Morgunblaðið - 01.03.2006, Side 5

Morgunblaðið - 01.03.2006, Side 5
KNATTSPYRNA MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. MARS 2006 C 5 „AÐ sjálfsögðu er alltaf leið- inlegt að tapa en mér fannst við samt vera nokkuð þéttir og verj- ast vel. Það var klaufaskapur að fá fyrra markið á sig – ekki nógu vel dekkað, og svo held ég að vítaspyrnan hafi verið eina skotið sem þeir áttu í síðari hálf- leik,“ sagði Helgi Valur Daní- elsson við Morgunblaðið eftir ósigurinn gegn Trínidad og Tó- bagó í gærkvöldi. Hann lék í stöðu hægri bakvarðar og var í fyrsta skipti í byrjunarliði Ís- lands. „Ég efast reyndar stórlega um að þetta hafi verið vítaspyrna. Leikmaðurinn náði ekki til bolt- ans og Hermann braut aldrei á honum, snerti hann kannski smávegis. Ég er ekki sáttur við leikinn sem slíkan, þar sem við töpuðum. Það er að sjálfsögðu alltaf erfitt að fara af stað með nýtt lið, sem var að koma sam- an, en við gerðum samt margt gott. Við náðum að skapa nokk- uð af færum í fyrri hálfleiknum, áttum góðar fyrirgjafir, og vor- um með þétta vörn. Að mörgu leyti lítur þetta því ágætlega út þótt úrslitin hafi verið þessi. Við náðum ekki að nýta góð tækifæri eftir aukaspyrnur og hornspyrnur, og fórum líka illa með góð tækifæri til að koma með góðar fyrirgjafir. Það voru svona ýmis smáatriði sem er mikilvægt að bæta, sagði Helgi Valur, sem gekk í vetur til liðs við sænska úrvalsdeildarliðið Öster. Hann er vanari því að leika sem miðjumaður en hefur þó af og til spilað stöðu hægri bak- varðar með Fylki. „Það var gaman að fá tækifærið í nýju liði og maður gerði sitt besta til að sanna sig. Ég hef ekki spilað bakvarðarstöðuna lengi en kannast ágætlega við hana og það er fínt að spila þarna, enda er nóg af miðjumönnum í hópn- um,“ sagði Helgi Valur Daní- elsson. „Ég er ekki sátt- ur við leikinn“ Víðir Sigurðsson skrifar frá London vs@mbl.is ÞAÐ vakti nokkra athygli að leikmenn úr liðum Íslands og Trínidad og Tóbagó voru kall- aðir í lyfjapróf eftir landsleikinn á Loftus Road í gærkvöld. Fyrir Íslands hönd fóru þeir Árni Gautur Arason og Kristján Örn Sigurðsson. Greinilegt er að FIFA er að herða eftirlitið og væntanlega er það vegna loka- keppni HM í sumarog þátttöku Trínidad og Tóbagó þar. Árni og Kristján í lyfjapróf Vissulega verður maður að takameð í reikninginn að það voru gerðar talsverðar breytingar á liðinu frá því það spilaði síðast og auðvitað tekur það sinn tíma að slípa liðið saman,“ sagði Ólafur þegar Morgun- blaðið bað hann að vega og meta leik íslenska liðsins. Hefði viljað sjá Grétar Rafn í bakvarðarstöðunni Eyjólfur landsliðsþjálfari hefur sagt að varnarleikinn þurfi að bæta og hann muni leggja mesta áhersl- una á hann. Hvernig fannst þér varnarleikur liðsins í þessum leik? ,,Vörnin var langt frá því að vera sannfærandi og varnarleikur liðsins í heildina séð skilaði sér ekki nægi- lega vel. Þeir fjórir leikmenn sem skipuðu öftustu varnarlínuna hafa að vísu ekki spilað mikið saman, ef þá nokkurn tímann, og það kann að skýra að nokkru leyti að vörnin virk- aði á köflum óörugg og sérstaklega framan af leik. Fyrra markið var nánast endurtekning af þeim mörk- um sem liðið fékk á sig í síðustu und- ankeppni og þessa hluti verður liðið að laga ef það á að ná betri árangri. Vítaspyrnudómurinn var hlægileg- ur. Þetta var ekkert víti. Mér fannst Helgi Valur eiga í talsverðu basli með sinn mann. Hann er hægur og ég hefði frekar kosið að tefla fram fljótari leikmanni og þar kemur fyrst upp í huga minn Grétar Rafn Steins- son. Hann hefði að mínu mati leyst þessa stöðu betur enda þurfa að vera fljótir menn í bakvarðarstöðunum.