Morgunblaðið - 13.03.2006, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. MARS 2006 B 5
ÞAÐ gekk mikið á í spænsku knattspyrnunni
um helgina þó ekki væri mikið skorað, að-
eins 17 mörk. Barcelona tapaði 2:1 fyrir
Osasuna en er engu að síð-
ur með níu stiga forystu.
Mikið gekk á í leiknum því
tveir leikmenn Barcelona
fengu að sjá rauða spjaldið
en dómarar í efstu deild á
Spáni urðu að draga rauða
spjaldið tíu sinnum úr vasa
sínum um helgina.
Heimamenn í Osasuna
komust í 2:0 eftir 59. mín-
útur og var síðara markið úr vítaspyrnu þar
sem Edmilson var rekinn af velli í kjöfarið.
Motta fékk síðan rautt í lokin. En dómarinn
gerði meira en að veifa því rauða því gula
spjaldið fór níu sinnum á loft hjá honum.
Dómarinn í leik Alaves og Sevilla, sem
einnig endaði 2:1, hafði lítið minna að gera
en kollegi hans í leik Osasuna. Hann lyfti
gula spjaldinu átta sinnum og því rauða í
þrígang. Hann byrjaði á að reka Pcio úr liði
gestanna í Sevilia útaf eftir 18 mínútna leik
en þá hafði Sevilia komist í 1:0. Heimamenn
í Alves gerðu tvö mörk fyrir hlé og undir
lok leiksins voru Bopido og Juanito reknir af
velli.
Það er fátt sem gengur Ronaldo í hag
þessa dagana. Á laugardaginn gerði Real
Madrid markalaust jafntefli í Valencia og
seint í leiknum fengu gestirnir vítaspyrnu.
Ronaldo, sem kom inn á sem varamaður á
62. mínútu, tók spyrnuna. Skotið var laust
og átti markvörður Valenciu ekki í neinum
vandræðum með að verja það.
Ronaldo
Sautján mörk og
fullt af spjöldum
JUVENTUS og AC Milan gerðu markalaust
jafntefli í uppgjöri toppliða ítölsku knatt-
spyrnunnar á heimavelli Juventus í Tórínó í
gærkvöld. Þar með heldur
Juventus tíu stiga forskoti
sínu og úr þessu kemur fátt
í veg fyrir að liðið hreppi
ítalska meistaratitilinn.
Leikmenn AC Milan voru
manni færri síðustu 20 mín-
úturnar eftir að Gennaro
Gattuso, miðjumaðurinn eit-
ilharði, var rekinn af velli.
Adriano, hinn brasilíski
leikmaður hjá Inter Mílanó, gerði eina mark
liðsins þegar það lagði Sampdoria 1:0.
Adriano kom beint í liðið eftir tveggja leikja
bann og lét strax til sín taka. Hann skaut
snemma leiks í stöngina og gerði það aftur á
40. mínútu, náði síðan sjálfur frákastinu og
gerði sitt 13. mark á leiktíðinni. Inter er í
þriðja sæti, tveimur stigum á eftir grönnum
sínum í Milan.
Juventus er í
góðum málum
Gattuso
EITTHVAÐ fóru úrslit Meistaradeildarinnar í
síðustu viku illa í leikmenn Werder Bremen því
liðið steinlá á heimavelli fyrir Herthu Berlín
um helgina. Sömu sögu er að segja af Bayern
München, en bæði þýsku liðin voru slegin út úr
Meistaradeildinni í vikunni, því liðið náði að-
eins markalausu jafntefli á móti Wolfsburg.
Berlínarbúar mættu vel stemmdir til leiksins
í Bremen en náðu þó ekki að skora fyrr en í síð-
ari hálfleik. Enn og aftur voru það mistök
markvarðarins Tims Wiese, en hann gerði af-
drifarík mistök þegar liðið féll út úr Meist-
aradeildinni fyrir Juventus.
„Það sást á leik okkar að við erum ekki búnir
að jafna okkur á leiknum við Juventus,“ sagði
Ivan Klasnic sóknarmaður Bremen, eftir leik-
inn.
Þetta var þriðji leikur Bayern í röð þar sem
liðinu tekst ekki að sigra. Liðið var mun sterk-
ari aðilinn á móti Wolfsburg en náði ekki að
nýta sér það.
„Þetta eru erfiðir tímar hjá okkur, tapið í
Meistaradeildinni situr enn í okkur,“ sagði Oli-
ver Khan, markvörður Bæjara.
Werder Bremen
steinlá heima
ENSKA knattspyrnusambandið hefur staðfest að við-
ræður við þá sem koma til greina í starf landsliðsþjálf-
ara séu hafnar og í þeim hópi sé Alan Curbishley,
knattspyrnustjóri Charlton Athletic. Nýr maður tekur
við enska landsliðinu að lokinni úrslitakeppni HM í
Þýskalandi í sumar en Sven-Göran Eriksson hættir þá
etir að hafa stýrt því í fimm ár.
