Morgunblaðið - 01.03.2006, Page 3

Morgunblaðið - 01.03.2006, Page 3
KNATTSPYRNA MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. MARS 2006 C 3 SVEN Göran Eriksson, þjálfari enska landsliðsins í knattspyrnu, segist ekki hafa tekið sjálfur þá ákvörðun að hætta þjálfun liðsins eftir heimsmeistaramótið í sumar í Þýskalandi. Hann segir að ákveðnir aðilar hafi lagt hart að sér að hætta störfum eftir HM og í raun hafi hann verið þvingaður til uppsagnar. Á fundi með frétta- mönnum í dag var Eriksson spurður hvort það kæmi til greina að hann myndi skipta um skoðun eftir HM í sumar og halda áfram þjálfun liðsins. „Ég tók ekki þessa ákvörðun sjálfur, ég hlustaði aðeins á það sem mér var sagt að gera. Ég hafði ekkert um málið að segja,“ sagði Eriksson. Í fréttatilkynn- ingu sem enska knattspyrnu- sambandið sendi frá sér í janúar segir m.a. að Eriksson hafi talið rétt að taka ákvörðun um fram- tíðaráform sín áður en HM í knattspyrnu hæfist og var honum og ráðgjöfum hans þakkað fyrir frábært samstarf í því ferli er tekin var ákvörðun um framtíð hans sem landsliðsþjálfara. Þvinguðu Eriksson til uppsagnar Grétar Rafn kom til Skagamanna17 ára gamall frá Siglufirði þar sem hann hafði leikið með meistara- flokki KS frá 15 ára aldri. Góður Skagamaður sagði mér að til að byrja með hefðu ekki verið bundnar sérstakar væntingar við piltinn, sem aftur á móti hefði vitað nákvæmlega hvað hann vildi og hvað hann ætlaði sér. „Grétar sagði strax að markmið- ið væri að komast í lið hjá ÍA, síðan í 21-árs landsliðið, verða atvinnumað- ur og komast í A-landsliðið. Hann var með sín markmið á hreinu,“ sagði Skagamaðurinn. Og það er ekki hægt að segja ann- að en að Grétari hafi tekist ætlunar- verkið. Hann var fastamaður í Skagaliðinu frá 18 ára aldri og síðan hefur allt gengið eftir, í réttri röð. Fyrsta A-landsleikinn lék hann snemma árs 2002, gegn sjálfum Brasilíumönnum á útivelli, og náði þá að skora mark Íslands í 1:6 ósigri. Ekki gekk þó allt áfallalaust því síðsumars 2003 sleit Grétar kross- band í hné og var því allan næsta vet- ur í endurhæfingu en kom eftir sem áður sterkur til leiks með ÍA vorið 2004. Landsleik númer tvö lék hann gegn Króatíu í mars 2005, sem vara- maður, en hefur frá þeim tíma verið í byrjunarliði Íslands í öllum leikjum. Hlutirnir hafa gerst hratt Grétar Rafn sagði í spjalli við Morgunblaðið á hóteli landsliðsins í London að það væri óhætt að segja að draumar sínir hefðu ræst á mjög skömmum tíma. „Það var nógu stórt skref fyrir mig að fara frá Íslandi til Sviss en það var enn stærra að fara frá Sviss til Hollands og ég er mjög ánægður með hversu mörg tækifæri ég hef fengið strax í byrjun hjá félaginu. Hlutirnir hafa gerst mjög hratt hjá mér, fyrir tveimur og hálfu ári síðan var ég bara í endurhæfingu í lyft- ingasalnum en núna er ég að spila með landsliðinu og með toppfélagi í Evrópu.“ Félagið á mikla framtíð fyrir sér Alkmaar, frá samnefndum bæ skammt frá Amsterdam, er í þriðja sæti hollensku úrvalsdeildarinnar, á eftir PSV og Feyenoord. Grétar kveðst kunna afar vel við sig hjá fé- laginu. „Já, þetta er klúbbur á mik- illi uppleið, er með frábæran þjálf- ara og mjög góða leikmenn. Aðstaðan er til fyrirmyndar og liðið spilar góðan fótbolta. Ég sé þetta sem lið sem eigi mikla framtíð fyrir sér. Það er mjög gott fólk sem starf- ar í kringum liðið og hefur unnið lengi að því markmiði að koma því í fremstu röð. Það eru fjársterkir að- ilar á bakvið félagið og það er komið með einn besta þjálfara heims, Lou- is Van Gaal.