Morgunblaðið - 13.03.2006, Síða 4
ÍÞRÓTTIR
4 B MÁNUDAGUR 13. MARS 2006 MORGUNBLAÐIÐ
READING er aðeins átta stigum
frá úrvalsdeildarsæti eftir marka-
laust jafntefli við Watford í upp-
gjöri tveggja af sterkustu liðum
ensku 1. deildarinnar í knatt-
spyrnu á laugardaginn. Reading
á átta leiki eftir og allt útlit er
fyrir að liðið verði búið að vinna
sig upp í úrvalsdeildina fyrir
páska.
Ívar Ingimarsson og Brynjar
Björn Gunnarsson léku allan leik-
inn með Reading. Ívar fór af velli
í byrjun síðari hálfleiks vegna
höfuðáverka en gat lokið leiknum
með mikinn vafning um höfuðið.
Brynjar Björn lék þarna gegn
sínum gömlu félögum, sem enn
eru samborgarar hans því Brynj-
ar býr í Watford og keyrir þaðan
til æfinga og leikja í Reading sem
er skammt frá.
Jóhannes Karl Guðjónsson lék
allan leikinn með Leicester sem
komst af mesta hættusvæði 1.
deildar með útisigri á Luton, 2:1,
en sigurmarkið kom á lokasek-
úndunum. Jóhannes var hárs-
breidd frá því að skora úr auka-
spyrnu og þá virtist brotið á
honum í vítateig Luton rétt áður
en Leicester skoraði sigurmarkið.
Gylfi Einarsson var ekki í leik-
mannahópi Leeds sem gerði jafn-
tefli, 2:2, við Norwich. Leeds
missti þar af dýrmætum stigum í
harðnandi baráttu um hvaða lið
fylgir Reading beint upp.
Reading vantar aðeins
átta stig til viðbótar
KEFLVÍKINGAR héldu áfram sig-
urgöngu sinni í deildabikarnum í
knattspyrnu á laugardaginn þegar
þeir sigruðu KR-inga, 3:1, í Reykja-
neshöll. Baldur Sigurðsson, Magnús
S. Þorsteinsson
og Símun Samu-
elsen gerðu mörk
Keflvíkinga en
Skagamaðurinn
Gunnlaugur
Jónsson, hinn nýi
fyrirliði KR-inga,
minnkaði muninn
í 2:1 með sínu
fyrsta marki fyr-
ir félagið. Kefl-
víkingar hafa
unnið þrjá fyrstu
leiki sína og útlit
er fyrir að þeir
berjist við Skaga-
menn, Þórsara
og Víking R. um
tvö sæti í undan-
úrslitum keppn-
innar.
Fylkir sigraði
Grindavík, 2:1, á
gervigrasvelli
Fylkismanna sem
var ruddur fyrir
leikinn eftir
mikla snjókomu.
Ólafur Stígsson
og Sævar Þór
Gíslason, sem
báðir voru frá
keppni nær allt
síðasta tímabil
vegna slitinna
krossbanda, eru
komnir á fulla
ferð og skoruðu
fyrir Árbæinga
en Jóhann Þór-
hallsson gerði
mark Grindavík-
ur.
Breiðablik, ný-
liðarnir í úrvals-
deildinni, gerðu
jafntefli, 2:2, við
1. deildarlið
Fjölnis í Fífunni
en voru manni færri í klukkutíma
eftir að Guðmann Þórisson fékk
rauða spjaldið. Olgeir Sig-
urgeirsson og Kristján Óli Sigurðs-
son skoruðu fyrir Blika en Gunnar
Már Guðmundsson og Ómar Há-
konarson fyrir Fjölnismenn, sem
hafa byrjað mjög vel og fengið 7
stig í fyrstu þremur leikjum sínum.
Atli Jóhannsson tryggði ÍBV sig-
ur á Víkingum frá Ólafsvík, 2:1, í
Fífunni í gær. Slavisa Mitic kom
Ólsurum yfir á upphafsmínútum
leiksins en Atli svaraði tvívegis,
með marki sitt í hvorum hálf-
leiknum.
Sævar Þór
Gíslason
Gunnlaugur
Jónsson
Atli
Jóhannsson
Baldur
Sigurðsson
Keflvík-
ingar
áfram á
sigurbraut
DAGNÝ Linda Kristjánsdóttir
varð í þriðja sæti í stórsvigi á
móti sem fram fór í Oberjoch í
Þýskalandi á
laugardag-
inn. Árang-
urinn veitir
henni 30,17
FIS punkta
og er þetta
næstbesti ár-
angur hennar
í stórsvigi í
vetur, en
þetta var
fyrsta mótið sem hún keppir í
eftir Ólympíuleikana á Ítalíu.
Anna Rottmayr frá Þýska-
landi sigraði á laugardaginn
og fékk 18,87 FIS stig fyrir ár-
angur sinn í brautinni.
Til stóð að hafa annað mót á
sama stað í gær en hætt var
við það.
Rooney skoraði fyrra markiðþegar hann komst inn í send-
ingu varnarmanns Newcastle og
lyfti boltanum yfir Shay Given í
markinu. Það seinna gerði hann
með skoti frá vítateig eftir sendingu
frá John O’Shea í gegnum miðja
vörn Newcastle. Rooney var óhepp-
inn að skora ekki þrennu en hann
átti m.a. stangarskot úr dauðafæri.
