Morgunblaðið - 13.03.2006, Page 3

Morgunblaðið - 13.03.2006, Page 3
Línumaðurinn Haraldur Þorvarðarson hefur leik-ið vel með Fram á Íslandsmótinu í handknatt- leik í vetur og hann sagði við Morgunblaðið eftir öruggan sigur á KA í gær að hann væri bjartsýnn á framhaldið: „Þetta var mjög gott, við getum ekki verið ósáttir við tíu marka sigur gegn KA. Vörnin var góð en ég var sérstaklega ánægður með sóknina af því að Serenko var ekki með. Við vissum að við yrðum að leggja meira á okkur út af því. Við erum með Björgvin Björgvinsson sem er auðvitað þvílíkur reynslubolti og harðjaxl. Hann jarðaði þá í dag.“ Fram gengur vel að leysa þau vandamál sem skapast þegar liðið er einum færri: „Við erum búnir að æfa það mjög vel og erum með snögga stráka eins og Sigfús á miðjunni, sem geta stungið sér inn í eyð- ur þótt þær séu litlar. Það er líka góð færsla í vörn- inni hjá okkur. Þetta eru helstu ástæðurnar fyrir því af hverju við spilum svona vel þegar við erum manni færri.“ Spurður hvort ekki ríki bjartsýni í herbúðum Fram fyrir lokasprettinn svaraði Haraldur því ját- andi: „Andinn í hópnum er mjög góður og við stefnum auðvitað bara á titilinn úr þessu. Við höfum verið að taka einn leik fyrir í einu og gerum það bara áfram. Takmarkið er að vinna dolluna, alveg klárt mál. Þetta rúllar fínt hjá okkur þannig að ég sé enga ástæðu til þess að stefna á eitthvað annað,“ sagði Haraldur. Morgunblaðið/Eggert Sigfús Sigfússon, leikstjórnandi Fram, er hér í harðri baráttu við KA-manninn Magnús Stefánsson. Stefnum bara á titilinn úr þessu ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. MARS 2006 B 3 EINAR Hólmgeirsson fór á kostum með Gross- wallstadt í þýsku 1. deildinni í handknattleik á laugardaginn þegar lið hans vann Pfullingen, 30:24. Einar skoraði 11 mörk í leiknum, flest með þrumufleygum, og ekkert þeirra úr víta- kasti, og var lang atkvæðasti leikmaðurinn á vellinum. Vonir Gummersbach um þýska meistaratit- ilinn dvínuðu verulega þegar liðið tapaði í Lemgo á laugardaginn, 28:26. Íslendingarnir skoruðu meira en helming marka Gummers- bach því Guðjón Valur Sigurðsson skoraði 9 mörk og Róbert Gunnarsson 5. Logi Geirsson gerði eitt marka Lemgo en Ásgeir Örn Hall- grímsson ekkert. Einar Hólmgeirsson átti stórleik með Grosswallstadt Ásgeir Örn í leik með Lemgo. Morgunblaðið/Günter Schröder ÓLAFUR Stefánsson var markahæstur hjá Ciudad Real annan leikinn í röð þegar lið hans vann Cangas, 30:25, í spænsku 1. deildinni í handknattleik í fyrrakvöld. Ólafur skoraði 7 mörk í leiknum en Ciudad var með örugga for- ystu allan tímann, átta mörk um tíma í síðari hálfleiknum. Einar Örn Jónsson er enn fjarri góðu gamni vegna meiðsla en lið hans tapaði fyrir Portland á útivelli, 28:24. Barcelona vann Aragón, 28:24, og er efst með 38 stig, Portland er með 37 og Ciudad Real 34 stig. Ademar Leon kemur síðan í fjórða sæti með 26 stig en Torrevieja er í níunda sæti af 16 liðum með 17 stig. Ólafur með sjö gegn Cangas MARKÚS Máni Michaelsson lék sinn fyrsta leik síðan í nóvember þegar Düsseldorf sigraði Minden, 35:27, í þýsku 1. deildinni í handknatt- leik í gær. Markús Máni hefur verið frá vegna meiðsla á hné en hann gerði vart við sig á ný í gær með því að skora þrjú mörk í leiknum. Snorri Steinn Guðjónsson, æskufélagi Mark- úsar úr Val, skoraði sömuleiðis 3 mörk í leikn- um, fyrir lið Minden. Mikilvæg stig í fallbarátt- unni voru í húfi