“ Of stórir fyrir íslenska landsliðið Merktir þú áhugaleysi hjá leik- mönnum íslenska liðsins? ,,Já, það er ekki laust við það. Það vantaði miklu meiri kraft í mann- skapinn og það var augljóst að menn fórnuðu sér ekki allir í verkefnið. Ég vil meina að þegar menn eru valdir í landsliðið eigi þeir að gefa sig alla í verkefnið. Það var hins vegar langur vegur frá því og það er spurning hvort einhverjir leikmenn í liðinu séu orðnir of stórir fyrir íslenska lands- liðið. Persónulega er ég þeirrar skoðunar.“ Kom þér á óvart hvernig Eyjólfur stillti upp byrjunarliðinu? ,,Já það kom mér aðeins á óvart en samt ekkert sem hægt er að gagn- rýna á neinn hátt. Þetta var æfinga- leikur þar sem ákveðin tilraunastarf- semi var í gangi. Ég held að leikkerfið sem Eyjólfur stillti upp 4:4:2 eða 4:5:1 hvernig svo sem menn túlka það tel ég að henti okkur vel. Eiður nýtist best í stöðunni fyrir aft- an fremsta mann og hann hefur sýnt hversu megnugur hann er í þessari stöðu þegar út í alvöruna er komið. Við eigum fullt af frambærilegum leikmönnum og það hljóta að vera að fleiri en þessir leikmenn sem koma til greina í liðið.“ Ekki margir sem styrktu stöðu sína Hvaða leikmenn fannst þér standa upp úr í íslenska liðinu? ,,Í heildina séð var enginn einn sem stóð upp úr. Flestir leikmenn náðu ekki að sýna sitt rétta andlit. Mér fannst Grétar Rafn komast einna best frá leiknum, Emil átti þokkalega spretti og leikur liðsins skánaði með innáskiptingunum í seinni hálfleik. Það liggur alveg á borðinu að það voru ekki margir leikmenn sem styrktu stöðu sína í landsliðinu með þessari frammi- stöðu. Leikur liðsins var ekki mikið fyrir augað og það var lítið að gerast í sóknarspilinu. Ég hélt að menn myndu leggja meira á sig þar sem þetta var fyrsti leikur hjá nýjum þjálfara en því miður var það ekki raunin. Reynslumestu og bestu leik- mennirnir náðu ekki að stíga fram og draga vagninn.“ Skoða fleiri nýliða Finnst þér vera tilgangur að spila æfingaleiki á þessum árstíma? ,,Auðvitað er ákveðinn tilgangur fyrir þjálfarann að fá æfingaleiki. Hann þarf að skoða leikmannahóp- inn, vega og meta leikmenn og sjá hverjir henta best í hvaða stöður. En mér fyndist réttara að landsliðsþjálf- arinn notaði svona leiki til að skoða þá leikmenn sem hann hefur ekki séð áður og það hefði verið betra að mínu mati að velja fleiri nýliða. Það er vitað að viku fyrir leik Chelsea á móti Barcelona í Meist- aradeildinni fæst ekki það út úr Eiði Smára sem íslenska landsliðið þarf á að halda. Það þarf ekki mikinn spek- ing til að sjá að Eiður var ekki tilbú- inn í að fórna sér á fullu í þennan leik.“ Hvernig lýst þér á framhaldið? ,,Við skulum vona að liðið rétti úr kútnum. Það er alveg ljóst að ef þeir ellefu einstaklingar sem spila inná hverju sinni berjast ekki sem einn maður náum við engum árangri. Þetta var ekki gott kvöld fyrir ís- lenska landsliðið og ekki bætti það úr skák að 21 árs liðið steinlá fyrir Skotum. Ekki góð byrjun hjá Eyjólfi og Lúkasi en vonandi er fall farar- heill.