Morgunblaðið - 31.03.2006, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 31. MARS 2006 11
FYRSTU lotu formúluvertíðarinnar
lýkur um helgina með þriðja kapp-
akstri ársins í Melbourne í Ástralíu.
Að honum lokn-
um taka mótin í
Evrópu við; hinu
hefðbundna bak-
landi íþróttarinn-
ar.
Kappaksturinn
er sá 22. sem fram
fer í Ástralíu og
sá ellefti í Mel-
bourne. Fyrri 11
mótin fóru fram í
Adelaide á árunum 1985 til 1995 og
voru þá jafnan lokamót ársins. Eftir
flutninginn til Melbourne varð Ástr-
alíukappaksturinn að upphafsmóti
vertíðarinnar. Hlé varð þó á því í ár
vegna Samveldisleikanna í íþróttum.
Nú er tekið að „hausta“ hjá and-
fætlingum okkar og því verður ekki
eins mikill loft- og brautarhiti í
Melbourne og á fyrstu tveimur mót-
um ársins, í Barein og Malasíu.
Hvaða áhrif það mun hafa á getu ein-
stakra liða er stóra spurningin.
Samkvæmt veðurspám er gert ráð
fyrir að lofthiti verði að hámarki
17°C hvern hinna þriggja mótsdaga.
Tiltölulega skýjað verður og því mun
sólin ekki verma malbik brautarinn-
ar sem fyrr. Ökuþórar sem brúka
Bridgestonedekk undir bíla sína,
eins og heimamaðurinn Mark Web-
ber hjá Williams, yggla brúnir er
þeir rýna til veðurs þessa dagana.
„Við þurfum hita fyrir dekkin,“ sagði
Webber við blaðið Herald Sun. Og
óvænt segir í fyrirsögn á tilkynningu
Bridgestone og forspjalli um kapp-
aksturinn: „Haustið ætti að henta
Michelin.“ Þar vísar japanska fyrir-
tækið til ágætis frönsku dekkjanna
við þróunarakstur liðanna fyrstu tvo
mánuði ársins.
Mótið í Albertsgarði í Melbourne
2001 markaði nýtt upphaf þátttöku
Michelin i Formúlu 1 eftir 17 ára
fjarveru. Hefur fyrirtækið fagnað
sigri tvisvar á fyrstu fimm árunum.
David Coulthard hjá McLaren sigr-
aði og næstu tveir ökuþórar voru
einnig með Michelindekk undir bíl-
um sínum. Þá vann Giancarlo Fisi-
chella Renault-kappaksturinn í
fyrra.
Michelin er ósigrað í ár og mark-
mið verksmiðjanna er að vinna sinn
96. sigur í Formúlu 1 í Melbourne um
helgina. Takmarkið er að vinna 100.
sigurinn á árinu, en mótið í Malasíu á
dögunum var 200. kappakstur Mich-
elin í formúlunni frá upphafi.
„Eftir góða uppskeru í hitanum í
Barein og rakanum mikla í Malasíu
mætum við allt öðrum aðstæðum í
Albertsgarði. Við erum þó ekkert
uggandi því eins og við sýndum og
sönnuðum í fyrra vorum við ofan á
við margs konar aðstæður. Og í sam-
vinnu við samstarfslið höfum við þró-
að viðeigandi dekk – þau verða að-
eins mýkri en á undanförnum
tveimur mótum í þeim tilgangi að
auðvelda hitamyndun í þeim og lág-
marka slit. Alls munu liðin sex hafa
úr átta þurrdekkjagerðum að velja,“
segir Nick Shorrock, íþróttastjóri
Michelin.
Ástralskt haust ætti að henta Michelin
Reuters
Albertsgarðurinn í Melbourne. Ástralíukappaksturinn nú um helgina verður sá 11. sem fer fram þar í borg.
Mark Webber
FERNANDO Alonso hjá Renault er
fullur bjartsýni eftir góða byrjun á
tveimur fyrstu mótum ársins. Segist
hann sannfærður um að sér takist að
verja heimsmeistaratitil ökuþóra í
Formúlu 1.
Alonso vann fyrsta mót ársins, í
Barein, og varð í öðru sæti í því
næsta, í Malasíu, fyrir hálfum mán-
uði. Þar varð liðsfélagi hans Giancarlo
Fisichella fyrstur og sigur Renault því
tvöfaldur.
„Það er erfitt að lýsa tilfinningunni,
en eftir að hafa upplifað og séð hvað
bíllinn getur er ég í engum vafa um að
við getum unnið titilinn aftur. Bíllinn
er samkeppnisfær og á grundvelli
ágætis hans er ég sannfærður um að
við getum verið hraðskreiðir á næstu
16 mótum líka. Ég er mjög bjartsýnn
eftir fyrstu mótin tvö,“ sagði Alonso í
vikunni.
Hann gekk þó enn lengra í samtali
við útbreiddasta blað Þýskalands,
Bild. „Héðan í frá vil ég vinna öll
mót,“ hafði það eftir honum eftir
mótið í Sepang.
Fisichella bjartsýnn
Alonso hefur ráðið sig til að keppa
fyrir McLaren á næsta ári og Fis-
ichella kveðst staðráðinn í að neita
honum um þá skilnaðargjöf að hampa
aftur heimsmeistaratitli ökuþóra.
Heldur ætlar hann sér að vinna tit-
ilinn sjálfur.
„Ég sagði í vetur að takmarkið
væri að vinna titilinn í ár og mótin tvö
sýna að ég á möguleika á að standa
mig vel og slást um titilinn líka,“
sagði Fisichella. „Það er draumurinn
og takmark í ár. Ég held að Renault-
bílarnir verði mjög öflugir í Ástralíu og
þar ætla ég að keyra til sigurs,“ bætti
hann við.
Fisichella segir að þrátt fyrir ráðn-
ingu Alonsos til McLaren njóti hann
sjálfur einskis forgangs hjá Renault.
„Liðið kemur nákvæmlega eins fram
við okkur báða, bílarnir eru eins og
enginn er að pæla í næsta ári,“ sagði
Fisichella.
Burtséð frá innbyrðis keppni
Renaultþóranna virðist ljóst að Ren-
ault trónir á toppnum og önnur lið
verða að leggja það að velli til að kom-
ast þangað og vinna bílsmiðatitilinn
af franska liðinu.
Til kappakstursins í Melbourne í
Ástralíu um helgina mæta heims-
meistarar Renault með 13 stiga for-
skot á Ferrari og McLaren.
Alonso sann-
færður um
að hann haldi
titlinum
Reuters
Renault ökuþórinn Fernando Alonso á leiðinninn út á brautina í Sepang. Fast á
hæla hans er liðsfélagi hans og keppinautur hans Giancarlo Fisichella. Notaðir Bílar - Bíldshöfða 10587-1000 - Bílasalan SkeifanTilboð kr. 4.595.000,-
Nýskráður 1.2005
Sjálfskiptur, loftkæling, leðuráklæði, sóllúga,
dökkar rúður, hraðastillir, Bose hljómtæki
rafdrifin sæti, auka dekkjagangur á álfelgum
minni í sætum, o.m.fl.
Ásett verð kr. 5.100.000,-
Infinity FX35 (280 hö.)