og Düsseldorf komst með sigrinum í fimm stiga fjarlægð frá fallsæti. Þar situr hinsvegar Minden áfram – er með 11 stig. Kronau-Östringen vann óvæntan sigur á Magdeburg, 33:32, með því að skora þrjú síð- ustu mörk leiksins. Enginn Íslendingur skoraði, Sigfús Sigurðsson og Arnór Atlason leika með Magdeburg en Gunnar Berg Viktorsson með Kronau-Östringen. Göppingen vann öruggan sigur á Wetzlar, 37:27, á laugardaginn. Jaliesky Garcia skoraði eitt mark fyrir Göppingen en Róbert Sig- hvatsson eitt fyrir Wetzlar. Róbert fékk jafn- framt rauða spjaldið í lokin fyrir sína þriðju brottvísun. Gylfi Gylfason skoraði eitt mark fyrir Wil- helmshavener sem steinlá í Flensburg, 33:15. Gylfi og félagar skoruðu aðeins 5 mörk gegn 19 í seinni hálfleiknum. Þórir Ólafsson gerði eitt mark fyrir N- Lübbecke sem sigraði Nordhorn, 38:34. Markús Máni í gang á ný     FÓLK  DÓRA Stefánsdóttir, landsliðs- kona í knattspyrnu, þótti besti leik- maður sænska liðsins Malmö FF í gær þegar það sigraði Skjold frá Danmörku, 4:1, í æfingaleik. Hún var valinn maður leiksins á vef stuðnings- manna félagsins og í umfjöllun á heimasíðu liðsins er sagt að Dóra hafi án efa verið besti leikmaður vallarins en hún lék á miðjunni að þessu sinni.  SÆNSKUR snjóbrettamaður lést í æfingaferð fyrir heimsbikarmót í Bandaríkjunum í gær. Jonatan Jo- hansson, sem var 26 ára, lenti illa í einu stökkinu í stórsvigsbrautinni.  DANÍEL Ragnarsson skoraði 6 mörk fyrir Team Helsinge á laugar- daginn þegar lið hans tapaði fyrir Vi- borg á útivelli, 33:30, í dönsku úrvals- deildinni í handknattleik. Team Helsinge er í ellefta sæti af fjórtán liðum deildarinnar með 13 stig.  VIGNIR Svavarsson skoraði 5 mörk fyrir Skjern en þeir Jón Jó- hannsson og Vilhjálmur Halldórsson voru ekki á meðal markaskorara liðs- ins þegar það lagði Kolding að velli, 34:30, á laugardaginn. Skjern, undir stjórn Arons Kristjánssonar, er í 4. sæti deildarinnar með 26 stig.  STURLA Ásgeirsson skoraði 3 mörk fyrir Århus GF sem sigraði Mors, 36:30. Árósaliðið er í áttunda sætinu með 18 stig.  FANNAR Þorbjörnsson skoraði 3 mörk fyrir Fredericia sem vann öruggan sigur á Ringsted á útivelli, 38:29. Fredericia er í tólfta sæti deildarinnar með 11 stig.  GÍSLI Kristjánsson skoraði 4 mörk fyrir Ajax og Hannes Jón Jónsson 3 þegar lið þeirra tapaði á heimavelli fyrir Silkeborg, 26:35. Ajax situr á botni deildarinnar með 9 stig.  DAGUR Sigurðsson, þjálfari Bregenz, skoraði 3 mörk fyrir lið sitt þegar það vann Linz, 30:28, í úrslita- keppninni um austurríska meistara- titilinn í handknattleik á laugardag- inn. Bregenz hefur unnið þrjá fyrstu leiki sína og er efst í úrslitakeppninni.  RAGNAR Óskarsson náði ekki að skora fyrir Ivry sem vann Créteil á útivelli, 27:26, í frönsku 1. deildinni í handknattleik á laugardaginn. Bjarni Fritzson lék ekki með Créteil að þessu sinni.  TITE Kalandadze, stórskyttan í liði bikarmeistara Stjörnunnar í handknattleik, gat ekki leikið með sínum mönnum gegn FH í Kapla- krika í gær. Tite er staddur í heima- landi sínu, Georgíu, en þangað hélt hann á föstudaginn. Faðir hans ligg- ur mikið veikur og er sagður við dauðans dyr og ákvað leikmaðurinn í samráði við forráðamenn Stjörnunn- ar að halda heim á leið. Þeir vonast til að Tite verði kominn til baka fyrir laugardaginn en þá taka þeir á móti Fram.  