðu sig fram og þetta er bara spurning um að spila
fleiri leiki áður en undankeppnin hefst og ná betri úrslitum,“ sagði
Grétar Rafn Steinsson við Morgunblaðið eftir ósigurinn gegn
Trínidad og Tóbagó á Loftus Road í London í gærkvöldi, 2:0.
Víðir Sigurðsson skrifar frá London
vs@mbl.is
Morgunblaðið/Kristinn
FH-ingurinn Emil Hallfreðsson lék í fyrsta sinn í byrjunarliði íslenska landsliðsins í gær á Loftus Road í London í 2:0 tapleik gegn Trínidad og Tóbagó.
■ Erum of lengi/C2
■ Eyjólfur þarf/C4