Í blöðum sem komu út í gærmorgun birtust myndir
af Alan Curbishley og Brian Barwick, framkvæmda-
stjóra knattspyrnusambandsins, þar sem þeir hittust.
Talsmaður sambandsins, Adrian Bevington, sagði að
rætt yrði við marga aðila. „Við höfum hitt Alan Cur-
bishley eftir að hafa fengið leyfi til þess frá hans fé-
lagi. Við gerðum það ljóst fyrir þremur vikum að eftir
landsleikinn við Úrúgvæ myndi Brian Barwick hefja
þetta ferli og það er nú komið af stað. Knattspyrnu-
sambandið er ákveðið í því að vera búið að ráða lands-
liðsþjálfara áður en heimsmeistarakeppnin hefst,“
sagði Bevington.
Curbishley næsti
þjálfari Englands?
MARDAN Mamat frá Singapúr fagnaði sigri í
heimalandi sínu á Meistaramóti Singapúr í golfi um
helgina, en mótið er hluti af evrópsku mótaröðinni.
Mamat er fyrsti heimamaðurinn til að sigra á
mótinu sem var nú haldið í sjötta sinn. Hann lék vel
og var í efsta sæti alla fjóra keppnisdagana og lék
samtals á 12 höggum undir pari vallarins. Nick
Dougherty frá Englandi kom næstur höggi á eftir,
en hann hafði titil að verja.
Mamat var að vonum ánægður með sigurinn.
„Má ég gráta núna?“ spurði hann þegar hann tók
við verðlaununum. „Langþráður draumur minn er
að rætast og mér líður stórkostlega. Það er ótrú-
legt að sigra á heimavelli á slíku móti,“ sagði sig-
urvegarinn, sem er 38 ára gamall og fimm barna
faðir.
„Vonandi verður sigurinn til þess að hvetja unga
landa mína til dáða enda sjá þeir núna að það er
allt hægt ef menn leggja hart að sér,“ sagði Mamat.
Loksins vann
heimamaður
FÓLK
HEATHER O’Reilly skoraði tví-
vegis fyrir Bandaríkin þegar
kvennalið þeirra í knattspyrnu lagði
Danmörku 5:0 á Algarve-mótinu í
Portúgal. Þetta var stærsti sigur
nokkurs liðs í 13 ára sögu mótsins.
Frakkland vann Kína 1:0 í sama
riðli.
FINNAR og Norðmenn gerðu
markalaust jafntefli í A-riðli Alg-
arve-mótsins en Svíar steinlágu fyr-
ir Þjóðverjum 3:0. Melanie Behring-
er, Petra Wimbersky og Birgit
Prinz gerðu mörk þýska liðsins. Ír-
land og Mexíkó gerðu markalaust
jafntefli í C-riðli.
FRAKKINN Paul Le Guen var
um helgina ráðinn stjóri hjá Glas-
gow Rangers í Skotlandi og tekur
hann við á næsta tímabili af Alex
McLeish. Le Guen var með Lyon en
hætti eftir síðustu leiktíð af persónu-
legum ástæðum eftir að hafa gert
liðið þrívegis að frönskum meistur-
um.
PEDRO Mendes tryggði Ports-
mouth ævintýralegan sigur á Man-
chester City, 2:1, í ensku úrvals-
deildinni á laugardaginn. Mendes,
sem hafði komið Portsmouth yfir
fyrr í leiknum, skoraði sigurmarkið
þegar komið var fram yfir venjuleg-
an leiktíma með glæsilegu skoti frá
vítateig. Þetta var fyrsti sigur
Portsmouth á árinu og liðið eygir nú
nýja von um að halda sér í deildinni.
HENRI Camara skoraði sigur-
mark Wigan gegn Sunderland á úti-
velli, 1:0, með glæsilegu skoti strax á
8. mínútu og Sunderland færðist því
enn einu skrefinu nær 1. deildinni.
HEIÐAR Helguson lék með Ful-
ham en fór af velli á 74. mínútu þeg-
ar lið hans tapaði enn einum úti-
leiknum, nú 3:1, fyrir Everton á
Goodison Park. James Beattie skor-
aði tvö fyrri mörk Everton og lagði
það þriðja upp fyrir James McFad-
den en Collins John minnkaði mun-
inn fyrir Fulham úr vítaspyrnu und-
ir lokin.
GUÐMUNDUR E. Stephensen,
borðtennismaður hjá Malmö í Sví-
þjóð, komst í fyrrakvöld í undanúr-
slit með liði sínu í sænsku úrvals-
deildinni. Liðið vann þá Söderham
öðru sinni í 8 liða úrslitum, nú 5:3.
Guðmundur lék tvo leiki og vann þá
báða, annan 3:0 og hinn 3:1. Malmö
mætir Halmstad í undanúrslitum.