“ Ólafur Þórðarson, þjálfari Skagamanna, segir um leikmenn sem valdir eru til að leika fyrir hönd Íslands Þeir eiga að gefa sig 100% í verkefnið ÓLAFUR Þórðarson þjálfari Skagamanna segist hafa orðið fyrir talsverðum vonbrigðum með leik íslenska landsliðsins gegn Trínid- ad og Tóbagó í gærkvöld. ,,Ég var nú að vonast eftir betri frammi- stöðu hjá liðinu en raun bar vitni,“ sagði Ólafur í samtali við Morg- unblaðið skömmu eftir að leik þjóðanna lauk á Loftus Road í Lúndunum þar sem Trínidadar höfðu betur, 2:0, í fyrsta leik Íslend- inga undir stjórn Eyjólfs Sverrissonar. Eftir Guðmund Hilmarsson gummih@mbl.is *+ 9   $ : ): $  / *1$ ; ))$ &)/*)'$2  < * 7$ :  : )$                   !"   !  #$%&! '  (()   * + ,  - '".   /"/"$ /  8     $ $   "'((9 + "   :%9%  4          :   + "   :%:%' 7) : $ =  0> ?; $ ! '/ % )$ =/   0> : @A 1 $ B1"   1"' ) 6" '6' * $ =/   0> (2 !*)'( $ !/< $ =  0> &: )$ var fáni ÍA þar á áberandi stað. Suðræna stemningin teygði sig líka inn á völlinn því áður en liðin gengu til leiks hlupu tólf léttklæddar stúlkur í þjóð- arlitum Trínidad og Tóbagó inn á völlinn – í kvöldsvalanum enska. Og þegar flaut- að var til hálfleiks tóku áhorfendur enn betur við sér því þá voru mættar tíu enn léttklæddari dísir úr Karíbahafinu til að dansa fyrir áhorfendur, eins og sést á myndinni hér fyrir ofan. Ljóst er að það ríkir gífurleg eftirvænt- ing meðal knattspyrnuáhugamanna í Trínidad og Tóbagó vegna þátttöku liðs- ins í lokakeppni HM í Þýskalandi í sumar. Morgunblaðið/Kristinn n, fyrirliði íslenska landsliðs- rnarmann Trínidad á Loftus slason fylgist grannt með. AP stemning s Road „ÞAÐ var óþarfi að tapa fyrir þessu liði. Þeir fengu eiginlega bara þetta eina færi sem þeir skoruðu úr fyrra markið. Yorke fékk alltof mikinn tíma til að taka boltann niður og skjóta. Svo held ég að vítið hafi verið gefins, hafi verið einhver snerting átti leikmaðurinn aldrei séns í að ná boltanum. Það var mjög ódýrt að dæma vítaspyrnu á þetta, sagði Brynjar Björn Gunnarsson. „Þetta lið hjá Trínidad er í sjálfu sér ekkert sterkara en við. Þeir virk- uðu þó samstilltari og spiluðu mjög vel á köflum. Þeir sköpuðu ekki mik- ið en héldu boltanum ágætlega sín á milli en við erum ekki búnir að ná að slípa okkar leik til eftir fríið í vetur. Við náðum aldrei að setja almenni- lega pressu á þá og ýta þeim virki- lega inn í sinn vítateig. Við spiluðum of mikið fyrir framan þá og hefðum þurft að komast oftar aftur fyrir varnarmennina og koma boltanum fyrir markið. Það var synd að nýta ekki allar þessar hornspyrnur, þetta voru góðar fyrirgjafir og á öðrum degi hefði þetta gefið okkur eitt til tvö mörk en það féll ekki með okkur að þessu sinni. Það er oft mjótt á mununum og við þurfum að laga nokkur smáatriði, og þá eigum við að geta náð hagstæðari úrslitum. Sérstaklega gegn liðum sem eru svipuð að styrkleika og við, eins og þetta var. En aðalmálið við þennan leik var að við komum saman með nýjan hóp. Eyjólfur fékk að sjá okkur spila einn leik og vera með okkur á æfingum,“ sagði Brynjar Björn Gunnarsson. „Yorke fékk of mikinn tíma“ Víðir Sigurðsson skrifar frá London vs@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.