DAVID Kekelia var eins og Tite fjarri góðu gamni í Kaplakrika í gær en Kekelia lá heima með flensu. ARNAR Sigurðsson, Íslands- meistari í tennis, var kjörinn besti leikmaðurinn í vest- urdeild bandarísku háskól- anna á dögunum, í fyrsta skipti á þessu tímabili. Arnar fékk þessa viðurkenningu sjö sinnum síðasta vetur en hann var frá keppni lengi vel á þessu tímabili vegna meiðsla. Hann er kominn á fulla ferð á ný og hefur verið sigursæll með liði sínu, Pacific Tigers, í undanförnum leikjum. Arn- ar tryggði liðinu m.a. sigur á San Diego State, 4:3, með ævintýralegum sigri. Lið hans lenti 0:3 undir og í úr- slitaviðureigninni var Arnar sjálfur 0:3 undir áður en hann sigraði Markus Dick- hardt, 4:3. Arnar best- ur í Vest- urdeildinni RONALDO, brasilíski sóknarmað- urinn hjá Real Madrid, sendi tveimur af þekktustu knatt- spyrnumönnum sögunnar kaldar kveðjur í viðtali sem birtist við hann í brasilíska dagblaðinu O Globo í gær. Hann sagði að landi sinn, Pelé, væri ekkert annað en tækifærissinni og Frakkinn Michel Platini væri öfundsjúkur, en báðir hafa þeir gagnrýnt Ronaldo fyrir slaka frammistöðu að undanförnu. Lítið hefur gengið hjá Ronaldo á knattspyrnuvellinum að und- anförnu en hann þykir þungur á sér og langt frá sínu besta. Ekki bætti úr skák fyrir honum að hann skyldi ekki ná að skora úr víta- spyrnu á síðustu mínútu þegar Real Madrid gerði markalaust jafntefli við Valencia í fyrrakvöld. „Þegar heimsmeistarakeppnin hefst í sumar ætla ég að láta marga éta ummæli sín ofan í sig. Ég er sérstaklega vonsvikinn með Pelé, sem er ekkert annað en tækifærissinni, en mér er nákvæm- lega sama um Platini. Það er Frakki með mér í liði sem hefur náð mikið lengra en hann og hann hefur oft sagt mér að Platini sé fullur öfundar. Það eina sem ég bið um er að mér sé sýnd virðing, en það vantar mikið upp á það,“ sagði Ronaldo, sem kvaðst ætla að mæta fullur sjálfstrausts og í sínu besta formi til leiks með Brasilíu á HM í sumar. Ronaldo sendir Pelé og Platini kaldar kveðjur Eftir Kristján Jónsson STAÐAN í DHL-deild kvenna í handknattleik breyttist lítið við leiki helgarinnar nema hvað Víkingar fóru úr botnsætinu. FH fékk tæki- færi til að komast nær Stjörnunni, sem tapaði fyrir Haukum, þar sem Hanna G. Stefánsdóttir fór mikinn og gerði 12 mörk fyrir Hauka en fyrir Stjörnuna gerði Jóna Margrét Ragn- arsdóttir sjö mörk. Gróttustúlkur gerðu sér síðan lítið fyrir í gærkvöldi og lögðu FH í Kaplakrika með einu marki, 26:25 og FH því enn í fimmta sæti, þremur stigum á eftir Stjörnunni. Grótta skipti ekki um sæti með sigrinum, en fjarlægð- ist HK og er þremur stigum á undan Kópa- vogsliðinu. Víkingur vann góðan sigur á Fram, 29:25 og komst við það úr botnsæti deildarinnar, einu stigi á undan KA/Þór og einu stigi á eftir Fram. Þórhildur Björnsdóttir og Natasa Dam- iljanovic voru atkvæðamestar í liði Víkings með sjö mörk hvor en hjá Fram var það Ásta Birna Gunnarsdóttir sem gerði sex mörk. ÍBV átti ekki í vandræðum með KA/Þór og vann 25:19 þar sem Pavla Plaminkova gerði 9 mörk fyrir ÍBV en Guðrún Helga Tryggva- dóttir var með sex fyrir heimamenn. Þrjár umferðir eru nú eftir hjá konunum og ljóst að baráttan um Íslandsmeistaratitilinn verður hörð á milli Hauka, ÍBV og Vals. Meðal þeirra leikja sem eftir er í deildinni er við- ureign Vals og Hauka og síðan á Valur að mæta Stjörnunni í síðustu umferðinni. Víkingskonur lyftu sér úr botnsætinu með sigri á Fram

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.