“ Jói Kalli verður fullkominn fyrir okkur Íslendingunum í Alkmaar fjölgar um helming í sumar því félagið hef- ur samið við Jóhannes Karl Guð- jónsson til fjögurra ára en hann lýk- ur þessari leiktíð með Leicester í ensku 1. deildinni. „Það er mikið til- hlökkunarefni að fá Jóa Kalla til okkar næsta sumar því þar fáum við mjög góðan leikmann. Hann verður í raun fullkominn fyrir okkur því hann er nákvæmlega sú týpa sem vantar í liðið núna. Hjá Alkmaar er mikill áhugi á Íslendingum og það er greinilegt að það fer gott orðspor af leikmönnum frá Íslandi víða í Evr- ópu um þessar mundir.“ Grétar tel- ur að hollenska knattspyrnan henti Íslendingum að mörgu leyti vel. „Við getum lært mikið í fótbolta, tækni og leikskipulagi af Hollend- ingum en við komum líka með ým- islegt inn í leikinn til þeirra sem þá vantar. Þess vegna hafa þeir sóst mjög eftir Norðurlandabúum í sín lið, enda er mikið af Dönum og Sví- um í hollensku knattspyrnunni.“ Beðið eftir úrslitakeppni um Meistaradeildarsæti Grétar segir að möguleikar Alkmaar á hollenska meistaratitlin- um séu líklega úr sögunni, en eftir tap gegn PSV sé munurinn á lið- unum orðinn of mikill. „Við erum í raun bara að bíða eftir úrslitakeppn- inni þó tíu leikir séu eftir af deild- inni. Það er leikið eftir nýju fyrir- komulagi því eftir að deildakeppninni lýkur tekur við úr- slitakeppni milli liðanna sem lentu í öðru til fimmta sæti og þau spila um eitt sæti í Meistaradeild Evrópu. Þetta er dálítið skrýtið og ég efast um að það verði gert aftur. Eins og staðan er núna skiptir litlu máli í hvaða sæti við endum, við erum vel settir í þriðja sætinu og erum langt á undan Ajax og öðrum liðum.“ Hann kveðst hafa tekið miklum framförum á skömmum tíma eftir að hann gerðist atvinnumaður fyrir rúmu ári síðan. „Ég lærði heilmikið í Sviss og náði að bæta mig mjög mik- ið þar, enda lagði ég mikla vinnu í það. Ég var með góðan grunn frá Akranesi, þar fékk ég góða þjálfun sem ég hef náð að nýta mér og byggja ofan á. Í Sviss náði ég að bæta tækni og sendingar og í Hol- landi tók við næsta þrep hjá mér. Ég æfi mjög stíft, líka talsvert auka- lega, með það að markmiði að gera mig að betri leikmanni. Það er frábært að vera hjá Louis Van Gaal, hann er afar snjall þjálf- ari, eins og þeir gerast bestir, og fagmennskan er mikil. Ég beið lengi eftir því að fá tækifæri í atvinnu- mennskunni og nú er það komið. Ég er staðráðinn í að nýta það, halda áfram að leggja mig fram og sjá til hvert það fleytir mér.“ Maður segir ekki nei við slíku Það kom Grétari í opna skjöldu þegar forráðamenn Alkmaar köll- uðu hann á sinn fund fyrir stuttu og buðu honum nýjan og framlengdan samning. „Ég hafði fyrst samið til ársins 2008 með ákvæði um fram- lengingu til 2010. Um daginn, þegar ég var búinn að vera í sex mánuði hjá félaginu vildu þeir opna samn- inginn og lengja hann. Maður segir ekki nei við slíku, ég bjóst alls ekki við þessu og mér skilst að það sé sjaldgæft að svona lagað sé gert eft- ir þetta skamman tíma. Nýi samn- ingurinn er til 2011 og ég er mjög sáttur. Það gefur manni aukið sjálfs- traust að forráðamenn félagsins skuli vera ánægðir með það sem maður er að sýna og þetta virðist benda til að þeir vænti mikils af mér í framtíðinni,“ sagði Grétar Rafn Steinsson. Grétar Rafn Steinsson er ánægður með lífið hjá Alkmaar í Hollandi Draumarnir hafa ræst á