„Við gátum skorað fleiri mörk og
áttum að gera það. Munurinn átti
að vera meiri miðað við gang leiks-
ins en ég er ánægður með að hafa
skorað þessi tvö. Sérstaklega það
fyrra, því það kom okkur í gang, en
öll mörk eru ánægjuleg. Mér hefur
gengið vel til þessa þó ég hafi ekki
skorað mikið af mörkum. Mér gekk
vel, liðið spilaði vel, og það eina sem
vantaði var að skora fleiri mörk,“
sagði Rooney eftir leikinn.
Alex Ferguson knattspyrnustjóri
United var sæll og glaður með
frammistöðu sinna manna. „Hrað-
inn og ákveðnin voru til fyrirmynd-
ar og hver einasti leikmaður lék
stórt hlutverk. Það er með ólík-
indum að hafa átt 29 skot á mark.
Ég veit vel að við hefðum átt að
gera meira af mörkum en frammi-
staðan var það sem skipti máli og
hún var á köflum stórkostleg. “
Wayne Rooney var frábær,
sagði Ferguson
„Það getur vissulega hvatt and-
stæðingana til dáða þegar mark-
tækifærin eru ekki nýtt, en við lék-
um einnig sterkan varnarleik og
héldum takti í okkar leik frá fyrstu
mínútu til þeirrar síðustu,“ sagði
Ferguson, og hrósaði Wayne Roon-
ey sérstaklega.
„Wayne var frábær. Ég veit ekki
hversu mörg mörk hann hefði átt að
skora en þetta var framlag í hæsta
gæðaflokki. Við áttum alltaf von á
að hann myndi þróast og þroskast
sem knattspyrnumaður og það hef-
ur hann gert. Hann vill spila og
spila, og er orðinn mun þroskaðri
leikmaður en þegar við fengum
hann til okkar og það er sérlega
ánægjulegt.“
Það hefur vakið athygli að
markahæsti leikmaður úrvalsdeild-
arinnar, Ruud van Nistelrooy, hefur
mátt verma varamannabekk United
þrjá leiki í röð en hann kom inn á
sem varamaður. Louis Saha hefur
tekið stöðu hans í fremstu víglínu.
„Louis Saha lék af snilld og Ruud
gerði sitt þegar hann kom inn á en
hann hefði þó átt að skora. Það var
reyndar í takt við leikinn að honum
tækist það ekki,“ sagði Alex Fergu-
son.
Góður sigur hjá Charlton
Charlton er smám saman að rétta
sinn hlut og vann Middlesbrough,
2:1, í gær. Enski landsliðsmaðurinn
Darren Bent skoraði bæði mörk
Charlton, sigurmarkið fjórum mín-
útum fyrir leikslok, en skömmu áð-
ur hafði Mark Viduka jafnað metin
fyrir Middlesbrough. Hermann
Hreiðarsson lék allan tímann í vörn
Charlton.
Rooney sá um
Newcastle
MANCHESTER United kom sér enn betur fyrir í öðru sæti ensku úr-
valsdeildarinnar í knattspyrnu í gær með því að sigra Newcastle á
sannfærandi hátt, 2:0, á Old Trafford. Wayne Rooney gerði út um
leikinn með tveimur mörkum á upphafskafla leiksins, á 9. og 12.
mínútu, og sigur United hefði getað orðið mun stærri. Liðið er nú
fimm stigum á undan Liverpool, sem tapaði fyrir Arsenal í gær, en
er 15 stigum á eftir toppliði Chelsea.
AP
Wayne Rooney, framherji Manchester United, stingur sér á
milli tveggja leikmanna Newcastle og skorar síðara mark sitt.
Dagný
Linda
þriðja í
Þýskalandi
Dagný
Linda
Það var mikilvægt að fá öll þrjústigin úr þessum leik enda vor-
um við mjög niðurlútir eftir leikinn í
Barcelona í Meistaradeildinni. Nú
getum við einbeitt okkur að ensku
deildinni,“ sagði Gallas eftir leikinn.
Hann fékk boltann á vinstri kantin-
um, lék inn að vítateignum og skaut
góðu skoti af um 20 metra færi í blá-
hornið hægra megin.
Flestir virtust vera búnir að sætta
sig við skiptan hlut, en Michael Ess-
ien kom Chelsea yfir áður en Jer-
maine Jenas jafnaði skömmu fyrir
leikhlé. Sigurinn ætti ekki að koma á
óvart enda hefur Chelsea ekki tapað
í 32 deildarleikjum við Tottenham og
síðast tapaði liðið fyrir Lundúnalið-
inu árið 1990.
John Terry, fyrirliði Chelsea, var
ánægður með sigurinn. „Það var
góður endir á slæmri viku. Nú erum
við komnir í gang á ný og stefnan
sett á tvennuna og ég tel að við eig-
um mikla möguleika á að ná henni,“
sagði fyrirliðinn.
Ei
í le
þess
fyrir
óven
sínir
fyrst
staða
Hö
Bl
sigur
að b
Evró
Villa
eins
ham
Bo
þess
Wes
an A
en á
einn
„F
sem
sagð
Þrumufle
frá Ga
réð úrsl
WILLIAM Gallas var hetja Chelsea þega
velli 2:1 á laugardaginn. Frakkinn snjall
ustu andartökum leiksins og var mark h
Chelsea heldur sínu striki á toppi úrvals
15 stigum á undan Manchester United,