DAVID Beckham, landsliðsfyrir-
liði Englands og leikmaður Real
Madrid, var orðaður við Arsenal í
enskum fjölmiðlum í gær. The Ob-
server fullyrti að Arsenal myndi
gera spænska félaginu tilboð í hann í
sumar. Arsene Wenger knatt-
spyrnustjóri Arsenal, sagði að vissu-
lega væri Beckham einn af mörgum
leikmönnum sem Arsenal myndi
vilja fá í sínar raðir, og hann hefði
mikið álit á honum, en það kæmi
ekki í ljós fyrr en í vor hvað félagið
myndi gera í leikmannamálum.
Arsenal var sterkari aðilinn í fyrrihálfleik og þá skoraði Thierry
Henry fyrsta mark leiksins og var
það dæmigert fyrir þennan snjalla
framherja. Hann fékk boltann á
vinstri kantinum frá Cesc Fabregas,
lék inn í vítateiginn og sneri boltann í
hornið fjær framhjá Reina mark-
verði Liverpool.
Luis Garcia jafnaði fyrir Liverpool
stundarfjórðungi fyrir leikslok og
dofnaði ekki yfir leiknum við það.
Xabi Alonso var rekinn af velli á 82.
mínútu og þótti flestum það mjög
strangur dómur. Henry var síðan
aftur á ferðinni mínútu síðar þegar
Steven Gerrard, fyrirliði Liverpool,
gleymdi sér eitt augnablik. Hann
ætlaði að gefa boltann til baka á
markvörð sinn af miðjum eigin vall-
arhelmingi en Henry var á bak við
varnarmenn liðsins, náði boltanum
auðveldlega og skoraði.
„Ég sá að Gerrard vissi greinilega
ekki af því að ég lúrði þarna fyrir aft-
an. Þetta tókst alveg og á fínum
tíma. Ég fagnaði markinu ekki mik-
ið, hélt um nefið til að sýna að ég
hefði þefað þetta uppi. Það er sárt
fyrir Gerrard að lenda í þessu og ég
vildi ekki núa salti í sárið. Mér fannst
við vera betra liðið í dag og sigurinn
því sanngjarn,“ sagði Henry eftir
leikinn.
Liverpool lék mun betur í síðari
hálfleik en þeim fyrri, mun meiri
hraði var í leik liðsins og meiri ógn-
un, en það dugði ekki að þessu sinni.
Með mörkunum tveimur jafnaði
Henry við Ruud van Nistelrooy en
báðir hafa kapparnir gert 19 mörk í
deildinni í vetur.
Rafael Benítez, knattspyrnustjóri
Liverpool, sagði að Steve Bennett,
dómari leiksins, hefði gert mistök.
„Það voru mikil mistök hjá dómaran-
um að reka Alonso af velli. Dómarinn
var ekki að fylgjast með því sem
gerðist og var of fljótur á sér að sýna
gula spjaldið og það rauða í kjölfarið.
Vonandi sér hann hversu mikil mis-
tök hann gerði þegar hann skoðar
leikinn af myndbandi,“ sagði Benít-
ez.
Dýrkeypt
mistök
Gerrards
ARSENAL fór upp í fimmta sætið í ensku úrvalsdeildinni í gær þegar
liðið lagði Liverpool 2:1 í bráðskemmtilegum leik á Highbury. Ars-
enal er stigi á undan Blackburn og tveimur á eftir Tottenham.
AP
Thierry Henry skorar hér síðara mark sitt í gær, eftir sendingu
frá Steven Gerrard, fyrirliða Liverpool.
ÍÞRÓTTIR
iður Smári Guðjohnsen var ekki
eikmannahópi meistaranna að
su sinni, en José Mourinho sagði
r leikinn að hann væri í mjög
njulegri stöðu því allir leikmenn
r væru heilir og að það væri í
ta sinn í langan tíma sem sú
a kæmi upp.
örð barátta um Evrópusæti
lackburn heldur ótrautt áfram
rgöngu sinni og ætlar greinilega
landa sér í baráttuna um sæti í
ópukeppninni. Liðið lagði Aston
a 2:0 á laugardaginn og er nú að-
þremur stigum á eftir Totten-
sem er í 4. sæti.
olton ætlar einnig að blanda sér í
sa baráttu, vann góðan 4:1 sigur á
t Ham og er í 6. sæti stigi á und-
Arsenal og stigi á eftir Blackburn
á tvo leiki á síðarnefnda liðið en
á Arsenal.
Fyrri hálfleikurinn var það besta
við höfum sýnt á þessu tímabili,“
ði Sam Allardyce, stjóri Bolton.
eygur
allas
litum
ar liðið lagði Tottenham að
li skoraði sigurmarkið á síð-
hans sérlega glæsilegt.
sdeildarinnar og er sem fyrr
sem á leik til góða.