skömmum tíma GRÉTAR Rafn Steinsson er 24 ára gamall Siglfirðingur sem hefur á skömmum tíma skipað sér í hóp fremstu knattspyrnu- manna landsins. Hann var ann- ar af tveimur leikmönnum sem spilaði alla níu landsleiki Ís- lands á síðasta ári og þar skor- aði hann tvö eftirminnileg mörk. Grétar Rafn gerðist í ársbyrjun 2005 atvinnumaður hjá Young Boys í Sviss og hafði aðeins ver- ið þar í átta mánuði þegar AZ Alkmaar, eitt fremsta lið Hol- lands, fékk hann í sínar raðir. Þar hefur honum vegnað svo vel að félagið gerði á dögunum við hann nýjan samning til hálfs sjötta árs – hvorki meira né minna. Morgunblaðið/Kristinn Grétar Rafn Steinsson hefur heldur betur sýnt tennurnar á knattspyrnuvöllum víðs vegar um Evr- ópu með hollenska liðinu Alkmaar í vetur, en náði sér ekki á strik með landsliðinu í gærkvöldi. Víðir Sigurðsson skrifar frá London vs@mbl.is LEIKUR Trínidad og Tóbagó gegn Íslandi í gærkvöldi á Loftus Road var fyrsti leikurinn af fimm undirbúningsleikjum fyrir þátt- töku liðsins á HM í Þýskalandi í sumar.  Trínidad og Tóbagó leika einn leik heima fyrir HM – gegn Perú í Port of Spain 10. maí.  Leikmenn Trínidad og Tóbagó halda síðan í æfingabúðir í Austurríki, þar sem þeir leika æfingaleik gegn Wales í Graz 27. maí.  Þeir bregða sér síðan yfir til Celje í Slóveníu 31. maí, þar sem þeir mæta heimamönnum.  Þaðan halda þeir til Prag og leika gegn Tékkum 3. júní.  Trínidad og Tóbagó leikur sinn fyrsta leik í HM í Þýskalandi gegn Svíþjóð í Dortmund 10. júní, síðan gegn Englandi í Nürn- berg 15. júní og þá gegn Para- gvæ í Kaiserslautern 20. júní. Fjórir leikir Trínidad fyrir HM ÞAÐ er óhægt að segja að leik- menn landsliðs Trínidad og Tób- agó hafi haft nóg að gera á knattspyrnuvellinum í rúmlega ár, en þeir hafa leikið 29 lands- leiki, með leiknum gegn Íslandi, frá ársbyrjun 2005. Heima: St. Vincent................3:1 Úti: Antigua og Barbuda .....1:2 Úti: St. Vincent......................0:1 Heima: Aserbaídsjan ............1:0 Heima: Aserbaídsjan ............2:0 Heima: Haítí ..........................1:0 Heima: Haítí ..........................2:1 Heima: Haítí ..........................0:1 Heima: Bandaríkin (HM)......1:2 Úti: Jamaíka ..........................1:2 Heima: Kúba..........................1:2 Úti: Barbados ........................3:2 Úti: Gvatemala (HM).............1:5 Heima: Kosta Ríka (HM) ......0:0 Heima: Bermúnda.................4:0 Heima: Bermúnda.................1:0 Heima: Panama (HM) ...........2:0 Úti: Mexíkó (HM)...................0:2 Heima: Hondúras..................1:1 Úti: Panama...........................2:2 Úti: Kólumbía ........................0:2 Úti: Bandaríkin (HM)............0:1 Heima: Gvatemala (HM).......3:2 Úti: Kosta Ríka (HM) ............0:2 Úti: Panama (HM) .................1:0 Heima: Mexíkó (HM).............2:1 Heima: Barein (HM)..............1:1 Úti: Barein (HM)....................1:0 Úti: Ísland ..............................2:0 Leikmenn Trínidad og Tóbagó hafa nóg að gera LANDSLIÐ Trínidad og Tóbagó er ofar en Ísland á nýjasta styrk- leikalista Alþjóðaknattspyrnu- sambandsins, sem gefinn var út á dögunum.  Trínidad og Tóbagó er í 51. sæti – féll um eitt sæti.  Ísland er í 96 sæti – féll um eitt sæti.  Þess má til gamans geta að í ársbyrjun 2002 var Trínidad og Tóbagó í 34 sæti á listanum, en Ísland í 52 sæti. Trínidad og Tóbagó ofar á FIFA- listanum

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.