Morgunblaðið - 31.03.2006, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 31. MARS 2006 C 3
bílar Mesta úrval landsins af
rafgeymum!
TUDOR
fyrir framtíðina!
Bíldshöfða 12 • 110 Reykjavík • Sími: 577 1515 • www.skorri.is
• Mælum rafgeyma.
• Skiptum um rafgeyma.ÞÓ AÐ akstursleikni, akstursöryggi
og allt þar á milli sé eitt helsta við-
fangsefni BMW-ökuskólans, þá felst
helsta aðdráttarafl hans ekki síður í
fræðslu um aksturseiginleika BMW.
Þrítugasta starfsár skólans er nú
nýhafið og hefur aðsóknin að honum
aldrei verið meiri.
Ekki hefðbundin ökukennsla
Í BMW-ökuskólanum – BMW Fahr-
er Training – fer ekki fram öku-
kennsla í hefðbundnum skilningi
þess orðs, heldur er markmiðið
fyrst og fremst að þjálfa ökuleikni,
með það fyrir augum að þátttak-
endur upplifi aukið akstursöryggi og
um leið akstursánægju. Mikil aðsókn
er að skólanum, sem er einn sá virt-
asti sinnar tegundar, með yfir
17.000 þátttakendur á ári. Nám-
skeiðsúrvalið er eftir því fjölbreytt,
en auk styttri byrjendanámskeiða er
boðið upp á námskeið í m.a. akst-
ursíþróttum og vetrarakstri, að
ógleymdum sérstökum æv-
intýraferðum sem farnar eru heims-
horna á milli á vegum skólans. Í ár
verður m.a. farið um Namibíu á
BMW X5 og Ítalíu á Z4 Roadster-
sportbílnum. Þá er skólinn einnig
með sérhæfðari námskeið í t.d.
sparakstri og BMW X aldrifinu.
Erfiðasta hraðakstursbraut heims
Höfuðstöðvar skólans eru í
München í Suður-Þýskalandi og
teygir starfsemin sig þaðan víða um
Evrópu, m.a. til Svíþjóðar, aust-
urrísku Alpanna og Salzburg. Við
hann starfa rúmlega 100 leiðbein-
endur auk verkfræðinga og annars
tæknimenntaðs starfsliðs, en inntak
kennslunnar miðast ekki aðeins við
að kenna fólki listina að aka rétt
heldur einnig að veita því innsýn í
aksturseiginleika BMW í öllu sínu
veldi. Hlutverk tækninnar kemur
einnig við sögu, hvernig hún virkar
og hvað hún gerir fyrir jafnt akst-
urseiginleika sem öryggi. Hraði
gegnir svo að sjálfsögðu lykilhlut-
verki í sumum tilvikum, eins og í
Fascination Racetrack-námskeiðinu,
þar sem þátttakendur glíma á rúm-
lega 500 hestafla BMW M5, við
margar af erfiðustu brautum Evr-
ópu, eins BMW-brautina og
Nürburgring-brautina.
Námskeið hér á landi
Ökuskóli BMW hefur komið nokk-
uð við sögu hér á landi, aðallega fyr-
ir milligöngu B&L. M.a. hefur um-
boðið gengist fyrir námskeiðum með
þekktum ökukennurum við skólann
með jöfnu millibili og er í því sam-
bandi skemmst að minnast X-drive
námskeiðsins sem fór fram þarsíð-
asta vor undir yfirskriftinni X-
dagurinn. Fleiri en B&L hafa þó átt í
hlut og hlaut t.a.m. sigurvegari í síð-
ustu akstursleikni ungra ökumanna
VÍS námskeið hjá skólanum að laun-
um. Námskeið BMW-ökuskólans eru
öllum opin, sem náð hafa 18 ára
aldri og eru með bílpróf. Algengasta
lengd þeirra er frá hálfum og upp í
tvo daga, á meðan sérhæfðari nám-
skeið geti tekið allt að átta daga.
Ökuskóli BMW hefur nú starfað í tæp 30́ ár. Markmið hans er að bæta ökuleikni.
Ökuleikni þjálfuð
í ökuskóla BMW
TENGLAR
..............................................
bmw.is
bmw.de/fahrertraining.
SG bílar, umboðsaðili B&L í Reykja-
nesbæ, opna um helgina nýjan 500
m² sýningarsal að Bolafæti 1. Af því
tilefni fylgja öllum nýjum bílum veg-
legur kaupauki eða aukahlutir að
eigin vali viðskiptavina fyrir kr.
100.000. SG bílar hófu starfsemi
fyrir tveimur árum að Brekkustíg og
boðar nýja húsnæðið að sögn Grét-
ars Ólasonar, annars eigenda, stökk-
breytingu fyrir starfsemina hvað að-
stöðu varðar, en heldur hafi verið
orðið þröngt um starfsemina á
gamla staðnum. „Þá er gaman að
geta þess, að þar sem SG bílar hófu
starfsemi 1. apríl 2004, þá eigum
við enn fremur tveggja ára starfs-
afmæli um helgina.“ Opnunarhátíð
SG bíla stendur bæði laugardag og
sunnudag.
Opnunarhátíð hjá
SG bílum um helgina